Morgunblaðið - 14.05.1960, Síða 1

Morgunblaðið - 14.05.1960, Síða 1
20 síður Halvard Lange boðar 12 mílna fískveiðilandhelgi viö Noreg Gert ráð fyrir sersamningum um undanþácfur fyrir erlenda fiskimenn c Brezkir togaramenn áhyggjufullir Ósló, og London, 13. mat. — (NEB-Reuter) UTANRÍKISRÁÐHERRA Noregs, Halvard Lange, lýsti því yfir í Stórþinginu í dag, að fiskveiðilandhelgi Norðmanna mundi færð út í 12 mílur. Norðmenn hafa haft 4 mílna land- helgi, sem kunnugt er. — Lange sagði, að stjórnin teldi ekki verjandi að draga lengur að færa út fiskitakmörkin, eftir að sjóréttarráðstefnan í Genf fór út um þúfur. — Brezkir tog- araeigendur hafa þegar lýst því yfir, að þeir líti alvarlegum augum á þessa ákvörðun Norðmanna — og brezka stjórnin er talin áhyggjufull. * TIL AÐ VERNDA FISKIMENNINA Halvard Lange sagði, að norska stjórnin væri „mjög von- svikin yfir því, að enn einu sinni hefði mistekizt að ná samkomu lagi um fiskveiðilandhelgina Hann bætti því við, að ekki virt- ust neinar horfur á, að slíkt sam- komulag næðist í fyrirsjáanlegri framtíð. — „Með tilliti til þessa ástands ‘, sagði ráðherrann, „tel- ur stjórmn ekki lengur verjandi að draga að færa út fiskitak- rnörkin". „Stjómin mun nú gera nauð- synlegar undirbúningsráðstafan- ir til þess að færa fiskveiðiland- helgina út í 12 mílur“, sagði Lange. Kvað hann þessa ákvörð- un tekna til þess að auðveldara væri að „vernda fiskimenn okk- ar við ströndina fyrir erlendum togurum, sem árlega valda miklu netjatjóni — og til þess að tryggja afkomu fiskimannanna í framtíðinni. ■k ERFIÐLEIKAR Ráðherrann kvað ríkis- Hikar Dennis Welch ? Grimsby, 13. maí. — Einkaskeyti frá frétta- ritara Mbl. — EFTIR fund í félagl yfir- manna á togurum hér í Grimsby í dag er talið, að boðað verkfall á togurun- um muni skella á hinn 15. þ.m. — en formaður félags ins, Denis Welch, lét þó svo um mælt, að allt verði gert sem verða má, til þess að ná samkomulagi, svo að komið verði í veg fyrir að skipin stöðvist. Á sunnudag verður ann- ar fundur haldinn, og mun þar tekin lokaákvörðun í málinu — en verkfallið kemur raunverulega ekki til framkvæmda fyrr en á mánudag, þann 16., þar sem togararnir leggja aldrei úr höfn á sunnudegi. stjórninni vera Ijóst, að slík víkkun fiskilandhelginnar mundi hafa í för með sér „al- varlega erfiðleika fyrir fiski- menn annarra landa, sem stunda veiðar á norskum mið- um milli 4 og 12 mílna. — Til þess að auðvelda þessum fiski mönnum að laga sig að hin- um nýju aðstæðum, er ríkis- stjórnin fús að hefja viðræð- ur við erlend ríki um sann- gjörn frávik“ frá nýju regl- unum. Framh. á bls. 19 Halvard Lange Kvennagullið Ali Khan dó í bílslysi París, 13. maí. (Reuter). ALI KHAN prins, aðalfulltrúi Pakistans hjá Sameinuðu þjóðun um, fórst í bílslysi hér í borg sl. nótt. Lagskona prinsins, hin fagra „ljósmyndafyrirsæta“ og tizkusýningardama Bettina, meiddist lítils háttar og fékk taugaáfall. — Ali Khan var son- ur hins fræga trúarleiðtoga Aga Khans, og faðir Karims, núver- andi Aga Khans og andlegs leið- toga milljóna Ismaili Múhaðmeðs trúarmanna. ★ Ali Khan var öllu þekktari sem mikill samkvæmismaður en „diplomat", þótt hann gegndi fyrrgreindu starfi hjá Sameinuðu þjóðunum fyrir land sitt. — Hann var tvíkvætur. Fyrri kona hans var brezk, Joan Yarde-Buller Guinness. Áttu þau tvo syni. Síð- ari konan var kvikmyndaleikkon an Rita Hayworth, og áttu þau eina dóttur. Bæði hjónaböndin enduðu með skilnaði. Prinsinn var hið mesta kvennagull og titt nefndur í slúðurdálkum blað- anna, orðaður við hinar og þess- ar frægar konur. Ali Khan var sjálfur við stýrið, er slysið varð. Hann var að aka fyrir horn, er annar bíll kom á móti honum — og varð árekstri ekki forðað- Njósnavélin var á leið til Bodö Mótmælaorðsendingar ganga á vixl Ósló, 13. maí. — (Reuter-NTB) Þ A Ð er nú ljóst orðið, að bandanska flugvélin U-2, sem skotin var niður yfir Sovétríkjunum 1. maí, átti að fara til Norður-Noregs og lenda á Bodö-flugvellinum. Halvard Lange, utanríkisráð- herra, skýrði Stórþinginu frá þessu í dag, um leið og hann sagði frá því, að norska stjórnin hefði sent Banda- ríkjastjórn mótmæli út af máli þessu. 9 Vakti undrun Þingheimur hlýddi þögull Og undrandi á yfirlýsingu Langes, enda hafði sendiherra Noregs í Washington haft það eftir Herter utanríkisráðherra sl. mánudag, að umrædd flug- vél hefði ekki átt að lenda á Bodö. — Talsmaður sendi- ráðs Bandaríkjamanna hér neitaði að segja nokkuð um málið í dag — og sömu sögu var að segja í Washington. Áreiðanlegar heimildir telja, að þessi nýja vitneskja sé hins vegar komin frá banda- rískum stjórnarvöldum. — ★ — Lange kvaðst hafa farið fram á, að Bandaríkin gerðu nauðsyn- legar ráðstafanir til að tryggja, að atburðir sem þessi endurtæki sig ekki — þ. e., að njósnaflug- vélum væri ætlaður lendingar- staður í Noregi. Hann lét í ljós að skiljanlegt væri að atburður þessi hefði vakið gremju í Rúss- landi, en mótmælti þeim hótun- um, sem ábyrgir, sovézkir stjórn málamenn hefðu beint að Norð- mönnum í þessu sambandi. • Mótmæli frá Moskvu Norsku stjórninni barst mót- mælaorðsending frá Moskvu í dag, þar sem segir m. a. „Sovét- stjórnin mótmælir við norsku stjórnina, að erlendum hernaðar- f'ugvélum skuli veittar aðstæður til að nota norskt land til und- irbúnings og skipulagningar „inn rásar" yfir Sovétríkin". Orðsend- ingin er til athugunar hjá sér- fræðingum norsku stjórnarinn- ar. Framh. á bls. 19 ÞETTA kort er af norður- og norðvesturströnd Noregs og miðunum undan strönd- inni. — Á kortið eru dreg- ar grunnlínurnar, 4 mílna landhelgismörkin og 12 mflna mörkin, sem Norð- menn hyggjast nú taka upp. — Nær hún út í mörk landgrunnsins á stórum svæðum. Njósnaflugið i Rússum svarað London, 13. mai — (Reuter) — S V A R utanríkisráðuneytis Bandaríkjanna við mótmæla- orðsendingu Rússa út af njósnafluginu 1. maí var af- hent í Moskvu í gær. Er fyrst og fremst lögð áherzla á það í svarinu að flug U-2 vélar- innar hefði alls ekki verið farið í „árásartilgangi“ — heldur nafi hér einungis verið um varúðarráðstöfun að ræða. Moskvuútvarpið og TassfréHastofan hafa í dag fordæmt svar þetta, og kall- aði fréttastofan það „alger- lega andstætt heilbrigðri skynsemi“. Að sögn Moskvu- útvarpsms hafa verið haldnir fjöldafundir víðs vegar um Sovétríkin í dag til þess að mótmæla njósnaflugi Banda- ríkjamanna. — ★ — Bandaríska utanríkisráðuneyt- ið neitaði því í orðsendingu sinni, að ætlunin með flugi U-2 vélarinnar hafi verið sú að spilla Frah. á bls. 18

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.