Morgunblaðið - 14.05.1960, Side 18
18
MORCVNBLAÐ1Ð
Laugardagur 14. maí 1960
Helgi Daníelsson stöðvar eitt aí upphlaupum Reykvíkinga, sem sækja fast.
Ellert Schram bjargadi
sigri Reykjavíkur
Skoraði tvö mörk með skalla
Pele segir
Verða sem smjör
í höndum Dana
FRAMMISTAÐA DANA í kappleiknum gegn Brazilíu á dögunum
hefur vakið mikla athygli — og Danir eru að rifna af monti. Lið
Brazilíu, heimsmeistaraliðið, varð að taka á í þessum leik. Danir
'Harakl Nielsen) skoruðu fyrsia markið og þá var keppnisgleðin
fengin. — ,
EPLAUST má telja að marg-
ir hafi farið á völlinn í fyrra-
kvöld fullvissir um það að
Reykjavík myndi vinna auð-
veldan sigur yfir Skagamönn
um, sem misst hafa stjörn-
urnar sínar. — En eftir að
leikurinn hófst kom fljótlega
í ljós að andi Ríkarðs Jóns-
sonar og handbragð hans er
enn aðaleinkenni liðsins. Og
varð kraftur, flýtir og bar-
áttuvilji liðsins þess vald-
andi, að liðið veitti Reykjavík
það mikla keppni, að réttmæt
úrslit hefðu verið jafntefli.
* OF MIKILL HRAÐI
Reykjavík byrjaði vel og á
fyrstu mín. leiksins á Þórólfur
skot í þverslána. Akurnesingar
svara þessu með tveim laglegum
upphiaupum, sem vörn Reykja-
v.'kur hrindir af sér. Leikurinn
er hraður og á Reykjavík frum-
kvæðið. Á 5. mín. er dæmt hom
á Akranes, sem þó ekkert verður
úr. — Framlína Reykjavíkur
vinnur vel saman og létt yfir
henni. Skiptingar góðar, en hrað-
inn heldur mikill.
Er 10 mín. eru af leik fær
Akranes dæmt horn á Reykja-
vík. Upp úr hornspyrnunni hefja
Reykvíkingar aftur sókn og eiga
skemmtileg upphlaup. Jón
Magnússon sendir til Arnar og
Örn miðjar til Ellerts, sem er á
of miklum hraða til að geta
hamið knöttinn og Bergsteinn,
sem kemur aðsvífandi misreikn-
ar og missir af knettinum. Skaga
menn hrinda sókninni og hefja
gagnsókn, sem fullvissar menn
um að Skagamenn eiga enn
mikil ítök hjá vallargestum, því
slík eru fagnaðarlæti áhorfenda.
Reykjavík hrindir þó sókninni
og á 15. mín. er dæmd horn-
spyma á Akranes.
* REYKJAVÍK
SKORAR, 1:0
Bergsteinn spyrnir vel
fyrir markið og Ellert kemur
þrunandi og skallar knöttinn
niður í jörð, með þeim afleið-
ingum að knötturinn hoppar
yfir fót varnarleikmanns
Akraness og inn í markið. —
1:0 fynr Reykjavík og liðs-
menn Reykjavíkur fagna EU-
ert innilega.
Á 22. mín. skallar Þórólfur
að Skagamarkinu frá vítateig og
landsliðsmarkmaðurinn ver auð-
veldlega. Reykjavík heldur enn
sókninni, en stöðubreytingar
veikja framlínuna. Nokkrum
mínútum síðar misreiknar Jón
Magnússon herfilega sendingu
frá Þórólfi eftir innkast frá
Erni. Jón var ekki viðbúinn send
ingunm og þar með fór gott
marktækifæri út í veður og vind.
★ AKRANES JAFNAR, 1:1
Er 27 mín. eru af leik eru
Skagamenn í sókn og Þórður
Jónsson fær knöttinn sendan
frá Arna Njálssyni inn í miðj-
an vítateiginn! Nokkur þvaga
og pressa er við markið, og
hafnar knötturinn að Iokum
af fæti Árna Njálssonar í
marki Reykvíkinga.
★ SKAGAMENN EFLAST
Við markið færist mikið fjör
í Skagamenn og á 30. mín. fá
þeir horn á Reykjavík, sem
Þórður Jónsson tekur, og Skuli
spyrnir yfir þverslá. Síðar fá
Skagamenn aukaspyrnu á Rvik.
Sveinn Teitsson tekur spyrnuna
út við miðjan völl og sendir fast
skot að marki Reykjavíkur, sem
Björgvin ver upp við þverslá.
Akranes er í meiri sókn það sem
eftir er hálfleiksins. Egill rakari
heyrist kalla: „Upp með KR-
spilið“ og honum er svarað: „Það
er orðið úrelt“.
■k SKAGAMENN HERÐA
SÓKNINA
í upphafi síðari hálfleiks
eiga Skagamenn þrjú góð upp-
hlaup sem nýtast ekki. Akur-
nesingar leika hratt og fjörlega
og eru 1 meiri sókn. Virkastir
eru Ingvar og Þórður Jónsson.
★ REYKVÍKINGAR HRINDA
SÓKNINNI
Er 15 mínútur eru af síðari
hálfleik eru Reykvíkingar farnir
að hrinda af sér sókn þeirra
Skagamanna og á 15. og 22. mín.
er horn dæmt á Akranes, sem þó
skapast engin hætta úr.
Það dofnar töluvert yfir leikn-
um um tíma og leikið er mest
um miðbik vallarins. — Ormar
Skeggjason verður að yfirgefa
völlinn vegna höfuðmeiðsla, er
15 mínútur eru eftir af leik og
í hans stað kemur Guðjón Jóns-
son, Fram.
* ELLERT SKORAR
SIGURMARKIÐ
Er 10 mínútur eru eftir er
dæmt eitt hornið enn á Akra-
nes og Jón Magnússon spyrn-
ir vel fyrir og Ellert skallar
í mark, upp undir þverslá. —
2:1 fyrir Reykjavík.
k EINSTEFNUAKSTUR
Eítir þetta mark er eins
og kraftur fari úr Skaga-
mönnum og þær mínútur sem
eftir eru sýna Reykvíkingar
oft laglegan samleik og sækja
látlaust að marki Skaga-
manna. Sóknin var svo áköf
að Árni Njálsson og Hreiðar
Ársælsson áttu báðir skot á
Akranesmarkið á síðustu
NÆSTKOMANDI mánudags- og
miðvikudagskvöld efnir Náttúru-
lækningafélags Islands til mið-
næturshljómleika í Austurbæjar-
bíói. Hljómleikarnir eru liður í
fjáröflun fyrir heilsuhælisstarf-
semi félagsins í Hveragerði, en
auk þeirra hefir félagið hrundið
af stað öflugu happdrætti með 10
vinningum, þ. a. m. Volkswagen-
bifreið og ferðum til New York
og Hamborgar.
k Amerísk hljómsveit
Á hljómleiknunum í Austur-
bæjarbíói kemur fram amerísk
hljómsveit skipuð 14 mönnum.
Hljómsveitin ber nafnið Red
Danir koma á óvart
Pele, innherji ,einn frægasti
knattspyrnumaður heims nú,
sagði á eftir, að möguleikar Dana
í úrslitakeppni Olympíuleikanna
hlytu að vera miklir. Með því
spili sem landslið Dana sýndi nú,
munu landslið flestra þjóða fá
við ramman reip að draga er peir
mæta Dönum.
„Danir komu mér mjög á ó-
vart“ sagði Pele. „Þeir brutu á
köflum leiksins allt okkar spil,
því þeir höfðu baráttuvilja og
flýti. Við höfum ekki á þessari
ferð okkar mætt erfiðara liði“.
Þetta lið Brazilíu er skipað
atvinnumönntum og mætir því
ekki i Róm. Þar mæta áhuga-
menn Brazilíu og Pele sagði
að það lið „yrði eins og smjör
í höndunum á þessum áhuga-
mönnum Dana“. Pele hrósaði
Larsen í 8. sæti
DANSKI stórmeistarinn í skák
Bent Larsen hefir nýlega tekið
þátt í alþjóðaskákmóti í Sara-
jevo í íúgóslavíu og varð í 8.-—9.
sæti, en 12 keppendur tóku þátt
í mótinu. Röð efstu keppenda var
sem hér segir: 1.—2. Pachman,
Tékkóslóvakíu og Puc, Júgó-
slavíu 7% v., 3. Matulovic Júgó-
slavíu 7 v., 4. Dr. Trifunovic
Júgóslavíu 614 v., 5.-6. Ivkov og
Udovic Júgóslavíu 6 v.
Forsters Esquires Orchestra og er
frá 519 deild ameríska flughers-
ins, sem er á Keflavíkurflugvelli.
★ Æft vel
Eftir upplýsingum hljómsveit-
arstjórans Red Foster hefir hljóm
sveitin æft vel fyrir þessa hljóm
leika en meginþorri hljóðfæra-
leikaranna eru reyndir hljóm-
leikamenn, sem hafa um árabil
leikið í danshljómsveitum.
Hljómsveitarstjórinn Red Fost
er hefir leikið á sexophone í 33
ár. Síðastliðin 18 ár í hernum, en
þar áður í 10 ár með amerískum
hljómsveitum og ferðast um 44
fylki Bandaríkjanna í hljómleika
mest Harald Nielsen og
Flemming Nielson.
Góður hagnaður
Leikurinn var mjög vel heppn-
aður. 50300 manns keyptu sig inn.
og fleiri komust ekki inn. Brazil-
íumenn höfðu samið upp á 112.
000 kr. (danskar) fastagreiðslu
og 50% af ágóðanum. Og áður en
ágóði myndast verður völlurinn
að fá sitt. — Ágóðinn nam um
60 þús. d. kr., sem skiptist í
tvennt. Brazilíumenn fóru því
með um 142 þús. d. kr. og Danir
fengu 30 þús. kr. danskar — og
eru hæstánægðir.
Dallas Long, sem er einna sig-
urstranglegastur þeirra er berj
ast við 20 metrana.
ferðalögum. Arið 1941 var mikil
eftirspurn eftir hljómsveitarstjór
um til að leika fyrir hermenn
bar.damanna og stytta þeim þann
ig stundir og var Red Foster
einn af mörgum, sem réðust í
þjónustu hersins, en síðasta
hljómsveitin, sem hann lék með
var hljómsveit Sonny Dunham,
sem var um þann tíma mjög
þekkt í New Yortk og víðar.
k Tenór frá Suður-Dakota
Með hljómsveitinni kemur fram
tenór frá borginni Sioux Falls í
Suður-Dakota, Dean Schultz að
nafni. Dean Sohultz hefir sungið
í léttum Öperum í heimaborg
sinni, þar á meðal aðalhlutverkið
í Martha eftir Flotow og emnig
hlutverk ljóðskáldsins í Song of
Norway. Á hljómleikunum í
Austurbæjarbíói mun Schultz
syngja: I believe, — He, — og
Without a song.
Einnig kemur fram á hljóm-
leikunum harmoníkusnillingur-
inn Elex Urban og leikur hann
meðal annars Popular Medly,
Beer Barrel Polka og Liechten-
steiner Polka.
Fjölbreytt efnisskrá
Efnisskrá hljómsveitannnar er
mjög fjölbreytt og víða komið
vxð á sviði dans og dægurlaga.
Efni er augsýnilega valið til þess
að hver fái sinn skammt, á hvaða
aldri sem hlustandinn er. Duke
Ellington útsetningin af Caravan
er fyrsta verkefnið, en síðan er
Danny Boy, Sex Cantabile,
Bamtío, Fat Man Boogie, Un-
decided, The Blue Cha Cha
Tequila, Night Train og Every-
body loves my baby og að lok-
um kynningarlag hljómsveitar-
iiinar.
Framh. á bls. 19
Red Forsters Esquires sveitin.
Amerísk hljómsveit
á miðnæturtónleikum
Náttúmlækningafélagið fær ágóða
skemmtananna