Morgunblaðið - 06.07.1960, Side 1
24 síður
47. árgangur
150. tbl. — Miðvikudagur 6. júlí 1960
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Verkfallinu afstýrt
Vinnustöðvun hindruð
með bráðabirgðalögum
er slitnað hafði upp úr
sáttatilraunum.
Verkfall hefði stefnt framtíð
flugfélaganna í hættu og stór-
spillt samkeppnisaðstöðu þeirra
Sykurflutningar frá
Kúbu stöövaðir
— Aðgerða Eisenhower forseta beðið
WASHINGTON, 5. júlí Reuter:
Landbúnaðarráðuneyti Banda-
ríkjanna hefir fyrirskipað að
stöðva flutning 740 þús. lesta af
sykri frá Kúbu, sem það hafði
pantað. — Ráðuneytið tók þetta
skref nú þegar, þar sem búizt
er við, að Eisenhower beiti þá
og þegar heimild þeirri, sem
þingið veitti honum, til þess að
m;nnka eða stöðva sykurkaup
fra Kúbu. — Sagt er, að Kúbu-
menn hafi ætlað að koma
75.0K0 lestgm af sykri til Banda-
rikjanna hið snarasta — áður
en Eisenhower léti til skarar
skríða.
• 19 olíuskip frá Rússlandi
Milljdnatap
ef verkfall hefði orðið
Það var upplýst í Havana í dag,
að í júlí munu nitján tank-
skip flytja samtals 200 þús. lest-
ir af hráolíu frá Svartahafshöfn-
um til Kúbu. — Hið fyrsta þess-
ara skipa kom hingað í gær með
10 þús. lestir.
• Bretar og Bandaríkjamenn
mótmæla
Brezka stjórnin sendi stjórn
Fidels Castros í dag harðorð mót-
mæli vegna eignarnáms Shell-
olíuhreinsunarstöðvanna á Kúbu,
og kvaðst áskilja sér ailan laga-
legan rétt í því alvarlega máli.
— 1 orðsendingunni var jafn-
framt skorað á Kúbustjórn að
hverfa frá eignarnáminu og leyfa
Shell-stöðvunum að starfa áfram
á sama grundvelli og áður.
Bandaríki hafa einnig sent
Kúbustjórn harðorð mótmæli
vegna eignarnáms Esso- og
Texaco-olíustöðvanna.
Fyrir skömmu ferðaðist
leiðtogi frelsishreyfingar
Njassaiands, dr. Hastings
Banda, um land sitt og var á-
kaflega hylltur. — Á þessari
mynd sést dr. Banda, í miðju,
ásamt Orton Chirwa, en hann
hefir verið annar aðalleiðtogi
innborinna manna í Njassa-
landi og er eini lögfræðingur-
inn i þeirra hópi. Loks sést til
vinstri á myndinni Kanyama
Chiume, sá hinn sami og
hingað kom í febrúar sl. vet-
ur til þess að kynna mál dr.
Panda ,sem þá sat í fangelsi í
Suðár Ródesíu.
70 þús. hl.
Íslondssíldtu
Kristiansund, Noregi,
í DAG komu hingað fjórir herpi-
nótabátar með síld frá íslands-
miðum. Var afli þeirra frá 2500
og upp í 3000 hl. Flutningaskip-
kom einnig með um 5000 hl. síld-
ar. Síldinni var landað til
bræðslu. Einn af bátunum þrem-
ur landaði nú öðru sinni íslands-
síld, og er afli hans þá orðinn
6000 hl. — Það, sem af er sumri
hafa borizt nær 70000 hl. af síld
til Kristiansund af íslandsmiðum.
Forsetakosningarnar í USA;
Johnson gefur
kost
a ser
SÍÐDEGIS í gær var
sýnt að ekki mundi ganga
saman í deilu flugmanna
og flugfélaganna og hætti
sáttasemjari, ríkisins
Torfi Hjartarson þá til-
raunum sínum til að
sætta deiluaðila, en eins
og kunnugt er höfðu sátta
umleitanir staðið yfir
undanfarna daga og langt
fram á nætur.
Til þess að koma í veg
fyrir stórfellt tjón af völd-
um vinnustöðvunar, sem
átti að hefjast kl. 12 á
miðnætti sí. hjá báðum
flugfélögunum ákvað
ríkisstjórnin að leggja til
við forseta íslands að
hann setti bráðabirgða-
lög um að flugmönnum sé
óheimilt að hefja verk-
fallið. Gildir sú ákvörðun
til 1. nóvember n.k. For-
seti íslands gaf bráða-
birgðalögin út á tíunda
tímanum í gærkvöldi.
Fara þau hér á eftir:
FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Ríkisstjórnin
hefur tjáð mér, að Félag ís-
lenzkra atvinnuflugmanna
hafi boðað til vinnustöðvunar
hjá íslenzkum atvinnuflug-
mönnum frá og með 6. þ. m.
að tclja.
Komi slík vinnustöðvun til
framkvæmda, myndi hún
valda algerri stöðvun á flugi
þeirra tveggja íslenzkra flug-
félaga, sem halda uppi reglu-
bundnu áætlunarflugi, en
rekstrarafkoma félaga þess-
ara mun ekki þola slíka
stöðvun nú og væri framtíð
þeirra teflt í mikla hættu, ef
starfsemi þeirra væri þannig
stöðvuð.
Slík stöðvun myndi nú, er
þúsundir erlendra ferða-
manna hafa pantað far hjá fé-
lögum þessum, verða flugfé-
iögunum og þjóðinni allri
álitshnekkir og stórspilla sam
keppnisaðstöðu íslenzkra flug
félaga á alþjóðavettvangi.
Loks myndi stöðvun á starf
semi flugfélaganna, þar með
á flugi á innlendum flugleið-
um, valda innlendum aðilum
tilfinnanlegum óþægindum
og tjóni.
Því telur ríkisstjórnin, að
brýna nauðsyn beri til að
koma í veg fyrir framan-
greinda stöðvun á starfsemi
íslenzkra flugfélaga.
Fyrir því eru hér með sett
bráðabirgðalög, samkvæmt
28. gr. stjórnarskrárinnar, á
þessa leið:
1. gr.
Óheimilt skal að hefja verk
fall það, sem Félag íslenzkra
atvinnuflugmanna hefur boð-
að til hjá íslenzkum atvinnu-
flugmönnum 6. júlí 1960, svo
og aðrar slíkar vinnustöðvan-
ir hjá íslenzkum atvinnuflug-
mönnum, fyrir 1. nóvember
1960.
2. gr.
Fara skal með mál út af
brotum gegn lögum þessum
Framh. á bls 2.
Flugsamgöngurnar eru orðnar
það mikilvægur þáttur í daglegu
lífi Islendinga, að erfitt er að
gera sér grein fyrir afleiðingun-
um af stöðvun flugflotans.
Flugvélar Flugfélags íslands
fljúga frá Reykjavík til 17 staða
úti á landi og auk þess milli
staða á landsbyggðinni. Að und-
an íöinu hafa að meðaltali verið
fiuttir um 300 farþegar innan-
lands og samkvæmt reynzlu lið-
inna ára fer nú í hönd mesti anna
tíminn í innanlandsflugi — og
víða um land treystir fólk nú
orðið nær eingöngu á flugferðir
til fólks- og póstflutninga.
Árangurinn að koma í ljós
Sama máli er að gegna um
millilandaflugið. Mesti anna-
tíminn er nú að hefjast, og er
sýnt, að millilandaflugvélar
beggja flugfélaganna verði nær
fullsetnar fram til hausts. Þar
er um að ræða 10 vikulegar ferð-
ir fram og til baka milli íslands
og Evrópulanda hjá Flugfélagi
íslands — og 8 vikulegar ferðir
Loftleiða fram og til baka milli
Evrópu og N.-Ameríku.
Jafngildir það því, að félögin
flytji yfir tvö þúsund farþega
miíli íslands og Evrópulanda —
Framhald á bls. 23
Washington, 5. júlí (Reuter).
LYNDON JOHNSON frá Texas,
leiðtogi demókrata í öldunga-
deild Bandaríkjaþings, lýsti því
yfir á blaðamannafundi í dag, að
hann mundi leita eftir útnefningu
sem forsetaefni demókrata á
flokksþinginu í Los Angeles í
næstu viku.
Aðrir, sem helzt koma til
greina sem forsetaefni demðknrta
eru þeir John Kennedy frá Mass
achusetts og Sóuart Symington
frá Missouri. — Johnson er 52 ára
að aldri.
Nixon varaforseti er af flest-
um talinn öruggur um að hljóta
útnefningu sem forsetaefni repú
blikana, er þing þeirra verður
haldið í Chicago 25. þ.m.