Morgunblaðið - 06.07.1960, Síða 24

Morgunblaðið - 06.07.1960, Síða 24
Picasso Sjá bls. 10 0?gutil>!a!frt$ 150. tbl. — Miðvikudagur 6. júlí 1960 Íbróftasíðan er á bls. 22. Hermerm ákærðir fyrir nauðgun LiAUST eftir miðnætti í fyrri- nótt kærði íslenzk stúlka tvo bandaríska hermenn fyrir árás og nauðgun. Tók íslenzka lögreglan á Keflavíkurflug- velli við kærunni, en atburð- irnir áttu sér stað við íbúðar- blokkir hermanna þar á vell- Víð förum að lögum KL. 11 í gærkvöldi kom mið- stjórn Alþýðusambands ís- lands saman til fundar. Var þar rætt um bráðabirgðalögin og flugmannadeiluna. Stóð fundurinn enn yfir er blaðið fór í prentun. Fyrr um kvöldið er samn- inganefnd og trúnaðarmanna- ráð atvinnuflugmanna var á fundi á skrifstofu lögfræðings félagsins, Sveinbjarnar Dag- fínnssonar, ruddist Hannibal Valdimarsson þar óboðinn inn og hóf þar yfirheyrslur yfir fundarmönnum. Af erindis- lokum hans þar fara ekki sög- ur. Mbl. átti nokkrn eftir mið- nætti i gærkvöldi stutt sam- tal við lögfræðing flugmanna, sem þá var á fundi með þeim og kvaðst hann hafa lítið um málið að segja, en bætti þó við: „Við förum að sjálfsögðu að lögum". inum og í þeim. Stúlkan var með áverka, sem sýndu að hún hafði átt í útistöðum. 0 Mennirnir fundnir íslenzka lögreglan á Keflavík- urflugvelli hóf þegar rannsókn í málinu. Gat stúlkan vísað á hermennina og voru þeir teknir og settir í fangageymslur herlög- reglunnar, sem aðstoðar islenzku lögregluna við rannsókn máls- íns. 0 Ekki á einu máli Málið var tekið fyrir á skrif- stofu lögreglustjórans á Kefla- víkurflugvelli. Stóðu réttarhöld yfir hermönnunum í gærkvöldi. Fulltrúi lögreglustjóra, Þorgeir Þorsteinsson, sem hafði yfir- heyrslur á hendi, tjáði blaðinu laust fyrir miðnætti í nótt, að annar hermannanna hefði verið yfirheyrður. Hafði stúlkan ásakað hann um líkamsárás. Hermaðurinn viður- kenndi að hann hefði verið sam- vistum við stúlkuna, en kvað til átakanna milli þeirra stofnað á ailt öðrum grundvelli, en stúlkan sagði. Hinn hermaðurinn, sem stúlk- an ásakaði um nauðgun, hafði ekki verið yfirheyrður, er blað- ið fór í prentun. Kvað fulltrúi lögreglustjóra honum mundi leyft að tjá sig um aðalkæruatrið ið í gærkvöldi, en síðan yrði rétti frestað þar til í dag. Stúlkan, sem um ræðir, verður tvítug á þessu ári. Myndin sýnir þýzka skemmtiferðaskipið Ariadne frá Hamborg, sem liggur á Reykjavíkurhöfn. — Skipið er með 250 farþega. Það heldur héðan á hádegi í dag áleiðis til Akúreyrar. (Ljósmynd: Sveinn Þormóðsson) Allt flug hœtti í með dag ÞAÐ var mikið að gera hjá Flugfélagi íslands í gær- kvöldi, því fram eftir kvöldi var reiknað með vérkfalli flug manna og allar áætlanir mið- aðar við að það skylli á um miðnætti í nótt. Þetta breyttist þó er það fréttist, að ekki yrði af verk- fallinu og voru innanlands- áætlanir þá endurskipulagð- ar. — Drangajökulsslysið óskýrt enn I GÆR lauk sjóprófum út af Drangajökulsslysinu. Fyrstur kom fyrir réttinn Sveinbjörn Síðustu fréttir: Stjórn Alþýðusam- bandsins mótmælir KLUKKAN um tvö í nótt lauk stjórn Alþýðusambands- ins fundi sínum. Samþykkti fundurinn eftirfarandi yfirlýs ingu: „Miðstjórn Alþýðusam- bands íslands hefur á fundi sínum rætt um bráðabirgða- lög ríkisstjórnarinnar, sem banna boðað verkfall atvinnu flugmanna. Miðstjórnin mót- mælir harðlega setningu þess ara bráðabirgðalaga og lýsir yfir því, að hún telur laga- setninguna óréttmæta og harkalega árás á helgasta rétt verkalýðssamtakanna. Skorar miðstjórnin því á ríkisstjórn- ina að nema lögin þegar úr gildi“. Til plónetonna ó þessori öld NEW York: — Hinn frægi eðlis- fræðingur, dr. Edward Telier, hefir látið svo um mælt í fyrir- lestri, sem hann hélt í Los Angel- es, að menn muni áreiðanlega ferðast til tunglsins og reikistjarn anna þegar á þessari öld. Eðlisfræðingurinn ræddi einnig jtpokkuð um möguleika á lííi á öðrum hnöttum, t.d. í Andromeda stjörnuþokunni. Hann sagði m. a.: — Er e. t. v. mögulegt, að þar þróist lífsform, sem við mundum varla kannast við sem líf? Er það ekki jafnvel líklegra, að við hérna í Vetrarbrautinni okkar sé um aðeins eins konar úthverfa- búar — á hjara alheimsins? Erlendsson II. véistjóri. Hann taldi að tankar hefðu verið tæmd ir áður en látið var úr síðustu hófn erlendis. Gaf hann skýringu á fyrirkomulagi á botntönkum. Þá lýsti hann því yfir að vél- stjóri sá er á vakt var, er slysið bar að, hafði verið samvizku- samur og góður starfsmaður. Sjáifur kvaðst II. vélstjóri hafa unnið að tæmingu botntanka, áður en lagt var úr höfn. Sendi út neyðarskeytin Þá kom Bjarni Sigurðsson loft- skeytamaður fyrir réttinn. Hann lýsti störfum sínum er siysið bar að höndum, en hann sendi neyð- arskeytin frá skipinu. Síðastur kom Þórður Geirsson bátsmaður fyrir réttinn. Hann kvað skipið hafa látið vel að stjórn áður en slysið bar að hönd um. Hann kvaðst sjálfur hafa framkvæmt mælingar á botn- tönkum skipsins og hefðu þeir verið tómir daginn fyrir slysið. Sjóprófin athuguð Með framburði þessara vitna var Sjó- og verzlunardómi slitið og rannsókn málsins á þessu stigi lokið. Munu sjóprófin nú athuguð af sérfróðum mönnum. Þá mun dómsmálaráðuneytið fjalla um málið og ákveða hvað í því skuli gert. Enn hefir ekki fengizt nein viðhlítandi skýring á því hvern- ig sjóslys þetta bar að höndum. Millilandaflug Hrímfaxi fór kl. 21.40 í gær- kvöldi til Bergen, Ósló, Stokk- hólms og Kaupmannahafnar full- skipaður farþegum. Hann er væntanlegur um Ósló í kvöld, einnig fullskipaður í þeirri ferð. Gullfaxi fór kl. 24.10 í nótt til Glasgow og Kaupmannahafnar, fullskipaður farþegum og er vænt anlegur aftur í kvöld fullhlaðinn, Sólfaxi fór í gærmorgun kl. 8.40 til Kulusuk og Syðri-Straum,- fjarðar. Átti hann að fljúga á Grænlandi meðan á Verkfallinu stæði, en nú hefir því verið breytt og mun hann koma hingað til lands í kvöld. Innanlandsflug Áætlað var að Gunnfaxi lenti sl. nótt kl. 1 í Meistaravík á Grænlandi og var það önnur ferð in hans til Grænlands í gær. Hann var væntanlegur aftur kl. 6 í morgun og átti hann þá að fara beint til Akureyrar og taka á- ætlun þaðan suður, en nú hefir því verið breytt. Eftir miðnætti í nótt var inn- anlandsflugið enn í fullum gangi. eðlilegum Glófaxi var á leið til Hornafjarð ar og átti að fara þaðan til Vest- mannaeyja. Gijáfaxi var kom- inn til Akureyrar og átti að vera þar i nótt. Eðlilegt flug í dag 1 dag er gert mð fyrir eðlilegu flugi innanlands, og munu vél- arnar halda til áætlunarstaða. Flugmenn eru allir við þvi búnir að fljúga í dag, hafði eng- inn gert við það neina athuga- semd klukkan um eitt í nótt. Loftleiðavélar LofFeiðavél fór til Ameríku I gærkvöldi og önnur var í nótt á leiðinni vestan um haf tii Evrópu. Ók yfir fótinn a mannmtim ÞAÐ slys varð við verkstæðið Kyndil í Herskálakamp í gær, að bíll ók yfir fót á manni og braut báðar beinpípurnar. Atvik eru þau, að maður nokk- ur lá undir bíl sínum og var að gera við hann. Annar bill stóð þar nærri. Bílstjórinn, sem ók þeim bíl hafði ekki veitt við- gerðarmanninum athygli og er hann fór af stað ók hann yfir annan fót hans með þeim af- leiðingum, sem áður segir. T ólf mílurnar eru búnar að vera Brezkur togari með botnlangasjúkling til Akureyrar — Akureyri, 5. júlí. IIINGAÐ kom í dag kl. 5,30 brezki togarinn Black Wapch GY 23, frá Grimsby. Að þvt er skipverjar sögðu flutti skipið hingað botnlangasjúkl- ing. Er skipið lagði að bryggju var fyrir sjúkrabíll. Sjúkling- urinn gekk alklæddur og ó- studdur á land og eini far- angur hans var askja með sigarettum. Hann var þegar fluttur á Fjórðungssjúkrahús ið. Fréttamaður blaðsins rabb- aði stutta stund við nokkra af hásetum skipsins. Black Wapch er nýlegt skip byggt 1956 í Bremerhaven og er um 800 smálestir að stærð. Að sögn skipsmanna hefir það aldrei veitt innan við 12 mílna mörkin þótt það hafi oft stundað veiðar hér við land. Skipið kom að þessu sinni hingað til landsins í fyrra- dag og hefir lítið sem ekkert veitt enn sem komið er. Fréttamaður spurði sjó- mennina hvað þeir vildu um 12 mílurnar segja. — Þær eru búnar að vera. — Hvað eigið þið við. — Það er fallegt á Akureyri og gott veður. Hér vildum við gjarna eiga heima, svöruðu þeir. St. E. Sig.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.