Morgunblaðið - 06.07.1960, Page 5
Miðvikudagur 6. júlí 1960
MORCJJ'NLLAÐÍÐ
5
UNDANFARIN tvö sumur hef
ur dvalizt hér á landi í sumar-
fríi hr. Einar Ingvaldsen,
verkfræðíngur frá Oslo. Kom
hann hingað í fyrstu a'ð tilhlut
an Ofnasmiðjunnar hf., sem
tæknilegur ráðunautur, en
þess utan hefur hann ferðazt
mikið um landið og tekið lit-
myndir. Nú er Einar Ingvald-
sen kominn hingað í þriðja
skiptið, og er aðalerindið að
þessu sinni að taka litskugga-
myndir fyrir skólaútvarpið
norska.
Tiðindamanni Mbl. var hoð-
ið að vera viðstaddur mynda-
sýningu, sem hr. Ingvaldsen
hélt fyrir skömmu. Voru þar
sýndir þrír myndaflokkar, er
hann hafði tekið á tveim
fyrstu ferðum sínum: Á vængj
um yfir íslandi og Grænlandi,
Frá suðri til norðurs og Iðn-
aður á íslandi. Skýringartexti
af segulbandi fylgdi hverri
mynd en auk þess var íslenzk-
ur söngur felldur inn í fyrir
og eftir hvern þátt. Var það
Sigríður Ragnhildur Jónsdótt-
ir sem söng „Korreró“ við lag
eftir Jakobinu Thorarensen.
Við hittum hr. Ingvaldsen
að máli eftir sýninguna og töl
uðum við hann stundarkorn
um dvöl hans og starf hér á
landi.
Hann sagði:
— Þegar ég kom hingað í
fyrsta sinn, hafði ég mikinn
áhuga á að kynnast landinu.
Mér gafst tækifæri til að ferð-
ast töluvert um og taka mynd-
ir. Þær myndir hafa verið
sýndar víða um Noreg, bæði
hjá félögum, atvinnufyrirtækj
um og í skólum, og hafa vak-
ið mikla athygli. Stuttu áður
en ég fór til íslands í ár, var
ég beöinn um að útbúa
kennsluefni um ísland fyrir
norska skólaútvarpið, sem
nota mætti við kennslu í efstu
bekkjum í barnaskólum og svo
gagnfræðaskólum. Að því
verki mun ég vinna í sumar.
Þannig hefur þetta „tóm-
stundastarf“ mitt orðið mikil-
vægara en í up»hafi var gert
ráð fyrir.
— Hvaða efni hafið þér hugs
að yður að taka fyrir í kennslu
myndirnar?
— Ég hef hugsað mér að búa
til tvo myndaflokka, í fyrsta
lagi um sögustaði íslands, nátt
úru þess og jarðrækt, og í öðm
lagi um fiskveiðar og iðnað.
Myndirnar, sem verða teknar
hér í ár, verða útbúnar sér-
staklega fyrir skuggamynda-
33 ára gömul, segjast vera yngsta
langamma og yngsta amma í ver-
öldinni. Fyrir mánuði síðan eign-
aðist nefnilega dóttir frú Visconti,
Michele Garnoux, sem er 16 ára,
son á heimili sinu í Toulon í
Frakklandi.
vélar í myndröðum og fram-
kallaðar í um það bil 600 ein-
tökum, sem svo er dreift út um
allan Noreg. Þar fer landa-
fræðikennsla að mestu fram
með skuggamyndum og fylgir
talteksti hverri mynd, annað
hvort beint frá útvarpinu eða
af segulbandstæki.
Þessi kennsluaðferð með
skuggamyndir ryður sér æ
meir og meir til rúms. Hún
hefur þá kosti fram yfir kvik-
myndirnar, að hver og einn
getur horft á þær eins lengi
og hann óskar og þær þreyta
ekki eins aiugað.
— En er ekki erfitt að fást
við myndatökur í framandi
landi.
— Jú, og ég hefði tæplega
þorað að fara út í að útbúa
kennsluefni um ísland, ef ég
ætti ekki jafn marga og góða
vini hér, sem hjálpa mér á
margvíslegan .hátt. Ber þar
fyrstan að nefna Sveinbjörn
Jónsson, forstjóra Ofnasmiðj-
unnar, sem hefur sýnt mér
mikla vináttu og komið mér í
samband við fólk út um allt
land. Og ég vildi nota tæki-
færið til að þakka fyrir alla þá
hjálp og velvilja, sem ég hef
hvarvetna mætt. Viðmót fólks
ins og hin stórbrotna landslag
hér, hafa gert dvöl mína hér
á landi ævintýri líkast.
— Ég er sannfærður um, að
myndirnar, sem ég fer með til
Noregs, munu ýta undir löng-
un unga fólksins til að heim-
sækja ísland. f Noregi fer á-
huginn fyrir íslandi vaxandi,
og hvað er eðlilegra en tvær
þjóðir, sem eiga sameiginlega
sögu að baki, vilji treysta
tengslin sin á milli, sagði Ein-
ar Ingvaldsen að lokum.
ÁHEIT og GJAFIR
Fyrir nokkrum dögum kom til mín
Halldór Fjalldal kaupmaður í Kefla- |
vík og afhenti mér kr. 5 þús. í söfnun-
ina, frá sér og konu sinni frú Sigríði |
Skúladóttur. I>au hjónin höfðu komið
sér saman um að minnast 50 ára af-
mælis síns á þennan sérstæða og
myndarlega hátt, en Halldór varð
fimmtugur 31. maí en frú Sigríður 2.
júní. Jafnframt að óska þeim til ham-
ingju með merkisafmælið færi ég þeim
hjartans þakkir.
Ennfremur hef ég móttekið: Frá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna kr. 10
þús. og Islenzka vöruskiptafélaginu :
kr. 10 þús. — Kærar þakkir.
FJi. söfnunarnefndar Björn Dúason.
Geymsluhúsnæði
til leigu. — Upplýsingar í
sínaa 15526. —
Krossviðs-flekamót
35 flekar 2,75x1,22%. Til
sýnis og sölu, Sólheimum
46, eftir kl. 8 á kvöldin.
| íbúð til leigu
Upplýsingar í símum 32344
og 13035. —
Storm P. teiknaðj Svía aldrei
öðru vísi en með svartblá og þrút
in bsennivínsnef. Þetta fé'll Sví-
um illa, og eitt sinn, þegar Storm
P. var á gangi um götur Kaup-
mannahafnar, mætti hann vini
sínum,, sem bjó handan Eyrar-
sunds.
— Segðu mér, Storm, — spurði
Svíinn, — getur þú alls ekki mál-
að sænsk nef með eðlilegum lit?
■—Auðvitað get ég það, — svar-
aði Storm, — en hvernig á þá
fólk að geta séð að ég hef teiknað
Svía?
Dr. med. Erik Warburg, rektor
Kaupmannahafnarháskóla, sagði
stundum skrítna hluti í fyrirlestr
um sínum, þegar hann fór út fyr-
ir hinn skrifaða texta. Eitt sinn
var hann að lýsa duttlungafullum
sjúkdómi fyrir nemendum sínum,
sem skrifuðu þá m.a. þetta niður
eftir honum:
Þessi sjúkdómur hagar sér eins
og ungar stúlkur .... maður veit
ekki, hvað þær vilja .... (löng
þögn) .... ja, það er að segja,
maður veit það náttúrlega vel ..
.. en bara ekki hvenær.
Frú Paulette Girdano, sem
stendur á fimmtugu, og dóttir
hennar, Josette Visconti, sem er
Loftleiðir hf.: — Leifur Eiríksson er
væntanlegur kl. 6:45 frá New York. Fer
til Amsterdam og Luxemborgar kl. 8,15.
Snorri Sturluson er væntanlegur kl.
23 frá Stavangri. Fer til New York kl.
00:30.
H.f. Eimskipafélag íslands. — Detti-
foss og Tröllafoss eru í Rvík. Fjallfoss
er í Hull. Goðafoss er í Hamborg. Gull-
foss er á leið til Khafnar. Lagarfoss er
á Bíldudal. Reykjafoss er á leið til
Hull. Selfoss er á leið til Rvík. Tungu
foss er í Gufunesi.
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla, Esja
og Herðubreið eru 1 Rvík. Skjaldbreið
er á Skagafirði á leið til Akureyrar.
Herjólfur fer frá Rvík kl. 21 í kvöld til
Vestmannaeyja.
Skipadeild SÍS.: — Hvasafell og Arn
arfell eru í Archangelsk. Jökulfell er
á leið til Gautaborgar. Dísarfell er á
Sauðárkróki. Litlafell losar á Norð-
urlandshöfnum. Helgafell er á leið til
Kotka. Hamrafell er á leið til Hafnar-
fjarðar.
H.f. Jöklar. — Langjökull er á leið
til Islands. Vatnajökull er á leið til
Reykjavíkur.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er á leið til Keflavíkur. Askja er
á leið til Islands.
Eg vel mér vini eítir útliti, kunn-
ingja eftir skapgerð og óvini eftir gáf-
um. Maður getur aldrei verið of varkár
í vali óvina sinna.
— Oscar Wilde.
Ætti ég að ákveða, hvort ég vildi
heldur hafa ríkisstjórn en vera án
dagblaða, eða dagblöð en vera án rík-
isstjórnar, þá myndi ég ekki bika
augnabiik, áður en ég veldi síðari kost-
inn.
Pennavinir
14 ára hebresk stúlka að nafni Ada
Ruffo óskar eftir íslenzkum pennavini, |
pilti eða stúlku. Henni má skrifa á
norsku, dönsku eða sænsku, en svarar
sjálf á sænsku. Það stafar af því, að
hún lætur þýða bréfin yfir á hebresku,
en þýðandinn skrifar ekki annað en
sænsku af Norðurlandamálunum, þótt |
hann geti lesið hin. Hún dvelst nú í j
heimavistarskóla skammt frá Genes-
aretvatninu, og utanáskrftin er: Ada |
Ruffo, Shaar-Hagolan, Doar-Na, Emek-
Hayarden, Israel.
Hebreskan dreng ,sem hefur sama
bréfaþýðanda og stúlkan hér að ofan
langar til þess að skrifast á við 10—11
ára gamlan íslenzkan dreng. Hann bið-
ur foreldra að hjálpa börnum sínum j
til þess að setja saman bréf á einhverju
Norðurlandamálánna til sín. Drengur-
inn heitir Amos Rubel, og þar eð hann j
dvelst á sama skólanum og stúlkan, þá
er heimilisfangið hið sama.
18 ára gamall japanskur piltur seg-
ist hafa mikinn hug á því að komast í j
samband við Islendinga, og skrifar
blaðinu bréf af því tilefni. Hann lang-
ar til að fræðast um land og þjóð, I
skiptast á frímerkjum, póstkortum og j
myndum o.s.frv. Bréfið er á ensku,
nafn piltsins og heimilisfang er:
Takeshi, Abe. 41, banchi, Minamin- j
ocho, Higashi-kozu, Tennwzi-ku, Os-
aka, Japan.
í gleymsku fellur allt og allt.
Lifðu vel, því líf er stutt.
Eí orðinn hlut þú harma skalt.
Lifðu vel, því líf er stutt.
í kveld ei sinntu um svefn né ró.
Lifðu vel og leiktu þér,
því líf er stutt.
Á síðan færðu að sofa nóg.
Lifðu vel, því Hf er stutt.
Hannes Hafstein: Lagtexti.
\ ’i Kcnúl mi„n;
a3 auglýsing i stærsla
og útbreiddasta blaðinu
— eykur söluna mest --
Lokað
vegna sumarleyfa
frá 24. júlí til 15. ágúst.
Kassagerð Reykjavíkur
Öskjudeild — Trékassadeild
Lokað
vegna sumarleyfa
frá 11. júlí til 2. ágúst.
Efnagerðin Record
Brautarholti 28
Atlas hverfiruður
fyrirliggjandi
Jónsson & Júlíusson
Tryggvagötu 8 — Sími 15430.