Morgunblaðið - 06.07.1960, Síða 22

Morgunblaðið - 06.07.1960, Síða 22
22 MORCVNBT.AÐ1Ð Miðvikudagur 6. júlí 1960 Hrafn- hildur Hrafnhildur Guðmunds- dóttir, hin unga sundkona ÍR var eini keppandi íslands á Norðuriandamóti unglinga í sundi sem fram fór í Gjövik í Noregi um helgina. Hrafnhildur keppti í 200 m Bandaríska úrtökumótið byrjað 4.47 og fór allar hæðir í fyrstu tilraun nema 4.64 BA’NDARlKJAMENN hafa löng- um þótt djarfir er þeir velja sína Ólympíukeppendur. „Úrtökumót- ið ræíur", segja forráðamenn þeirra og siðan er ekkert þrefað eða þrasað um það hver verið hefur beztur eða verður beztur. J*rír beztu á úrtökumóti fara til Ólympiuleika — aðrir ekki. * FYRRI ATVIK Vel má minnast hér á Harri- son Dillard, grindahlauparann heimsfræga, sem á úrtökumótinu 1948 varð af verðlaunum i 110 m grindahlaupi og þar með af heiðr inum að keppa fyrir land sitt í sinni heimsmetgrein. Þó hafði hann fram að úrtökumótinu unn- ið 82 grindahlaup í röð, var heimsmethafi o. fl.. Einnig má minnast spjótkastarans Bud Held, sem á úrtökumótinu 1956 ▼ar meiddur — en sigraði síðan með yfirburðum í hverri keppni, m. a. alltaf yfir þeim er kepptu íyrir Bandaríkin í Melbourne. I úrtökumótinu á dögunum mætti Bill Nieder haltur á fæti og vafinn um úlnlið. Fyrr hefur hann varpað lengst allra manna, 19.99 m. En svo vafinn og haltur sem hann nú var, varpaði hann „aðeins“ 18.88 og varð fjórði. — 18.88 er athyglisverður árangur meidds manns, sem ekki getur beitt sér til fulls. En þrátt fyrir sína 19.99 m fær hann ekki far- seðil til Rómar. * STANGARSTÖKKIÐ í stangarstökki setti Don Bragg nýtt heimsmet, stökk 4.80.. Hann er þriðji Bandaríkjamað- urinn sem stekkur hærra en staðfest heimsmet Gutowskis — og þrátt fyrir allt þeirra verstur — samt mun það hann sem fær heimsmetið viðurkennt. Gutowski hefur stokkið 4.82 m og Martin 4.81 m. En þeir fengu báðir hjálp starfsmanna, sem gripu stangirnar svo vindur feykti þeim ekki á rána. Stökk þeirra verða því ekki viður- kennd. Bragg er 25 ára gamall og náði þegar sem unglingur í raðir hinna allra fremstu. Nærri lá að hann kæmist til Melbourne 21 árs gamall. Þá stökk hann 4.66 m. Bragg er 190.5 sm að hæð og vegur ekki minna en 83.5 kg. Það þarf ekkert smávægilegt V3 \Y‘X m m t,,.dregið á morgun Umboðið í Alþýðuhúsinu opið til kl. 10 í kvöld stökk til að koma þeim þunga yfir 4.80. En stökkkraftur hans er undraverður. Stöng hans svign ar mjög í stökkinu, en hún er sterk, gerð úr alumíum og vegur 3.9 kg. eða nær kg. meir en venjulegir stökkmenn nota. Einnig það gerir honum erfiðara fyrir. * VOGAÐIR Bragg sleppti öllum hæð- um á mótinu nú þar til kom að 4.47 m. Síðan stökk hann 4.57, 4.64, 4.70 og 4.80 m. Hann fór ailar þessar hæðir — utan 4.64 — í fyrstu tilraun. John Thomas hástökkvari var ekki eins „kaldur“. Hann byrjaði á 198 og stökk síðan 202, 205, 208, 210, 213, 219 (heimsmet) og 222.8 (heimsmet aftur). — Allar hæðir fór hann í fyrsta Framhaid á bls. 23 Á SUNNUDAG mættust í 2. riðli II. deildar keppninnar lið Vest- mannaeyja og Sandgerðis. Eftir mjög jafnan og tvísýnan leik fóru Sandgerðingar með sigur, 5 mörk gegn 4. Leikurinn var á köflum sæmilega leikinn, en mikils úthaldsleysis gættj í báðum liðum. S-Ameríka o« Evrópa KNÁTTSPYRNUSAMBAND Evrópu og Suður-Ameríku hafa gengið frá samningum um að koma á keppni milli knattspyrnu liðanna sem vinna ár hvert Ev. rópbikarinn og Suður-Ameríku- bikarinn, Ráðgert er að keppni þessi fari fram í júní, en i ár mun hún fara fram í júlí og september. Fyrir hönd Evrópu leikur því Real Madrid, en 'Suður-Ameríku bikarinn vann í ar knattspyrnu- liðið Penarol frá Montevideo í Uruguay. Meira um íþróttir á bls. 11. Kristleifur sigraði f gær — og í kvöld mæta hann og Svavar IMorðmanninum FRJÁLSÍÞRÓTTAMÓT ÍR hófst í gærkvöldi. Hápunktur mótsins var keppni Norðmannsins Ole Ellefsæter og Kristleifs Guð- björnssonar í 3000 m hlaupi. Þeir fóru rólega af stað. Krist- leifur hafði forystu 750 m en síð- an Elíefsæter þar til 50—60 m voru eftir. Kristleifur sleppti hon um hins vegar aldrei og er síðasti hringur hófst gei / Norðmaður- Meisfaramót Reykjavík- ur í frjálsíþróttum 1960 ÁKVEÐIÐ hefur verið að aðal- hluti Meistaramóts Reykjavíkur í frjálsíþróttum skuli fara fram dagana 11., 12. og 13. júlí nk. Keppnisgreinar eru þessar: Fyrsti dagur: 400 m grinda- hiaup, 200 m hlaup, 800 m hlaup, 5000 m hlaup, hástökk, langstökk kúluvarp og spjótkast. Annar dagur: 110 m grinda- hlaup, 100 m hlaup, 400 m hlaup, 1500 m hlaup, stangarstökk, þrí- stökk, kringlukast og sleggjukast. Þriðji dagur: 4x100 m boð- hlaup, 3000 m hlaup, og fimmt- arþraut. Þá hafa dagarnir 26. og 27. júlí verið ákveðnir fyrir síðari hluta mótsins. Skal þá keppt í tugþraut, 3000 m hindrunarhlaupi og 10000 m hlaupi. Ef til vill verða þá einníg hafðar skemmtilegar auknagreinar til að lífga upp á þann hluta mótsins. Árm., KR og ÍR hefur verið falin framkvæmd mótsins í sam- vinnu við Frjálsíþróttaráð Reykjavíkur. Þátttökutilkynningar skulu hafa borizt til formanns frjálsíþrótta deilda félaganna fyrir kl. 20, þ. 7. júlí, eða til formanns Frjáls- íþróttaráðs Reykjavíkur, Þorkels Sigurðs,sonar. Tilkynningar skulu vera skrif legar. Þáttaka er heimil öllum þeim, sem skráðir eru meðlimir íþrótta félags innan Reykjavíkur um- dæmis, og eru búsettir í umdæm- inu. Stjórn F.Í.R.R. inn tilraun til að hrista Krist- leif af sér. Það tókst ekki, en þessu sv * ði Kristleifur með mikl- um endaspretti síðustu 100 m og vann með nokkrum mun. Náði Kristleifur bezta tíma sín um í ár í hlaupinu en byrjun- arhraðinn var of hægur til að tími yrði mjög góður. I kvöld lýkur ÍR mótinu á Laugardalsvellinum. Þá kepp- ir hinn norski gestur i 1500 m hlaupi og mætir Svavari Mark ússyni og Kristleifi. Auk þess er keppt í 11 öðrum greinum m.a. stangarstökki. hlaut bronspenmg Red Boys sigruðu LUXEMBORGARLIÐIÐ Red Boys brá sér til Akureyrar um helgina og hefur leikið þar tvo leiki. Fyrri leikinn, á laugardag, unnu hinir erlendu gestir með 3 mörkum gegn 0. (Tvö markanna skoruð úr vítaspyrnu). Á mánudag var síðari leikur- | inn, þá vann Red Boys með 3:2. j j Stóð 2—0 í hálfleik þeim í vil. bringusundi og 100 m bak- sundi. Hún varð 3. í 200 m. bringusundi á 3:11,4 mín. Sigurvegari í greininni var Inge Andersen Danmörku 3:02,0. önnur var Johnson, Sviþjóð 3:06,3 mín. Fjórða varð dönsk stúlka á 3:17,5. í 100 m skriðsundi kvenna varð Hrafnhildur 7. í röð- inni á 1:17,2 mín. Sigurvegari varð Michaelsen Danm. 1:07,5 2. Thorngren, Svíþjóð 1:08,5. Geta má þess að Kirsten Strange sú er hér keppti á móti ÍR í vor varð 5. á 1:15,0. Keppt var í útilaug sem veð- urs vegna er geysað hefur í Noregi var orðin aðeins 13 gráður. Lofthiti var og lágur og aðstæður mjög slæmar. Svíar unnu langflesta sigra, hlutu 8 unglingameistara, Danmörk 6 og Finnland 2. Noregur og ísland hlutu að- eins brons. Norðmenn tvo peninga, ísland einn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.