Morgunblaðið - 20.07.1960, Síða 1

Morgunblaðið - 20.07.1960, Síða 1
20 síður 47. árgangur 162. tbl. — Miðvikudagur 20. júlí 1960 Prentsmiðia Morgunblaðstns 77 ára drengur beið bana undir traktor ENN hefur hörmulegt slys orðið. í gœr beið 11 ára drengur úr Reykjavík bana undir dráttarvél er hvolfdi. Hét hann Ólafur Guð- mundsson, sonur Guðmundar Gíslasonar, yfirbókbindara Isafoldar- prentsmiðju, og konu hans, Kristínar Ólafsdóttur, Drápuhlíð 23 hér í Reykjavík. — I ÞESSI mynd var tekin af rúss- neskum njósnatogara um 60 mílur undan strönd Long Is- Iand í New York-fylki í Banda ríkjunum. Hringsólaði hann þá skammt frá bandaríska kjarnorkukafbátnum George Washington, sem þar gerði til- raunir með Polarisflugskeyti. Töldu Bandaríkjamenn, að á- höfn togarans væri auk þess að forvitnast um ganghraða kafbátsins, hávaðann frá skrúfunni o. fl. En útbúnað- urinn á yfirbyggingu togar- ans benti þó til þess, að meg- inverkefnið væri að staðsetja bandarískar ratsjárstöðvar og finna bylgjulengdirnar, sem notaðar eru í fjarskiptum 4 milli ratsjárstöðvanna. Stúdentamótið í skák FIMMTÁN þjóðir senda full- trúa á hið alþjóðlega stúdenta- mót í skák sem hófst í Leningrad «.l. laugardag. Hver þjóð sendir fjóra aðalmenn og fjóra til vara. Þjóðirnar sem taka þátt í mót- inu eru: Bandaríkin, Svíþjóð, Rússland, Rúmenía, Ungverja- land, Holland, Finnland, Eng- land, Belgía, Júgóslavía, Pól- land, Mongólía, A-Þýzkaland, og Búlgaría. Willy Brandt í framboði sem kanslari BONN, 19. júlí (Reuter). — Willy Brandt, borgarstjóri í Vestur-Berlín, var í dag sam- þykktur af framkvæmdastjórn þýzka jafnaðarmannaflokksins sem frambjóðandi við kjör rík iskanslara í almennum kosn- ingum á næsta ári. Er opinberrar tilkynningar um framboð hans vænzt á þingi flokksins í nóvember. Brandt sem er 46 ára að aldri, hefur áunnið sér mikið álit fyrir svör sín við ógnunum Rússa gagnvart Vestur-Berlín undanfarna 18 mánuði — og hafa skoðanakannanir leitt í ’jós miklar vinsældir hins unga stjórnmálaleiðtoga. Þetta sviplega slys varð skammt frá bænum Ármóti við Þverá í Rangárvallasýslu. Er bær þessi nýbýli úr jörð Fróð- holtshjáleigu í Rangárvalla- hreppi og stendur bærinn austan árinnar. Ólafur litli var til sumardvalar að Ármóti, en þar býr Hreinn Rússneskur togari njdsnaskip Sami togarinn og var við ísland ? TALSMENN bandaríska flot- ans hafa, að því er bandaríska stórblaðið New York Times skýrir frá, lýst því yfir að rúss neskur togari, sem sigldi í apríl sl. gegnum tilrauna- svæði Polaris-kafbáta við Long Island, hafi verið radíó- njósnaskip. Eins og lesendur Mbl. muna, var rússneskur togari í grunsamlegum erindagerð- um úti af Snæfellsnesi ekki alls fyrir löngu, og vekur það athygli, að lýsing Bandaríkja- manna á rússneska togaran- um við Long Island kemur heim við lýsinguna á rúss- neska togaranum við ísland. Ekki hefur Mbl. þó tekizt að afla sér upplýsinga um, hvort hér sé á ferðinni sama skipið, en óneitanlega hlýtur frásögn New York Times að vekja mikla athygli hér á landi, og fer hún hér á eftir: „Rússneskur togari sem sigldi í apríl sl. gegnum tilraunasvæVi' Polaris kaífcáta við Long Island var radíó-njósnaskip. Talsmenn bandaríska flotans hafa skýrt frá þessu. Starfsmenn í leyniþjónustu flot ans gáfu nýjar upplýsingar, sem hafa verið leynilegar, um þetta mál á blaðamannafundi, sem skyndilega var kallaður saman í Pentagon, bandaríska hermála- ráðuneytinu. Svo virtist sem tilkynningin hefði verið gefin út til að styrkja aðstöðu Bandaríkjanna í Samein- uðu þjóðunum, þar sem Rússar hafa krafizt fundar vegna könn- unarílugs Bandaríkjanna. Flotinn upplýsir, að fylgzt hafi verið með ferðum rússneska tog- arans í fimm daga. Hans varð fyrst vart um sextíu mílur undan Long Island, en síðan sigldi hann upp að ströndinni og var næst henni um eina mílu austur af Chesaspeaky Bay vitanum, en það er tólf mílur undan Cape Henry í Virginia. Charles C. Kirkpatrick flota- foringi, yfirmaður upplýsinga- þjónustu flotans, lýsti skipinu fyrir blaðamönnum. Hann sagði að það hefði verið búið talsvert miklu af rafeindatækjum til þess að vera „á gægjum“. Skipið ekki eyðilagt En hann lagði ítrekað áherzlu á það, að þar sem rússneska skip- ið hafi allan tímann haldið sér á opnu hafi, þá hafi bandarísk skip eða flugvélar ekki ráðizt á það né valdið tjóni á því. „Við erum löghlýðin þjóð og förum eftir alþjóðalögum“, sagði Kirkpatrick flotaforingi. Hann var spurður, hvort hann væri með þessum ummælum sín um að gera samanburð á við- brögðum Bandaríkjanna varð- andi þetta skip og þeim viðbrögð um Rússa er þeir skutu RB-47 könnunarflugvélina niður þann 1. júlí. Kirkpatrick flotaforingi svaraði brosandi: „Ég var aðeins að tala um þetta eina atvik og ekkert ann- að“. Hann l'élt nú áfram að ræða um rússneska togarann. sem var 600 tonna skip og að byggingar- lagi iíkuT rússneskum togurum, Framh. á bls. 19 Árnason. Skömmu fyrir klukkan 1 í gærdag hafði Ólafur litli lagt af stað frá bænum, á Ferguson- dráttarvél búsins, með múgvél aftan í. Var ferðinni með vélina heitið út á engjar. Er farið á dráttarvélinni eftir vegi, sem myndazt liefur vegna ruðnings frá skurði, sem vegurinn liggur meðfram. * í SKURÐ Ólafur litli var skammt kominn frá bænum, en þaðan hafði verið fylgzt með ferðum hans, er húsfreyjan veitti því eftirtekt að dráttarvélin var horfin. Var þá þegar brugðið við til að ganga úr skugga um hverju þetta sætti. Er að var komið lá Ferguson-traktorinn á hvolfi ofan í skurðinum og hafði Ólafur litli orðið undir honum. Var skurðurinn hálfur annar metri á breidd og 3 m djúpur. Ólafur Björnsson, læknir, er gegnir störfum héraðslæknis, kom eins fljótt á staðinn og hægt var, en um 25 km eru þangað frá Hellu. Gerði hann lífgunartil- raunir á drengnum í samfellt eina klukkustund, en þær báru ekki árangur. Ólafur átti tvö systkin, annað eldra hitt yngra. Dennis Welch 22 ndmumenn farast - og 18 enn í hœttu Hannover, 19. júlí. (NTB-Reuter-AFP) AÐ minnsta kosti 22 námu- verkamenn létu lífið í dag í sprengingu og siðan bruna í málmgrýtisnámu skammt frá Salzgitter, um 55 km fyrir utan Hannover. Átján verkamenn eru enn inni- lokaðir af eldinum í klefa um 400 m niðri í jörðunni. Er stöðugt dælt til þeirra lofti — og enn von um að þeim vcrði bjargað. Enn ný áminning um oð fara ekki inn fyrir 12 milurnan ,,Þid berib sjálfir 'ábyrgð á iífi og limum áhafnarinnar" Orðsending frá Dennis Welchtil yfirmanna á brezku togurunum Grimsby, 19. júlí. — (Reuter) TOGARASKIPSTJÓRAR í Grimsby voru í dag alvarlega varaðir við afleiðingum þess, að veiða innan hinna um- deildu 12 mílna fiskveiðitak- marka við Island. Dennis Welch, yfirmaður sam- taka yfirmanna á togurum írá Grimsby. sagði við þá: ,,E) þið veiðið innan tak- markanna, og einhver lætur lifið eða særist, eruð þið lög- um samkvæmt persónulega á- byrgir fyrir tjóni og bóta- greiðslum." Enda þótt Bretar viðnrkenni ^kki hina einhliða yfirlýsingu íslendinga um víðáttu fiskveiði lögsögunnar, hafa brezkir togara eigendur ákveðið að hafa sig ekki í frammi og þess í stað skuldbundið sig til að fara ekki inn fyrir 12-mílna takmörkin í þrjá mánuði. Mótmæli íslenzkra stjórnarvalda Að undanförnu hafa orðið á- rekstrar, þar sem íslenzk stjórn- arvöld hafa haldið því fram, að togararnir hafi verið Innan tak- marka. Framh. á bls. 19

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.