Morgunblaðið - 20.07.1960, Síða 20

Morgunblaðið - 20.07.1960, Síða 20
Milljónaborgin Sjá bls. 10. 0$pNtfrlktölÍf) 162. tbl. — Miðvikudagur 20. júlí 1960 Íbróttasíðan tt á bls. 18. Mikil síld út af Langanesi Ekkert er aðhafzt i Skálholtskirkju I GÆRKVÖLDI mun sá hluti síldarflotans, sem staddur var á austursvæðinu, hafa stefnt ferð sinni tíl hafs, norðvestur af Langanesi, en þaðan bárust fréttir um að „vaðandi síld væri um allan sjó, svo langt sem auga eygði“. Það var háturinn Sigurfari frá Hornafirði, sem séð hafði síldavöður þessar, milli kl. 6—7 í gærkvöldi. Var gott veður á þessu svæði. Síldarleitin sendi þessa frétt út til flotans án minnstu tafa. í fréttaskeytí frá fréttarit- ara Mbl. á Siglufir'ði í gær, segir, að þangað hafi skip kom ið með síld, sem öll hafi farið til söltunar. Hafi þetta verið mjög góð söltunarsíld. Voru þessi skip hæst: Stapafell 1000 tunnur, Gunuhildur 700, Einar Hálfdáms og Hugrún 800 tn. j hvort, Valafell 650, Baldur VF, 800, Særún 600 og Jón Guð- mundsson 550 tunnur. Fréttaritarinn á Raufarhöfn 7 veir kaf- bátar? ÍVEGNA fréttar þess efnis, að íslenzkir sjómenn hafi séð kaf bát á Húnaflóa, spurðist Mbl. I fyrir um það hjá utanríkis- ráðuneytinu hvort veitt hefði verið leyfi til þess að erlend- 1 ur kafbátur væri á þessum slóðum. Ráðuneytið kvaðst ekkert vita um þetta mál. Það hefði ekki veitt neinum kaf- 1 bát leyfi til að sigla á Húna- flóa og vissi ekki um þjóðerni I kafbátsins, sem Skagstrending ar sáu. Þegar blaðið spurðist fyrir * um þetta hjá yfirstjórn varn- . arliðsins á Keflavíkurflug- ( velli, var því sagt að málið væri í athugun þar syðra. — < Frekari upplýsingar treystust Bandaríkjamenn ekki til að veita á þessu stigi. ★ f gær átti Mbl. einnig tal i við Pétur Sigurðsson, forstj. Landhelgisgæzlunnar, um kaf bátinn. Pétur sagði blaðinu, að á laugardaginn var hefði varð- skipið Ægir séð kafbát á sigl- ingu djúpt austur af Grímsey. Var sá bandarískur, sigldi of- an sjávar og hafði uppi þjóð- fána sinn. Hafði kafbáturinn þá stefnu á lanð. Þetta var um kl. 10 árdegis. Pétur Sigurðsson sagði enn- fremur að hann hefði falið skipherranum á Þór. Þórarni Björnssyni að afla sem gleggstra upplýsinga um kaf- * bátinn á Húnaflóa, hjá mönn- ( um þeim er séð höfðu til ferða / hans á föstudaginn. sagði að 10 skip hefðu komið inn með síld: Jón Trausti var með 400 tunnur, Askur 200, Sæ- fari 200, Kristbjörg 400 mál, Tjald ur 350 mál, Ólafur Magnússon 280 mál, Sæfaxi 250 mál og Leó 150 mál. Hér er ágætis veður og blíða. í kvöld kl. 8 verður flogið frá síldarleitinni suður með Aust- fjörðum og norður af Núpum, en þar virðist vera allgóð söltunar- síld. Til Seyðisfjarðar komu í gær ótta skip með samtals nær 3300 mál, og fór sú síld öll til bræðslu. Með mestan afla voru Sindri og Gullver með um 400 tunnur hvor, Fjaðraklettur 450, Björgvin KE 500, Sunnutindur 700. Frá New York í gærk\öldi? I GÆRKVÖLDI var í ráði að Björn Pálsson flugmaður legði af stað frá New York og hingað heim með hina nýju sjúkraflug- vél er hann keypti þar vestra fyrir nokkru. Með Birni flýgur Skúli Axelsson. Verður flogið um Nýfundnaland, Grænland og síð- an þaðan beint til Reykjavíkur. Vonir standa til, ef flugveður verður hagstætt, að Björn og Skúli komist hingað heim ein- hverntíma í kvöld. Búizt var við að flugvélin myndi þurfa allt að 20 klst. til flugsins. Afli bæjarútgerð- artogaramia EFTIRTALDIR togarar Bæjar- útgerðar Reykjavíkur lögðu afla sinn á land í Reykjavík í síðustu viku: B.v. Pétur Halldórsson kom úr 9 vikna veiðiferð við Vestur- Grænland með 391 tonn af salt- fiski, sem skiptist þannig við mat: 1. flokkur 65.07%, 2. flokkur 29,33%, 3 flokkur 5.60%. B.v. Hallveig Fróðadóttir land- aði 89 tonnum af saltfiski, 19 tonnum af karfa til frystingar og 13 tonnum af karfa í gúanó. Af saltfiskinum fóru 80.41% í fyrsta flokk og 19.59% í annan flokk. Togarinn fékk afla sinn á heima- miðum. B.v. Jón Þorléksson landaði 269 tonnum af nýjum fiski, þar af karfi til frystingar 220 tonn. I gúanó fóru 20 tonn. Afli þessi fékkst við Vestur-Grænland. Árni Jónsson, óperusöngvari, syngur einsöng, en undirleik — ■» Hafliði Jónsson. Leikar- anM Gunnar Eyjólfsson og Óm- í SUMAR hefur ehkert verið unnið að smíði Skálholts- kirkju og vinna við hana legið niðri frá því í fyrrasumar, er hinir fögru gluggar kirkjunn- ar voru settir í hana. Stöðug- ur straumur ferðafólks er til þess að skoða kirkjuna og höfðu um siðustu helgi komið alls um 2000 manns á Skál- holtsstað. ■ár Eins árs verk Guðjón Arngrímsson, bygg- ingameistari frá Hafnarfirði, er enn þar eystra við smíðar ásamt einum smiði. Hafa þeir verið að ganga frá ýmsu í embættisbú- staðnum svonefnda. í kirkjunni sjálfri er talið að verkefni séu nú fyrir smiði, múr- ara og málara í a. m. k. eitt ár. Er um að ræða pússningu kirkj- unnar að innan, málun hennar og t. d. timburklæðning hvelf- inga kirkjunnar. Jarðhiti Ekki sr kirkjan hituð, en ráð gert er að hita kirkjuna og önnur hús á Skálholtsstað með jarð- hita. Var í fyrstu rætt um að leiða jarðhita frá Laugarási, en nú er helzt rætt um að bora eftir heitu vatni á Skálholtsstað. Neð- ar Ragnarsson flytja skemmti- þætti og syngja gamanvísur. Að lokum verður stiginn dans. an við túnið er volgra og leikur mönnum hugur á að láta kanna til hlítar möguleika á því, að þar undir kunni að leynast svo mikill jarðhiti að nægja muni til að hita upp kirkju og öll staðarhús. Ekki hafa neinir jarðhitasér- fræðingar komið austur enn sem komið er. í G Æ R rar einn af blaða- mönnum Morgunhlaðsins að opna póstinn, sem hann hafði fengið. Meðal bréfanna var eitt ósköp venjulegt bréfum- slag, lagt í póstinn í Reykja- vík, frímerkt með kr. 2.50. En þegar blaðamaðurinn opnaði umslagið kom annað umslag í Ijós innan í því og stóð utan á því: INNIHALD 3000 KRÓNUR. GERIÐ SVO VEL AÐ KOMA ÞVÍ TIL SKILA TIL STRANDAR- KIRKJU. — Sendingin var að öðru leyti nafnlaus. • Hæsta áheitið Þegar peningunum var skilað á sinn stað, kom í ljós, að þetta er stærsta áheit sem Strandar- kirkju hefur borizt nú um lengri tíma. Á skrifstofu Mbl. eru mót- lekin áheit færð inn í sérstaka bók og í þeirri bók sem nú er notuð, reyndist ekkert áheit hærra en þetta, en tvö sem send voru fyrir nokkrum mánuðum voiu hvort að upphæð 2500 kr. Ef leitað væri fleiri ár aftur í tímann má vera að hægt væri að finna svo hátt áheit, en ekki Fylgirit Politiken um ísland DANSKA stórblaðið Politiken gef ur út sérstakt fylgirit helgað ís- landi og islenzkum málefnum, sama daginn og Norræna menn- ingarmálanefndin kemur saman til fundar hér í Reykjavík 27. júlL Hefur framkvæmdastjórn blaðs- ins gert ráðstafanir til þess að blaðið verði selt á götum Reykja- víkur þegar daginn eftir. Greinarnar sem þetta fylgirit prýða eiga að gefa lesendum all- glögga mynd af lífi og starfi þjóð- arinnar eins og það blasir við í dag. Munu ýmsir þjóðunnir menn skrifa í blaðið, t.d. fjármálaráð- herra og utanríkisráðherra. Snekkjon fnrin frá Eyjum | Vestmarmaeyjum, 19. júlí. ÞÁ er væntanl. lokið Vest- mannaeyjadvöl skemmti- snekkjunnar Franz III., sem Þór bjargaði til hafnar hér j á dögunum. Málarekstri er lokið og sett hefur verið trygging fyrir björgunarlaunum. — 1 gærkvöldi lagði snekkjan úr höfn hér. Hafði hún að- eins skammt farið er hnút- ur kom á hina fallegu fleytu og brotnaði gluggi í yfir- byggingunni. Sneri skip- stjórinn þá við og leitaði hér hafnar á ný til viðgerð- ar. í kvöld voru landfestar leystar og enn á ný lagt af stað. Er ferðinni heitið til Reykjavíkur, í þessum áfanga. — Bj. Guðm. kvaðst sú sem tekur við áheit- unum muna eftir því. • Vinsæl áheit Það er stöðugt mjög vinsælt að heita á Strandarkirkju sér til liðs í hættum og áhyggjum. Einu sinni sagði verzlunarmaður hér \ bæ, að hann tryggði allar venjulegar vörusendingar hjá tryggingafé- lögunum, en þegar mikið lægi við, héti hann á Strandarkirkju. Skýringin var sú, að tryggingar- félögin bættu aðeins það tjón, sem orðið væri, en Strandar- kirkja og verndardýrlingur henn- ar sæi um það, að ekkert tjón yrði. • Sá sig um hönd. Þó var það verra hér um árið þegar maður einn hét 500 krónum á Strandarkirkj u, ef hann yrði ekki fyrir skakkafalli af mikilli hættu, sem vofði yfir. Lét hann peningana í lokað umslag og skrifaði utan á: — Gefið Strand- arkirkju. En þegar allt var kom- ið heilu og höldnu í höfn, muldr- aði maðurinn við sjálfan sig. „Það var alveg óþarfi að heita 500 krónum, hættan var ekki svo mikil og því ekki gefandi meira fyrir en 200 krónur.“ Og með það reif hann upp umslagið og stakk 300 krónum af fjármunum kirkj- unnar i eigin vasa. Héraðsmót að Kirkjubæjarklaustri SJÁLFSTÆÐISMENN í Vestur-Skaftafellssýslu halda héraðsmót að Kirkjubæjarklaustri sunnudaginn 24. júlí kl. 8.30 síðdegis. Ræður flytja Ingólfur Jónsson, ráðherra, og Sigurður Ó. Ólafs- son, alþingismaður. 3000 kr. áheit í nafnlausu bréfi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.