Morgunblaðið - 28.08.1960, Side 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 28. ágúst 1960
Misnotkun þekkingar er
alvarlegasta syndin
Samtal við Mormónabiskup
— DÝRÐ Guðs birtist í vits-
munum hans. Ljósið og sann-
leikurinn leiða menn úr villu
og veita andlega sýn í stað
efnislegrar. Þekking er undir-
staða frelsunar. Sú þekking,
sem menn öðlast í þessum
heimi, kemur þeim að notum
í komandi heimi. Misnotkun
þekkingar er alvarlegasta
syndin.
★
f>að er John Beamson, mor-
mónabiskup, sem talar. Við höfð-
um spurt hann um helzta mun
mormónatrúarinnar og þeirrar
trúar, sem játuð er í íslenzku
kirkjunni. Biskupinn heldur
áfram:
Biblían og mormónabókin
— Við trúum opinberun Jóseps
Smiths, en við trúum Biblíunni
líka. Mormónabókin styður það
sem í Biblíunni stendur, en eyk-
ur við Biblíuna og gerir opinber-
unina fyllri. Játningar okkar eru
í sumu frábrugðnar játningum
kirkjunnar. T. d. trúum við því
ekki að Kristur sé sömu veru og
Guð. Þá teljum við að mönn-
um muni refsað fyrir eigin synd-
ir, en ekki fyrir synd Adams.
I einkaheimsókn
— Annars er ég i einkaheim-
sókn, en ekki kominn til að boða
Mormónatrú, segir biskupinn. Ég
er af íslenzku bergi brotinn, fað-
ir minn var Finnbogi Björnsson
frá Hjallanesi í Rangárvalla-
sýslu. Hann kom til Utah 1883.
Þar kynntist hann móður minni,
sem var af dönskum og þýzkum
ættum.
Við verzlunarnám í Danmörku
Nú berst talið að Mormónatrú-
boðinu á íslandi og fyrstu is-
lendingunum, sem fóru til Utah.
Biskupinn segir frá aðdraganda
trúboðsins á íslandi:
— Árið 1852 hófu Mormónar
trúboð í Danmörku. Um þær
mundir voru tveir íslenzkir
drengir þar við verzlunamám,
annar Hafliðason en hinn Guð-
mundsson. f>eir tóku Mormóna-
trú og héldu til íslands skömmu
síðar og settust að í Vestmanna-
eyjum. Hafliðason drukknaði, en
Guðmundsson hóf trúboð á Is-
landi ásamt dönskum Mormóna.
Varð þeim nokkuð ágengt á Suð-
urlandsundirlendinu og í Vest-
mannaeyjum.
Fyrsti islendingurinn til Utah
Fyrsti Íslendingurinn, sem fór
til Utah, var Samúel Bjömsson.
Lagði hann af stað frá islandi
árið 1854 með konu sinni, Mar-
gréti. Fóru þau til Danmerkur,
þaðan til Hamborgar og sigldu
síðan yfir til New Orleans. f»að-
an með báti til St. Louis, Missouri
«i þar keyptu þau sér hestvagn
og vistir og héldu til Counsel
Bluff í Iowa, en þar höfðu Mor-
mónar reist trúboðsstöð. Síðasta
spölin til Utah fóru þau fótgang-
andi. Það var hættuleg ferð yfir
slétturnar og á hverri nóttu
mátti búast við árás Indíána. —
En Samúel komst heilu og
höldnu með fólk sitt til Utah
sumarið 1855 og settist að í
dönsku landnámi, sem nefnt var
„Spanish Fork“. Þar var loftslag
gott og íslendingunum fannst
þeir vera eins og heima hjá sér.
Samúel efnaðist vel vestra og
komst til mannvirðinga með
Mormónum.
Þórður Diðriksson og hók hans
Næsti Íslendingur, sem settist
að í Utah, var Þórður Diðriks-
son. Hann kom ári síðar en
Samúel og vann það afrek að
aka dóti sínu á handvagni yfir
sléttumar. Þetta voru hættuleg-
ar ferðir og komst ekki nema
helmingur af leiðangursmönnum
alla leið. Þegar Þórður kom til
Utah kvæntist hann íslenzkri
stúlku, Helgu, sem þangað hafði
komið með Samúel Bjömssyni.
— Þórður skrifaði bók um
Mormónatrú?
— Já, -hann skrifaði bókina
„Aðvörunar og sannleiks raust“,
sem að nokkru er þýðing á bók
eftir Parley P. Pratt: „The Voice
of Waming“. Hefur Þórður þýtt
þessa bók á köflum, en bætt við
athugasemdum og hugleiðingum
frá eigin brjósti.
— Þessi bók Þórðar mun nú
fáséð?
— Það mun hún vera. Þó gát-
um við útvegað Halldóri Kiljan
eitt eintak af henni þegar hann
var í Utah. Það var gaman að
sjá framan í hann þegar við feng
um honum bókina. Annars mun
vera til eintak af henni í Lands-
bókasafninu hér. Bók Þórðar var
þýdd á ensku vestur í Utah.
John Bearnson
— Hversu margir Mormónar af
íslenzkum uppruna munu vera
þar vestra?
■— Það er erfitt að segja ákveð-
ið um það, en mætti gizka á 5000.
Heilög hjónabönd
— Hvað um fjölkvæni?
— Það er úr sögunni fyrir
löngu. En það var aldrei eins
víðtækt og sögusagnir gætu gef-
ið tilefni til að halda. Munu um
3% af Mormónum hafa lifað í
fjölkvæni árin, sem það var
leyft. Þurfti sérstakt leyfi til að
taka sér fleiri konur en eina og
menn urðu að sanna að þeir
gætu séð fyrir fjölskyldunum.
Hjónabandið hefur alltaf verið
álitið heilagt hjá Mormónum,
hvort sem leyft hefur verið að
hafa eina konu eða fleiri.
— Tíðkaðist fjölkvæni meðal
íslenzku Mormónanna?
— Ekki er mér kunnugt um að
svo hafi verið. Þó skal ég ekki
fullyrða um einn, sem hét Gisli.
Talið berst nú að safnaðar-
— Upphafió
starfið
Framh. af bls. 3
urmunir í einföldum nútíma-
formum. Hökull prestsins er
eininig unninn af Unni Ólafs-
dóttur, rauður með gullþræði
og íslenzkum ópalsteinum.
Litaðir kirkjugluggar.
Of langt yrði að telja upp
í smáatriðum það sem ber fyr
ir augu kirkjugesta inni í
þessu guðshúsi. En ekki er
hægt að lýsa kirkju án þess að
tala um gluggana. Þeir eru að
vísu ekki komnir í það horf
sem verða á, en þeir eru ekki
í hinum hefðbundna stíl frem
ur en annað í þessari kirkju.
Uppi yfir svölunum er 10
m breiður gluggi. Þar eiga að
koma litaðar kirkjurúður ab-
starkt í formi, sem Nína
Tryggvadóttir, myndhöggvari,
hefur gert. Að vísu er fé ekki
til ennþá fyrir þessum glugg-
um, en teikningin liggur full
gerð i kirkjugluggagerð úti í
Þýzkalandi.
Annar aðalglugginn er á suð
urhliðinni. Hann er stór og
breiður og grænar plöntur
vefja sig upp eftir honum.
Þar sjá kirkjugestir beint út
og þeir sem fyrir utan eru
inn, eftir að kveikt er í kirkj
unni. — Hér fer ekkert fram
sem ekki má sjást, sagði prest
frúin, þvert á móti.
Og á veggnum andspænis
er örmjótt band úr lituðum
gluggum, sem Bendikt Gunn-
arsson, listmálari, gerði. Það
er ekki mikið áberandi, en
þegar ljós er inni skiptir það
heilum norðurveggnum fagur
lega að utan séð. Veggflötur
inn er annars að utan mjög
heillegur, hugsaður þannig að
seinna meir megi mynd-
skreyta hann.
Lýsingin í kirkjunni er einn
ig skemmtileg en einföld. í
svörtum málmskermum eru
opnir krossar og þegar dimmt
er úti varpar birtan frá lömp
unum stækkuðum skugga-
myndum af krossum á hvíta
veggi kirkjunnar.
Kirkjulegt tákn hvaffan sem
á er litið.
Ef til vill segja nú einhverj
ir: — Þetta er nú gott og
blessað. Ekkert nema gott um
það að segja að hafa fallegt og
frumlegt. En ég vil hafa mína
kirkju, svo ekki sé neinn vafi
á að ég sé að koma í guðshús,
þegar ég nálgast hana, ekki í
eitthvert nýtízkulegt hús.
Hvað þetta nýja guðshús á-
hrærir, blandast engum hugur
um að þarna sé kirkja, þó
ekki sé hún í hinum gamla
sveitakirkjustíl. Hvaðan sem
á hana er horft sjást kirkju-
leg tákn, komið fyrir á lát-
lausan hátt:
Að framan kross og klukku
turninn með upplýstum klukk
unum í myrkri, opin kross-
merki í steinsteyptum hliðum
turnsins ef horft er á hann
frá ‘hlið og klukkuituminn
sem gnæfir nægilega hátt til
að sjást vel frá bakhliðinni.
Það getur engum blandast
hugur um að þarna er guðs-
hús, hvort sem að er komið að
utan eða gengið inn, þó flestar
af hinum hefðbundnu reglum
um hvernig kirkjur skuli vera
á íslandi séu þar brotnar.
— E.Pá.
skipulagi Mormónakirjunnar. —
Æðsti maður hennar á hverjum
tíma er talinn spámannsmaki, en
sér til aðstoðar hefur hann 12
manna ráð. Úr þessu tólf manna
ráði er svo næsti eftirmaður val-
inn. — Biskupinn segir okkur að
lokum frá útbreiðslu Mormóna-
kirkjunnar, sem er mjög mikil og
trúboð þeirra festir víða rætur.
j.h.a.
Melbourne, Ástralíu, 25. ág. —.
Kona nokkur, sem hélt því fram
við lögregluna, að hún hefði skot
ið mann sinn til bana af ót'.a
við, að hann kæmist að því, hve
miklum skúldum hún hefði safn
, var dæmd til dauða í dag fyrir
morð að yfirlögðu ráði. Sýknun
mun ekki koma til greina
* Síðsumarsnætur
Nú lengir nóttina óðum og
skuggamir læðast fyrr niður
hlíðina en þeir gerðu í sum-
ar. Það er ems og ugg slái
í brjóst manni þegar þess
verður fyrst vart fyrir alvöru
að myrkrið sé að sigra björt
sumarkvöld. En kvöldmyrkr-
ið hefur einnig sínar fögru
hliðar og margir munu taka
undir með skáldinu, og telja
kyrrlátt haustkvöld með því
fegursta sem þeir hafi lifað.
Síðsumarskvöldin hafa ætíð
verið tengd rómantískum
minningum. Fyrr á árum,
meðan kaupakonur voru á
hverjum bæ á sumrum, áttu
sveitadrengirnir hugljúfar
minningar um síðustu daga
kaupakonurnar í sveiúnni.
Þeir áttu fyrir höndum lang-
an vetur við gegningar og
önnur tilbreytingarlaus störf
og fundu því vel hvern sólar-
geisla þeir misstu úr lífi sínu
þegar kaupakonan fór aftur
til borgarinnar. — Þetta mun
enn gerast að nokkru, þó Vel-
vakandi hafi grun um, að
rómantíkin sé ekki jafnsterk
og fyrrum, því hún á erfiðara
uppdráttar á þessari öld
hraðans. En hitt mun mála
sannast að kaupakonur eru
kvaddar virðulega á okkar
tímum og senn munu auglýst-
ir dansleikir í hverju félags-
heimili.
* Ólæknandi sjúk-
dómar
Um daginn skrifaði maður
Velvakanda og talaði um ó-
læknandi sjúkdóma. Varpaði
hann fram þeirri spurningu
hvort hægt væri að kalla
nokkurn sjúkdóm ólæknandi
FERDIIM AMD
og spurði hvort ekki væri rétt
ara að segja, að enn hefði
ekki verið fundið upp lyf við
þessum tiltekna sjúkdómi.
Þetta sjónarmið mun ekki
fjarri sanni og í blaðinu í gær
var frétt, sem studdi þessa
uppástungu bréfritarans. Var
þar sagt frá nýju lyfi, sem
brezkir vísindamenn hafa
fundið upp, sem er með þeim
ágætum, að það vinnur á sótt
kveikjum, sem eru orðnar ó-
næmar fyrir venjulegu
penicillini. Mun þannig
lengi hægt að búast við nýj-
um afrekum á sviði læknis-
listarinnar og sennilega er
það rétt hjá bréfritaranum,
að raunverulega er enginn
sjúkdómur ólæknandi, en það
eru ekki enn fundin lyf til að
lækna þá alla.
* Breytt veður
Þá er norðanáttin vikin,
sem hefur verið allsráðandi
um veðurfar að undanfórnu
og má búast við breyttu veðri
á næstunni. Sumarið hefur
verið svo sólríkt hér sunnan-
lands, að menn muna ekki
annað eins og var jafnvel svo
langt gengið að menn voru
hættir að tala um veðrið. en
töldu sjálfsagt að sól skini
dag hvern. Ekki er það ætlan
Velvakanda að fara að spá
rigningu, en þegar haustar að
fer allra veðra að verða von.
Og við Reykvíkingar getum
verið ánægðir yfir því veðri,
sem við höfum haft og þurf-
um ekki að kippa okkur upp
við einn og einn rigningaidag
úr þessu.