Morgunblaðið - 06.09.1960, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 06.09.1960, Qupperneq 3
J>riðjudagur 6. sept. 1960 M O R C U N B L A Ð1Ð 3 Bröðir Feddi í Landakoti: — Fyrst ég bara slá fast oní jörðina og brjóta allt saman. Ljósm.: vig. ÉG hallaði mér út um stóran gluggann á sjúkraherberginu á Landakotsspítala. Klukkan var að verða 6 og brennandi síðdegisgeislar sólarinnar skinu í andlit mér. Landakotstúnið hafði ný- lega verið slegið og töðuang- «n bar fyrir vit mín. Þá sá ég gamlan, hvítskeggjaðan mann ganga hciman frá prestsbú- staðnum, yfir slægjuna og til kirkjunnar. Mér varð star- sýnt á þennan gamla mann. Hefði ég verið borinn og barnfæddur Reykvíkingur, ég tala nú ekki um Vesturbæing-; ur, hefði ég vitað hver þetta var. Systir Anna kom inn i sjúkra- herbergið. — Hvað ertu að gera úti við glugga? Hefir læknirinn leyit þér að fara fram úr? ★ Ég varð fár við spumingun- um, sem bornar voru fram með alvöruþunga, en þó með þeirri móðurlegu umhyggjusemi, sem aðeins systir Anna á til að bera. Ég sagði því eins og var, að ég hefði verið að horfa á gamlan gráskeggjaðan mann, sólina og heyið. — Hvaða maður er þetta? Hann fór út í kirkju. Hvað er hann að gera þangað? — Þetta er bróðir Ferdinand, eða Feddi, eins 'og við köilum hann. Hann er að fara að biðja, svolítið — fyrir ykkur, sem aldrei biðjið, sagði systir Anna með góðlátlegu brosi um leið og hún breiddi ofan á mig sængina og leit til flugmannsins, sem lá í hinu rúminu. — Hann Feddi tekur í nefið og ég hef oft rifizt við hann út af þvi. Hann setur tóbakið út um allt. Annars er hann merkilegur karl, búinn að vera hérna í 50 ár. — Mig langar til að tala við hann. Værir þú fáanleg til þess að koma mér í kynni við hann? — Já, já. Ég skal gera það. En þú verður að skrifa vel um hann, þó hann taki mikið í nef- ið. ★ Daginn. sem ég fékk að fara af spítalanum, fann ég ekki systur Önnu og leitaði því einn að Fedda gamla. Ég hitti prest í Landakotshúsinu og hann sagði mér að Feddi myndi vera einhvers staðar á rjátli úti í kirkju eða í garðinum. Ég fór út í kirkju en fann Fedda ekki þar.Þýðir orgeltónar íylltu hvelfinguna. Annars var dauðakyrrð. Mér fannst klikkið í myndavélinni, þegar ég tók mynd inn í kórinn, vera eins og byssuhvellur. Síðan byrjuðu 5. Ilokki DAS. 1 GÆR var dregið í 5. fl. Happ- drættis DAS um 50 vinninga og féllu vinningar þannig: 3ja herb. íbúð Kleppsv. 26 kom á nr. 14156. Eigandi Leifur Bjarnason Sörlaskjóli 44. 2ja herb. íbúð Kleppsv. 30 tilbúin undir tréverk kom á nr. 46767. Eigandi Snorri Sigfússon, Skál- holti, Akureyri. Ford Anglia fólksbifreið kom á nr. 47645 Eigandi Rannveig Stefánsd. Máva hlíð 26. Moskvitoh fólksbifreið orgeltónarnir aftur. Ég ráfaði út á tún að graf- reitnum að kórbaki þar sera Meulenberg biskup hvílir. f sambandi við lát hans heyrði ég sögu. Hann var einstæður barna vinur. En einn daginn kom hann ekki og börnin fóru að spyrja systurnar hvar hann væri. Þær reyndu að útskýra fyrir þeim að hann væri látinn. Fjögurra ára snáði skildi þetta ekki, en varð hugsi. Eftir nokkra stund sagði hann við systurina og var þungbúinn á svip. — Þegar' ég er orðinn stór ætla ég að verða biskup, sem er góður við börnin. Og ég ætla aldrei að deyja. ★ En ekki var Feddi hér. Ég gekk að húsabaki á Landakoti, þar sem áður voru gripahús. Ég gægðist inn um glugga og dyr. kom á nr. 1713. Eigandi Guðlaug Pétursdóttir, Fálkagötu 9A, Vog- um. Píanó kom á nr. 21011. Eig- andi Viktor Sigurjónsson, Vallar- götu 18, Vestmannaeyjum. Eftir talin númer hlutu 10.000,00 kr. vinning hvert: 4793, 10526, 48751, 51752, 55368, 64654. Husquarna saumavél kom á nr. 37396. Eftirtaiin númer hlut kr. 5.000,00 vinning hvert: 580, 3276, 5520, 8695, 9670, 1023‘9, 10344, 10403, 11839, 15402, 15970, 16322, 17251, 17260, 19318, 19616, 20363, 22412, 22437, 23103, 23920, 23934, 24030, 24934, 27814, 27939, 34077, 37660, 37901, 38689, 41369, 41589, 47240, 51276, 54762, 56039, 46245, 61677. (Birt án ábyrgðar). — Jú þarna var Ferdinand í Landakoti. — Já ta var nú bara mikið rusl hér. Ég er að sópa soldið, sagði hann með góðlátlegu brosi, er ég sagði honum hver ég væri og hverra erinda. — Nei nú eru engar kýr hér, ekki meir. Langt síðan. Við gengum inn í prestshúsið og settumst niður. Feddi sagði mér að hann hefði komið hir.g- að 1910 og núna 6. september væri. hann búinn að vera hér í 50 ár. Hann er fæddur í Op- Itter í Suður-Belgíu og hann varð 83 ára 7. júlí sl. Bróður á hann, sem er bóndi þar úti og er 84 ára. Systir hans er nunna og er 91 árs. Bróðir Ferdinand fór í klaustur í Hollandi 1899 og var þar í eitt ár. Síðan fór hann í annað klaustur í Suður-Frakk- landi og var Þar í 4 ár en því FYRIR skömmu fékk löreglu- stjórinn á Keflavíkurflugvelli til rannsóknar innflutning á úrum og varahlutum í úr, sem dansk- ur maður, Paul Heide, hefur flutt inn í sambandi við verzl- un varnarliðsins, auk þess sem hann rekur úrsmíðavinnustofu, þar sem gert við úr fyrir varn- arliðsmenn. Leikur grunur á að varning- urinn, sem ekki er greiddur toll næst til Danmerkur og var þar í 7 ár áður en hann kom hingað. Hann segist fara út og heim- sækja ættmenni sín með nokk- urra ára millibili. Fyrst fór hann héðan 1920, komst ekki fyrr vegna stríðsins. — Og varstu þá ekki búinn að gleyma móðurmálinu? — Fyrst ég skilja ekki neitt heima. Það var svo erfitt. Fyrst að læra. fransk og svo að læra dansk og svo íslenzk og ta var allra verstur, segir Feddi og hlær. ★ Við röbbum um Landakot í gamla daga. Þá voru þar 6 kýr, en nú nytjar Kristján Vigfússon túnið og gefur héstum heyið.Hey skapur var aldrei mikill á Larida kotstúninu, því kúnum var beitt á það. Það fengust af því 60—70 hestar. En þeir höfðu líka Mela- túnið og svo var hey keypt. Bróðir Feddi hafði aila umsjón með búskapnum, sló sjálfur tún- in framan af, en það gekk illa fyrst í stað. Orfið og ljárinn var allt öðru vísi hér en í Belgíu, ljárinn léttari og orfið lengra. — Fyrst bara slá fast oní jörðina og brjóta allt saman. Svo höfðu þeir líka garð, Inæpurgarð eins og börnin köll- uðu hann. — Feddi óttu ekki næpu, köl • uðu börnin og héngu á girðing- ] unni þar sem nú er hús Vil- hjálms Þór. Jú Feddi á:ti næpu og hann gaf börnunum rófur En nú eru engar næpur og engar kýr. Feddi er hættur að slá. Hann er líka hættur aö hringja kirkjuklukkunum en það gerði hann um langt árabii. Nú er það gert með rafmagni. Hann kæmist líka varla upp í turninn lengur. ★ — Ég er nú með stíva ben og get nú ekki meget mer, segir Feddi og fær sér í nefið. — Og börnin sungu um þig? — Já ta var víst ei lítil 7 ára smástúlka sem gerði vísu: „Ferdinand í Landakoti hann er svo góður við börn Hann gefur þeim stundum myndir og biblíumyndir þá.“ Og þetta sungu börnin. Þau kölluðu Fedda líka afa eða sögðu: — Nei pabbi sjáðu jóla- sveinninn. Já það eru mörg börn, sem þekkja munkinn okkar á Landa- koti, jólasveinninn með hvíta skeggið, sem nú er búinn að vera hér í 50 ár. — Ég kann vel við mig hér. Ég fara kannski heim næsta ár, en koma aftur. Ég vil helzt deyja hér. ur af, hafi ekki allur lent hjá varnarliðinu. Rannsókn málsins er á byrjun arstigi, skv. upplýsingum, sem blaðið fékk í gær hjá Þorgeiri Þorsteinssyni, fulltrúa lögreglu- stjóra, sem ekki taldi að hér mundi um stórmál að ræða. Ekkert annað mál af slíku tagi er nú í rannsókn hjá löreglu- stjóraembættinu að því er Þor- geir upplýsti. STAKSTEIIVAR Ungir menn í Framsókn Það var ánægjulegt að verða þess áskynja á dögunum, að enn eru til í Framsóknarflokknum menn, sem hafa kjark til að túlka ábyrga afstöðu í varnarmálun- um. Xveir ungir menn rita í blað ið um þessi mál á annan veg en leiðtogar flokksins hafa gert að undanförnu. Annar þeirra, Dag- - ur Þorleifsson, segir m. a.: „Norður-Atlantshafsbandalag- ið, sem í daglegu tali er kallað NATO, var stofnað af velflestum ríkjum Vestur-Evrópu og Norð- ur-Ameríku til varnar gegn sí- vaxandi ágengni rússneska stór- veldisins. Mega slík samtök telj- ast einkar eðlileg, því auk þess sem þessi ríki óttast gripdeildir eins og sama óvinar, eru þau margskonar böndum tengd, menn ingarlegum, stjórnarfarslegum e. fl. Herir bandalagsríkjanna voru settir undir eina stjórn, sem síð- an gerði þær ráðstafanir banda- laginu til verndar, er nauðsyn- legar þóttu. Þar er fsland var talið hernaðarlega mikilvægt en hafði engan her, var óhjákvæmi- legt að hin hervæddu bandalags- ríki kæmu þar upp herstöðvum, er ófriðarhættan var yfirvof- andi. HERSTÖÐIN í KEFLAVÍK, ER FRAMLAG ÍSLANDS TIL NATO“. (Leturbr. höf.) Ástæðurnar enn fyrif hendi Og höfundur heldur áfram: „Meðan íslendingar telja þátt- töku sína í NATO eðlilega og nauðsynlega, geta þeir því tæp- lega neitað herstjórn bandalags- ins um leyfi til hersetu hér . , . En nú mun ef til vill einhver spyrja: Er okkur nokkur nauð- syn að vera í NATO? Jú, tví- mælalaust, eins og sakir standa. Eins og ég drap á áðan, eru þjóð- ir þær, sem að bandalaginu standa, nátengdar menningar- Iega og stjórnarfarslega. Flestar hinna germönsku og rómönsku þjóða Vestur-Evrópu og Norður- Ameríku eru þátttakendur í þess um samtökum. Menning þeirra er yfirleitt hin sama, vestræn lýðræðismenning. Sé þessari menningarheild ógnað af annarri, er ekkert eðlilegra en þjóðir þær, sem hlutdeild eiga í henni, taki höndum saman henni til varnar. ÞÆR ÁSTÆÐUR VORU FYRIR HENDI VID STOFNUN NATO OG ERU ÞAÐ ÞÓ ENN FREKAR NÚ“. (Leturbr. höf.) Þátttakendur í valda- jafnvægi Hinn greinarhöfundurinn á æskulýðssiðu Tímans, Marteinn Guðjónsson, segir m. a.: „Andstæðingar hersetunnar hafa fordæmt ýmis valdarán Rússa, svo sem Ungverjalands- málið, á sama tíma og þeir heimta herinn burt af landinu og vilja kenna honum flest það, sem miður fer í okkar þjóðfélagi. Nú í seinni tíð hefur oft legið við, að allt færi í bál og brand, nýtt stríð skylli á. Hafa þeir sömu menn gért sér Ijóst, að þeir eru beinir þátttakendur í því valda- jafnvægi, sem skapazt hefur hin síðari ár? Það er engin fjarstæða, hvernig sem andstæðingar her- setunnar Iáta, að það er vegna sáttmála Atlantshafsríkjanna og þeirra samstöðu, að þau hafa ekki verið yfirbuguð með rúss- nesku setuliði, eins og svo marg- ar smáþjóðir í Evrópu verða að þola þessa stundina“. Vonandi er að áhrifa hinna yngri manna í Framsóknarflokkn um, sem raunhæft líta á varnar- málin, gæti í vaxandi mæli í flokknum, svo að Framsóknar- menn rjúfi ekki samstöðu þá, sem lýðræðisflokkarnir hafa haft um utanríkisstefnuna. — vig. 50 vinningnr í Urum smyglað um völlinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.