Morgunblaðið - 06.09.1960, Page 6

Morgunblaðið - 06.09.1960, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 6. sept. 1960 Atli Steinarsson skrifar frá Róm: mmmmmmmmMmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmammmmmmmmmmmmmimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmaammmmm\ Svavar setti Islandsmet — var ,útkeyrður' Valbjörn féll úr með 4,20 Einskeyti frá fréttaritara Morgunblaösins. Róm, J,. september. — SVAVAR Markússon varð 20.—21. af 38 keppendum í 1500 metra hlaupinu. Hlaup- urunum var skipt í þrjá riðla og komust þrír úr hverjum þeirra í úrslitahlaupið. Lé- legasti tími úrslitamanns var 3.44,9 mín. Svavar var í öðrum riðli. Úr- slit þar urðu: 1. Bemard, Frakk- landi, 3.42,2 mín., 2. Grelle, USA, 3.43,5 mín. 3. Hammarsland, Nor- egi, 3.44,4 mín., 4. Kent, Enig- landi, 3.46,7 mín., 5. Thomas, Ástralíu, 3.46, 8 mín., 6. Valentin, Þýzkalandi, 3.46,9 mín., 7. Svavar Mankússon, íslandi, 3.47,1 mín. (ísl. met), 8. Rizzo, Ítal-íu, 3.47,3 tnín., 9. Barabas, Rúmeníu, 3.47,4 tnín., Dalkilic, Þýzkalandi, 3.47,9 tnín., Philphomonkol, Thailandi, 4.24,4 mín. Parsoh, Ungverjalandi hætti. Svavar náði 6. sæti eftir við- bragðið, en var 10. er 400 m voru búnir og 8. eftir 800 m. Þegar bjallan hringdi og einn hriingur var eftir var Svavar í 7. sæti. Hann fór síðan framúr tveimur á beinu brautinni, en missti aðra tvo framúr sér á síðustu metr- umum. Hann var alveg útkeyrður Og borinn í sjúikraiherbergi vallar- ins. Þfir var hann í þrjá stundar- fjórðunga. f fyrstu átti að gefa honum súrefni, en hætt var við það og honum gefin sprauta. Við það jafnaði hann sig. Aðeins sex fyrstu tímar eru birtir á töflu vallarins og Svavar vissi ekkert um tímann fyrr en blaðamenn komu og sögðu honuim hann. Hann var þá hinn hressasti, en kvaðst hafa verið orðinn þreyttur á hitanum og biðinni. Vonast hann eftir að ná enn betri árangri í landskeppninni við Austur-Þjóðverja. Valbjörn í stangarstökki. Valbjörn keppir í stangarstökki á mánudag og er síðastur í keppn isröð af 31. Hitinn hefir haift slæim áhrif á Valbjörn, og hefir hann farið hæst 4,20 m á æfingum. RÓM, 5. sept. — Valbjörn varð 18.—25. í stangarstökkinu með 4,20 m. Hann stökk 4,00 og 4,20 í fyrstu tilraun. Hann var langt frá því að fara yfir 4,30 í fyrsta stökki, en nálægt því í hinu síðasta. Meðal þeirra, sem heltust úr lestinni með Valbirni voru: Clarke, USA, sem hefir stokk- ið 4,60, Lezek, Júgóslavíu og Gronowski, Póllandi. Hitinn var 31 stig, er keppnin fór fram og nokkur misvindur, sem gerði keppendum lífið leitt. ÞETTA er hinn skeggjaði grúsíski hástökkvari Robcrt Shav Lakadze, sem hrifsaði gullpeninginn á svo eftirminni legan hátt frá Thomas, heims- meistaranum. Kalt stríð í kúluvarpi RÖM, 31. ágúst: — Þó heitt sé í veðri og barizt sé af miklum móð um sentimetra og sekúndubrot, þá dylst engum að dálítið kalt stríð er á milli bandarísku kúlu- varparanna — þ. e. a. s. milli O’Brien og Nieders. Þeir banda- rísku voru í algerum sérflokki í keppninni á miðvikudag. í keppninni um morguijinn lék Nieder það til dæmis að ganga í fullum búningi inn 1 hringinn og henda úr kyrrstöðu 17.14 m. Það kann að vera að þessi aðferð hans verið Jiður í kalda stríðinu. En vel hafði hann efni á þessu — takmarkið inn í aðalkeppnina var 16.75 og Bandaríkjamönnun- um létti. 1 lokakeppninni aðskildu banda rísku kúluvarpararnir sig alger- lega frá hinum. Þeir þrír köst- uðu allir yfir 19 metra, svo kom meters bil (milli 18 og 19 m strikanna) þar sem ekkert merki stóð eins og einskis manns land í hernaði og þar fyrir aftan voru merki um kastlengdir Evrópu- mannanna. O’Brien hafði forystu þar til t 5. umferð. Þá fyrst tókst Nieder að kasta gildu kasti yfir 19 metra. Og það munaði um það þegar það kom, 19.68. I sömu umferð komst Dallas Long yfir 19 metrana — 19.01. Þeir töluðust aldrei við á með- an á keppninni stóð O’Brien og Nieder svo að séð yrði og virtist Nieder vera sá er olli því. Hinir tveir ræddu mikið saman. O’Brien undirbjó sig vel undir síðasta kastið, rak alla keppend- ur og starfsmenn frá aftan við 'hringinn. En aðstæður voru slæm ar, því 5 km hlaupið stóð yfir við stöðug óp 70—80 þús. áhorfenda. Og O’Brien varð að láta í minni pokann og sjá af Olympíumetinu, sem hann hefur átt í 8 ár. Þegar hann hafðí síðast varpað, gekk hann rakleiðis til Nieder og ósk- aði honum til hamingju. Og þeg- ar þeir stóðu á pallinum og Nied- er fékk gullið afhent var O’Brien fyrstur að hefja klappið Nieder tii heiðurs. — A. St. Hilmar virtist taugaóstyrkur - en sýndi góð tilþrif Róm, 31. ágúst. HILMAR sýndi allgóð tilþrif í 100 m hlaupinu hér í morg- un. Það brá aftur fyrir þeim Hilmari, sem áður fyrr sigr- aði suma af heztu spretthlaup urum Evrópu. Hann virtist dálítið taugaóstyrkur er 9. riðill hófst, þerraði oft and- lit sitt með blússuerminni og þegar í holurnar var komið var hann æstur nokkuð og tók viðbragðið of snemma, svo hlaupararnir voru kall- aðir úr holunum aftur. Er næst var ræst var Hilmar heldur seinn af stað — sat þó ekki eftir, en var þungur fyrstu 20—30 metrana. Þá komst hann „í gang“ og tók að vinna á hina og vinna sig fram um sæti. Hann komst í 4. sæti — eins framar- lega og við höfðum frekast þor- að að vona að hann yrði — en aðeins þrír komust í næstu um- ferð hlaupsins. Riðill Hilmars var einna sterkastur af níu riðlum • Fréttirnar sjálfsagða^ Fréttir eru orðinn svo stór liður í daglegu lífi fólks, að sjálfsagt Þykir að fá oft á dag frásagnir af öllu því, sem markvert gerist í veröldinni. Þetta þykir svo sjálfsagt, að fólkið sem lítur á blaðið sitt þegar það vaknar á morgn- ana furðar sig ekkert á því þó sagt sé frá t. d. óeirðum, sem kvöldið áður hafa verið í Kongo. Hér á Morgunblaðinu renna allan daginn inn fréttir á tveimur „teleprinterum“ frá stórum fréttastofum, sem síð- ast er unnið úr hér. Þannig berast fréttirnar svo fljótt, að t d. gátum við sagt vara- forsætisráðherra Kongo, þeg ar hann kom hér við á Kefla víkurflugvelli, frá nýjum at- burðum í heimalandi hans, sem hann hafði ekki vitneskju um, vegna þess að hann hafði engar fregnir haft meðan hann var á leiðinni yfir At- lantshafið í þotu ♦ Frá fréttaritara í Kongó En fregnirnar koma ekki sjálfkrafa á fréttabönd frétta stoíanna. Fyrir helgina fékk Velvakandi bréf frá einum af brezku fréttariturunum í Kongo, sem gefur hugmynd um þá erfiðleika og þá vinnu sem liggur að baki fregnun- um, sem við tökum sem sjálf- sagðan hlut. Þessi maður er John Starr og hefur skrifað forsíðufréttir „Daly Mail“ síð an óeirðirnar byrjuðu í Kongó. „Þið hafið vafalaust lesið Kongófréttirnar, skrifar hann ringulreið og allt á öðrum endanum hér um slóðir, og hvað sjálfum mér viðvíkur, handtökur öðru hverju og stöðugur djöfulgangur við að reyna að koma fréttunum frá sér. Til allrar hamingju höf- um við „teléprint“ hérna, en það þýðir, að maður verður að eyða mörgum klukku- stundum á hverri nóttu í „tel ex“skrifstofunni til að koma fréttunum af stað, bíða eftir símtölum við London og reyna um leið að hafa við nýjungunum, fréttirnar geta breytzt á andartaki. Hér höf- um við haft uppreisnir, upp- þot, belgískt fallhlífalið og svo hið samansetta lið Sam- einuðu þjóðanna. Mér býður orðið við að sjá menn með byssur á hverju götuhorni. — Leopoldville er í rauninni á- kaflega falleg borg með stór- um, breiðum götum, gnægð trjáa og garða, og giæsilegum húsum og auk þess dásamleg- um árbakka. En maður hefur bara sjaldan tíma til að horfa á þett. • Blaðakonur frá Norðurlöndum Einasta huggunin er að vera staddur þar sem frétt- irnar eru að gerast og vera í raun og veru áhorfandi að einhverju af því sem er að móta veröldina, í stað þess að lesa um það órafjarlægð. Aftur á móti er þetta alveg óeðlilegt líf. Maður er úr sam bandi við allt annað, fréttir annars staðar frá, músík, skemmtanir og aðrar betii hliðar lífsins .... Við höfum fengið hingað blaðakonur frá Norðurlönd- um — ein stóð rétt hjá mér, þegar nærri var búið að grýta okkur við Menningarhöllina um daginn, . . . Málið er allt ákaflega erfitt viðfangs, eins og þú getur ímyndað þér. — Kongo er svo gífurlega stórt landsvæði og samgöngur þar ómögulegar. Það er næstum ógerlegt að gefa nokkra lýs- ingu á því .... Þetta er glefsur úr bréfi brezka blaðamannsins. Þær gefa hugmynd um hve mikil vinna liggur á bak við frétt- irnar, sem við lestum dag- lega og finnst ekkert til um. hlaupsins. — Tvö „toppnöfn" voru þar, Radford, Englandi, og Budd, Bandaríkjunum, , (10,3 sek. og 10,2 sek. bezt) og þar var Rússinn Ozolin, einn af beztu mönnum stærstu þjóðar Evrópu. Þó Hilmar hafi fyrr á árum sigrað Ozolin þorðum við ekki að vona — nema í laumi — að svo yrði nú. En með betri byrjun hefði Hilmar án efa náð 10,8 eða jafnvel betra. Tími hans nú er í hlutfalli við tíma hans fyrr í ár, mjög sambærilegur við beztu tíma annarra hlaupara í keppninni á þessu ári og þá tíma, sem þeir náðu hér í þess ari keppni. * A ÓVÆNT Mest á óvænt kom Figuerola frá Kúbu er náði 10,4 sek. —■ svartur en ákaflega sprengilegur og glæsilegur hlaupari. Sama má segja um Johnson frá Antilla, sem náði sama tíma, og loks Estevetes frá Venezuela, sem einnig náði 10,4. Þarna voru því komnir þrír menn sem vart hefur heyrzt á minnzt fyrir þessa leika og náðu ásamt fleirum beztu tímum undanrásar. Það skeður alltaf eitthvað óvænt í stórri keppni. * NÝTT MET Síðar um daginn fór fram næsta umferð 100 m hlaups- ins. Þá kom Hary hinn þýzkl mest á óvart. Hann náði geypi góðu viðbragði — svo að ég minnist ekki að hafa séð slíkt áður. Og tími hans varð 10,2 sek. Það er nýtt Ólympíumet og hann þurrkar út af Ólym- píumetaskránni nöfn Tolans, Owens, Dillards, Morrows og Murchisons. Einstætt afrek — og það er ekki hægt annað en spá þessum unga heimsmet- hafa í greininni sigri — þó allt geti gerzt á Ólympíuleik- um. — A. St. ☆ FERDIN AIMD

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.