Morgunblaðið - 06.09.1960, Side 8

Morgunblaðið - 06.09.1960, Side 8
8 MORCUNBL AÐIÐ Þriðjudagur 6. sept. 1960 Sölvi Betúelsson trá Hesteyri Það er búið oð taka kirkjuna okkar ÞAÐ kom hálfónotalega við mig, er ég 19. þ.m. átti leið inn Hest- eyrarfjörð og sá að Hesteyrar- ikirkja var horfin af sinum stað. Að slíkt yrði gert svona þegj- andi og hljóðarlaust gátum við fyrrverandi og núlifandi Sléttu- hreppingar ekki búizt við. Áður en ég fór frá Hesteyri, var mér kunnugt um núlifandi fólk, sem vildi láta jarða sig x Hesteyrarkirkjugarði, er þar að kæmi, hjá ástvinum og ættingj- um. Því hafði ég komið þeirri ósk okkar á framfæri við opinbera aðila, að kirkjurnar yrðu ekki rifnar eða seldar burt úr hreppn- um af sínum stað. Vísa ég þar til bréfa minna til prófasts dagsett 14. október 1952 og afrit af því sent biskupi ásamt bréfi dagsettu 27. september 1953. Einnig vísa ég é ályktun sýslufundar N. ís. 1952, sem samþykkti það fyrir sitt leyti. Og ennfremur gat ég þess við núverandi prófast hér, eftir að hann tók við því starfi. Þann rétt okkar, að fá legstað í Hesteyrarkirkjugarði frá okk- arar eigin kirkju, hefur nú verið stigið á og hann afmáður. Sú er þá tillitssemin hjá nústarfandi kirkjuyfirvöldum við slíkar ósk- ir. Og hversvegna er nú þetta gert? Jú, Súðavíkurþorp vantaði kirkjuhús. Einhvernveginn hefur það ekki haft ráð til að koma sér upp slíku húsi, eins og önnur byggðarlög, án þess að seilast eftir því frá öðrum stað. En þá vaknar spurningin um Hesteyrarkirkju, sem er kannske allt önnur en t. d. Aðalvíkur- kirkju og .kirkna, sem byggðar eru fyrir opinbert fé: Hver hafði slíkan ráðstöfunar- rétt á kirkjuhúsi Hesteyrar- kirkju? Og hvaðan er sá réttur tekinn? Ég veit, að sem starfandi kirkja heyrði Hesteyrarkirkja því opinbera til, sem aðrar kirkj- ur. En kirkjuhúsið til ráðstö-fun- ax burt af sínum stað Hver átti það og þann rétt? Hvað hefur Hesteyrarkirkja þegið af opinberu fé? Jú, ég veit um kr. 2000.00 að láni til endur- bótar árið 1928. En það lán var borgað upp með vöxtum sam- kvæmt samningi á sínum tíma. Annað íé opinbert er mér ekki kunnugt um samkvæmt sögn gam alla manna. Það var norskur hvalveiði-mað ur, Markus C. Bull frá Tonsberg, sem útvegaði efniviðinn í Hest- eyrarkirkju. Hann flutti hann sjálfur til landsii*, lét byggja kirkjuna og afhenti hana söfn- uði Sléttuhrepps uppkomna, að miklu leyti sem gjöf til Hesteyr- inga. Yfirsmiðurinn hét Ólaf Nielsen. Hann var giftur ís- lenzkri konu, Sturlínu Jensdótt- ir frá Hesteyri. M. C. Bull gaf fieira til Hesteyrarkirkju. Hann gaf veglega altaristöflu, ljósa- stjaka, kaleik, altariskönnu, patinu, skírnarskál, sálmabækur o. fl. Sagt var mér að frú Sigríður Ásgeirsson hafi gefið. silfur- stjakana á altarið og altarisdúk- inn gamla. En konur á Hesteyri gáfu kirkjunni nýtt og vandað altarisklæði vorið 1942, og vand- aðan altarisdúk nokkrum árum síðar. Þegar ég skilaði bókum Hest- eyrarkirkju- frá mér, 7. febrúar 1953, átti hún í sjóði kr. 1157.22. Að vísu ekki mikil upphæð. Hvað verður nú um þennan sjóð? Verð- ur hann gefinn Súðvíkingum líka? Ég veit um þó nokkra Hesteyr- inga og fyrrv. sóknarbörn Hest- eyrarkirkju, hér í nágrenni við mig, sem þykir mjög miður um sh'kar aðfarir sem þessar, og ekki hefur það þótt ómaksins vert að gefa okkur kost á að fara norður- yfir og kveðja kirkjuna okkar áður en ráðist væri á hana til mðuri ifs. Hafnargötu 10 Bolungarvík 28. ágúst 1960. Sumkomur Fíladelfía Safnaðarsamkoma kl. 8.30. HALLÓ! HALLÓ! Frá Verksmiðju Ltsolunni Kvenpeysur 100.—, Barnapeysur frá kr. 25.—, Kvensloppar kr. 125.—, Kvenkjólar frá kr. 100.—, Batnasokkabuxur kr. 38.—, Alullarefni í skólabuxur tvíbreitt kr. 65.—, og ýmis konar efni í úrvali frá kr# 10.— svo eitthvað sé talið. * Verksmiðju Utsalan Víðimel 63 Ibnabarhúsnœbi ca. 100 ferm. óskast á götuhæð. Þarf ekki að vera fullstandsett. — Tilboð merkt: „Iðnaður — 687“, sendist afgr. Mbl. fyrir fimmtudagskvöld. Afvinna Nokkrar stúlkur geta fengið atvinnu við iðnaðarstörf. — Upplýsingar í verksmiðj- unni, Þverholti 17. Vinnufatagerð íslands hf. Þótt einkennilegt kunni að virðast, slapp ökumaðurinn, Jack Rounds, lífs af úr byltunni, skrámaðist aðeins lítillega. M.s. Tungufoss fer frá Reykjavík miðvikudaginn 7. þ. m. til V estmannaeyj a, Isafjarðar, Sauðárkróks, Siglufjarðar, Akureyrar, Húsavíkur. Vörumóttaka á þriðjudag. Hf. Eimskipafélag íslands. SKIPAUTGCRB RIKISINS Herjólíur fer til Vestmannaeyja og Horna- fjarðar á morgun. Vörumóttaka í dag. Farseðlar seldir árdegis á morgun. Félagslíf Knattspyrnufélagið Þróttur Æfing verður í kvöld kl. 8 á íþróttavellinum fyrir M., 1. og 2. flokk. Mjög áríðandi að sem flest ir mæti. Þjálfarinn. Ifandknattleiksdeild Vals 2., 1. og meistaraflokkur karla. Æfing í kvöld kl. 8,30 að Hlíðar- enda. Stjórnin. Handknattleiksdeild Vals Stúlkur. — Áríðandi æfing í kvöld kl. 8. Nýir félagar vel- komnir. Stjórnin. Cjaidkeri Trúverðugur ungur maður eða stúlka, óskast til gjaldkerastarfa o. fl. — Góð undirbúningsmenntun og meðmæli nauðsynleg. — Umsóknir sendist afgr. Mbl. merktar: „Gjaldkeri — 577“, fyrir 10. þ.m. Bifreiðaeigendur — Rútubíll Vil kaupa góðan rútubíl 35—40 manna með diesel- vél. — Þeir, sem vildu sinna þesu, sendi tilboð með upplýsingum á afgr. Mbl. fyrir laugardag 10. þ.m. merkt: „Rútuoíll — 0895“. Afvinna Maður óskast til aðstoðar í verksmiðju okkar. Barðinn hf. Skúlagötu 40 Gunnar Jónsson kaupmaður HINN 28. f. m. andaðist á Lands- spítalanum Gunnar Jónsson kaupmaður Týsgötu 3 hér í bæ. I dag verður hann jarðsunginn frá sinni fornu sóknarkirkju, að Skarði á Landi. Foreldrar hans voru hjónin Jón Gunnarsson, Árnasonar, Finnbogasonar frá Reynifelli og Ólöf Jónsdóttir frá Lunansholti. Var hún einnig af Reynifellsætt og líka af Heydala- ætt. Af börnunum eru nú 4 á lífi, öll búsett hér í bænum. Bjuggu þau hjón alla tíð i Hvammi, góðu og gagnsömu búi. Ólst Gunnar upp hjá foreldrum sínum á góðu og traustu heim- ili og fekk hið bezta uppeldi. Árið 1915 hóf Gunnar nám f Verzlunarskólanum og lauk prófi þaðan vorið 1917. Eftir það hóf hann verzlun með öðrum hér i bænum og síðar einn. Hætti hann þá verzlun um hríð, en hóf aftur verzlun árið 1931 á Njálsgötu 23, en 1943 flutti hann sig og verzl- un sína á Týsgötu 3. Verzlaði hann þar óslitið unz hann hætti á síðastliðnu vori vegna heilsu- brests, er þá ágerðist óðfluga. Hann fór á Landsspítalann í byrjun júlímánaðar þ. á. til rann- sóknar. Uppskurður var gerður án árangurs. Von var um lítils háttar bata í bili, en það brást og hann fékk hægt andlát 28. f. m. — Gunnar var alla tíð ókvæntur og barnlaus, en um 30 ára skeið bjó með honum Þjóðbjörg Páls- dóttir, er alla tíð reyndist hon- um hið bezta og ekki sízt síð- ustu mánuðina, er hann barðist vonlítilli baráttu. Gunnar Jónsson var glæsileg- ur maður og drengur góður. Ávann hann sér vináttu og traust allra er honum kynntust. Hlutu allir að finna til þess, að hann vildi öðrum vel í hvívetna og greiddi götu annara, eftir þvi sem við varð komið. Hann var glaðlyndur í viðmóti og allra manna samvizkusamastur og áreiðanlegur í öllum viðskiptum. Hann á því vissulega góða heim- von. Að leiðarlokum er ekkert sem jafnast á við það, að hafa verið góður drengur. Hann unni ættjörð sinni og þjóð og ekki sízt heimabyggðinriÍ fögru, er alltaf stóð honum lif- andi fyrir hugskotssjónum. Við öll, vinir og frændur, þökkum honum samveruna hér og kveðj- um hann hjartans kveðju og ósk- um honum eilífrar blessunar i dýrðarríki Guðs. Steindór Gunnlaugsson. Óska eftir Reglusömum manni sem hef- ur stýrimanns- eða mótorrétt- indi, sem meðeiganda í góðum bát 17—20 lesta. Uppl. í síma 13457.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.