Morgunblaðið - 06.09.1960, Page 20

Morgunblaðið - 06.09.1960, Page 20
Vibreisnirt Sjá bls. 11. IÞROTTIR eru á bls- 18 og 19. 202. tbl. — ÞriSjudagur 6. september 1960 Flugvél nauðlendir hjá veðurskipi á regin hafi Villtist milli Grænlands og íslands FLUGSTJÓRINN á SAS- flugvélinni „632“, „fann“ á sunnudagskvöldið ameríska tveggja hreyfla flugvél, er villtist yfir hafinu milli Is- lands og Grænlands. En flug- vélin náði ekki til lands og nauðlenti hún á 8 feta háum úthafsöldum. — Mönnunum tveim, sem í henni voru björg uðu skipsmenn af norska veð- urathugunarskipinu „Alfa“, Polarfront II, sem heldur uppi veðurþjónustu 300 mílur SV af Reykjanesi. Þessi ameriska flugvél hafði lagt af stað frá Syðri Straum- firði ki. rúmlega hálf-sjö á sunnudagskvöldið. Skyldi næsti viðkomustaður á leið flugvél- arinnar til meginlands Evrópu verða Keflavíkurflugvöllur. Þar átti hún að lenda kl. rúmlega 10 um kvöldið. Þegar flugvélin var yfir Ang- magsaiik var siðast haft sam- band við hana héðan frá Is- landi. Þar fór hún yfir kl. rúm- lega 9. Flugumferðarstjóminni hér tókst svo ekki að ná sambandi við flugvélina eftir það. Um þetta leyti var SAS-flugvélin , 632“ á leiðinni frá Winnipeg til Kaupmannahafnar, flugstjóri danskur maður, Dansing að nafni. Flugstjómin hér bað þessa flugvél, er komin var suður fyr- ir Keflavík, um að reyna að ná sambandi við hina týndu flugvél. Hún var með senditæki á ultra- stuttum bylgjum, og tókst SAS- fiugvélinni að ná sambandi. Flugstjórinn á amerisku flug- vélinni skýrði frá því, að hann og félagi hans, aðstoðarflugmað- j urinn, væru kolvilltir orðnir og flygju stöðugt i hringi. Að ósk flugumferðarstjórnar- innar á Reykjavíkurflugvelli, sneri SAS-flugvélin við og fór amerísku flugvélinni til hjálpar. Eftir nokkurt flug vestur á bóg inn, tókst Dansing flugstjóra enn að ná sambandi við flugmann amerísku flugvélarinnar. Og Dansing flugstjóri gerði meira, kom flugvélinni í samband við veðurskipið „Alfa“ — Polarfomt II., sem gaf villta flugmanninum Framhald á bls. 19. Banaslys í Dýrafirði ÞAÐ slys varð í Dýrafirði í fyrradag, að drengur varð fyrir steini, er hrapaði úr kletti og beið bana. Drengur- inn hét Matthías Björnsson úr Reykjavík og mun hafa verið 10—12 ára að aldri. Slysið varð hjá bænum Al- viðru, sem er skammt frá Núpi í Dýrafirði. Nokkur böm höfðu farið í berjamó og fóru að klöngrast eitthvað í klettum. Eitt barnanna, sem var á undan, tók í stein ,hann losnaði og féll nið- ur. Lenti hann á Matthíasi litla, sem hrapaði niður og var þegar örendur. 1 gær var Bjöm Pálsson feng- inn til að koma við á Þingeyri á leið sinni frá ísafirði til Reykja víkur og flutti hann lík drengs- ins suður. -m Frú Sigríður J. Magnússon við málverkið af prófessor Sigurði Magnússyni. manm smum, Bjorcgvin í tugþrautinni SAMKVÆMT skeyti frá Róm var Björgvin Hólm í 15.—16. sæti, þegar þrjár greinar tug þrautarinnar voru búnar. — Hann hljóp 100 m á 11,8 sek., stökk 6,93 m í langstökki (fyrsta stökk ógilt, síðan 6,47 og loks 6,93). Kúlunni varp- aði hann 13,58 m. Bílstjórarnir ekki borgunarmenn UM MIÐJAN ágúst var skýrt frá því hér í blaðinu að ungur íslendingur, Steingrímur Jóns- son, stæði í málaferlum í New York við tvo leigubílstjóra. Höfðu leigubílstjórarnir, þekktir misindismenn báðir tveir og margsaga við yfirheyrzlunar, á- sakað Steingrím fyrir likamsárás, og átti hann að hafa beitt ,vopni‘ sem reyndist vera naglaskafa. Kom í ljós við réttarhöldin, að bílstjóramir höfðu ráðizt á Stein grím með þeim afleiðingum að hann var meðvitundarlaus í 4 sólarhringa, og á meðan voru þeir einir til frásagnar af atburð inum. Mál þetta var tekið fyrir í New York s.l. föstudag og vildi lög- fræðingur Steingríms að hann krefðist skaðabóta. En þar sem Steingrímur vissi að bílstjórarnir voru ekki borgimarmerm fyrir skaðabótunum, taldi hann það til gangslaust, enda hefði þá málið dregizt á langinn, en Steingrím- I ur vildi hraða sér heim. Var því málið látið niður falla og kom Steingrímur heim á laugardag. Lífgjúf veröur eigi með orðum þökku Hálfrar aldar afmælis Vifilsstaða minnzt S V O sem frá var skýrt í Morgunblaðinu á sunnudag- inn, átti berklahælið að Víf- ilsstöðum fimmtíu ára af- mæli í gær, en þann dag árið 1910 var fyrsti sjúklingurinn skráður í hælið. Af þessu tilefni var í gær haldin afmælisathöfn að viðstöddu fjölmenni, þar á meðal Ólafi Thors, forsætis- ráðherra, Bjarna Benedikts- syni, heilbrigðismálaráðherra og Emil Jónssyni, félagsmála- ráðherra. Arnað heilla Margar ræður voru haldnar í tilefni þessa merkisafmæiis stofn- unarinnar, og stjórn og starfsliði þakkað vel unnið starf og árnað heilla og giftu á komandi árum. Minntust menn upphafs þess, að hælið var byggt og þeirra manna, sem þar komu mest við sögu, einkum þeirra Guðmundar Björnssonar fyrrum landlæknis Gg próf. Sigurðar Magnússonar, fyrrum yfirlæknis á Vífilsstöð- um. Hátölurum hafði verið komið fyrir víðs vegar um bygginguna svo hinir fjölmörgu gestir gátu fylgzt með máli ræðumanna. Þekktur Framsóknarmaður lýsir stuðningi við viðreisnina á héraðsmóti Sjélfstæðismavm a á Blónduósi KR vann Akureyri 5:2 Umsögn um leikinn birtist í blaðinu á morgun BLÖNDUÓSI, 5. sept. — Héraðs mót Sjálfstæðismanna var hald- ið hér í gær. Skemmtunin hófst með sameiginlegri kaffidrykkju. Undir borðum héldu ræður Jón Pálmason á Akri, Einar Ingi- mundarson, bæjarfógeti og Gunn ar Bjarnason, ráðunautur. Skemmtiatriði önnuðust Gunnar Eyjólfsson, Ómar Ragnarsson, Árni Jónsson og píanóleikari. Framsókn í austurdyrunum. Runólfur Björnssor., bóndi á Kornsá, kvaddi sér hljóðs undir borðum, en hann hefur verið Framsóknarmaður og mikill á- hrifamaður. Var t.d. formaður Kaupfélags Húnvetninga í um tvo áratugi. Runólfur lýsti því yfir að hann gæti ekki lengur fylgt Framsóknarflokknum. Hann harmaði að Framsóknar- flokkurinn skyldi hætta að vera miðflokkur, sem ynni með öðr- um flokkum, aðeins eftir mál- efnum og skildi í þess stað skipa sér í austurdyrnar, eins og Run- ólfur orðaði það. Hann ^agðist ekki hafa getað fellt sig við að- gerðir Framsóknarflokksins, þeg ar hann á árinu 1956 rauf sam- starf við Sjálfstæðisflokkinn, til þess að segja upp varnarsamn- ingnum. Viðkomandi flokkar hafi svo orðið að eta ofan í sig uppsögnina, ekki aðeins sjálfum sér, heldur þjóðinni allri til skammar. Runólfur kvað viðskilnað vinstri stjórnarinnar við efna- hagsmálin ekki hafa verið þann ig að Framsóknarflokkurinn sóma síns vegna gæti rekið jafn hatramma stjórnarandstöðupóli- tík og hann gerði. Og um þver- bak hafi keyrt, þegar Tíminn reyndi að læða því inn hjá les- endum sínum, þegar ríkisstjórn- in hefði komið í veg fyrir yfir- vofandi verkfall flugmanna, að aðeins værj um byrjun að ræða. Nú skildu verkföll, þessi svokall aði helgi réttur verkalýðsfélag- anna bönnuð. Sár vonbrigði. Runólfur sagði, að það hefðu orðið sér mikil og sár vonbrigði, þegar Hermann Jónasson tók sér stöðu við hlið Lúðvíks Jósefs- sonar s.l. vor á sjóréttarráð- stefnunni í Genf. Landhelgismál ið væri okkur svo stórt mál, að annarleg sjónarmið mættu ekki komast þar að. Runólfur kvatti menn að lokum til þess að standa saman um viðreisn efnahagskerf isins og hann taldi að fram að þessu hefði gengið betur en jafn vel bjartsýnustu menn hefðu leyft sér að vona. Seinna um kvöldið var dansað í tveimur húsum og var mikill mannfjöldi saman kominn. Yfirlækni afhent stórriddara- kross Fálkaorðunnar. Meðal þeirra, sem tóku til máls voru Bjarni Benediktsson, heil- brigðismálanáðherra, Helgi Ingv- arsson, yfirlæknir, Dr. Sigurður Sigurðsson, landlæknir o. m. fl., en Ölafur Geirsson, deildarlækn- ir kynnti ræðumenn. Bjarni Benediktsson minntist í ræðu sinni þeirra, sem að stofn- un hælisins stóðu og flutti árn- aðaróskir ríkisstjórnarinnar. Að ræðu lokinni afhenti hann yfir- lækninum, Helga Ingvarssym, stórriddarakross hinnar ísl. Fálkaorðu, sem Forseti íslands sæmir hann nú vegna starfa hans á Vífilsstöðum. Að svo búnu rakti yfirlæknir sögu Vífilsstaða og minntist fyrir rennara síns, prófessors Sigurðar Magnússonar, sem verið hafði yfirlæknir á Vífilsstöðum frá upp hafi. Bað hann síðan ekkju Sig- urðar, frú Sigríði J. Magnússon að afhjúpa málverk af manni hennar, en það var gjöf til Vífils staða frá vistmönnum hælisins og félögum í S.Í.B.S. Að lokum bað yfirlæknir alla viðstadda að rísa úr sætum til virðingar við minningu próf. Sig urðar Magnússonar. En frú Sig- ríður J. Magnússon þakkaði fyrir sína hönd og barna sinna. Má ekki slaka á Ekki skal hér r-akin saga Vífils staða, en þess má þó geta, að frá byrjun hafa verið innritaðir þar 7.100 sjúklingar, en burtu hafa farið um 7000, þar af dáið 1200. Alls munu á þessu tímabili hafa látizt um 6 þús. manns af berkl- Framhald á bls. 19. Ný fram- haldssaga í DAG hefst h«r í blaðinu ný framhaldssaga GK/ENT LJÓS, eftir hin heimsfræga höfund, Lloyd C. Douglas. Eftir þenn- an ágæta höfund hefur áður birzt ein bók á Lslenzku, KYRTILLINN, sem bókaút- gátfan Lilja gaf út fyrir nokkr- um árum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.