Morgunblaðið - 29.09.1960, Side 1
24 síður
140
sett
í bann
Sagan þar á meðal
ÍParís, 28. sept. (Reuter)
FEANSKA ríkisstjórnin
setti í dag bann við því að
um 140 af heiztu menning-
arfrömuðum, Ieikurum, rit-
höfundum og kennurum
landsins kæmu fram í sjón-
varpi og útvarpi ríkisins og
í leikhúsum þeim, er ríkið
hefir umráð yfir.
Bannið nær til allra
þeirra, sem undirrituðu yf-
irlýsingu, sem studdi rétt
manna til að neita að gegna
herþjónustu í Alsír.
Meðal þeirra, sem bann-
færðir eru, má telja,- rit-
höfundinn Francoise Sagan,
heimsspekinginn Jean-Paul
Sartre, leikkonurnar Sim-
one Signoret og Daniele
Delorme og rithöfundinn
Simone de Beauvoir.
Þá var einnig tilkynnt að
verið væri að ganga frá
ráðstöfunum til að fyrir-
byggja að ríkisstyrkur til
kvikmyndagerðar renni til
þeirra kvikmynda, sem ein-
hver undirskrifenda leikur
í.
Fundur um kjarn-
orkutilraunir
GENF, 27. sept. (Reuter): — Þri-
veldaráðstefnan um bann við til-
raunum með kjarnorkuvopn hóf
fundi að nýju i dag, eftir 5 vikna
hlé. Bar bandariski fulltrúinn
fram tillögu um 27 mánaða bann
við minniháttar kjarnorkuspreng
ingum neðanjarðar — jafnframt
banni við stærri kjarnorkuvopna-
tilraunum almennt. Verði um-
ræddur tími notaður til að finna
ráð til að fylgjast með slíkum
sprengingum. Sovézki fulltrúinn
tók tillögunni vel og lofaði að
íhuga hana nánar og bera undir
stjórn sína. — Fundurinn í dag
var sá 247 í röðinni, síðan ráð-
stefnan hófst árið 1958. Hann stóð
í eina klukkustund.
Sjóræningjar
framseldir
Havana, Kúbu, 28. sept. (Reuter)
KÚBUSTJÓRN samþykkti í gær
kvöldi að verða við beiðni Breta
um að framselja tvo Bandaríkja-
menn, sem ásakaðir eru um morð
og sjórán.
Mennirnir tveir, Alvin Table
og William Sees, eru sagðir hafa
skotið til bana Angus Boatwright,
skipstjóra á lystisnekkju, og
stolið snekkju hans á Bahama-
eyjunni Elbow Cay.
Kúbanska flotaeftirlitið hand-
tók mennina eftir að þeir höfðu
strandað snekkjunni á Kúbu-
strönd.
Brezki sendiherrann á Kúb'u
lagði fyrstur fram ósk um fram-
sal hinn 23. apríl sl., og er þetta
fyrsta handtökubeiðni vegna
morðs og sjóráns á Bahamaeyjum
í 100 ár.
Wivsted, skipherra, í káetu sinni. Á veggnum er mynd af
Ólafi konungi. (Ljósm. Mbl. Markús)
Samningum lokið í Osló
Niðurstöður birtar í dag
OSLÓ og London, 28. sept. —
(NTB-Reuter) — Samningavið-
ræðum Breta og Norðmanna um
fiskveiðilögsöguna við Noreg
lauk í dag. Arangur viðræðn-
anna verður birtur á hádegi á
fimmtudag.
Fréttastofa Reuters í London
skýrir frá því eftir „áreiðanleg-
um heimildum“, að samkvæmt
samningnum megi brezkir togar-
ar stunda veiðar allt að sex míl-
um frá Noregsströndum næstu
tíu árin, en eftir þann tíma við-
urkenni Bretar 12 mílna fisk-
veiðimörk við Noreg.
Norska fréttastofan NTB bar
þessi ummæli Reuters undir
Stabell, formann norsku við-
ræðunefndarinnar, en hann
kvaðst ekkert geta sagt um
samninginn að svo komnu máli,
því opinber tilkynning verði
ekki gefin út fyrr en á morgun.
Talsmaður brezkra togaraeig-
enda sagði í dag að þótt samið
væri um viðurkenningu á 12
mílna mörkunum við Noreg,
væri ekkert því til fyrirstöðu að
brezkir togarar fengju undan-
þágur til veiða á ákveðnum svæð
um innan 12 mílnanna á vissum
tímum árs.
Frakkar semja v/ð NATO
París, 28. september.
(NTB-Reuter)
VARNARKERFI Atlantshafs
bandalagsins bættist í dag
verulegur styrkur, þegar
Frakkar samþykktu að heim-
ila bandalaginu yfirstjórn
----------------------------
hluta af loftvarnakerfi Frakk
lands.
Fastaráð Atlantshafsbanda-
lagsins, en í því eiga 15 þjóð-
ir fulltrúa, kom saman í dag
til að staðfesta samning, sem
yfirhershöfðingi bandalags-
ins, Lauris Norstad, hefur
gert við frönsku ríkisstjórn-
Skipulögð leit að Rodny
úr lofti og á sjó
ina um að innlima radarkerfi
Frakka í loftvarnakerfi banda
lagsins.
Tvö varnarsvæði
Samkvæmt samningnum verð-
ur loftvörnum Vestur-Evrópu
skipt í tvö svæði:
1) Fremra svæðið nær yfir V-
Þýzkaland og landamærahér-
uð Frakklands. A því svæði
verða herflugvélar Frakka
undir sameiginlegri stjórn
V esturveldanna.
Norðmenn, Danir og Bandaríkjamenn iaka þdtt í henni
Á MEÐAN fjórar bandarísk-
ar flugvélar úr varnarliðinu
sveimuðu yfir hafinu milli
Grænlands og íslands í gær
hingað í skyndingu til að taka
þátt í leitinni og á sjötta tím-
anum í gærkvöldi sigldi það
inn hafnarmynnið.
Þegar Garm lagðist að togara-
bryggjunni var þar fyrir áhöfn
norska Katalínubátsins, sem kom
til Keflavíkur í fyrrakvöld,
Framh. á bls. 2.
2) Baksvæðið nær yfir mestan
hluta Frakklands. Þar verða
loftvarnir undir franskri
stjórn.
Samningur þessi er talinn mik-
ill sigur fyrir yfirstjórn Atlants-
og leituðu norska hvalveiði-
Frh. á bls. 23
skipsins Rodney og könnuðu
ísröndina, sigldi norska eftir-
litsskipið Garm á fullri ferð
inn Faxaflóa. Það var komið
Johansen, bróðir skipstjórans
Rodney.
Kommúnistar í miðstjórn A.5.Í. lítilsvirða Trésmiðafélagið
„Eftirlitsmaður" settur með
kosningum félagsins
MORGUNBLAÐIÐ hefur að
undanförnu skýrt frá ýmsum
aðferðum, sem kommúnistar
hafa notað í verkalýðsfélögun
um til þess að tryggja sér sem
mest áhrif og firra aðra rétt-
mætum réttindum í félögun-
um. í Trésmíðafélagi Reykja-
víkur, sem er stærsta stéttar-
félag iðnaðarmanna, hafa
kommúnistar undanfarna daga
tekið upp nýjar aðferðir.
Þannig hagar til í Trésmíða-
félaginu, að kommúnistar ráða
stjórn þess en lýðræðissinnar
hafa aftur á móti meiri hluta
í kjörstjórn. Samkvæmt lög-
um félagsins á kjörstjórn að
undirbúa og sjá um kosningar
og semja kjörskrár. Þegar kjör
stjórn hugðist ganga frá kjör-
skrá, óskaði hún að sjálfsögðu
eftir því að fá afhenta spjald-
skrá félagsins, en formaður fe-
lagsins, Jón Snorri Þorleifs-
son, sem jafnframt er starfs-
maður þess, neitaði algjörlega
að afhenda spjaldskrána. Lét
hann þó um síðir undan kröf-
um kjörstjórnarmanna, er þeir
sögðust ekkert erindi eiga við
hann lengur og ætluðu að
ganga af fundi hans.
Er kjörstjórn vann að samn
ingu kjörskrárinnar, tjáði for-
maður félagsins kjörstjórnar-
mönnum, að ákveðið hefði
verið að láta kosningu fara
fram um næstu helgi. Þessu
mótmæltu kjörstjórnarmenn,
þar sem það er í þeirra verka-
hring að ákveða kjördag.
Reyndu þá kommúnistarnir
í stjórn félagsins að kúga kjör
stjórnarmenn og hótuðu þeiin
refsiaðgerðum, sem kjörstjórn
armenn létu ekki á sig fá.
Greip stjórn félagsins þá til
þess úrræðis, að kæra kjör-
stjórnina fyrir miðstjórn AI-
þýðusambands íslands. og á
fundi, sem miðstjórnin hélt í
fyrrakvöld ákváðu kommún-
istar í miðstjórn A. S. í. að
verða við kröfu stjórnarinnar
um að settur yrði sérstakur
eftirlitsmaður til að fylgjast
með kosningum í Trésmíða-
félaginu.
Er hér um algert einsdæmi
að ræða, sem enginn lagabók-
stafur er fyrir, hvorki í lög-
um Trésmíðafélagsins né Al-
þýðusambandsins. Verður held
ur ekki með nokkru móti séð,
hvers vegna meiri ástæða er
að setja eftirlitsmann með
kosningum í Trésmíðafélaginu
en öðrum verkalýðsfélögum.
En hið broslega við þessa á-
kvörðun Alþýðusambands-
stjórarinnar er, að „eftirlits-
maðurinn“ skuli settur með
kosningum í félagi, sem þeir 1
sjálfir ráða. |