Morgunblaðið - 29.09.1960, Side 20

Morgunblaðið - 29.09.1960, Side 20
20 MORCVNBLAÐIÐ Fimmtudagur 29. sepf. 1960 Parker hafði aldrei lagt á sig svona mikla andlega áreynslu við að fylgjast með predikun. Orð séra Harcourts líktust ekki því, sem maður heyrir daglega. Þau beinlínis bitu sig föst í Parker, hófu hann upp úr sljóleika hans, hristu hann þangað til hann var glaðvakandi, tróðu vantrú hans vægðarlaust undir fótum og réttu honum vinarhönd í örvæntingu hans. Hann hafði alltaf hugsað sér stólræður leiðinlegar. Þessi var nú á enda og hann var eins og þaninn strengur. Guð minn góður Hvað mundi hann ekki gefa fyrir að mega tala við þenn an mann í eina klukkustund. Ungu mennirnir í messuskrúð- anum studdu nú séra Harcourt út um hliðardyr. Parker óskaði þess, að hann gæti elt þá og séð hann á stuttu færi, óskaði einlæglega, að hann gæti tekið í hönd hans og horft í augu honum. Löngunin varð svo sterk ,að hann ætlaði að stanza í dyrunum, en þá var ýtt á hann úr öllum áttum, og hann varð að láta berast með straumnum. Glampandi sólskinið gat ekki dreift huga hans. Hann gekk út i skemmtigarðinn og spurði sjálf- an sig, hvort hann ætti ekki að snúa við. Þegar hann hafði áttað sig á þvi, að slíkt væri óviðeig- andi nærgöngult, hætti hann við tiltækið og settist á bekk í sól- skininu. Hann hafði svo margt að hugsa, að hann tók alls ekki eftir mannfjöldanum, sem gekk eftir stígnum framhjá honum. Parker fannst sem hann hefði nú hitt eitthvað, sem gæti orðið honum uppbót fyrir allt það, sem hann hafði misst. Versta áfallið, það að sjá að maður, sem hann hafði litið upp til og talið upp yfir alla aðra hafinn, hafði brugð izt honum svo gjörsamlega. Á ýmsum gremjustundum hafði hann lofað sjálfum sér því að stofna aidrei til slíkra vonbrigða framar . . . en í dag hafði hann látið hrífast af öðrum sterkum persónuleika. Eitthvert dularfullt segulmagn bjó í þessum Har court. Tilvera mannsins, sem í augum Parkers hafði hingað til verið runa af viðbrigðum, sem orkuðu til hita, kulda og þorsta — hér um bil sömu viðbrigðin, sem héldu lífinu í Sylviu — varð nú í augum hans að ljómandi æfin- týri, sem himnesk máttarvöld stjórnuðu. Svo mjög hafði Parker hrifizt af þessum draumkenndu töfrum hugsana sinna, að fólkið, sem fram hjá honum gekk, varð að skuggum og óljósum myndum ... Maður nokkur tók sig út úr hópn um, lallaði í áttina til hans og settist á bekkinn hjá honum. Parker sá hann alls ekki. Allt í einu sagði maðurinn- — Afsakið, sagði hann, — en er það ekki frú Norman Phelps, sem ég hef þann heiður að ávarpa? Það var viðburður að hitta Corley. Það eitt að hafa ekki séð kunnugt andíit eða heyrt sitt eigið rétta nafn, mánuðum sam- an, hafði breytt þessum ein- manna manni svo mjög, að hann varð ekki breytingarinnar var fyrr en nú, þegar hann kastaðist snögglega aftur inn í þann heim, sem hann hafði afneitað. Nokkra stund reyndu þeir að bægja alvörunni frá sér með gam ansemi. Eugene játaði eftir nokkr ar vöflur, að svo vel hefði viljað til, að hann hefði einmitt átt er- indi til borgarinnar, og þá getað hlustað á Elísu um ieið. — Hefurðu nokkurn tíma heyrt annað eins, Newell? Hún dá- leiddi mig beinlínis. Newell viðurkenndi fúslega, að Elísa hefði sungið ágætlega, og bætti svo við, með dálítilli mein- fýsni: — Annars hefði hún víst mátt standa sig illa, ef hún hefði engin áhrif haft á þig. Þú varst víst sæmilega dáleiddur fyrir. — Já, andvarpaði Eugene, á- nægður. — Hún er indælis stúlka. — Þá er víst ekki um neitt að efast, svaraði Newll glottandi. — Þegar forhertur pipárkarl kall- ar uppkomna konu indælis stúlku, er vist tími til kominn að fara að koma öllura skilríkj- um i lag! En svo snerist samtal þeirra að alvarlegri efnum. Corley var alveg kominn að því að springa yfir þessu tilgangslausa flökku- lífi vinar síns, og þegar hann hafði rætt það efni um stund, missti „flakkarinn" þolinmæðina og heimtaði morgunmat. Sagðist að minnsta kosti verða að sjá um, að Sylvía fengi mat sinn og eng ar refjar. — Ætlarðu að segja mér, að þú dröslir þessari tík með þér, hvert sem þú ferð? -spurði Corley í ertnitón. — Þér þætti það ekki eins hé- gómlegt, ef þú ættir ekki annað eftir en einn hund, tautaði Paige gremjulega. En svo áttaði hann sig á því, að svar hans hefði komið upp um hann, og spurði: — Hvað finnst þér um Harcourt dómprófast? — Ja, . . . hvað skal segja . . . slíkt og þvílíkt liggur algjörlega utan míns sviðs. Hugsa aldrei um slíkt . . . hvorki á einn né annan hátt, svo að mín skoðun verður heldur lítils virði. En ég skal gjarna játa, að hefði einhver gert sér það ómak að beina hugs unum mínum á aðrar brautir, þegar ég var innan við tvítugt. . . Hann lauk ekki við setninguna. — Nú er það kannske orðið of seint? spurði Newell alvarlegur. — Já. Enginn maður með viti, sem kominn er yfir þrítugt, fer að brjóta heilann um neitt nýtt. — Bull. ,— Þegar maður er kominn yfir þrítugt, Newell, fer maður ekki að útskýra hugsanir, er útheimta alveg nýjar forsendur viðvíkj- andi sjálfum manni og stöðu manns í tilverunni. Fyndist þér sjálfum það vera hugsanlegt? — Eg veit ekki, svaraði Paige dræmt. En ég vildi mikið til vinna að vita það. Eg er sem sé í leit að hugsunum, sem gætu gefið skýringar á minni eigin per sónu . . og stöðu hennar á skák borði lífsins. —O— Phyllis sneri sér að Pat og brosti, þegar söfnuðurinn stóð upp. Sonja, sem hafði setið yzt I stólnum, gekk á undan. — Heldurðu, að ég gæti fengið viðtal við hann? spurði Pat. — Við reynum það, svaraði Phyliis og sneri sér að Sonju, sem kinkaði kolli. Þær gengu nú gegnum hliðar- dyr og komu í langan forsal. Séra Talbot var einmitt í þessu að koma út úr bókastofu dómpró- fastsins. — Haldið þér, að hann geti talað við okkur . . . bara andar- tak? spurði Sonja. Sér Talbot sagðist skyldi spyrja um það, og kom að vörmu spori aftur og bauð þeim að ganga inn. Dómprófasturinn væri einn inni og vildi gjarna tala við þær. Sonja gekk á undan og sendi Phyllis augnagotu, sem gat þýtt. — Hvað sagði ég, en Pat var önn um kafin að þakka séra Talbot fyrir greiðasemi hans. Þær höfðu beinlínis dregið Pat með sér í dómkirkjuna. — Það 'er nú bara hlægilegt, hafði hún sagt við þær við morg unverðarborðið. — Hvað eigum við að gera í gamla, raka kirkju í svona veðri? Hvernig getur ykk ur dottið annað eins í hug? — Þú færð að hlusta á séra Harcourt, hafði Sonja svarað. Okkur Phyllis finnst aldrei of gott veður til að hlusta á hann. Eftir miklar fortölur hafði Pat látið tilleiðast að fylgja þeim á leið, og við kirkjudyrnar hafði hún sagt, að hún ætlaði að sitja í skemmtigarðinum á meðan á messunni stæði. En þær höfðu ekki einu sinni hlustað á mót- mæli hennnar, heldur dregið hana inn með sér. Þegar þær svo voru komnar inn og í sæti, hafði Pat hætt öllum mótmælum, og háífsofnað, þangað til dómpró- fasturinn hóf ræðu sína. Þá hafði hún gripið í höndina á Phyllis, og Sonja, sem stalst til að líta framan í hana, gat ekki apnað en brosað að hrifningarsvipnum á andliti hgnnar. Það var næstum hlægilegt hve ræðumaðurinn hafði sigrað Pat: Sonja gekk á undan inn í bóka stofuna, Séra Harcourt hafði far ið úr messuskrúðanum og sat nú í svörtu fötunum sínum við stóra rauðaviðarskrifstofuborðið sitt. Þær staðnæmdust allar frammi fyrir honum. — Við ætlum ekki að stanza lengi, sagði Phyllis, — en mig langaði til að kynna yður dr. Patriciu Arlen. Pat leið hálfilla. Þessi lærdóms titill hennar hljómaði hjákátlega hérna inni. 1 návist dómprófasts ins hafði hún það alls ekki á meðvitundinni að vera doktor eða prófessor, heldur fannst henni hún vera feiminn krakki, sem nálgast kennara sem hann tilbiður. Skáldið 09 mamma litla 1) Já, já .... já .... | 2) Já, .... 3 • • • • ! 3) Já .. .. já .... 4) Af hverju voruð þið sam- A mála, Mamma? Aldrei segirðu 1 V já, já, þegar þú talar við pappa! — Komidu skinnunum og kjöt rftrokkunum um borð meðan ég kem Markúsi fyrir i bátnum! — Hva-hvað ætlar þú að gera ið hann, pabbi? — Ég hef ekki hugsað mér að skjóta hann strákur . . Það mun líta út eins og báturinn hafi sdkikið og Markús skilinn hér etftir bjargarlaus! Jaínvel þótt hann komist héðan, getur hann ekki sannað að ég hafi stundað hér veiðar! Séra Harcourt rétti fram hö»d ina og hún gekk kring um borð ið til þess að taka í hana. Henni fannst öll þessi kurteisisorð, sema fólk viðhefur þegar það er kynnt í fyrsta sinn, vera annað hvort útslitin eða kjánaleg. En meðan hún var að ráða það við sig, hvað hún ætti að segja, tók hann af henni ómakið og varð fyrri til. | — Þér eruð vinkona Phyllis, sé ég. Og Sonju líka. Það gleður mig, að yður skyldi langa tii að koma í kirkjuna í dag. j — Já, en mig langaði það bara alls ekki, svaraði Pat og varð um leið hissa á sjálfri sér, og datt í hug, hvort augu þessa manns gætu dregið óbrjálaðan sannleik ann af vörum manna, eins og nú hafði orðið, hvað hana snerti. — Eg fer annars aldrei í kirkju, en þær sögðu . . . en nú vildi ég ekki hafa farið á mis við það, hvað sem í boði hefði verið. Þér töluðuð beint til mín. — Eg predika nú annars alltaf fyrir sjálfan mig, svaraði hann, —Eg er kominn að raun um það, að þegar ég tala um viðfangs- efni sem varða mig sjálfan, um vonir, sem hafa mikla þýðingu fyrir mig, þá fæ ég fólk til að halda, að ég skilji langanir þess og efasemdir. — Þér fáið alla til að ímynda sér, að þeir séu ein stór fjöl-i skylda, sagði Sonja. — En eru þeir ekki einmitt það? — Okkur fannst það að minnsta kosti í dag, játaði Pat- ricia. Nú fannst séra Harcourt nóg komið af þessari alvöru, og fór að spyrja Pat, hve lengi hún ætl- aði að standa við í borginni, og stakk upp á, að þau skyldu ölJ borða kvöldverð heima hjá hon um næstkomandi þriðjudag, og það boð var þegið í einu hljóði, enda þótt þær stöllur hefðu keypt aðgöngumiða á óperettu, einmitt þetta kvöld. — Er ekki tiltölulega rólegt hjá yður í búðinni, svona rétt upp úr páskunum, Sonja? spurðii klerkur. — Svo stendur á, að rit arinn minn þarf að fá sig lausa í nokkra daga, og mig vantar SHtltvarpiö Fimmtudagur 29. september 8.00—10.20 Morgunútvarp 'Bæn. — 8.15 Tónleikar. — 8.30 Fréttir. — a 40 Tónleikar. — 10.10 Veðurfrj. 12.00 Hádekisútvarp. (12.25 Fréttir og tilkynningar). 13.00 ,,A frívaktinni", sjómannaþáttuf (Guðrún Erlendsdóttir). 15.00 Miðdegisútvarp. (Fréttir kl. 15.00 og 16.00). 16.30 Veðurfregnir. 19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 Erindi: U mvelferð barna (Jó- hann Hannesson prófessor). 20.55 Einsöngur: Imre Pallo syngur ungversk lög eftir Béla Bartók og Zolton Kodály. 21.15 Þáttur af Gísla Sigfússyni bónda í Meðalnesi (Gísli Helgason í Skógargerði flytur). 21.35 Einleikur á píanó: Victor Mersj- anoff leikur Paganinietýður eftir Franz Liszt. 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Kvöldsagan: „Trúnaðarmaður I Havana" eftir Graham Greene; XX. (Sveinn Skorri Höskuldsson). 22.30 Sinfónískir tónleikar: Sinfónía nr. 10 eftir Sjostakovitsj (Fílharmoníusveitin í Varsjá íeikur; Bohdan Wodiczko stjórn ar). 23.25 Dagskrárlok. Föstudagur 30. september 8.00—10.20 Morgunútvarp (Bæn. — 8.15 Tónleikar. — 8.30 irréttir. — £.40 -Tónleikar. — 10.10 Veðurfr.,. 12.00 Hádegisútvarp. (12.25 Fréttir og tilkynnir.gar •. 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 13.25 Tónleikar: „Gamlir og nýir kunn- ingjar. 15.00 Miðdegisútvarp. (Fréttir kl. 15.00 og 16.00) 16.30 Veðurfregnir. 19.25 Veðurfregnir. 19.30 Tilkynningar. 20.00 Fréttir. 20.30 A Vífilsstöðum: Ur 50 ára sögu heilsuhælisins. Gils Guðmunds- son og Stefán Jónsson taka sam an dagskrána að tilhlutan Sam- bands íslenzkra berklasjúklinga. 21.35 Utvarpssagan: „Barrabas'4 eftir Pár Lagerkvist; IV. (Olöf Nor- dal). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Kvöldsagan: „Trúnaðarmaður 1 Havana" eftir Graham Greene; XXI. (Sveinn Skorri Höskulds- son). 23.00 Dagskrárlok.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.