Morgunblaðið - 29.09.1960, Blaðsíða 22
22
MOnCVTSBLAÐlÐ
Fimmtudagur 29. sept. 1960
Ötult starf Kven-
félags Lágafellssóknar
Hlutávelta i Hlégarði á sunnudag
til ágóða fyrir sundlaugarbyggingu
A UNDANFORNUM árum hafa
Lágafellskirkju borizt margar
höfðinglegar gjafir frá Kvenfé-
lagi Lágafellssóknar. Skal þá
fyrst nefnd skírnarlaug sú eftir
listamanninn Guðmund Einars-
son frá Miðdal, sem félagið gaf
kirkjunni við endurvígslu hennar
29. júlí 1956. Þessi ágæti gripur
var gefinn til minningar um sr.
Hálfdán Helgason prófast. Fyr-
ir röskum tveimur árum var tekið
hér í notkun pípuorgel, en marg-
ir unnendur kirkjunnar lögðu
fram fé og fyrirhöfn til að söfn-
uðurinn mætti eignast svo dýrt
og vandað hljóðfæri. Til þessara
kaupa gaf Kvenfélagið yfir 40.000
krónur.
— ★ —
Á annan dag jóla sl. vetur átti
félagið hálfrar aldar afmæli. sem
það hélt hátíðlegt með miklum
myndarbrág. í tilefni þessara
merku tímamóta í sögu þess gaf
það kirkjunni enn á sl. vori dýr-
indisgjöf, 75 sérbikara til notkun
ar við útdeilingu altarissakra-
mentis. Bikararnir eru úr silfri,
handsmíðaðir.
Fyrir allar þessar veglegu gjaf-
ir Kvenfélagsins svo og aðrar,
sem hér eru ótaldar, vil ég fyrir
safnaðarins hönd fiytja innileg-
ustu þakkir.
Til þessara stórgjafa og marg-
víslegra annarra verkefna þarf
að sjálfsögðu mikið fé, sem fé-
lagskonur hafa aflað með dug-
miklu starfi. En fjáröflun félags-
ins út af fyrir sig skapar oft á-
nægjulega tilbreytni í félagslífi
sveitarinnar.
— ★ —
Fyrir dyrum stendur nú smiði
sundlaugar í Mosfellssveit og hef
ur Kvenfélagið afráðið að leggja
þeirri framkvæmd lið sitt. í því
skyni efnir það til hlutaveltu
að Hlégarði á sunnudaginn kem-
ur. Margt eigulegra vinninga hef-
ir þegar safnazt til hlutaveltunn-
ar, bæði á félagssvæðinu og í
Reykjavík, enda ekki að efa, að
þangað fýsi marga að koma ekki
síður en á basara félagsins, sem
mjög hafa verið vinsælir undan-
farin ár.
Bjarni Sigurðsson
Myndin er af starfsmönnum Akranesbæjar, sem sigruðu starfsmenn Sementsverksmiðjunnar og
Vélsmiðju Þorgeirs og Ellerts í knattspyrnu um daginn og hlutu Vestdalsbikarinn að launum. —
Aftari röð frá vinstri: Sigurður Haraldsson, bæjargjaldkeri, Svavar Sigurðsson, Gunnar Gunn-
arsson, Tómas Runólfsson, Ingi Bjarnason og Skúli Hákonarson. — Fremri röð frá vinstri: Atli
Marinósson, Helgi Hannesson, Þorkell Kristinsson, Björn Finsen og Ingvar Friðriksson. Fyrirliði
SKRIFAR UM
* KVIKMYNDIR
var Helgi Hannesson.
Hafnfirðingar unnu
bæjakeppnina
Frábær mynd í Nýja bíói:
VOPNIN KVÖDD
ÞESSI ameríska mynd er byggð
á samnefndri sögu Ernst Hem-
ingway’s, sem margir hér munu
kannast við, því að sagan kom
út hér fyrir allmörgum árum í
ágætri þýðingu H. K. Laxness.
Þessi saga Hemingway’s er
snilldarlega samin svo sem
vænta mátti um slíkan öndvegis-
höfund, og var því þeim, sem
tóku hana til kvikmyndunar
vissulega mikill vandi á höndum.
Verður ekki annað sagt en að
þeim hafi vel tekizt, því að
myndin er stórbrotin og áhrifa-
rík og afburðavel á svið sett,
ekki sízt herflutningarnir og
önnur hópatriði og yfirleitt vel
tekin. Þó er liturinn á andliti
sumra leikendanna afkáralegur
og til stórlýta. Leikstjórinn er
Charles Vidor, en hann er í
fremstu röð kvikmyndaleik-
stjóra, en leikendur þeir, sem
fara með aðalhlutverkin eru
Rock Hudson, sem leikur amer-
íska liðsforingjann Frederic
Henry, Jennifer Jones, sem leik-
ur hjúkrunarkonuna Catherine
Barkley, og Vittorio De Sica,
sem fer með hlutverk herlæknis-
ins, Rinaldis majors. Fleiri góðir
leikarar fara þarna með hlut-
verk, en beztur er tvímælalaust
leikur þeirra Jennifer Jones og
De Sica. — Atburðirnir gerast á
ítalíu í heimsstyrjöldihni fyrri
og er þar lýst á áhrifaríkan hátt
ógnum styrjaldarinnar, en meg-
inefni myndarinnar er harmsaga
elskendanna, hins ameríska liðs-
foringja og hjúkrunarkonunnar.
— Fer ekki á milli mála að mynd
þessi er með betri myndum, sem
hér hafa verið sýndar um langt
skeið.
Stjörnubíó:
ALLT FYRIR HREINLÆTIÐ
ÞETTA er norsk gamanmynd,
byggð á útvarpssögu eftir Evu
Ramm Sagan birtist einnig á
sínum tíma í danska vikublaðinu
„Alt for damerne" og þótti bráð-
skemmtileg. Fjallar myndin um
fyrirbæri, sem ekki er óalgengt,
einnig hérlendis, þ. e. þrifnaðar-
æðið, sem sumar húsmæður eru
haldnar af með þeim afleiðing-
um að börnin eiga engan griða-
stað til leika á heimilinu og eig-
inmaðurinn er hálfger eða alger
hornreka fyrir ræstingarbrölti
konunnar og leiðist því til að
leita athvarfs í fanginu á skrif- !
stofustúlkunum, eða hjá öðrum
konum, sem komið hafa auga á
þann sannleika, að hreinlæti er
ágætt, en þó í hófi, eins og svo
margt annað. í mynd þessari má
ekki tæpara standa að unga
hreinlætiskonan missi eigin-
manninn til annarrar konu, sem
gefur sér góðan tíma til að laða
hann að sér en allt bjargast þó
á síðustu stundu.
Mynd þessi er býsna skemmti-
leg, sum atriðin fyndin og:
sprenghlægileg og leikurinn er
fjörlegur í bezta máta.
Félag stofnað tii
endurreisnar
Kolviðarhóls
S.L. laugardag fór fram bæjar-
keppni í knattspyrnu milli Kefl-
víkinga og Hafnfirðinga. Keppt
var í tveim aldursflokkum 4. fl.
og meistaraflokk. Leikar fóru svo
að Hafnfirðingar unnu meistara-
flokk 4—1, en jafntefli varð hjá
drengjunum í 4. flokk, tókst
hvorugum að skora.
Leikur 4. flokks drengjanna
var mjög skemmtilegur og víst er
að þar eru mörg efni í góða
knattspyrnumenn á ferð. Knatt-
meðferð drengjanna var yfirleitt
fyrir ofan meðallag og samleikur
þeirra oft athyglisverður.
Nokkur vindur var meðan leik-
irnir fóru fram og hafði hann
sín áhrif.
Er leikur meistaraflokkslið-
anna hófst kom klutkesti Hafn-
firðinganna upp og kusu þeir að
leika undan vindi fyrri hálfleik-
inn.
Fyrstu mínútur leiksins sýndu
að það voru Hafnfirðingarnir,
sem höfðu hug á að vinna leik-
inn. Kraftur þeirra, og baráttu-
vilji var mun meiri og samieik-
ur heilsteyptari.
Þeir skoruðu þrjú mörk í fyrri
hálfleik, án þess að Keflvíkingar
fengju skorað, en seinni hálfleik-
urinn endaði 1—1, svo Hafnar-
fjörður vann leikinn 4—1.
Keflavíkurliðið var nokkuð
breytt frá því að það var í sumar
í 1. deildar keppninni. Nokkrar
breytingar eru sömuleiðis á Hafn
arfjarðarliðinu. En þegar það er
haft í huga að þarna voru að
keppa fallliðið úr 1. deild og sig-
urvegararnir í 2. deild, orkar
einskis tvímælis hvort liðið á að
vera í fyrstu deild, svo voru
yfirburðir Hafnfirðinga mkilir.
Bræðurnir Bergþór og Ragnar
Jónssynir skoruðu mörk Hafn-
firðinganna. Bergþór skoraði
,,hattrick“ — 3 mörk í fyrri hálf-
leiknum, en Ragnar skoraði
fjórða mark Hafnfirðinganna í
síðari hálfleiknum. — Á. Á.
SKÁK I
SUNNUDAGINN 11. þ. m var
stofnað félag til endurreisnar
Kolviðarhóls. Hefur stjórn fé-
lagsins ákveðið að hefjast þegar
handa um viðreisn staðarins og
vinna að því, að Koiviðarhóil
geti orðið dvalar- og hvíldar-
heimili fyrir fólk bæði vestan
og austan Hellisheiðar. Einnig
hefur félagið í huga, að endur-
reisa gamla sæluhúsið, sem
byggt var að Kolviðarhóli 1877
og safna í það gögnum og far-
kosti ferðamanna fra fyrri öld-
inni.
Formaður félagsins var kjör-
inn Hróbjartur Bjarnascr:, stór-
kaupmaður, varaforseti Björn
Björnsson alþm., gjaldkeri Krist
inn Guðnason kaupmaður og rit-
ari Þórður Þórðarson bæjarfull-
trúi. Stjórnin er skipuð tíu
mönnum og varamenn jafn-
margir. Þá var á stofnfundinum
kjörin 13 manna fjáröflunar-
nefnd.
MINNINGARMÓT Eggerts Gilf-:
ers er nú í fullum gangi, og bar-
áttan um fimm efstu sætin geypi
hörð. Gestur mótsins er skák-
meistari Nórðurlanda, Svein Jo-
hannesen, og er hann í 6. sæti
eftir 6 umferðir!, að vísu á
hann biðskák sem getur lyft hon
um upp í 4. sæti, en eigi að síð-
ur getum við verið ánægðir með
frammistöðu okkar manna.
Staðan eftir 6 umferð r:
1.—2. Friðrik og Ingi R. 5 v.
3. Arinbjörn 4V2 v.
4.—5. Guðm. Á. og Ingvar 3 Vi.
6.—7. Svein og Benóný 3 auk
þess á Svein biðskák.
Það má telja fullvist að aðrir
koma ekki til greina í barátt-
unni um verðlaunasætin fimm
Mótið er haldið í Sjómanna-
skólanum, og hefur mótsstjórn-
in komið fyrir sýningartöflum
svo að hægt er að fylgjast með
gangi allra skáxanna frá sama
tað í húsinu. Ég vil hvetja
menn eindregið til þess að fylgj-
ast með síðustu umferðunum,
því þá nær keppnin hámarki
sínu. Auk þess hafa verið tefld-
ar nokkrar mjóg skemmtilegar
skákir. Ég ætla að rekja hér
sKák mína við Ingvar Ásmunds-
son, en hún var tefld í 4. um-
ferð. Skákin er íull af skemmti-
legum leikfléttum sem gaman er
að glíma við og tvímæla-
laust skemmtilegasta jafnteflis-
skák mótsins.
Hvítt: Ingvar Ásmundsson
Svart: Ingi R. Jóhannsson
Griinfelds-vörn
1. d4, Rf6; 2. c4 g6; 3. Rc3, d5;
4. cxd5 Hér eru nokkrar aðrar
leiðir svo sem 4. Bf4, 4. Rf3,
4. Db3, 4. e3. 4. — Rxc3. Eftir
4. — Rb6 fær svartur þrönga
stöðu.5. bxc3, Bg7; 6. Bc4, 0-0;
Frh. á bls. 23
%%%%%%%%%%%%
Bridge
ÖNNUR umferð í tvimenmngs-
keppni I. flokks hjá Bridgefélagi
Reykjavíkur var spiluð á þriðju-
dagskvöldið. Að henni lokinni
eru þessir efstir:
1. Bernharð — Torfi 407
2. Eggert — Þórir 397
3. Ivar'— Bjöm 382
4. Steinunn — Guðríður 363
5. Jón — Ingólfur 362
6. Sigurður — Jón 357
7. Rósmundur — Stefán 355
8. Ólafur — Brandur 355
9. Guðm. Kr. — Ólafur 339
10. Birgir — Pétur 334
11. Björgvin — Eiríkur 334
12. Böðvar — Þorsteinn 322
Næsta umferð verður spiluð i
kvöld í Skátaheimilinu kl. 8.
★
Síðasta umferðin í einmenn-
ingskeppni Bridgefélags kvenna
var spiluð á mánudagskvöldið og
urðu úrslit þessi:
1. Lilja Guðnadóttir 318
2. Dóra Sveinbjarnard. 313
3.—5. Þorbjörg Thorlacíus 300
3.—5. Guðríður Guðmundsd. 300
3.—5. Guðrún Eiríksdóttir 300
6. Rannveig Thejll 295
Tvímenningskeppni hefst hjá
Bridgefélagi kvenna 3. október
nk. og er öllum konum heimil
þátttaka. — Núverandi stjórn
Bridgefélags kvenna er þannig
skipuð: Formaður Rósa ívars,
gjaldkeri Guðrún Bergsdóttir og
ritari Eggrún Arnórsdóttir.
★
Tvímenningskeppni meistara-
flokks hjá Bridgefélagi Reykja-
víkur hefst 4. okt. nk. Þátttöku-
rétt hafa 16 meistaraflokkspör
félagsins frá fyrra ári og 16 efstu
pörin í tvímenningskeppni þeirri
er nú stendur yfir.
/