Morgunblaðið - 09.11.1960, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 09.11.1960, Blaðsíða 3
Miðvik'udagur 9. nóv. 1960 MORGVNBLAÐ1Ð 3 STAKSTEINAR og hreini vilji“ „Hinn stt rki NÝLEGA var hafizt handia um að stæ-kka Xöndunar- og viðlegupláss báta í Vest- mannaeyjahöfn. Höfnin er stolt Vestmanneyinga og hlið ið að lífsmöguleikum þeirra. Hún er talin góð og mjög ör- ugg, en undanfarin ár hefur hún verið of hlaðin bátum, bæði vegna þess að þeim fjölg ar og vegna þess að þeir hafa stækkað. Þótt hún hafi verið stækkuð allverulega undan- farin ár, hefur það ekki reynzt nægilegt. Skammt er síðan Nausthamarsbryggja var byggð og var það þá trú margra, að framkvæmdum við höfnina væri að fullu 1^k- ið og þar yrði staðar numið, en það hefur reynzt skamm- sýni. Stækkunin, sem nú er hafin, nemur hvorki meira né minna en 630 metrum. Hin nýja bátakví verður í beinu framhaldi af Friðarhöfn, og er þegar byrjað að grafa upp sandinn og ramma niður járn þil. Þetta er svipur hafnarinnar í Vestmannaeyjum í dag, en með hverjum mánuðinum sem líður mun hún breyta allverulega um svip, og vonandi mun þessi svipur heyra til liðnum tímg, eftir eitt til tvör ár. (Ljósm.: S;gg. Jónss. Vestmannaeyinga Hér í blaðinu var fyrfp skömmu á það minnst að íslenzk ir kommúnistar hefðu nú gert meginvígorð stormsveita þýzku | nazistanna að sínu, en það hljóð- aði á þessa leið: „Yfirráðin yfir götunni eru lykillinn að völdium í ríkinu“. En ekki er þetta eina dæmið um, að kommúnistar taki sér í mun slagorð nazistanna, enda sannast oft hið fornþveðna, að „tungunni er tamast það, sem hjartanu er kærast“. í Þjóðviljan um í gær birtist ritstjórnargrein, sem endar á þessum orðum: „En hin sterki og hreini vilji íslenzku þjóðarinnar ætti að nægja til að afstýra ólánsverk- \um, endast til sigurs“. Menn minnast þess, hve naz- istadrengirnir í gamla daga höfðu „hreinar hugsanir" og nú eru kommarnir okkar, sem að gömlum sið kalla sig þjóðina, I komnir með „hreinan vilja“. | Því má skjóta inn í til gamans, i að hreinan vilja og hugsun er j vel hægt að öðlast með hagnýt- j ingru einnar af hinum þekktu uppgötvunum austan járntjalds, sem nefnd er heilaþvottar. Þann hreinleika virðast íslenzkir kommúnistar margir hverjir hafa öðlazt. Dæmi: Forsíðufyrir- sögnin í Þjóðviljanum í gær hljóðaði svo: „Sovétríkin — traustasti vörð- ur friðar í heiminum“. Barðir til ásta Verkinu stjórnar hinn öt- uli hafnarvörður Vestmanna- eyinga, Bergsteinn Jónsson, en hann hefur verið verk- stjóri við allar framkvæmdir við höfnina undanfarin ár dg farizt vel úr hendi. Þegar þess um nýju framkvæmdum er lokið, má gera ráð fyrir að. búið sé að byggja fram í tím- ann, Beynist þessi stækkun ekki nægileg, hlýtur að koma að því að fiskimiðin verði einnig of lítil og þoli ekki meira. Vestmannaeyjahöfn á dögum Þórs — 1919. Kína viðurkennir for- usru Sovjetríkjanna MAO TSE TUNG, leiðtogi kín. verskra kommúmsta, ri’.aði Krús jeff forsætisráðherra bréf í til. efni 43 ára afmælis byltingar. innar í Bússlandi þar sem bann viðurkennir forustu Rússa í her. búðum kommúnista. Bendir brcf ið til þess að nú dragi til sam- komulags í skoðanadeilum land- anna. í bréfinu er einnig iögð á. herzla á einingu kommúnista- landanna tveggja og aðstoð Rússa við Kína iofuð. — Kínverska þjóðin mun halda áfram að berjast við hiið sovézku þjóðarinnar fyrir upp- byggingu sósíalismans og gegn árásum heimsvaldastefnunnar segir Mao. — Ekkert afl fær grafið und- an órjúfandi vináttu og sam- heldni Kína og Sovétríkjanna. í Vestur-Evrópu er talið að bréfið bendi til að birt verði yfirlýsing á leiðtogafundi kornm. únistaríkjanna, sem hefst í vik- unni, um að skoðanamunur land anna sé nú úr sogunni. Friðbjörn til USA Kaupmannahöfn, 8. nóv. Einkaskeyti til Mbl. frá Páli Jónssyni. B ALLETTD AN S ARINN Frið- björn Björnsson fer eftir ára- mótin í þriggja mánaða náms- ferð til Bandaríkjanna í boði Institude of International Edu- cation, en ferða- og uppihalds- kostnað greiðir Ford-stofnunin. I.I.E. gefur ungu hæfileika- fólki tækifæri til að æfa með stallsystkinum sínum og njóta leiðbeininga þekktustu dansara Bandaríkjanna. I.I.E. valdi aðeins þrjá dans- ara úr fjöldamörgum, sem til greina komu. Auk Friðbjarnar urðu Breti og Argentínubúi fyr- ir valinu. Her er verið að reka jarnþilið fyrir hina nyju bátakví niður. Margir fylgjast með verkinu af miklum áliuga, enda öllum viðkomandi. Svo bar við fyrir nokkrum dög um, að Tíminn tók að skrifa skyn samlega um kommúnisma og birt ust slíkar greinar í blaðinu eina 3 eða 4 daga. Skyldu menn ekki hvað olli, en Hermann og Ey- steinn munu nú hafa komizt fyr- ir „ósómann“. f gær miun endan- lega hafa verið gert út um þessa tilraun Tímans til „auðvalds- þjónkunnar“ og Þjóðviljinn feng inn til að berja blaðið til ásta. Þjóðviljinn segir þannig í gær: „Svo virðist sem dagblaðið Tíminn hafi að undanförnu reynt að vinna sig í áliti hjá einhverj- um annarlegum húsbændum“. | En Tíminn sjálfur þenur yfir forsíðuna hugleiðingar, sem fyrir viku síðan birtust í 2ja dálka smáklausu í Þjóðviljanium. Þann ig er allt aftur orðið slétt og fellt. Ekki allar ferðir til fjár Eins og Morgunblaðið skýrði frá í gær, úrskurðaði kommún- istameirihluti í miðstjórn Alþýðu sambands íslands, að aðalfundur í verkalýðsfélaginu Afturelding á Hellissandi hefði verið ólög- legur. Sl. sunnudag var fundur- inn svo endurtekinn og átti nú heldiur betur að tryggja komm- únistum stjórn félagsins og full- trúa á Alþýðusambandsþing. En verkalýðurinn á Ilellissandi sendi kommúnistum kærar kveðj ur, kaus sér góða stjórn og sendi lýðræðissinna á Alþýðusambands þing. Fyrrverandi formaður kommúnista í félaginu fékk að- eins 4 atkvæði meðan lýðræðis- sinnar fengu nærri 50. Rækilega átti þó að vera búið um alla hnúta, því að Hannibal bílasali sendi erindreka sinn til Sands .Var sá auðvitað ekki fél- agsmaður í Aftureldingu, en engu að síður var hann gerður fundarstjóri á hinum sögulega fundi. Þegar fundarmenn mót- mæltu þessu ,sagðist sendimað- urinn hafa skeyti upp á það frá tigninni sjálfri, og ætti hann að sjá um, að allt færi löglega fram!

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.