Morgunblaðið - 09.11.1960, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 9. nóv. 1960
MORCUNBLAÐIÐ
9
Hann var verkamaður hjá
Reykjavíkurhöfn I 35 ár
Guðmundur Sæmundsson 90 ára í dag
ÞAÐ er án efa óvenjulegt að
hitta níræðan mann, sem á
manndómsárum sínum var
20 vertíðir á skútu, án
þess kæmi brennivín inn
fyrir hans varir né tóbaks-
lön á handarbak. En því er
þannig varið með Guðmund
Sæmundsson, einn hinna
elztu vérkamanna hér í bæn-
um. Guðmundur verður niu-
tíu ára í dag.
Guðmundur hefur alltaf talið
sig Reykvíking, en hingað kom
hann er hann var á fjórtánda
árinu, og hér hefur hann átt
heima síðan, gengið til starfa á
landi og sjó. Hann er fyrir
nokkrum árum hættur störfum
hjá Reykjavíkurhöfn, en þar
vann hann samfleytt í 35 ár.
— Það eina sem ég lærði
sem ungur, var að vinna. Heita
má að minn starfsdagur hafi
byrjað er ég var sex ára að
aldri, þegar faðir minn dó og
heimilið leystist upp.
Margra hluta vegna tel ég
það hafa orðið mér til hins
mesta láns, er til Reykjavíkur
kom, að ég réðist í vinnu til
Árna pósts, en hann hafði póst-
ferðirnar vestur í Dali. Þar lágu
t. d. leiðir okkar saman, Guð-
rúnar, konunnar minnar sálugu,
og þar var allur viðurgemingur
og aðbúð svo góð, að ég tók
fljótt miklum framförum. Og
það er óhætt að segja að þó
lífsbarátta daglaunaverkamanns-
ins í Reykjavík væri oft mjög
hörð fyrr á árum, þá hafi mér
alltaf liðið vel í Reykjavík.
Guðmundur getur nefnt hvern
kútterinn á fætur öðrum með
nafni viðkomandi skipstjóra,
sem hann var á. Ég var á
„Soffiu Withley“ í mannskaða-
veðrinu mikla er kútter Ingvar
fórst á Kjalnestöngum og fleiri
kútterar héðan úr bænum týnd-
ust með allri áhöfn. Við á
„Soffiu Withley" vorum suður í
Garðsjó og héldum sjó allan
tímann og sluppum við óskadd-
aðir úr þeim ósköpum.
Og Guðmundur minntist einn-
ig veru sinnar hjá Milljónafé-
laginu í Viðey. Einu sinni stóð-
um við í fiskþvotti í 18 stiga
gaddi. Vatnið fraus í körunum
er við vorum að vaska fiskinn.
Og hann minnist starfa í
norsku hvalveiðistöðinni í Ön-
undarfirði.
— Hvernig stóð á því að þú
hresstir þig ekki á brennivíni,
ef svo bar undir?
— Það skal ég segja þér,
sagði Guðmundur. Ég ákvað það
er ég byrjaði á skútu að halda
brennivíninu í hæfilegri fjar-
lægð. Það var ömurleg sjón að
sjá, þegar verið var að flytja
skútukarlana í böndum frá
gömlu bryggjunum og hér út á
leguna. Því annars hefðu þeir
stokkið í sjóinn eða hvolft und-
ir okkur. En þó ég hafi alla tíð
verið í bindindi, þá hef ég
aldrei í stúku verið.
Af allri þeirri erfiðisvinnu,
sem Guðmundur stundaði hér í
Reykjavík, telur hann saltburð-
inn hafa verið þá verstu vinnu,
sem lögð hafði verið á nokkurs
manns herðar. Þetta var hreinn
þrældómur, önnur lýsihg sann-
ari er ekki til. Kolaburðurinn
úr prömmunum upp í frönsku
togarana, sem stundum stóð lát-
laust í 40 klst., var hreinasti
barnaleikur á móts við helv.
saltið?
— Varstu þá ekki á móti kola
krananum?
— Það voru ýmsir karlanna
á móti honum, þegar hann kom
til skjalanna, en ég var ekki
í þeirra hópi. Hann tók líka
nokkra vinnu frá mönnum, það
var óumflýjanlegt. Margar hús-
mæður léttu undir með körlun-
um sínum og voru í kolaburði.
Voru á meðal þeirra hörkudug-
legar konur, sem ekki gáfu karl
mönnunum neitt eftir.
Nokkuð vann Guðmundur við
byggingarvinnu, t. d. við Lands-
bankabygginguna.
— Hvernig stóð á því að þú
gerðist starfsmaður hafnarinnar?
— Það var dag nokkurn, að
Guðmundur Sæmundsson
ég stóð uppi atvinnulaus. Börn-
in voru þá orðin sjö talsins. Þá
var fyrirsjáanlegt að ólýsanlegir
erfiðleikar voru framundan,
nema fljótlega rættist úr — og
það gerði það, því ég komst í
vinnu hjá Reykjavíkurhöfn og
þar vann ég samfellt í 35 ár.
Geymir Guðmundur margar
minningar frá hafnarvinnuárun
um, frá því er Ægisgarður var
Góður afli
NESKAUPSTAÐ, 8. nóvember.
Veðráttan hefur verið hagstæð
til sjósóknar héðan og afli góður.
Nokkrir bátar hófu róðra um
miðjan september og í október
lok var Þráinn þeirra aflahæstur
með 200 tonn, Hafrún hafði 193
tonn og Glófaxi 170 tonn.
Ekkert var róið fyrstu viku
nóvember vegna veðurs. Nokkr
ir bátar, bæði stórir og smáir,
eru seldir úr kauptúninu um þess
ar mundir. En þrir bátar eru í
smíðum erlendis fyrir Neskaup-
stað — og nokkrir eru leigðir
hingað til vetrarvertíðarinnar.
Snjóað hefur í fjöll og er Odds
skarð illfært. Reykjafoss lestaði
síldarmjöl hér fyrir helgi og
norskt skip tók síldarlýsi.
•— Fréttaritari
Framköllun
Kopering
I
Fljót afgreiðsla.
Sendum gegn póstkröfu.
Fótófix
Vesturveri.
gerður, þegar uppfyllingin
gleypti gömlu steinbryggjuna,
og úr grjótnámi hafnarinnar.
Guðmundi féll aldrei verk úr
hendi. Margir eru þeir sem átt
hafa við hann viðskipti. Hann
fór í frístundum sínum allt
fram á allra síðustu ár, um hin
nýju íbúðarhverfi og safnaði
þar saman bognum nöglum
undir veggjum nýju húsanna.
Hann fiskaði þá upp í fötu með
hjálp segulstáls. í frístundum á
kvöldin, á sunnudögum og jafn-
vel í matar- og kaffitímum, tók
hann að rétta naglana. Hann
seldi síðan kvartelið fyrir óveru
legan pening.
— Naglar frá mér munu
vera um allt land, sagði Guð-
mundur og í þessu húsi, Rauða-
læk 4, sem tengdasonur minn
og dóttir byggðu, eru ekki aðr-
ir naglar en frá mér, sagði
Guðmundur er við sátum þar
yfir kaffi í gær.
Þannig hefur Guðmundur ver
ið trúr því sem hann lærði þeg-
ar í barnæsku: sífellt starfandi,
enda tókst honum og konu hans
að koma upp stórum barnahópi.
í dag ætlar Guðmundur ekki
að skála við vini sina er þeir
heimsækja hann, að Rauðalæk
4. En að slá í hundavist er
annar handleggur, mælisbarnið og hló. sagði af-
— ★ —
Guðmundur er fæddur að
Grjóti í Þverárhlíð, en Guðrún,
kona hans, var Jónsdóttir frá
Litlu-Tungu í Miðfirði. Þeim
varð 8 barna auðið og eru 7 á
lífi. í yfir 50 ár bjuggu þau að
Hverfisgötu 87.
Sv. Þ.
Fyrir herra
Dísilvélar
á Vatnajökli
ÞAÐ bar við nýlega að ég var
beðinn að snara á norsku grein-
um sem stóðu í Morgunblaðinu
og Tímanum um leiðangur Jökla
rannsóknafélagsins á Vatnajökli
nú í haust. Var í greinum þess-
um rætt töluvert um þá ný-
breytni að nota Massey-Fergu-
son traktor á beltum til slíkra
jökulferða. Er það að vonum eft-
ir því sem frásögn greinir um
árangur þessarar ferðar.
í annari greininni í Tímanum
— 18. október — þær voru tvær
— er sérstaklega rætt um hve
vel dísilvél traktorsins hafi
reynzt í harðræðum þessum,
raunar var frostið ekki nema um
15 gráður, og má það víst telj-
ast lítið á Vatnajökii, og með
veður virðast leiðangursmenn
hafa verið heldur heppnir. En
sem sagt traktorinn með dísilvél
reyndist vel, mótorinn öruggur
og sparneytinn. — En svo segir:
„Þetta hefur víst aldrei verið
prófað, því þarna á suðurskaut-
inu, þá voru þeir með þessi belti,
en við vitum ekki til að þeir hafi
verið með dísilvélar".
Hér skýtur nokkuð skökku
við. Vitanlega hafa dísilvélar
verið reyndar fyrr á jöklum, og
í vetrarferðum á snjó. En það
sem gefur sérstakt tilefni til þess
að leiðrétta missögnina er sú
staðreynd, að dísiltraktorar hafa
verið reyndir áður einmitt á
Vatnajökli, þótt ekki væru það
Massey-Fergusontraktorar. Þetta
mætti blaðamönnum og raunar
öllum almenningi vera minnis-
stætt, þótt nú séu liðin níu ár
frá því að slík „tilraun" var
gerð. — En tilraunin var ekkert
smávægileg og tókst svo vel að
hún er óafmáanlega skráð í sögu
íslenzkra jöklaleiðangra. Ég á
við leiðangur Loftleiða er þeir
á útmánuðum 1951 sóttu
amerísku björgunarflugvélina
upp í Bárðarbungu, svo sem
frægt er orðið. Án þess vélakosts
sem þá var notaður til ferðar og
flutninga og við að grafa flug-
vélina úr fönn, draga hana niður
af jöklinum og við að gera flug-
braut við Fljótsodda — hefði
þetta allt verið vonlaust og
óframkvæmanlegt. Litlir traktor
ar hefðu ekki heldur valdið verk
efninu. Þess vegna voru notaðir
vænir dísiltraktorar, einn belta-
traktor Caterpillar D-4 og einn
International TD-9 (jarðýtur). í
þessum leðiangri var sannarlega
reynt svo ekki var um að villast,
að byggja má örugglega á dísii
vélum við ferðir á Vatnajökh
og það þótt til harðræða dragi.
Ef ég man rétt var leiðangurinn
úti í 30 daga, þeir fengu um 30
gráðu frost þegar mest var og
stórhríðargusur svo að um
munaði. — Þar fékkst sannar-
lega reynsla sem ekki lætur að
sér hæða.
Hin ágæta reynsla 1951 breyt-
ir auðvitað engu um það, að leið-
angur Jöklarannsóknafélagsins
nú í haust hefir leitt í Ijós að
,,venjulegir“, léttir og liðlegir
dísiltraktorar á beltum eru hið
vænlegasta farartæki í jökul-
ferðum. Slíkt er mikilvægt, það
er aðalatriðið, hitt er ekki nýtt
og kom ekki á óvart að dísilvél-
ar þola harðviðrin á jöklinum
og reynast öruggar ef skynsam-
lega er með þær farið og vel um
þær hirt. En línur þessar skrifa
ég til leiðréttingar sökum þess
að enginn ástæða er til að slá
striki yfir traktorferðina og af-
rekin — það má hiklaust nefna
það svo — á Vatnajökli í apríl
— maí 1951.
1. nóvember 1960
Árni G. Eylands.
Vil taka að láni
50 Jbús. kr.
til 6 mán. Örugg trygging fyr
ir hendi. Listhafendur sendið
nöfn sín til Mbl. á föstud. 11.
nóv. merkt. ,,Lán - nr. — 1157“
SVFR
Skemmtikvöld
fyrir félagsmenn og gesti verður í Þjóðleikhús-
kjallaranum föstudaginn 11. nóv. kl. 8,30 e.h.
Til skemnitunar:
Kvikmynd, Dans og fl.
Aðgöngurniðar fást hjá Veiðimanninum, Hans Peter-
sen og Verzl. Sport.
STANGAVEIÐIFÉLAG KEYKJAVlKUR
Skemmtinefnd.
SHAMPO í bæjarins mesta
úrvali.
HÁRKREM
HÁROLÍA
FLÖSUHREINSA NDI
hárvatn
RAKKREM í túbum
RAKKREM í sprautu-
könnum
RAKKREM í krukkum
RAKKREM í stöngum
RAKVÉLAR
RAKKÚSTAR
RAKBLÖÐ
Eftir rakstur
Rakspeglar
Álúnstifti
•
Tannburstar
með ekta burst
Nylon tannburstar
Tannkrem
IjSFmFniic
Bankastræti 7
A T H U G I Ð
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunblaðinu en í öðrum
blöðum. —
Bifreiðasalan
Sími 11025.
Volkswagen ’56 í mjög góðu
standi.
Dodge ’53 pick up í ágætu
standi og í góðu verði.
Opel Record ’58 sérlega glæsi-
legur.
Opel Kapitan ’59 lítið ekinn
Skipti á ódýrari bifreið.
Packard ’40 í ótrúlf^d góðu á-
standi — Má greiðast með
skuldabréfi.
Bifreiðasala — Simi 11025
BlimilNN
við Vitatorg. — Sími 12-500
Volkswagen ’58, svartur, mjög
góður bílL
Chevrolet ’50
Rússajeppi ’59
Ford sendiferðabíll ’55.
Höfum ávalt mikið úrval af
öllum gerðum bifreiða.
BÍUSUINN
við Vitatorg. — Simi 12500.
Vörubilar
CHEVROLET ’59
BENZ ’57 5 tonna
VOLVO ’55 5 tonna
DODGE ’55
CHEVROLET ’55
FORD ’55 og ’57
Einnig allar gerðir af eldri
vörubilum.
m eÍL/VSALAN
Ingólfsstræti 11
Simi 15-0-14 og 2-31-36
Aðalstræti 16 — Sími 19181