Morgunblaðið - 09.11.1960, Page 2

Morgunblaðið - 09.11.1960, Page 2
2 MORCVISBLAÐIÐ Miðvik'udagur 9. nóv. 1960 Erfitt að halda aftur af verkamönnum — segir Peter Henderson PETER HENDERSON, fram- kvíemdastjóri fiskiðnaðardeildar brezka flutningaverkamannasam bandsins, hefur dvalizt hér nokkra daga. Hann fór utan í morgun, en í gærkvöldi hafði tíðindamaður Mbl. tal af hon- um. Verkalýðsfélag mitt taldi ráð- legt að ég skryppi til íslands að ræða við íslenzka ráðamenn og 15 nýjar hjúkrunarkonur í LOK októbermánaðar braut- skráðust eftirtaldir nemendur frá Hjúkrunarkvennaskóla ís- lands: Aðalbjörg Árnadóttir frá Vopnafirði, Auður Fanney Jó- hannesdóttir frá Flóðatanga, Stafholtstungum, Borgarf., Bima Ásmundsdóttir Olsen frá Pat- reksfirði, Erla Þorgerður Ólafs- dóttir frá Patreksfirði, Guðlaug Benediktsdóttir frá Eskifirði, Guðrún K.S. Thorstensen frá Arnardal við ísafjörð, Gunnur Sæmundsdóttir frá Narfastöðum, Reykjadal, S.-Þing., Hulda Guð- finna Pétursdóttir frá Rvík, Margrét Jóhannsdóttir frá Rvik, Nanna Guðrún Henriksdóttir frá Rvík, Ólöf Snorradóttir frá Kristnesi, Eyjafjarðarsýslu, Sig- rún Daníelsdóttir frá Akranesi, Soffía Ólafía Níelsdóttir frá Hús ey, Hróarstungu, N-Múl., Svan- laug Alda Árnadóttir frá Hólma- vík, Þórunn Sigurborg Páisdótt- ir frá Rvík. fá sem gleggsta hugmynd um af- stöðu þeirra hvað snertir land- helgisdeiluna. Fulltrúar beggja ríkisstjórnanna hafa ræðzt við svo og brezkir og íslenzkir tog- araeigendur, m. a. þegar Mr. Cobley var hér á dögunum, en fulltrúar verkalýðsfélaganna í Bretlandi og á íslandi höfðu ekki hitzt. Þess vegna ákvað ég að fara. — í minni deild flutningaverka mannasambandsins eru um 110 þús. verkamenn, bæði venjulegir hafnarverkamenn svo og þeir, sem annast löndun úr fiskiskip- um. í tvö ár hafa yfirmenn á tog- urum reynt að egna verkamenn- ina til aðgerða gegn íslendingum með löndunarbanni. Okkar fé- lag hefur alla tíð staðið gegn því, og beitt sér þessi tvö ár af alefli — og það hefur heldur ekki kom- ið, til neinna mótaðgerða. Mitt samband hefur og mun styðja viðleitni brezku stjórnarinnar til að ná samkomulagi við íslend- inga. En það hefur verið erfitt að halda aftur af verkamönnum þessi tvö ár. — ★ — Það er e. t. v. rétt að geta þess í sambandi við blaðaskrif um komu mína hingað, að það var einmitt Hannibal Valdimars son, sem bauð mér hingað fyrst- ur manna. Hann var fulltrúi á þingi Alþýðusambands Bretlands í Bournemouth í Englandi haustið 1958, einmitt þeg- ar íslendingar færðu út fisk- veiðilögsöguna og átökin hófust. Við rædduinst við og hann hvatti mig til að koma til íslands og kynna mér ástandið við fyrsta tækifæri. Þannig er og háttað málum í Alþjóða flutningaverkamanna- sambandinu, að við teljum okkur velkomna hver til annars hvenær Norskt bjorgunar- skip til íslands Alasundi, 8. nóv. — (NTB) — RITARI norska slysavarna- félagsins skýrði frá því í dag að björgunarþjónusta þess við ísland yrði aukin á næsta vori. Þá er ætlunin að senda til Reykjavíkur björg- unarskip til að hafa eftirlit við suð-vestur ströndaa, Tóinar slöngur AKRANESI, 8. nóv. — Enn hef- ur ekkert verið upplýst um það hverjir stóðu fyrir því að hleypa vatninu úr vatnsbóli bæjarins aðfaranótt 28. þ.m., en þá var bærinn vatnslaus í fimm klst. SHkur leikur gæti orðið dýrt spaug, því eldsvoðar gera ekki boð á undan sér og lítið gagn er í slökkviliði með tómar slöngur. — Oddur. Dagskrá Alþingis DAGSKHÁ sameinaðs þings i dag kl. 1.30: 1. Jarðhitaleit og jarðhitafram- kvæmdir, Þáltill. 2. Fiskveiðar með netjum, Þáltill. 3. Hlutdeild atvinnu- greina í þjóðarframleiðslunni, þáltill. 4. Lán til veiðarfærakaupa, Þáltill. 5. Slys við akstur dráttarvéla, þáltill. 6. Umferðaröryggi á leiðinni Reykjavík— Hafnarfjörður, Þáltill. 7. Fiskveiðar við vesturströnd Afriku, þáltill. 8. Byggingarsamvinnufélög, þáltill. 9. Rykbinding á þjóðvegum, þáltUl. 10. Hafnarstæði við Héraðsflóa, þáltill. 11. Milliþinganefnd í skattamálum .þáltill. 12. Byggingarsjóðir .þáltill. 13. Styrk ir til landbúnaöarins, þáltill. Vestmannaeyjar og á Græn- landshafi. Seinna verður skipið staðsett á Siglufirði til að annast norska síldarflotann. Einnig hafa Norðmenn í hyggju að hafa björgunarskip við Shetlandseyjar, en fullnað- arákvörðun hefur ekki verið tekin um það. Kostnaður við þessa auknu þjónustu verður talsverður, en norska slysavarnafélagið hefur nú aukinn ríkisstyrk. Útbreiðslufundir Á SUNNIJDAG efndi Út’oreiðslu nefnd FRÍ til fræðslufundar um frjálsíþróttir á Akranesi. Guð- mundur Þórarinsson, íþrótta- kennari og stjórnarmeðlimur út_ breiðslunefndarinnar setti íund- inn og flutti síðan fróðlegt er- indi um þjálfun. Vilhjálmur Ein. arsson íþróttakappi talaði næst- ur og ræddi einnig um þjálfun og sína persónulegu reynslu á því sviði. Var gerður mjög góð- ur rómur að ræðum Guðmundar og Vilhjálms. — Loks voru sýnd ar kennslumyndir, sem þóttu fróðlegar og skemmtilegar Sigurður Haraldsson, bæjar. gjaldkeri þakkaði ræðumönnum og kvaðst þess fullviss, að koma þeirra myndi verða til góðs fyrir frjálsíþróttir á Akranesi, en vaxandi áhugi er fyrir þeirri á- gætu íþrótt á Akranesi Fundur- inn var allfjölmennur og bótti takast vel í alla staði. sem er. Ég hef líka fengið hinar ágætustu móttökur hér og notið góðrar leiðsögu Jó.as SÁgurðsson- ar, sem er fulltrúi Alþjóða flutn- ingaverkamannasambandsins hér. Ég hef hvarvetna orðið var við þá von manna, að takast megi að jafna deilúr lslendinga og Breta. Ég er ánægður með för- ina, tel mig fróðari um grund- vallaratriðin og sé ekki eftir að hafa lagt upp í íslandsferð. — ★ — Að vísu hef ég verið hér áður. Ég kom fyrst til íslands 1937. Þá var ég á togara hér við strönd- ina, var lagður í sjúkrahús á Patreksfirði og fékk þar hina beztu aðhlynningu. Nokkru eft- ir stríðslok var ég enn á togara hér og þurfti að leita læknis- hjálpar í Reykjavík. Nú er ég að vísu í öðrum erindagerðum, en viðtökur íslendinga eru jafnhiý- legar. — ★ — Þess má að lokum geta, að á föstudaginn ræða Henderson og nokkrir aðrir fulltrúar fiskiðnað- arins brezka við Soames, fisk- veiðimálaráðherra, og Hume lávarð, utanríkisráðherra, og skýra þeim frá viðræðunum við íslendinga. Guðm. E. Einarsson INiýr aðalbókari Jf í Utvegsbank- anum Á FUNDI bankaráðs Útvegs- banka íslands i gær var Guð- mundur E. Einarsson ráðinn að- albókari bankans. Guðmundur hefur starfað í Útvegsbankanum síðan 2. desember 1935 .Stundaði jafnframt nám í Verzlunarskóla íslands 1936—1937. Hann hefur undanfarin tæp tvö ár gengt að- albókarastörfum í veikindafor- föllum Einars heit. Kvaran. Guðmundur er fæddur í Reykjavik. Kennsla í hjálp í viðlögum fyrir almenning SLY SAVARN ADEILDIN „Ing. ólfur“ í Reykjavík gengst fyrir því að haldið verði námskeið fyrir almenning í hjálp í við- lögum og fer það fram í Slysa- varnahúsinu á Grandagarði. Námskeiðið hefst næstk. sunnu dag kl. 2 e. h. með því að sýndar verða kvikmyndir um hina nýjil lífgunaraðferð. Einnig fer þar fram kennsla. Síðan verður þátt_ takendum skipt í hópa, sem kennt verður annaðhvort kvöld í næstu viku. Nauðsynlegt er fyrir deildina að vita, sem fyrst, hve mikil þátttaka verður í námskeiðunum og er fóJk því beðið að tilkynna um það i síma Slysavarnafélagsins. Bókin „Hjálp í viðlögum" verður not- uð á námskeiðinu. Almenningur í Reykjavík hef- ur ávallt sýnt mikinn áhuga fyr- ir slíkri fræðslu og mun enn reynast svo um þessi námskeið, sem eru ókeypis. Enga kommún- ista til Kongó segir Mobutu Leopoldville, Kongó, 8. nóv. — (Reuter) —• J O S E P H Mobutu, herstjóri i Kongó, lýsti því yfir í dag að hann mundi aldrei samþykkja, að rússneskir og tékkneskir kommúnistar fengju að snúa aftur til landsins. Þá hélt Mo- butu því fram á blaðamanna- fundi að tveir yfirmenn úr Kongóher, sem farið hafi eftir fyrirskipunum embættismanna, „studdum af SÞ“, hefðu fengið 30 hermenn til að gera mis- heppnaða tilraun til að hertaka þinghúsið sl. nótt. Sagði hann að með þessu hefðu SÞ „framið afbrot gegn Iýðveldinu“, en lagði ekki fram neinar sannan- ir fyrir aðild SÞ að tilrauninni. Steypa hverri stjórn, sem . . . í yfirlýsingu sinni varðandi kommúnista, sagði Mobutu: „Á meðan ég lifi, munu Rúss- arnir og Tékkarnir ekki snúa aftur hingað. Ég mun steypa af stóli hverri þeirri ríkisstjórn, sem hleypir þeim inn í landið“. Mobutu rak sendisveitir Rússa og Tékka úr landi fyrir tæpum tveim mánuðum. Mobutu sagði að herforingj- arnir tveir hafi hlýtt fyrirskip- unum Kamitatu, fylkisstjóra Leopoldville-héraðs, er þeir gerðu tilraun til að hertaka þinghúsið. Kvað hann hermenn- ina hafa álitið sig vera að fara að fyrirskipunum Mobutus, en varðsveitir við þinghúsið hrakið þá burtu. Mobutu sagði að Kamitatu væri studdur af SÞ, sem vildu skapa innbyrðis átök meðal her- manna hans og fá þannig ástæðu til að afvopna Kongó- her. Kamitatu hefur neitað allri vitneskju um „árásina“. Mobutu sýndi blaðamönnum 100 riffla, rúmlega 70 handvél- byssur og fleiri vopn, sem hann sagði að hermennirnir 30 hafi haft meðferðis. Hann sagði að foringjarnir tveir væru horfnir. Þá sagði Mobutu ennfremur: „Það er ég sem kem til með að kalla þingið aftur saman þegar nauðsyn krefur, ekki Sameinuðu þjóðirnar". Kvaðst hann því að- eins vilja samvinnu við SÞ að þær sýndu honum traust. Day- al, fulltrúi SÞ, hefði ekki gert það og vildi Mobutu aldrei við hann tala framar. „En sú blíða’4 HÚSAVÍK, 8. nóv. — Hér er logn og blíða, 10 stiga hiti. Fólk er léttklætt og létt í lund. „En sú blíða“, segir það. — Og varla nema von, því þann 8. nóvember í fyrra varð mikið mannskaða og fjárskaðaveður hér norðanlands. Þá týndist fé í fönn, fannst sumt dautt, en nú sést ekki snjór nema á fjallatindum. Bændur hafa samt enga trú á því að þetta veður haldist til eilífðar. Veðrabrigði geta oft verið snögg hér og þess vegna eru þeir komn ir með féð heim, en láta það samt út dag hvem. — Fréttar. Drengur fyrir b>l RANNSÓKNARLÖGREGLAN hefur fengið til meðferðar um. ferðarslys er varð 27. okt. sl. Þá varð 8—9 ára drengur fyrir sendiferðabíl á mótum Skafta- hlíðar og Stakkahlíðar. Hann taldi sig ómeiddan vera, er hann talaði við bílstjórann, og hafði bílstjórinn gefið honum 10 kr. og síðan ekið á brott. — Rann- sóknarlögreglan vill biðja bí'- stjóra þennan að koma til við- tals, því í ljós hefur komið að drengurinn hefur meiðzt. Normannslaget EINAR Farestveit, framkvstj., var endurkjörinn formaður þess 31. okt. sl. Aðrir í stjómina voru kjörnir: Frú Ingrid Björns- son, varaform., Jan Garung, gjaldkeri, Arvid Hoel, ritari, og Odd Didriksen, vararitarL /'NAIShnúlar v'' SV50hnútor H Snjókoma 9 06i *• V Skúrir K Þrumur ’Wts. KuUaakil Hl/tski/ H Hcti ****** Allmikil lægð er yfir Græn- landi og hafinu suður af ís- landi. Veldur hún mjög hlýrri suðrægri átt hér á landi og rigningu sunnan lands. Um hádegið var hlýjast á Galtar- vita, 12 st., en annars var 8— 10 stiga hiti um allt land, enda er ísland hlýjasta landið á þessu veðurkorti. Á Bret- landseyjum er 5—8 st. hiti, 3 st. í Danmörku og um frost- mark í Suður-Noregi. Á Ný- fundnalandi 3 st .hiti og La- brador er 3—12 st. frost. Veðurspáin kl. 10 i gær- kvöldi: SV-land og SV-mið: Austan stormur og rigning í nótt en sunnan eða SV kaldi og skúr- ir á morgun. Faxaflói til Vestfjarða og miðin: Allhvass SA og rign- ing í nótt en SV kaldi og skúrir á morgun. Norðurland til Austfjarða og miðin: Allhvass SA og sumsstaðar rigning í nótt en lygnir og léttir til á morgun. SA-land og SA-mið: Hvass SA og rigning í nótt en SV kaldi og skúrir á morgun. <

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.