Morgunblaðið - 09.11.1960, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 09.11.1960, Blaðsíða 18
18 MORGVNBLAÐIÐ Miðvik'udagur 9. nóv. 1960 « i ymíMrnBM&á á "k I fyrsta sinn á stdrum veili Landsliðið leikur við Tékkana í íþróttahúsinu á Keflavíkurvelli HÚSNÆÐISVANDRÆÐÍN hefta framfarir handknatt- leiksins hér á landi — og reyndar annarra knattleikja innanhúss. Við getum ekki háð landsleiki í neinu ís- lenzku húsi. Við erum ekki samkeppnisfærir vegna hús- næðisvandræða. Góð erlend lið geta ekki sýnt listir sinar í íþróttinni vegna lítils rúms. En þó verður það í fyrsta sinn á sunnudaginn, að ís- lendingum gefst kostur á að sjá handknattleik á fullstór- um velli. Tékkneska liðið, sem hér er í boði Víkings, leikur þá gegn landsliðinu og fer Ieikurinn fram í hinu nýja iþróttahúsi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. — Það hús var tekið í notkun i vor — kostaði yfir 16 milljónir í byggingu. ★ HVAÐ GETA MEISTARAR ' TÉKKA? Leikurinn á sunnudaginn fer fram -á vegum Handknatt- leikssambandsins. — Hann er fy*sti „stórleikur" sem núver- andi landslið fslands fær fyrir þátttöku sína í heimsmeistara- keppninni síðar í vetur. Þetta verður ágæt reynsla fyrir liðið — mótstaðan af líkum styrk- leika og liðin, sem íslendingar mæta erlendis. í annan stað verður þessi leikur án efa skemmtilegur vegna þess að þarna gefst Tékk- unum tækifæri til að sýna allar listir sínar. Hálogalandssalurinn hefur reynzt þeim of þröngur — hann heftir allt spil og getur beinlínis orðið til þess að lakara lið standi mun betra liði fylli- lega á sporði. Hindranirnar, sem af þröngum sal leiða eru allar til tjóns fyrir betra liðið og hinu lakara í hag. ★ GÓÐUR SAMANBURÐUR Hvort þetta góða tékkneska lið — sem nú ber nafnbótina handknattleiksmeistarar Tékkó- slóvakiu — getur meira en fram hefur komið í Háloga- landi, fæst svarað. á sunnudag- inn. Þá gefst einnig tækifæri til að bera saman getu okkar manna móti Gottvaldov annars vegar og getu Dana móti Dukla Prag, en það lið er nú á keppn- isferð um Danmörku, eins og segir annars staðar á síðunni. Þann samanburð er æskilegt að fá, þvl Dönum munum við mæta í fyrsta eða öðrum leik er til heimsmeistarakeppninnar kem ur. Þessi tvö tékknesku lið eru mjög svipuð að styrkleika og samanburðurinn því raunhæfur. En slíkur samanburður er að- eins raunhæfur á fullstórum velli. Leikurinn suður frá hefst kl. 3 síðdegis og gilda aðgöngu- miðarnir sem vegabréf inn á flugvöllinn. Elliotf er krýndur kon- ungur 1500 m hlaupara Er I sérflokki á afreksskránni 1500 m hlaupið er sú grein frjálsra íþrótta, sem hvað vinsælust er meðal áhorf- enda. — Á síðari tímum er þessi grein orðin einskonar spretthlaup, slíkum hraða hafa hinir beztu náð í hlaup- inu. Heimsmetið, sem nú gildir, er 3.35.6, en það jafn- gildir um 14.4 sek. á hverja 100 m hlaupsins. ♦ I RÓM Krýndur konúngur 1500 m hlaupara í dag er Ástralíumað- urinn Herbert Elliott. Hann gerði ekki aðeins að vinna bezta afrek ársins á vegalengdinni, heldur setti hann Olympíumet og heims- met. Það gerðist í Róm sama dag og Vilhjálmur stóð í eldrauninni í úrslitum þrístökksins. Fagnaðarlæti fullskipaðs Olympíuleikvangs voru gífurleg meðan hlaupið stóð. Þau upphóf ust þegar um 800 m voru búnii og Elliott skaut sér fram í fyrsta sæti — og jók hraðann stöðugt. Hann tók 7—800 m endasprett og sigraði með meiri yfirburð- um en átt hefur sér stað í þess- ari grein á Olympíuleikum um áratugaskeið. Allur vafi sem kann að hafa leikið á því hver var beztur í heimi í þessari grein, hvarf á þeirri stundu. O EINSTAKT KRAFTAVERK Það er afar sjaldgæft áð heimsmet séu sett I hlaupi sem þessu þegar fyrst og fremst er keppt um gull, silf- ur eða bronz. Olympíukeppni í þessari grein mótast af bar- áttu um sætin — síður um tímann. Menn geyma sér mest Vel gerðir kennsluþœttir í frjálsum íþróttum Frjálsíþróttasambandið hef ur starfandi „Útbreiðslu- nefnd“ sem hefur það hlut- verk að kynna frjálsar íþróttir og efla veg þeirra á allan hátt. Hafa störf nefnd- ar þessarar á liðnum árum án efa haft mikil áhrif fyrir íþróttagreinina — og mættu fleiri greinar taka þetta upp á jafn árangursríkan hátt. Um síðustu helgi boðaði nefnd in tvo útbreiðslufundi. þar sem rætt skyldi um þjálfun og kunn ur íþróttamaður sagði reynslu sína í þessum efnum og öðrum á íþróttaferlinum. Fundimir skyldu vera á Akranesi og Sel- fossi. Þeim síðari varð að vís-u að fresta vegna veikinda. En hér er þarft spor stigið og von- andi verða slíkir fundir margir. Þá er á vegum nefndarinnar nú útkomnir kennsluþættir í þremur greinum, langstökki, kúluvarpi og spretthlaupum. Er þetta byrjun á kennsluþfTttuiji í öllum greinum. Bæklingarnir eru vel úr garði gerðir, stuttir, vel frágengnir á prenti, með góðum skýringarmyndum og ágripi af reglum og kennsluað- ferðum. Má ætla að hér sé um mikinn feng að ræða fyrir þá er vilja læra réttar aðferðir í við- komandi greinum og eiga erfitt með að ná til þjálfara — enda eru þættirnir einkum miðaðir til notkunar í dreifbýlinu. Hér er vissulega um virðing- arverða tilraun til útbreiðslu- starfsemi að ræða. Birtum við hér mynd þá er fylgir kennslu- þættinum í kúluvarpi. Samskon- ar teikning fylgir öðrum þáttum ásamt leiðbeiningum o. fl. Vel af stað farið. ■ ■ iiílííiíiliiiiiiHS Hér sjást úrslit 1500 m hlaupsins á Rómarleikunum. Elliott slítur snúruna um 10 m á undan næsta manni, Jazy, Frakk- landi. Myndin gefur nokkuð ógreinilegt bil milli manna vegna þess að hún er tekin með aðdráttarlinsu, en hvítu strikin sýna 5 næstu metrana við marklínu. til lokasprettsins og þar stend ur venjulega barátta sem er fádæma hörð. Slíkt skeði ekki nú — slíkir voru yfirburðir Ástralíumannsins. ♦ AFREKASKRÁIN Elliott er í sérflokki í þessari grein. Það sýnir afrekaskrá heimsins í greininni á þessu ári. Hann sleit líka snúruna á Olympíuvellinum nálega 10 m á undan næsta manni. Framfarir hafa orðið gífurleg- ar í þessari grein, sem öðrum á síðari árum. Meistarar og heims- frægir menn í greininni fyrir 15 árum, eru eins og skussar miðað við afrekin í dag. Um það talar afrekaskráin sínu máli, en hún fer hér á eftir. 3.35.6 Elliott, Ástralía 3.38.4 Jazy, Frakkland 3.38.6 Waern, Svíþjóð 3.38.7 Valentin, Þýzkaland 3.38.8 Rozavölgyi, UngvJ. 3.40.5 Vamos, Rúmeníu 3.40.9 Burleson, Band'ar. 3.41.3 Hermann, Þýzkal. 3.41.4 Moens, Belgía 3.41.5 Kovacs, Ungverjal. 3.41.5 Bernard, Frakkl. 49,05 í kringlu- FRJÁLSÍÞRÓTTAMENN halda enn áfram við keppni — og eru þar kringlukastarar einir að verki. I gær efndu þe’r til keppni og varð þá árangur ad- miklu lakari en í síðustu viku er hin góðu afrek voru unnin. Sigurvegari í gær varð Hall- grímur Jónsson A, kastaði 49,05. 2. varð Friðrik Guðmundsson KR 46,64 m, 3. Jón Pétursson KR 45,10 m og 4. Þorsteinn Löwe IR 44,33 m. %AS7 FRASPYRNA STADA FYRIR ÚTKAST . BOLSKR0FA _ FÖTARBTTUR útkast JáFNVÆCISSKREP

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.