Morgunblaðið - 09.11.1960, Side 2
2
MORCVISBLAÐIÐ
Miðvik'udagur 9. nóv. 1960
Erfitt að halda aftur
af verkamönnum
— segir Peter
Henderson
PETER HENDERSON, fram-
kvíemdastjóri fiskiðnaðardeildar
brezka flutningaverkamannasam
bandsins, hefur dvalizt hér
nokkra daga. Hann fór utan í
morgun, en í gærkvöldi hafði
tíðindamaður Mbl. tal af hon-
um.
Verkalýðsfélag mitt taldi ráð-
legt að ég skryppi til íslands að
ræða við íslenzka ráðamenn og
15 nýjar
hjúkrunarkonur
í LOK októbermánaðar braut-
skráðust eftirtaldir nemendur
frá Hjúkrunarkvennaskóla ís-
lands:
Aðalbjörg Árnadóttir frá
Vopnafirði, Auður Fanney Jó-
hannesdóttir frá Flóðatanga,
Stafholtstungum, Borgarf., Bima
Ásmundsdóttir Olsen frá Pat-
reksfirði, Erla Þorgerður Ólafs-
dóttir frá Patreksfirði, Guðlaug
Benediktsdóttir frá Eskifirði,
Guðrún K.S. Thorstensen frá
Arnardal við ísafjörð, Gunnur
Sæmundsdóttir frá Narfastöðum,
Reykjadal, S.-Þing., Hulda Guð-
finna Pétursdóttir frá Rvík,
Margrét Jóhannsdóttir frá Rvik,
Nanna Guðrún Henriksdóttir frá
Rvík, Ólöf Snorradóttir frá
Kristnesi, Eyjafjarðarsýslu, Sig-
rún Daníelsdóttir frá Akranesi,
Soffía Ólafía Níelsdóttir frá Hús
ey, Hróarstungu, N-Múl., Svan-
laug Alda Árnadóttir frá Hólma-
vík, Þórunn Sigurborg Páisdótt-
ir frá Rvík.
fá sem gleggsta hugmynd um af-
stöðu þeirra hvað snertir land-
helgisdeiluna. Fulltrúar beggja
ríkisstjórnanna hafa ræðzt við
svo og brezkir og íslenzkir tog-
araeigendur, m. a. þegar Mr.
Cobley var hér á dögunum, en
fulltrúar verkalýðsfélaganna í
Bretlandi og á íslandi höfðu ekki
hitzt. Þess vegna ákvað ég að
fara.
— í minni deild flutningaverka
mannasambandsins eru um 110
þús. verkamenn, bæði venjulegir
hafnarverkamenn svo og þeir,
sem annast löndun úr fiskiskip-
um. í tvö ár hafa yfirmenn á tog-
urum reynt að egna verkamenn-
ina til aðgerða gegn íslendingum
með löndunarbanni. Okkar fé-
lag hefur alla tíð staðið gegn því,
og beitt sér þessi tvö ár af alefli
— og það hefur heldur ekki kom-
ið, til neinna mótaðgerða. Mitt
samband hefur og mun styðja
viðleitni brezku stjórnarinnar til
að ná samkomulagi við íslend-
inga. En það hefur verið erfitt að
halda aftur af verkamönnum
þessi tvö ár.
— ★ —
Það er e. t. v. rétt að geta
þess í sambandi við blaðaskrif
um komu mína hingað, að það
var einmitt Hannibal Valdimars
son, sem bauð mér hingað fyrst-
ur manna. Hann var fulltrúi á
þingi Alþýðusambands Bretlands
í Bournemouth í Englandi
haustið 1958, einmitt þeg-
ar íslendingar færðu út fisk-
veiðilögsöguna og átökin hófust.
Við rædduinst við og hann hvatti
mig til að koma til íslands og
kynna mér ástandið við fyrsta
tækifæri.
Þannig er og háttað málum í
Alþjóða flutningaverkamanna-
sambandinu, að við teljum okkur
velkomna hver til annars hvenær
Norskt bjorgunar-
skip til íslands
Alasundi, 8. nóv. — (NTB) —
RITARI norska slysavarna-
félagsins skýrði frá því í dag
að björgunarþjónusta þess
við ísland yrði aukin á
næsta vori. Þá er ætlunin að
senda til Reykjavíkur björg-
unarskip til að hafa eftirlit
við suð-vestur ströndaa,
Tóinar slöngur
AKRANESI, 8. nóv. — Enn hef-
ur ekkert verið upplýst um það
hverjir stóðu fyrir því að hleypa
vatninu úr vatnsbóli bæjarins
aðfaranótt 28. þ.m., en þá var
bærinn vatnslaus í fimm klst.
SHkur leikur gæti orðið dýrt
spaug, því eldsvoðar gera ekki
boð á undan sér og lítið gagn er
í slökkviliði með tómar slöngur.
— Oddur.
Dagskrá Alþingis
DAGSKHÁ sameinaðs þings i dag kl.
1.30: 1. Jarðhitaleit og jarðhitafram-
kvæmdir, Þáltill. 2. Fiskveiðar með
netjum, Þáltill. 3. Hlutdeild atvinnu-
greina í þjóðarframleiðslunni, þáltill.
4. Lán til veiðarfærakaupa, Þáltill. 5.
Slys við akstur dráttarvéla, þáltill. 6.
Umferðaröryggi á leiðinni Reykjavík—
Hafnarfjörður, Þáltill. 7. Fiskveiðar
við vesturströnd Afriku, þáltill. 8.
Byggingarsamvinnufélög, þáltill. 9.
Rykbinding á þjóðvegum, þáltUl. 10.
Hafnarstæði við Héraðsflóa, þáltill. 11.
Milliþinganefnd í skattamálum .þáltill.
12. Byggingarsjóðir .þáltill. 13. Styrk
ir til landbúnaöarins, þáltill.
Vestmannaeyjar og á Græn-
landshafi.
Seinna verður skipið staðsett
á Siglufirði til að annast norska
síldarflotann.
Einnig hafa Norðmenn í
hyggju að hafa björgunarskip
við Shetlandseyjar, en fullnað-
arákvörðun hefur ekki verið
tekin um það.
Kostnaður við þessa auknu
þjónustu verður talsverður, en
norska slysavarnafélagið hefur
nú aukinn ríkisstyrk.
Útbreiðslufundir
Á SUNNIJDAG efndi Út’oreiðslu
nefnd FRÍ til fræðslufundar um
frjálsíþróttir á Akranesi. Guð-
mundur Þórarinsson, íþrótta-
kennari og stjórnarmeðlimur út_
breiðslunefndarinnar setti íund-
inn og flutti síðan fróðlegt er-
indi um þjálfun. Vilhjálmur Ein.
arsson íþróttakappi talaði næst-
ur og ræddi einnig um þjálfun
og sína persónulegu reynslu á
því sviði. Var gerður mjög góð-
ur rómur að ræðum Guðmundar
og Vilhjálms. — Loks voru sýnd
ar kennslumyndir, sem þóttu
fróðlegar og skemmtilegar
Sigurður Haraldsson, bæjar.
gjaldkeri þakkaði ræðumönnum
og kvaðst þess fullviss, að koma
þeirra myndi verða til góðs fyrir
frjálsíþróttir á Akranesi, en
vaxandi áhugi er fyrir þeirri á-
gætu íþrótt á Akranesi Fundur-
inn var allfjölmennur og bótti
takast vel í alla staði.
sem er. Ég hef líka fengið hinar
ágætustu móttökur hér og notið
góðrar leiðsögu Jó.as SÁgurðsson-
ar, sem er fulltrúi Alþjóða flutn-
ingaverkamannasambandsins
hér. Ég hef hvarvetna orðið var
við þá von manna, að takast megi
að jafna deilúr lslendinga og
Breta. Ég er ánægður með för-
ina, tel mig fróðari um grund-
vallaratriðin og sé ekki eftir
að hafa lagt upp í íslandsferð.
— ★ —
Að vísu hef ég verið hér áður.
Ég kom fyrst til íslands 1937. Þá
var ég á togara hér við strönd-
ina, var lagður í sjúkrahús á
Patreksfirði og fékk þar hina
beztu aðhlynningu. Nokkru eft-
ir stríðslok var ég enn á togara
hér og þurfti að leita læknis-
hjálpar í Reykjavík. Nú er ég að
vísu í öðrum erindagerðum, en
viðtökur íslendinga eru jafnhiý-
legar.
— ★ —
Þess má að lokum geta, að á
föstudaginn ræða Henderson og
nokkrir aðrir fulltrúar fiskiðnað-
arins brezka við Soames, fisk-
veiðimálaráðherra, og Hume
lávarð, utanríkisráðherra, og
skýra þeim frá viðræðunum við
íslendinga.
Guðm. E. Einarsson
INiýr aðalbókari
Jf
í Utvegsbank-
anum
Á FUNDI bankaráðs Útvegs-
banka íslands i gær var Guð-
mundur E. Einarsson ráðinn að-
albókari bankans. Guðmundur
hefur starfað í Útvegsbankanum
síðan 2. desember 1935 .Stundaði
jafnframt nám í Verzlunarskóla
íslands 1936—1937. Hann hefur
undanfarin tæp tvö ár gengt að-
albókarastörfum í veikindafor-
föllum Einars heit. Kvaran.
Guðmundur er fæddur í
Reykjavik.
Kennsla í hjálp
í viðlögum fyrir
almenning
SLY SAVARN ADEILDIN „Ing.
ólfur“ í Reykjavík gengst fyrir
því að haldið verði námskeið
fyrir almenning í hjálp í við-
lögum og fer það fram í Slysa-
varnahúsinu á Grandagarði.
Námskeiðið hefst næstk. sunnu
dag kl. 2 e. h. með því að sýndar
verða kvikmyndir um hina nýjil
lífgunaraðferð. Einnig fer þar
fram kennsla. Síðan verður þátt_
takendum skipt í hópa, sem
kennt verður annaðhvort kvöld
í næstu viku. Nauðsynlegt er
fyrir deildina að vita, sem fyrst,
hve mikil þátttaka verður í
námskeiðunum og er fóJk því
beðið að tilkynna um það i
síma Slysavarnafélagsins. Bókin
„Hjálp í viðlögum" verður not-
uð á námskeiðinu.
Almenningur í Reykjavík hef-
ur ávallt sýnt mikinn áhuga fyr-
ir slíkri fræðslu og mun enn
reynast svo um þessi námskeið,
sem eru ókeypis.
Enga kommún-
ista til Kongó
segir Mobutu
Leopoldville, Kongó, 8. nóv.
— (Reuter) —•
J O S E P H Mobutu, herstjóri i
Kongó, lýsti því yfir í dag að
hann mundi aldrei samþykkja,
að rússneskir og tékkneskir
kommúnistar fengju að snúa
aftur til landsins. Þá hélt Mo-
butu því fram á blaðamanna-
fundi að tveir yfirmenn úr
Kongóher, sem farið hafi eftir
fyrirskipunum embættismanna,
„studdum af SÞ“, hefðu fengið
30 hermenn til að gera mis-
heppnaða tilraun til að hertaka
þinghúsið sl. nótt. Sagði hann
að með þessu hefðu SÞ „framið
afbrot gegn Iýðveldinu“, en
lagði ekki fram neinar sannan-
ir fyrir aðild SÞ að tilrauninni.
Steypa hverri stjórn, sem . . .
í yfirlýsingu sinni varðandi
kommúnista, sagði Mobutu:
„Á meðan ég lifi, munu Rúss-
arnir og Tékkarnir ekki snúa
aftur hingað. Ég mun steypa af
stóli hverri þeirri ríkisstjórn,
sem hleypir þeim inn í landið“.
Mobutu rak sendisveitir
Rússa og Tékka úr landi fyrir
tæpum tveim mánuðum.
Mobutu sagði að herforingj-
arnir tveir hafi hlýtt fyrirskip-
unum Kamitatu, fylkisstjóra
Leopoldville-héraðs, er þeir
gerðu tilraun til að hertaka
þinghúsið. Kvað hann hermenn-
ina hafa álitið sig vera að fara
að fyrirskipunum Mobutus, en
varðsveitir við þinghúsið hrakið
þá burtu.
Mobutu sagði að Kamitatu
væri studdur af SÞ, sem vildu
skapa innbyrðis átök meðal her-
manna hans og fá þannig
ástæðu til að afvopna Kongó-
her.
Kamitatu hefur neitað allri
vitneskju um „árásina“.
Mobutu sýndi blaðamönnum
100 riffla, rúmlega 70 handvél-
byssur og fleiri vopn, sem hann
sagði að hermennirnir 30 hafi
haft meðferðis. Hann sagði að
foringjarnir tveir væru horfnir.
Þá sagði Mobutu ennfremur:
„Það er ég sem kem til með að
kalla þingið aftur saman þegar
nauðsyn krefur, ekki Sameinuðu
þjóðirnar". Kvaðst hann því að-
eins vilja samvinnu við SÞ að
þær sýndu honum traust. Day-
al, fulltrúi SÞ, hefði ekki gert
það og vildi Mobutu aldrei við
hann tala framar.
„En sú blíða’4
HÚSAVÍK, 8. nóv. — Hér er
logn og blíða, 10 stiga hiti. Fólk
er léttklætt og létt í lund. „En
sú blíða“, segir það. — Og varla
nema von, því þann 8. nóvember
í fyrra varð mikið mannskaða og
fjárskaðaveður hér norðanlands.
Þá týndist fé í fönn, fannst sumt
dautt, en nú sést ekki snjór
nema á fjallatindum. Bændur
hafa samt enga trú á því að
þetta veður haldist til eilífðar.
Veðrabrigði geta oft verið snögg
hér og þess vegna eru þeir komn
ir með féð heim, en láta það
samt út dag hvem. — Fréttar.
Drengur fyrir b>l
RANNSÓKNARLÖGREGLAN
hefur fengið til meðferðar um.
ferðarslys er varð 27. okt. sl.
Þá varð 8—9 ára drengur fyrir
sendiferðabíl á mótum Skafta-
hlíðar og Stakkahlíðar. Hann
taldi sig ómeiddan vera, er hann
talaði við bílstjórann, og hafði
bílstjórinn gefið honum 10 kr.
og síðan ekið á brott. — Rann-
sóknarlögreglan vill biðja bí'-
stjóra þennan að koma til við-
tals, því í ljós hefur komið að
drengurinn hefur meiðzt.
Normannslaget
EINAR Farestveit, framkvstj.,
var endurkjörinn formaður
þess 31. okt. sl. Aðrir í stjómina
voru kjörnir: Frú Ingrid Björns-
son, varaform., Jan Garung,
gjaldkeri, Arvid Hoel, ritari, og
Odd Didriksen, vararitarL
/'NAIShnúlar v'' SV50hnútor H Snjókoma 9 06i *• V Skúrir K Þrumur ’Wts. KuUaakil Hl/tski/ H Hcti
******
Allmikil lægð er yfir Græn-
landi og hafinu suður af ís-
landi. Veldur hún mjög hlýrri
suðrægri átt hér á landi og
rigningu sunnan lands. Um
hádegið var hlýjast á Galtar-
vita, 12 st., en annars var 8—
10 stiga hiti um allt land,
enda er ísland hlýjasta landið
á þessu veðurkorti. Á Bret-
landseyjum er 5—8 st. hiti, 3
st. í Danmörku og um frost-
mark í Suður-Noregi. Á Ný-
fundnalandi 3 st .hiti og La-
brador er 3—12 st. frost.
Veðurspáin kl. 10 i gær-
kvöldi:
SV-land og SV-mið: Austan
stormur og rigning í nótt en
sunnan eða SV kaldi og skúr-
ir á morgun.
Faxaflói til Vestfjarða og
miðin: Allhvass SA og rign-
ing í nótt en SV kaldi og
skúrir á morgun.
Norðurland til Austfjarða
og miðin: Allhvass SA og
sumsstaðar rigning í nótt en
lygnir og léttir til á morgun.
SA-land og SA-mið: Hvass
SA og rigning í nótt en SV
kaldi og skúrir á morgun.
<