Morgunblaðið - 10.11.1960, Page 10

Morgunblaðið - 10.11.1960, Page 10
10 MORGVNBLAÐ1Ð Fimmtudagur 10. nóv. 1960 JMmMpstttMitMfe Utg.: H.f. Arvakur ReykjavQc. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Ritstjórar- Valtýr Stefánsson (ábm.) Sigurður Bjarnason frá Vigur. Matthías Johannessen. Eyjólfur Konráð Jónsson. Lesbók.: Arni Óla, sími 33045. Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðalstræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 2?A80 Askriftargjald kr. 45.00 á mánuði innanlands. 1 lausasölu kr. 3.00 eintakið. LANDHELGI OG SKYNSEMI pUÐMUNDUR í. Guð- mundsson, utanríkis- ráðherra, gaf hinar athyglis- verðustu yfirlýsingar á Al- þingi í fyrradag um þróun landhelgismálsins á tímum vinstri stjórnarinnar. Ráð- herrann upplýsti, að allt frá því í maímápuði 1958 og fram til ágústloka hefði vinstri stjórnin staðið í samn ingatilraunum við þjóðir þær, sem hagsmuna hafa að gæta af fiskveiðum við ís- landsstrendur. Voru umræð- ur þessar og samningatil- raunir á vegum Atlantshafs- bandalagsins. Samningatilraunir þessar fóru fram í fullu samráði milli Alþýðuflokksins og Framsóknarflokksins og með vitorði kommúnista, sem þannig báru einnig stjórn- skipulega ábyrgð á þeim. — Meginefni tillagna þeirra, sem Islendingar þá gerðu, var á þá leið að leyfa út- lendingum veiðar milli 6 og 12 mílna, að því áskildu að fiskveiðiríkin viðurkenndu 12 mílna fiskveiðilandhelg- ina. Athygilsvert er, að þessi tilhögun var margsinnis boð- in af vinstri stjórninni eftir að reglugerðin um 12 mílur hafði verið gefin út. Sízt ber að áfellast flokka þá, sem að vinstri stjórninni stóðu fyrir það að gera þess- ar tilraunir til friðsamlegrar lausnar á fiskveiðideilunni. Þvert á móti ber þeim heið- ur fyrir það að hafa reynt samkomulag. Því miður varð ekki árangur af þessum samningatilraunum, enda fóru þær fram við óheppi- lega spennu og taugaskjálfta af beggja hálfu og Bretar munu þá líka hafa verið ó- skynsamlega harðir í horn að taka. Utanríkisráðherra upplýsti þó, að NATO-þjóðirnar hefðu boðið friðun alls landgrunns ins út af Reykjanesi og Vest- fjörðum gegn því að beðið hef ði verið með útfærsiu annars staðar þar til séð væri fyrir um árangur Genfarrað- stefnunnar síðar. Þá upplýsti utanríkisráð- herra mjög athyglisverðan þátt Lúðvíks Jósefssonar í landhelgismálinu. Hann lagði til sumarið 1957, að ákveða þá þegar, hvernig að skyldi fara í landhelgismálinu, en taldi þó að framkvæmdir mættu bíða, jafnvel fram yfir Genfarráðstefnuna. — Og, úbb! Yfir í annan þátt! Nýstárlegar Lýsir það í sjálfu sér mikilli einfeldni að vilja ákveða fyrir Genfarráðstefn- unna hvað gera skyldi eftir hana, en að öðru leyti virð- ist Lúðvík sumarið 1957 haía viljað láta skynsemina ráða en ekki húsbændur sína í Kreml. Hann lagði þá til að fara varlega í málin, halda 4ra- mílna fiskveiðilandhelg- inni óbreyttri, en friða ákveð in svæði utan fiskveiðitak- mrkanna á þrem stöðum. Allar sýna upplýsingar þessar, að flókkar vinstri stjórnarinnar vildu framan af gæta hagsmuna íslands og sýna skynsemi og stillingu í landhelgismálinu. En athygl- isverðast er, að Framsóknar- flokkurinn lagði á það meg- ináherzlu að leysa málið á þann veg, sem nú er um rætt, þ. e. a. s. með því að semja við þá erlenda aðila, sem hagsmuna eiga að gæta á íslandsmiðum um einhvers konar ívilnanir milli 6 og 12 mílnanna, þó að þá væri að vísu ekki rætt um önnur réttindi í staðinn. Eftir að þessar upplýsingar liggja fyrir, á sá flokkur því ekki j um nema tvennt að velja, | annað hvort að standa ber- skjaldaður uppi eða taka upp heiðarlega samvinnu við hina lýðræðisflokkana um lausn vandamálsins á grund- velli samninga. Allur fjöldi manna talar nú orðið skynsamlega um landhelgismálið og yfirgnæf- andi meirihluti leggur á- herzlu á, að því verði ráðið til lykta með samkomulagi. Eins og fram kemur af upp- j lýsingum utanríkisráðherra, J hafa stjórnmálamennirnir j gert sér grein fyrir því, að hagsmunum Islands væri bezt' borgið með því að ná samn- J ingum í þessu máli. Er þeir j breyttu öðruvísi en samvizka j þeirra bauð, munu þeir hafa | reynt að friða hana með því að fólkið væri svo vitlaust, að það féllist ekki á slíka til- högun. Stjórnmálamennirnir hafa ímyndað sér að fólKið væri ekki jafnfært um að meta málin og þeir. Það hef- ur nú hins vegar sannazt á- þreifanlega að almenningur í landinu vill leysa landhelgis- málið friðsamlega. Von allra góðra manna er því sú, að Bretar sýni sanngirni og. skilning í viðræðunum, sem hefjast að nýju í næstu viku, ( og þá mun vissulega vel fara Áhorfendur sitja rólegir og horfa á fyrsta þátt. leikhúsbyggingar ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ okkar hér er | um snúið. Meðan þeir sitja í sæt- byggt í hinum gamla hefð- um sínum og horfa á eitt atriði bundna stíl, enda áratugir síðan I leiksins, er verið að skipta um það var teiknað. Nú eru ýmsar I leiktjöld bak við þá. Svo þegar nýjar hugmyndir uppi í leikhús- byggingum, og sumar æði nýstár- legar. Hreyfanleg áhorfendaskál Tökum t. d. finnska útileikhús ið, sem hér birtast myndir af. Leikhús þetta er í Tempere í Finnlandi. Þar er það ekki leik sviðið, sem hreyfist, þegar skipt er um leiktjöld, eins og þegar hringsviðið er notað hér í Þjóð leikhúsinu, heldur er áhorfend- Módel af hring- leikahúsinu í Washington. Þakinu er lyft svo sæstaskipun sjáist. þáttaskil eru, fer áhorfenda- svæðið af stað og snýst. Þannig er hægt að byrja á næsta þætti. án þess að töf verði á. Einn galli er þó á gjöf Njarð- ar. Það verður að leigja sætin næst börmunum á áhorfendaskál inni ódýrar vegna hættu á sjó- veiki. Hring-leikhús Þá er sá háttur að breiðast út að hafa leiksviðið á miðju gólfi og áhorfendabekki í hálfhrlng eða heilhring í kring, í stað þess að leiksviðið sé 1 enda salarins og horfendur sitji í röðum þvert yfir salinn. Þannig hring. leikhús hafa risið upp víða í Evrópu og í Norður-Ameríku. Myndin, sem hér fylgir, sýnir líkan af slíku hringleikhúsi i Washington, og er þakinu lyft upp, svo hægt sé að sjá sæta skipun. Hornsteinninn að þessu leikhúsi var lagður um það leyti sem Þjóðleikhúsið okkar tók til starfa og á næsta ári verður það tilbúið. Arkitektinn, sem teikn- aði þetta leikhús, heitir Harry Weese og er frá Chicago. Gerir hann ráð fyrir að koma þarna fyrir 700 áhorfendasætum. Áhugi einstaklinga og ýmissa sjóða í Bandaríkjunum, m. a. Ford-sjóðsins, hefur verið svo mikill, að meira fé hefur verið Iagt fram í bygginguna en þeir 425 þús. dollarar, sem gert var ráð fyrir að þyrfti með. Þess vegna er til umframsjóður, sem nota á til að standa straum a£ aukakostnaði við bygginguna. RÓM, 8. nóv. (Reuter): — Mat- vælastofnun SÞ í Róm tilkynnti í dag að tveir skipaverkfræðing. ar frá Norðurlöndum væru nú á leið til Chile og Vestur-Indía. Þar munu þeir aðstoða við að skipuleggja smíði 1.000 fiskibáta. MONDANE, Frakklandi, 8. nóv. (Reuter): — Járnbrautarsam- göngur féllu niður í tvo tíma 1 dag á leiðinni París—Róm vegna þess að kýr réðist á eimreið í jarðgöngum í ölpunum með þeim afleiðingum að eimreiðin valt. IITAN UR HEIMI

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.