Morgunblaðið - 10.11.1960, Side 18
18
MORG U NBLAÐ1Ð
Fimmfu'dagur 10. nov. 1960
Helmsókn Tékkanna:
Reykjavíkurmeistarar KR
stóðu Tékkunum á sporði
Jafntefli oð Hálogalandi 20:20
Reykjavíkurmeistarar KR
mættu tékknesku meisturun-
um í þriðja leik þeirra hér.
Sá leikur varð sögulegastur
leika Tékkanna til þessa og
KR-ingarnir náðu beztum
árangri sem náðst hefur gegn
gestunum. Jafntefli varð í
leiknum, 20:20. Tókst Tékk-
unum að jafna á síðustu sek-
úndum leiksins.
★ FORSKOT TÉKKA
Byrjun leiksins varð Tékk-
Hroðkeppni nð
Hólogalandi
í KVÖLD fer fram að Háloga-
landi hraðkeppni í handknatt-
leik með þátttöku beztu hand-
knattleiksliða landsins. Meðal
keppenda eru og Tékkarmr frá
Gottvaldov. Má hiklaust telja að
þetta verði skemmtilegt kvöld
að Hálogalandi, því hraðkeppn-
isformið — með útslætti fyrir
tapaðan leik — gefur keppninni
tvísýnan: og skemmtilegan blæ.
unum í vil, eins og i leiknum
gegn Reykjavíkurúrvalinu. Þeir
ekkert gefið.
skoruðu fjögur fyrstu mörkin
og það var eins og auðveldur
sigur blasti við Tékkunum. En
forskotið tókst þeim lítið að
auka til hálfleiksins. Þá skildu
5 mörk liðin að, 12 mörk gegn
7, Tékkunum í vil.
í síðari hálfleik hristu Reykja
víkurmeistaramir af sér slenið.
Það smá saxaðist á forskot
Tékkanna og þar kom að staðan
var 14:14.
Var allmikil harka í leiknum
um þær mundir og dómarinn
varð að vísa mönnum af leik-
velli um stundarsakir vegna
ítrekaðra brota.
* FORYSTA KR
Spenningurinn var gífur-
Iegur og KR-ingum tókst bet
ur í hinni tvísýnu viðureign.
Tókst þeim að ná forskoti
rétt fyrir leikslokin og það
voru um 10 sekúndur eftir
af Ieiknum er Tékkunum
tókst að jafna. 20:20.
★ LIÐIN
Leikur þessi var af KR
hálfu mjög góður. Ólíkt áttu
þeir betri leik nú Karl og Reyn-
ir, Stefán og Heinz heldur en er
þeir léku í Reykjavíkurúrval-
inu. Sérstaklega var leikni Karís
mikil í leiknum. Áttu Tékkarn-
KR-ingurinn hefur brotizt í gegn og er kominn i öruggt færi.
En Tékkarnir fara inn fyrir bannlínuna og hindra hann. —
Samt sér dómarinn ekki brot þeirra og dæmir aðeins auka-
kasi. — (Ljósm.: Sv. Þormóðsson)
ir í hvað mestum erfiðleikum
með hann og vann hann oft sig-
ur í viðureign við þá. Karl skor
aði 9 mörk í þessum leik og
var. bezt leikandi maður KR-
liðsins. Reynir Ólafsson skoraði
jafnmörg mörk eða 9 talsins. —
Þáttur þeirra í mörkunum er
glæsilegur. Það var og ánægju-
legt að sjá frammistöðu Guð-
jóns í markinu, en hann hefur
lítið æft.
Miklu jafnari eru Tékkarnir
en íslendingarnir. Þar sker eng-
inn sig úr sem Karl gerði í þess
um leik í liði KR. Enn hefur
maður það á tilfinningunni að
meistarar Tékkóslóvakíu geti
meira en fram hefur komið í
leikjum þeirra að Hálogalandi.
Úr því fæst skorið á sunnudag-
inn á Keflavíkurvelli.
Dómari var Magnús Péturs-
son, dæmdi yfirleitt vel en veil-
urnar komu í ljós, eins »g
stærri myndin sýnir.
F.í. byrjar kvöld-
vöku sína kl. 8
FERÐAFÉLAG íslands heldur
kvöldvöku í Sjálfstæðishúsinu í
kvöld og verður sú nýbreytni
tekin upp að hefja skemmtunina
kl. 8 og hætta á miðnætti. Nú
þegar fréttatími útvarpsins hefur
verið færður frám, telur félagið
óhætt að byja kvöldskemmtanir
fyrr.
Á kvöldvökunni mun Þórhall.
ur Vilmundarson sýna myndir
frá Grænlandi og segja frá för
þangað. Þá verður myndagetraun
og dansað til kl. 12.
2
LESBÓK BARNANNA
LESBÓK BARNANNA
3
Undrabarn
Öðru hvoru heyrist sagt frá undra-
börnum, sem koma öllu í uppnám með
því að geta reiknað eða lesið, spilað á
hljóðfæri o.s.frv., löngu áður en eðli-
legt má telja, að þau 'hafi þroska til
þess.
Flest þessi „undrabörn“ verða þó,
þegar þau stækka eins og venjulegt
fólk, — en nokkur halda áfram að vera
„ofvitar" alla ævi.
Eitt fraégasta undraibarn, sem sögur
fara af, fæddist í Lúbeok 1721. Það
ýar drengur, Hinrik Heineken að
nafni.
Tíu mánaða gamall var Hinrik altal-
andi, tæplega ársgamall kunni hann
mikið af helztu sögunum úr Mósebók-
unum fimm. Þremur mánuðum síðar
kunni hann allt gamla testamentið ut-
anbókar.
Þegar drengurinn var hálfs þriðja
árs gamall var hann vel að sér í landa-
fræði og mannkynssögu, þá hóf hann
latínunám og talaði frönsiku reiprenn-
andL
• M t«
Sögumar af Hinrik bárust um alla
Evrópu. Foreldrar hans ferðuðust með
hann milli fursta og konunga, meðal
annars kom hann fram við hirð Frið-
riks fjórða Danakonungs.
Því miður dó Hinrik, þegar hann
var fimm ára gamall, svo að aldrei
fékkst úr því skorið, hvað úr honum
hefði orðið, ef hann hefði náð fullorð-
insaldri.
---- ★ ----------
Smiðurínn
og vaggan
Það er ekki aðeins á okkar dögum,
að erfitt hefur reynzt, að £á iðnaðar-
mennina til að vinna það, sem þeir
hafa lofað, í tæka tíð. Um það vitnar
þessi ævagamla arabiska saga:
Einu sinni var maður, sem fór tn
smiðs, til að biðja hann að smíða
vöggu handa nýfæddum syni sínum.
Hann greiddi smiðnum gullpening upp
í vinnuna og smiðurinn sagði: „Komdu
eftir viku og sæktu vögguna". En þeg-
ar vikan var liðin, var vaggan samt
ekki tilbúin. Tíminn leið og smiður-
inn dró smíðina alltaf á langinn, en á
meðan stækkaði drengurinn og fór að
ganga — og loks varð hann fullorðinn
og gifti sig. Þegar hann síðan eignað-
ist sjálfur son, sagði faðir hans við
hann: „Nú getur þú farið og sótt vögg
una, sem ég bað smiðinn um að smíða.
þegar þú varst nýfæddur".
Framh. á 3. síðu.
ÆSIR og ASATRU
27. Þegar Þór heyrði,
hvernig hann hafði ver-
ið blekktur, varð hann
afar reiður. Hann greip
til hamarsins og ætlaði
að kasta honum, en sá þá,
að hann stóð á stórri
sléttu og var einn með
28. Þór langaði alltaf
til að ná sér niðri á Mið-
garðsorminum, sem var
hin versta illvættur. —
Hann breytti sér í gervi
ungs manns og fór á fund
ferðafélögum sínum. Út-
gerða-Loki og borg hans
höfðu gersamlega horfið
og Þór varð að snúa heim
til Ásgarðs aftur, án þess
að geta komið fram
hefndum.
jötuns, sem hét Hymir.
„Má ég róa með þér til
fiskjar?“, spurði Þór.
Jötuninn svaraði, að
það yrði erfiður róður
fyrir lítt harðnaðan ung-
ling, en samt skyldi hann
lofa honum með sér, ef
hann gæti útvegað beitu.
Þór fór þá og sleit haus-
inn af stærsta nauti Hym
irs og beitti því á öngul.
Því næst lögðu þeir upp
í róðurinn.
— ★ —
— Smiðurinn
Framh. af 2. síðu.
Sonurinn fór að ráðum
föður síns, en þegar
hann kom til smiðsins og
bað um vögguna, var
smiðnum nóg boðið: „Það
er bezt að þú hirðir
þennan gullpening aft-
ur“, sagði hann, „ég get
ekki unnið fyrir þá, sem
heimta, að ég hroði verk
um mínum af“.
★
Jenny Ólafsdóttir,
Syðstu-Grund, Vestur-
Eyjafjöllum, Rang. (pilt
eða stúlku 16—17 ára);
Sturla Jónsson, Fljóts-
hólum, Flóa, Árn. (við
pilt eða stúlku 12—14
ára).
★
Ráðningar
úr síðasta blaði
Krossgáta:
Lárétt: 1. Þór; 5. úr; 8.
bæ; 8. Týr.
Lóðrétt: 2. ós,; 3. dúr;
4. sær; 7. bý.,