Morgunblaðið - 10.11.1960, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 10.11.1960, Blaðsíða 19
Fimmtudagur 10. nóv. 1960 MORGUNBLAÐ1Ð 19 — Kennedy 1 Framh. af bls. 3 „Það er nú það“ — og síðan snúið sér að fyrirliggjandi verkefnum. * PÓLITÍSKT HUGREKKI John Kennedy er all- kunnur sem rithöfundur. Ár- ið 1940 ritaði hann bókina „Why England Slept", bar sem hann rekur ástæðurnar til þess, að Bretar voru svo óviðbúnir heimsstyrjöldinni sem raun bar vitni. — Fyrir sex árum gaf hann svo út bókina „Profiles in Courage" (eða Svipmyndir hugrakkra manna), þar sem hann rekur feril átta bandarískra öld- ungadeildarþingmanna, sem ýmist höfðu nær komizt á kaldan klaka, eða beinlínis beðið pólitískt skipbrot, vegna þess að þeir vildu heldur fylgja sannfæringu sinni en bjarga eigin skinni eða afla flokki sínum fylgis með sýndarmennsku. Þykir Kennedy sjálfur við ýmis tækifæri hafa sýnt slíkt póli- tískt hugrekki, sem hann skrifaði um í fyrmefndri bók sinni. Hann hlaut hin eftir- sóttu Pulizter-verðlaun fyrir hana sem framúrskarandi, sögulegt verk. ★ SIGURGANGA Stjórnmálaferill Johns Kennedys hefir verið sam- felld sigurganga — hann hef- ir aldtrei tapað í neinum kosn ingum. — Hann gagnrýndi mjög stjórn Eisenhowers og repúblikana í kosningabarátt- unni, hamraði á því, að álit Bandaríkjanna út á við hefði beðið hnekki á undanförnum árum og að þau stæðu nokk- uð höllum fæti í samkeppn- inni og baráttunni við Sovét- ríkin og heimskommúnis- mann. Úrslit kosninganna virðast befa þess vott, að bandarískir kjósendur hafi, að meirihluta til, fallizt á þessa skoðun Kennedys — og treysti honum betur en arf- taka Eisenhowers, Richard Nixon, til að leiða Bandaríkin fram til sigurs í þessari bar- áttu og veita þeim, og öllum hinum frjálsa heimi þá traustu forystu, sem nauðsyn leg er á viðsjálum tímum . * „ÆSKAN" I HVÍTA HÚSIÐ Segja má, að „æskan“ sé nú í fyrsta sinn leidd til sætis í Hvíta húsinu. Kennedy er, sem fyrr segir, yngstur kjör- inna forseta í Bandaríkjun- um — og eiginkona hans, hin fagra Jacqueline (fædd Bouv ier), er aðeins 31 árs gömul, næstyngsta húsfreyjan í Hvíta húsinu. Yngst var Francis Folsom, kona Grover Cleve- lands, en hún var aðeins 21 árs gömul, er hún giftist for- setanum árið 1886. — Frú Kennedy þykir mjög góðum gáfum gædd og hefir hlotið ágæta og fjölþætta menntun. Þannig er hún t.d. mjög fær í tungumálum, víðlesin í sögu og þykir fær teiknari og mál- ari, svo nokkuð sé nefnt. — ★ — Þrátt fyrir auð sinn, hafa þa/i ungu hjónin lifað fremur hljóðlátu lífi, þar til kosninga baráttan komst í algleyming. Þau eiga eina dóttur, sem verður þriggja ára í þessum mánuði, og von er fjölgunar í fjölskyldunni næstu vikurnar. — Frú Kennedy kveðst ekki hafa haft áhuga á stjórnmál- um áður en hún giftist, en „nú er ég orðin áhugasöm", segir hún. Og þótt hún sé fremur lítið gefin fyrir að koraa fram opinberlega, hefir hún tekið þátt í baráttu manns síns með ýmsum hætti. Ekki mun hana beinlínis hafa fýst að taka sæti húsfreyjunnar í Hvíta húsinu, — en segir hún, „kon- an er ávallt hamingjusömust, þegar maður hennar starfar að því, sem hann telur köllun sína“. — Nixon — Timinn og við Framh. af bls. 6. son frú Conway, glaðværan og nokkuð léttúðugan pilt með margskonar bollaleggingar um framtíðina og ástfanginn af Jean Helford, sem er meðal gesta frú Conway. Birgir leikur þetta hlut verk fjörlega og einnig honum tekst að sýna þær veilur í skap- gerð Robins er kunna að verða honum til ófarnaðar er tímar líða. — Carol, yngsta barn frú Conway, glaðværa og ærslafulla telpu, leikur Guðrún Ásmunds- ðóttir. Þessi unga leikkona er full af hressilegri leikgleði, er hrífur áhorfendur, og hún segir margt vel og með skemmtilegum svipbrigðum. En hún k; nn ekki enn sem komið er þá vandasömu list að tala hratt en þó greini- lega, en svo er reyndar um marga leikara þó að •góð'u séu. Joan Helford, heitmey Robins, sem Sigriður Hagalín leikur, er sem áður segir meðal gesta frú Conway, einföld en snotur ung stúlka. Sigríður fer prýðilega með hlutverk þetta, en hún er illa förðuð í 1. og 3. þætti — ekki nægilega ung að sjá. Hins vegar er gervi hennar í 2. þætt; afbragðsgott, — umkomuteysið uppmálað og leikur hennar þar í samræmi við það. — Aðrir gestir á Conway-heimilinu eru Gerald Thornton, ungur heimil- isvinur þar, sem Guðmundur Pálsson leikur og Ernest Beav- ens, leikinn af Gísla Halldórs- syni. Hlutverk Guðmundar er ekki mikið en hann fer vel með það. Ernest Beevens er ekki heldur mikið hlutverk að vöxt- um, en persónan verður í túlkun Gisla mjög athyglisverð. Ernest er lægri stéttar en Conway- fjölskyldan og því enginn au- fúsugestur á heimilinu. En hann er sæmilega efnum búinn, frek- ur og veit hvað hann vill, sem Gisli sýnir svo ágsðtlega meðal annars með því litla atviki hversu Ernest nálgast Hazel Conway, enda þótt hún visi hon- um á bug með ótvíræðri fyrir- litningu. Leikstjórn og sviðsetning Gisla Halldórssonar hefur að mestu vel tekizt. Þó finnst mér hraði leiksins og ys á sviðir.u í 1. þætti um of, enda þess vegna oft erfitt að greina orðaskil í framsögn leikendanna. Hins vegar er heildarsvipur leiksins góður, einkum þegar á líður leik inn. Steinþór Sigurðsson hefur gert leiktjöldin. Eru þau vel gerð og fara vel við leikinn. Ásgeir Hjartarson hefur þýtt leikinn með mikilli prýði. Leik- sýning þessi var mjög ánægju- leg, enda var henni ágætlega tekið. Sigurður Grímsson Félag austfirzkra kvenna Mtunið fundinn í kvöld í fél- agsheimili prentara við Hverf isgötu 21. Stjórnin. TRÚLOFUNARHRINGAR Afgreiddir samdægurs H A L L D Ó R Skólavörðustig 2, 2. hæð. Frh. af bls. 1 aðalkosningastöð republikana. Ávarpinu var útvarpað og sjónvarpað um öll Bandarík- in. Nixon kvaðst vilja færa þakkir öllum þeim, er hefðu stutt hann og unnið fyrir hann í kosningabaráttunni, svo og þeim er hefðu dvalizt með þeim hjónum á kjördag. Hann sagði að hann hefði hvergi getað fundið betri hóp manna til að dvelja með þenn an dag. Nixon sagði meðal annars: Einn af mikilvægustu þáttun- um í þjóðfélagsskipulagi okk ar er sá, að kosningabaráttur skuli vera háðar. Þær eru oft heitar og svo var um þessa, en þegar úrslitin eru endan- lega kunn, stöndum við öll einhuga að baki þess manns, sem kjörinn er. — Eflaust eru margir stuðn ingsmenn hr. Kennedys með- al þeirra er heyra orð mán í útvarpi og sjónvarpi og ef til vill er hann sjálfur meðal hlustenda. Ég vil að þið vitið öll — einnig Kennedy — að fari svo fram sem nú horfir með úrslit í þessum kosning um og hann verði næsti for- seti Bandaríkjanna, mun ég heilshugar veita honum allan þann stuðning er ég má og óska honum til hamingju. Vinir mínir — ég vil enn einu sinni færa ykkur dýpsta þakklæti okkar — ég endur- tek hamingjuóskir mínar til Kennedys og þakka honum drengilega viðureign í þessari kosningabaráttu. Nixon sagði einnig, að eft- ir för sína milli hinna fimmr tíu ríkja Bandaríkjanna væri hann sannfærður um, að jafnt repúblikanar sem demokratar stæðu einhuga að baki þess manns, er yrði forseti lands- ins. Hann kvaðst hafa trú á, að þjóðin væri fær um að leysa hlutverk sitt af hendi — það hlutverk að verða for- ystuþjóð allra þjóða heims, vinna að því að allir mættu lifa við það frelsi, sjálfstæði og mannréttindi sem Banda- ríkjamenn lifðu við og vinna að friði með öllum þjóðum. Loks kvaðst Nixon vera mjög orðinn svefnþurfi, því að hann hefði ekki sofið meira en tvær klst. tvær síð- ustu nætur. — Nú fer ég að sofa, sagði hann að lokum — og ég vona að þið gerið bað líka. — Losna þarf v/ð Framh. af bls. 13. hrif á sambúðina ef hægt er með rökum að benda á að ekki séu allir jafnir fyrir lögunum. Sambúð manna af ólíkum þjóðernum er oft ýmsum erfið- leikum bundin en með skiln- ingi af beggja hálfu er oftast hægt að forðast árekstra, en því miður eru til menn sem vinna markvisst að því að spilla fyrir eins og hægt er. Leigubifreiðastjórar á Kefla- víkurflugvelli eru flestir heið- arlegir menn sem vilja halda góðri samvinnu við viðskipta- menn sína og væri vonandi að þeim takist að losna við þá fáu skemmdarverkamenn, sem gera sér leik að því að eyði- leggja atvinnu þeirra, því eðli- lega mun það bitna mest á þeim sjálfum ef ekki tekst að koma í veg fyrir áframhaldandi á- rekstra. Þorgrímur Halldórsson. Innilegt þakklæti til allra þeirra, sem sýndu okkur vinarhug á sextugsafmælum okkar. Rósa Ingimundardóttir og Guðni Árnason. Hofteigi 26. Útför konunnar minnar, móður og ömmu SIGKÍOAR GUÐMUNDSDÓTTUR Gelti, Grímsnesi, sem lézt 4. þ. m. fer fram frá Stóruborgarkirkju laugar- daginn 12. þ. m. kl. 14. Athöfnin hefst með húskveðju að heimili hinnar látnu kl. 11. Brynjólfur Þórðarson, börn og barnabörn. Eiginmaður mirm PÉTUR V. SNÆLAND Haðarstíg 2, andaðist aðfaranótt 9. þessa mánaðar. Fyrir hönd barna, fósturbarna, tengdabarna og barna- barna. Sigríður Snæland. Konan mín, móðir okkar og tengdamóðir SIGURBORG HALLDÓRSDÓTTIR sem lézt 6. þ.m. verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 11. nóvember kl. 2 e.h. Blóm vin- samlegast afþökkuð, en bent á minningar og líknarsjóði. Jón Brynjólfsson , Óiafur Magnús Jónsson, Gyða Jónsdóttir, Brynjólfur Jónsson, Svanhildur Stefánsdóttir. Útför eiginkonu minnar UNNAR KRISTlNU EGGERTSDÓTTUR verður frá Fossvogskirkju föstudaginn 11. þ.m. kl. 3 e.h. Fyrir hönd vandamanna. Magnús Sigurjónsson Móðir mín GUÐNÝ HÖSKULDARDÖTTIR Meium, Kjalarneshreppi, verður jarðsungin frá Saurbæjarkirkju föstudaginn 11. þ.m. kl. 2 e.h. Bílferð verður frá B.S.Í. kl. 1 e.h. F. h. ættingja. Indriði Einarsson. Útför KJARTANS EYJÓLFSSONAR trésmiður, Lindargötu 41 sem lézt 2. þ. m. fer fram frá Fossvogskirkju, föstu- daginn 11. þ. rn. kl. 1,30. Aðstandendur. Jarðarför hjartkærs eiginmanns míns, föður, tengda- föður og afa ÞOKBJÖRNS KLEMENSSONAR húsameistara, fer fram frá Fríkirkjunni laugardaginn 12. þ.m. Hefst með húskveðju að heimili hans Lækjargötu 10 Hafnar- firði kl. 2 e.h. Ágústa Jónsdóttir, Olga Þorbjömsdóttir, Hulda Þorbjömsdóttir, Eiríkur Kristjánsson, Hilmar Þorbjörnsson, Margrét Sigurjónsdóttir, Jón Þorbjörnsson, Elín Friðjónsdóttir, Marinó Þorbjörnsson, , Una Jóusdóttir og barnabörn. Hugheilar þakkir fyrir sýnda samúð vegna andláts og útfarar móður okkar GUÐBJARGAR ÓLADÓTTUR Húsavík. Börnin. Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarðarför JÓNS HÁKONAR BJÖRNSSONAR Börn og systur hins látna. Þökkum innilega öllum nær og fjær, auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför móður okkar ELlNAR Þ. SVEINBJARNARDÓTTUR frá Eyri, Arnarstapa. Fyrir hönd vandamanna. Karólína Kolbeinsdóttir, Jón Kolbeinsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.