Morgunblaðið - 10.11.1960, Blaðsíða 20
Leikdómur
— Sjá bls. 6. —
JÍtrpwWMiiði
258. tbl. — Fimmtudagur 10. nóvember 1960
íþróttir
eru á bls. 18.
Banaslys
við nýbyggingu við Hunhaga
UM nónbil í gær varð dauðaslys
við nýbyggingu vestur við Dun-
haga hér í Reykjavík. Lílill
drengur varð íyrir trébita_ er
útbúnaður við kiáf, sem notaður
er til flutnings ,á efni, brotnaði.
Litli drengurinn hét Hálfdán Þ.
Hálfdánsson til heimilis að
Fálkagötu 25.
Forsaga þessa hörmulega at-
burðar er sú, að litli drengurinn
hafði verið við bygginguna að
fylgjast með athöfnum þe.irra,
sem þar voru að starfa eins og
bama er háttur. Er húsið íjög-
urra hæða fjölbýlishús
Verið var að flytja vikurplót-
ur í kláf, sem dreginn er af
vindu og stendur hún á jörðu
niðri. Unglingur stjórnaði vind-
unni.
Hann segir, að er kláfurinn
hafi verið kominn nærri því upp
á vinnupall annarrar hæðar,
hafi burðarbiti efst uppi brotn-
að, en á honum hvílir allur
þungi kláfsins. Hafi bitinn kom
ið í höfuð litla drengsins, er
stóð skammt frá. Við höggið
beið diengurinn bana samstund-
is.
Meðal þeirra, er bar einna
fyrst iað á slysstað, voru menn
frá Morgunblaðmu. Hálfdán litti
bafði staðið svo sem þrjá metra
frá þeim stað sem kláfurinn er.
Þeir veittu því eftirtekt að vind-
an hafði lyfzt upp öðru megin
og hefui* burðarbitinn, sem lent
hafði í höfði drengsins lent þar
undir.
Hálfdán litli var sonur hjón-
anna Hálfdáns Helgasonar og
konu hans Þórdisar Hansdóttur.
Rannsóknarlögreglan tók mál-
ið þegar í sínar hendur, einnig
komu fulltrúar frá Öryggiseftir-
litinu á staðinn.
S/ór komst í Sigurð
í Bremerhaven
ÞEGAR togarinn Sigurður var í
Bremerhaven fyrir nokkru, kom
fyrir smávegis óhapp þar um
borð. Sjór komst í botntanka.
En vélamenn urðu þessa fljótt
varir og var þegar lagfært.
Sennilega hefur þetta orsak-
azt þannig, að einhver hefur
rekið fótinn í sjókrana í véla-
rúmi. Við það, að hann opnaðist
komst sjór í skipið. Fylltist
svelgurinn undir vélarúminu, og
flæddi sjórinn yfir botntanka.
Voru samskeyti þar ekki nógu
traust og komst sjórinn í olí-
una. —
Vélamenn dældu olíunni af
þessum geymi og var olían sett
í skilvindu. Starfsmenn Seebeck
skipasmíðastöðvarinnar komu
síðan um borð og gengu úr
skugga um að allt væri þar í
lagi. Nú er togarinn að veiðum
á Nýfundnalandsmiðum.
Mynd af slysstaðnum á homi Dunhaga og Fálkagötu. Spilið,
sem drengurinn stóð við, sést á miðri myndinni. Bitinn er
Uhdir öðrum enda spilsins. (Ljósm.: Sveinn Þormóðsson)
Með beztu sölum
í GÆR seldi Katrín frá Reyðar-
firði, sem er 150 lesta bátur, 43
lestir af fiski í Þýzkalandi fyrir
44 þús. mörk. Mun þetta vera
með beztu sölum á þessu ári I
Þýzkalandi.
Blaðið átti í gær tal við frétta-
ritara sinn á Reyðarfirði, Arnþór
Þórólfsson, sem er einn af eig-
endum bátsins. Sagði hann að
Katrín hefði verið með þorsk,
ýsu og keilu, síðastnefndi fiskur-
inn sennilega verið meira en ^4
af aflanum. Báturinn fór út beint
af veiðum og sagði Arnþór að
fiskurinn hefði áreiðanlega ver-
ið mjög vel með farinn.
Frá Reyðarfirði eru nú gerðir
út 3 bátar. Þeir hafa haft mjög
sæmilegan afla, 3—9 lestir í róðri
og gæftir verið með eindæmum
géðar. Þá er togskipið Gunnar
gert út með síldartroll í Faxa-
flóa og Snæfugl nýfarinn með
herpinót á Faxaflóaveiðar.
Engin mæðiveiki
fannst í lungum
EKKI hafa komið fram nein
mæðiveikieinkenni í lungum, er
send hafa verið á þessu hausti til
rannsókna til Tilraunastöðvar-
innar á Keldum, að því er Guð-
mundur Gislason, læknir, tjáði
blaðinu í gær.
Skv. reglugerð á að gera flokk
un á lungum í sláturhúsum í
landinu og senda þau lungu sem
eitthvað sézt á til frekari rann-
sóknar á Keldum. Er þetta gert
Seku skipverjarn-
ir látnir íara
RANNSÓKN smyglmálsins í
Lagarfossi var haldið áfram í
gær, og beindist rannsóknin eink
um að varningnum, s«m fannst
í lestinni.
Sex hásetar höfðu játað að
vera eigendur að þeim varningi
sem fannst milli þilja í káetum
skipverja. Og var þeim sagt upp
starfi á skipinu í gær.
Olympíuskákmófið
LEIPZIG 9. nóv. (NTB-ADN). —
Lokastaðan í olympíuskakmót-
inu varð sem hér segir:
A-riðill: Sovétríkin 34 vinn-
inga, Bandaríkin 29, Júgóslavía
27, Ungverjaland 22%, Tékkó-
slóvakía 21%, Búlgaría 21,
Argentína 20%, Vestur Þýzka-
land 19%, Austur-Þýzkaland 19,
Holland 17, Rúmenía 16%, Eng-
land 16%.
B-riðill: Sviþjóð 27%, ísrael
26%, Austurríki 24%, Danmörk
23%, Finnland 23%, Noregur 23,
Kúba 23, Spánn 22%, Pólland 22,
Chile 19%, ísland 16%, Indland
12.
C-riðill: Filippseyjar 23%,
Indónesía 27%, Mongólía 27%,
Albanía 26%, Ecuador 26,
Portúgal 26, Frakkland 25,
ítalía 24 Belgía 23%, Túnis 21%,
Grikkland 20%, Bolivía 19%,
Monaco 17%, Irland 17, Malta 14,
Libanon 8%.
(Freysteinn vann skák sína
við Johannessen).
til aðstoðar við þá sem vinna
að útrýmingu á fjársjúkdómum
og ekki sízt vegna þess að lungu
hafa undanfarin tvö ár verið
verzlunarvara. Aldrei er það þó
nema örlítill hluti af lungunum,
sem þannig kemur til rannsókn-
ar.
— Ef þetta kæmist í gott horf,
þá væri það nokkuð öruggt eftir-
lit, sagði Guðmundur Gíslason.
En sums staðar vill verða mis-
brestur á. Við reynum þó að
fylgjast með þessu á þeim svæð-
um, þar sem við teljum að ein-
hver hætta «sé. En höfum því
miður ekki tíma til að vera stöð
ugt að reka á eftir annars stað-
ar.
fyrir nauðgun
og líkamsárás
Annar hlaut 15 mán. fangelsi, hinn 3ja mán.
í FYRRADAG féll dómur í saka
dómi Keflavíkurflugvallar í máli
tveggja bandarískra flugliða,
sem fyrir fjórum mánuðum voru
kærðir fyrir nauðgunartilraun og
líkamsárás á íslenzka stúlku.
Hlaut annar 15 mánaða fangels-
isdóm, en hinn þriggja mánaða
fangelsisdóm. Þeir fengu % mán-
aðar frest til að ákveða hvort
dómunum yrði áfrýjað til hæsta-
réttar.
Atburðurinn, sem hér um ræð
ir, gerðist aðfaranótt 5. júlí í
sumar. Kom þá ung stúlka til
lögreglunnar í Keflavík og sagði
að tveir flugliðar hefðu ráðist
á sig, í þeim tilgangi að nauðga
sér. Hefði hún komizt undan
öðrum, en hinn komið fram vilja
sínum.
Annar flugliðinn játaði að hafa
barið stúlkuna, en þau greindi á
um í hvaða tilgangi löðrungur-
inn var veittur, og hinn játaði að
hafa haft mök við stúlkuna, en
kvað það haía gerst með frjáls-
um vilja hennar.
Málið kom fyrir íslenzkan dóm-
stól. Verjandi var Björn Helga-
son, héraðsdómslögmaður, en
sækjandi Logi Einarsson. Dóm-
urinn komst að þeirri niðurstöðu
að piltarnir væru sekir og hlaut
James Arthur Hurst 15 mánaða
fangelsi og var auk þess sviptur
ökuleyfi í 6 mánuði fyrir að hafa
ekið bifreið undir áhrifum áfeng
is, og hinn flugliðinn hlaut 3
mánaða fangelsisdóm. Ekki er
enn vitað hvort þeir áfrýja dómn
um til Hæstaréttar.
Fundur LÍÚ
hetst í dag
ADALFUNDUR ísl. útvegsmanna
hefst í Reykjavík í dag. Fundur.
inn verður settur af formanni
samtakanna, Sverri Júlíussyni,
og hefst kl. 2 í Tjarnarcafé. Full.
trúar útvegsmannafélaga úr hin-
um ýmsu verstöð vum landsins,
sækja fundinn.
Auk venjulegra aðalfundar.
starfa, verður helzta verkefni
fundarins að ræða viðhorf í sjáv-
arútvegsmálum.
Krabbameins-
félagið efnir til
happdrættis
NÆSTKOMANDI laugardag
mun Krabbameinsfélag Reykja-
víkur hleypa af stokkunum happ
drætti til eflingar starfsemi
sinni. Þetta er I þriðja sinn, sem
félagið efnir til happdrættis, og
væntir þess, að velunnarar fél«
agsins rétti hjálparhönd, eins og
að undanförnu.
Aðalvinningurinn verður Volks
wagenbifreið, smíðaár 1961, og 6
aðrir góðir aukavinningar. Aðal
útsala verður í skrifstofu félags
ins í Blóðbankanum við Baróns-
stíg.
Öll menningarríki heims eru I
látlausri og vaxandi sókn gegn
útbreiðslu krabbameins. Ógrynni
fjár og þrotlausri vinnu er fórn-
að á altari þessarar baráttu, enda
öllum ljóst, að því almennari og
markvissari, sem hún verður,
því fyrr er sigurs að vænta.
íslendingar mega ekki láta sitt
eftir liggja í þessum átökum.
Allir, sem þess eru megnugir,
þurfa að taka þátt í þeim með
því að styrkja starfsemi krabba-
meinsfélaganna í hvívetna, og
gera þannig kleift, að beina
henni inn á fleiri og stærri svið.
Vandaðar greinar
í FRANSKA ritinu La Revue
Franeaise, sem út kom í sept.
mánuði er mjög vel skrifuð grein
um ísland eftir Georges Lebrec,
og grein um fiskveiðar á íslandi
eftir Davíð Ólafsson, fiskimála.
stjóra og Má Elísson, hagfræðing.
La Revue Franoaise er mjög
vandað rit og prentað á góðan
pappír, og myndir í því sérlega
fallegar.
Greinunum um Island fylgja
fjölmargar myndir og kort af ís-
landi, bæði nýtt og annað frá
15. öld.
Þjóðhátíðar-
dagur Svia
Á MORGUN, 11. nóvember, er
þjóðhátíðardagur Svía. I því tiL
efni hafa sænski ambassadorinn
Sten von Euler-Chelpin og frú
hans móttöku í sænska sendiráð-
inu á Fjólugötu 9 frá kl. 5—7.
Frv. um veítlngu prestukullu
rætt ú Kirkjuþingi
KEFLAVIK
SJÁLFSTÆÐISFÉLÖGIN í
Keflavík halda spilakvöld að
Vik n.k. föstudagskvöld 11. þ.m.
kl. 9. — Verðlaun veitt. Þess er
fastlega vænzt að félagar fjöl-
menni og taki með sér gesti.
KIRKJUÞING hélt áfram störf-
um í gær. Var þá til umræðu
frumvarp um veitingu presta-
kalla, sem var til síðari umræðu
og hafði Hákon Guðmundsson,
hæstaréttarritari, framsögu. Var
málið afgreitt með ályktun um
að bera undir álit héraðsfunda
tillögur um veitingu prests-
embætta.
Samþykkt var ályktun þess
efnis, að leggja til við Alþingi,
að hámark sóknargjalds verði
ákveðið eigi lægra en kr. 100.00.
1 dag er m. a. á dagskrá til.
laga til ályktunar um stofnun
kristilegs lýðskóla í Skálholti.
Fundur hefst kl. 15,30 í Nes-
kirkju.