Morgunblaðið - 13.11.1960, Síða 1
40 síður (I. og II.) og Lesbók
47 árgangur
261. tbl. — Sunnudagur 13. nóvember 1960
Prentsmiðia Morgunblaðsins
Uppreisnarmenn gjör-
sigraðir í Vietnam
Foringjar þeirra handteknir ■ gær
Saigon (Suöur-Vietnam), 12. nóvember.
UPPREISNARTILRAUN fallhlífarsveita í Vietnam, sem
beindist gegn Ngo Dinh Diem, forseta, fór í morgun út um
þúfur eftir 30 klukkustunda umsátursástand um höll for-
setans. Eins og skýrt var frá í fréttum í gær, kröfðust upp-
reisnarmenn þess að forsetinn afsalaði sér völdum, og þeg-
ar hann neitaði, hófust bardagar við höllina. Lið forsetans
gat varizt uppreisnarmönnum, unz liðsauki hafði borizt, en
þá flýðu uppreisnarmenn eða gáfust upp.
manna til að lenda, og í þeirri
vél voru að sögn tveir af yfir-
mönnum fallhlífarliðsins.
Síðdegis í dag var allt með
kyrrum kjörum í höfuðborginni.
Menn gengu um götur borgar-
innar eins og ekkert hefði í
skorizt og fengu sér kaffisopa á
veitingastöðum.
ÖSKUBUSKA missti af sér
skóinn — og fékk prins.
Þessi unga stúlka var nú
líka heppin á Lækjartorgi i
gær, þó við efumst um að
þetta atvik færi henni
prins. Heppni hennar var i
því fólgin að hún steig úr
skónum sjnum, þegar mjói
hællinn festist í glufu, og
forðaði þar með hælnum frá
að brotna og dýrmætum
skóm frá eyðileggingu.
Myndina tók Ól. K. Mag.
„Úrkynjaðir"
Diem flutti útvarpsávarp til
þjóðar sinnar, þegar kyrrð hafði
komizt á, og bað fólk sýna still-
ingu. Réðist hann hörðum orð-
um á foringja uppreisnarmanna,
sem hefði leitt fallhlífarliðið út
þetta ævintýri, og sagði að þar
hefðu verið úrkynjaðir menn að
verki.
Fréttastofufregnir herma að
ríkisstjóm Suður-Vietnam hafi
heitið því að veita uppreisnar-
mönnum sakaruppgjöf, ef þeir
komi til herstöðva sinna fyrir
ákveðinn tima.
Ekki hafa uppreisnarleiðtog-
arnir verið nafngreindir, en
sagt er í fréttum, að tvær af or-
ustuþotum forsetans hefðu neitt
eina af flugvélum uppreisnar-
Síðari fregnir
Síðari fregnir herma að for
ingjar uppreisnarmanna, sem
handteknir höfðu verið, séu
Vuong-Van-Dong, næstæðsti mað
ur fallhlífasveitanna, og aðstoð-
armaður hans.
Fréttamenn segja, að þá hafi
farið að halla undan fæti fyrir
uppreisnarmönnum, þegar skrið-
drekasveit hafi komið hði for-
Ekki ástæða til frekari að-
gerða í Lund-
gaards-málinu
HIÐ svonefnda Lundgaards-
frímerkjamál hefur verið í
Laos-stjórn heldur
aðeins höfuðborginni
Vientiane i Laos, 12. nóv.
—. (Reuter) —
SOUVANNA Phouma, forsætis-
ráðherra hinnar hlutlausu ríkis-
stjórnar Laos, er kominn til
Vientiane, stjórnarseturs lands-
ins, eftir að hann komst nauð-
uglega undan uppreisnarmönn-
um þeim, sem tóku í gær kon-
ungsaðsetrið Luang Prabang.
Souvanna kallaði ráðuneyti
sitt saman á fund í dag og
ræddi hann þar um hið slæma
ástand, sem myndazt hefur í
landinu 'við uppreisnina í Lu-
ang. Síðan flutti hann ræðu á
þjóðþinginu. Viðurkenndi hann,
að hlutleysingjastjórn væri ein-
angraðri en nokkru sinni fyrr,
þar sem vald hennar næði nú
í rauninni aðeins til stjórnarað-
setursins Vientiane. Uppreisnar-
menn, ýmist kommúnistar eða
hægri menn, hefðu flest önnur
byggðarlög og borgir á sínu
valdi.
Undir ræðu forsætisráðherr-
ans sátu aðeins 35 af 59 kjörn-
um þingmönnum, en 20 þing-
menn hafa gengið af þingi og
segja að þeir viðurkenni aðeins
stjórn hægrimannsins Phoumi.
Hafa þeir farið til bækistöðva
hans í Satannakhet í suður-
hluta landsins. Ræða stuðnings-
inenn Vientiane-stjórnarinnar
nú, hvort heldur eigi að reyna
að grípa til harðhentari aðgerða
við uppreisnarmenn eða hefja
samninga við þá.
rannsókn bæði erlendis og
hérlendis um margra mánaða
skeið. Sem kunnugt er var
þar um að ræða frímerki,
sem afhent voru tveimur
dönskum verkfræðingum, E.
Lundgaard og F. Östergaard,
af póst- og símamálastjórn
vegna rannsókna á íslenzkum
frímerkjum og fræðistarfa.
Blaðinu hefur borizt frétta
tilkynning frá dómsmálaráðu
neytinu, þar sem segir að
ekki þyki ástæða til að fyr-
irskipa frekari aðgerðir í
málinu, þar eð merkin voru
ekki verðmæt á þeim tíma,
sem þau voru afhent, þau
voru ekki tekin ófrjálsri
hendi, svo langt er liðið síð-
an afhending fór fram, þá-
verandi póst- og símamála-
stjóri, Guðmundur Hlíðdal,
hefur nú látið af störfum og
engin ástæða þykir til að
ætla að hann eða aðrir starfs
menn póst- og símamála-
stjórnar hafi haft nokkurn
fjárhagslegan stuðning af af-
hendingunni.
Fréttatilkynningin fer hér
á eftir:
Með bréfi póst- og símamála-
stjórnar, dags. 11. júní sl., óskaði
hún eftir því að dómsmálaráðu-
neytið tæki ákvörðun um hvað
gert skyldi út af frímerkjum,
sem afhent höfðu verið danska
verkfræðingnum E. Lundgaard
úr birgðum póststjórnar. Með
bréfi ráðuneytisins, dags. 14. júní
sl., var lagt fyrir sakadómarann
í Reykjavík að taka mál þetta
til rannsóknar. Málið hefir síðan
Framh. á bls. 2
setans til aðstoðar úr suðurhér-
uðum landsins snemma í morg-
un. Herdeild þessi hafði yfir að
ráða 15 skriðdrekum, og komu
þeir uppreisnarmönnum í opna
skjöldu.
„Svikari"
í bardögum, sem urðu við for-
setahöllina, skemmdust nokkur
hús og manntjón inun hafa ver-
ið þó nokkuð.
Útvarpið í Saigon skýrði frá þv{
í dag, að höfuðborgin væri undir
stjórn 5. stórskotaliðsherdeildar-
innar, og jafnframt lýsti það
yfir, að „svikarinn" Phan Kac
Suu, einn af leiðtogum stjórnar-
andstöðunnar í þinginu, bæri
fyrst og fremst ábirgð á upp-
reisnartilrauninni, því hann
hefði í gær ásamt 18 óðrum
mönnum undirritað mótmæla-
yfirlýsingu, sem beindist að
stjórn Diems forseta.
Uppreisnarmenn segja að á-
stæðan til þess að þeir hafi beð-
ið ósigur sé sú að leiðtogar
þeirra hafi staðið of lengi í
samningaviðræðum við Diem
um það að hann afsalaði sér
völdum. Á meðan hafi forseta-
hollum hersveitum unnizt timi
til að komast til höfuðborgar-
innar og láta til skarar skríða.
I síðustu fréttum í kvöld segir,
að uppreisnarforingjarnir tveir,
sem reyndu að komast undan i
flugvél, hafi verið á leið til Laos.
Jafnframt að fallhlífaliðið hafi
hvarvetna gefizt upp og fallizt
á að vinna með stjórn Diems.
Handtekin ve^na
njósna
PARÍS, 10. nóv. (Reuter). Fjórir
karlar og ein kona voru handtek
i í París í dag, sökuð um aðild
að njósnahring. Fjórir hinna
handteknu eru útlendingar, en
hinn fimmti félagi í franska
kommúnistaflokknum. Þann 4.
nóv. sl. voru tveir Frakkar og
sex Pólverjar handteknir fyrir
sömu sakir.
Tapa stjórnarflokk-
arnir í Danmörku?
KAUPMANNAHÖFN, 12. nóv.
(Einkaskeyti frá fréttaritara
Mbl.) ■— Kvöldberlingur birtir
eftirfarandi niðurstöður síðustu
Gallup-skoðanakönnunar um
væntanleg úrslit kosninganna til
danska þjóðþingsins nk. þriðju-
dag:
— ★ —
Sósíaldemókratar eru taldir
munu fá 39,8% atkvæða (á móti
39,4% við kosningarnar 1957),
Radikalir 7% (7,8% 1957), Rétt
arsambandið 2,5% (5,3%), íhalds
menn 16% (16,6%), Vinstri
25,2% (25,1%), Óháðir 3,5%
(2,3%), hinn nýi flokkur Aksels
Larsens 4,2% og Kommúnistafl.
1,4% (3,1%).
— ★ —
Ef þetta gengur eftir, missa
stjórnarflokkarnir (Sósíaldemo-
kratar, Radikalir og Réttarsam-
bandið) þann meir'hluta at-
kvæða, sem þeir nú hafa. Flokk
ur Larsens og Óháðir munu þá
fá 6—8 þingsæti hvor flokkur,
en kommúnistar og jafnvel einn
ig Réttarsambandið, fá engan
þingmann kjörinn.