Morgunblaðið - 13.11.1960, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.11.1960, Blaðsíða 23
Sunnudagur 13. nóv. 1960 MORGVNBLAÐIÐ 23 ENSKA KNATTSPYRNAN Tottenham tapar 17. umferö ensku deildarkeppninnar fór fram í gær og urðu úrslit þessi: , 1. deild ... Arsenal — Chelsea ............. 1 A Brimingham — Manchester U...... 3:1 Burnley — Wolwerhampton ....... 5:2 Cardiff — Everton ............. 1:1 Fullham — Leicester ........... 4:2 Manchester City — West Ham .... 1:2 Newcastle — Blackpool ......... 4:3 N. Forest — Bolton ............ 2:2 Preston — Aston Villa ......... 1:1 Sheffield W. — Tottenham ...... 2:1 W.B.A. — Blackburn ............ 1:2 2. deild Brighton — Luton .............. 1:0 Bristol Rovers — Plymouth ..... 2:5 Derby — Sunderland ............. 1:1 Ipswich — Lincoln ............. 3:1 Leeds — Stoke ................. 0:1 Leyton Orient — Huddersfield .... p p Liverpool — Norwich ........... 2:1 Middlesbrough — Swansea ....... 2:1 Rotherham — Charlton .......... 2:3 Schunthorpe — Portsmouth ....... 5:1 Southampton — Sheffield U...... 0:1 Að 17 umferðum loknum er staðan þessi: Thotteham 1. deild 17 15 1 1 54:20 31 Sheffield W. 16 11 4 1 28:12 26 Everton 17 10 4 3 39:26 24 Burnley 17 11 0 6 46:27 22 Manchester U. 16 4 3 9 27:35 11 Bolton 17 4 i 3 10 22:32 11 Hljómleikar í Þjóðleikhúsimi SÍÐUSTU tvennir tónleikar voru í Þjóðleikhúsinu í þessari viku, tónleikar þriggja Sovétlista- manna og Sinfóníuhljómsveitar ís lands undir stjórn Páls Pam- picklers en einleikari var Sobol- evski frá Sovétríkjunum. Efnisskrá Sovétlistamannanna eýnist hafa verið valin sérstak- lega fyrir það fólk sem ekki saek ir tónleika almennt, alþýðutón- leikar. Hinsvegar voru listamenn irnir sem hér komu fram úr flokki þeirra, sem annars flytja list sína fyrir vandláta og þjálf- aða áheyrendur, og því fundu sumir áheyrendur meira til þess að ekki skyldi hafa verið valin stærri verkefni. Þetta eru allt af bragðslistamenn, valið fólk, með yfirburða kunnáttu og túikun frábær. Allir munu því hafa (kvatt gesti okkar með hlýjum þökkum og góðum endurminning um. Á tónleikum Sinfóníuhljóm- sveitarinnar kom einn Sovétlista mannanna, fiðluleikarinn Sobol- evski, fram sem einleikari í fiðlu konsert eftir rússneska tónskáld ið Khatsjaturián. Verkið er mjög glæsilegt og var flutningur þess með afbrigðum fallegur, einleik arinn reyndist vera stórkostlegur virtúós. Þá var ennfremur flutt svíta eftir annað rússneskt tón skáld, Strawinsky, svipmiklar smámyndir. Að lokum var flutt fjórða sinfónía Beethovens. Paul Pampickler hefur enn á ný verið í eitt ár erlendis til að fullkomna sig sem stjórnandi. Var strax auð fundið að stjórn hans var örugg- ari en áður, og var Sinfónía Beethovens vel flutt. Vikar — Nýtt skipulag Frh. af bls. 24 Ur í Fossvogi. Þessi samkeppni á að fara fram samtímis meðal arki tekta á öllum Norðurlöndunum. Standa vonir til að öllum undir búningi verði það fljótt lokið, að samkeppni þessi geti hafizt í byrj un næsta árs svo kunnugt verði um úrslit þessarar samkeppni hinna norrænu arkitekta á miðju sumri 1961. Þá hafa þeir skipulagsstjóri bæjarins og Bredsdorff tekizt á hendur, í samráði við^skipulags nefnd ríkisins, að skipuleggja svæðin austan Elliðaáa og sunn an Fossvogs. Próf. Bredsdorff fór aftur til Kaupmannahafnar í gær. Þá daga sem hann hafði hér viðdvöl, var hann daglega á fundum með ýmsum embættismönnum í sam- bandi við öll þessi skipulagsmál. Blackpool 17 4 2 11 30:40 10 N. Forest 17 2 3 12 21:42 7 2. deild Sheffield U. 18 14 1 3 35:16 29 Ipswich 17 10 3 4 39:22 23 Liverpool 17 9 4 4 32:22 22 Norwich 17 8 5 4 29:20 21 Bristol Kovers 16 4 4 8 29:41 12 Luton 17 4 4 9 22:35 12 Swansea 17 3 5 9 23:31 11 Lincoln 17 4 3 10 21:34 11 Ágæt síldveiði í Eyjum VESTMANNAEYJUM, 12. nóv. — Ágætis síldveiði var hér í gær. Munu hafa borizt á land 1200 til 1400 tunnur, sem mest- megnis fór til frystingar. Hæsti bátar voru með 360 tunnur, Bára og Andvari, en tveir bát- ar eru um nót. Bátarnir eru úti í dag, þrátt fyrir 7 vindstig, en þeir veiða í landvari, vestan undir Eyjun- um. — Togaralandanir SLÉTTBAKUR seldi afli sinn í Cuxhaven í fyrradag, 78% lest fyrir 56.630 mörk. Togarinn Elliði landaði á Siglufirði á fimmtudag 115 lestum af ísvörðum fiski, sem veiddist á heimamiðum. Eldur í Arnarseli KL. 3.24 í nótt fór einn slökkvi- liðsbíll að Arnarseli í Bláfjöll- um, sem er skíðaskáli starfs- manna á Reykjavíkurflugvelli. Þarna er skáli og skúr með raf- stöð og var eldur í rafstöðvar- skúrnum. Maður nokkur kom inn á Slökkvistöðina og kvaðst hafa séð þar eld. Skúrinn brann, en skálann tókst að verja. Landanir í Rvík AKRANESTOGARINN Víkingur landaði hér í Reykjavík, eftir sína fyrstu veiðiför, 18 daga úti- vist allt tæplega 180 tonnum af karfa. í gær var verið að landa úr Þormóði goða, sem fór sama dag til veiða á Nýfundnalands- miðum og var hann með 110—120 tonn, — mestmegnis karfa. í gær var einnig verið að losa Hval- fellið, sem verið hafði á heima- miðum og var með um 110 tonna afla, blandaður fiskur mun það hafa verið. Virkjun Jökulsár á Fjöllum í GffiR var lögð fram á Alþingi þingsályktunartillaga um að und irbúin verði virkjun Jökulsár á Fjöllum til stóriðju. Hún hljóðar svo. „Alþingi ályktar að skora á ríkisstjórnina að láta hraða gerð fullnaðaráætlunar um virkjun Jökulsár á Fjöllum og athugun á hagnýtingu orkunnar til fram- leiðslu á útflutningsvöru og úr- ræðum til fjáröflunar í því sam- bandi“. — Flutningsmenn tillög unnar eru þessir: Gisli Guðmundsson, Jónas G. Rafnar, Karl Kristjánsson, Garð ar Halldórsson, Björn Jónsson, Magnús Jónsson, Bjartmar Guð- mundsson. PATREKSFIRÐI, 11. nóv. — Gylfi er á leið til Þýzkalands með um 100 tonn af heimamiðum og Ólafur Jóhannesson leggur af stað eftir helgina. Togararnir sigla með fullri áhöfn. Tveir bát- ar hafa róið hér að undanförnu, afli verið góður. í síðustu veiði- förinni var hann sex tonn. — Trausti Peningaskápurinn hélt Framh. af bls. 24. verið einn hlekkurinn í þessari keðju. Erfiðleikar sjávarútvegsins. Jónas Haralz vék að hinum sér stöku erfiðleikum, sem sjávar- útvegurinn ætti við að stríða. Hann sagði að þeir ættu aðallega þrjár rætur: 1) Verðfallið á útflutningsvör um. 2) Aflabresturinn. 3) Að fyrirtækin í sjávarútveg inum hefðu verið illa búin undir þessi áföll og breyting arnar sem af efnahagsráð- stöfunum leiddi. Eina leiðin til að verjast slík um áföllum sem verðfalli og afla bresti, sagði hann er að safna í sjóði á góðærum. Nú er það stað reynd, að íímabilið 1955-59 hefur verið eitt hið mesta góðæri sem yfir landið hefur gengið, svo mik ið að ekki er hægt að jafna því við neitt annað en seinhi styrj- aldarárin og tímabilið 1925-29. En efnahagsmálastjórnin þenn an tíma hefur verið slík, að þjóð in á eftir þetta góðæri engan gjaldeyrisforða, þvert á móti er hún stórskuldug. Og uppbóta- kerfið hefur skammtað útvegin um svo smátt, að hann hefur ekki getað safnað neinum vara- sjóðum. Ennfremur sagði ræðumaður, að verðbólgan hefði haft þau á- hrif, að eigin rekstrarfé fyrir- tækjanna hefði horfið, þar sem aldrei hefði fengizt hækkun út á birgðirnar, þegar útflutningsbæt ur hefðu hækkað eða gengi ver- ið breytt. Leiðin út úr verðbólgunni. Verðbólgan hafði einnig þau á hrif, að útvegsmenn festu alltaf jafnóðum það fé, sem þeir gátu í nýjum framkvæmdum til að geta klófest verðbólgugróðann og þá var ekki alltaf hugsað um hve skynsamlegar þessar fram- kvæmdir voru, þar sem menn bjuggust við að verðbólgan lyfti skuldabyrðinni af mönnum hvort eð væri. Vegna þessa hefur f jár- hagsleg uppbygging fyrirtækja- anna orðið með þeim hætti, að þau hlutu að komast í greiðslu- vandræði, þegar verðbólgan hætti. Leiðin út úr þesu, sagði Jón- as Haralz er endurskipulagtiing á fjárhagslegri uppbyggingu fyrirtækjanna og þá með því að breyta lánum sem veitt hafa verið til skamms tíma í lán til langs tíma og þá jafnframt um- bætur á rekstri fyrirtækjanna. Er þar um margar leiðir að ræða, því að rekstur þeirra hef- ur færzt úr lagi á verðbólgu- áunum. Ef þetta tvennt væri gert, sagði ræðumaður, að hægt myndi að ná eðlilegri rekstrarafkomu meginhluta útflutningsatvinnu. veganna við núverandi gengi. Engin önnur leið fær Hann sagði að lokum, að hann væri sannfærður um að ekki hefði verið um neina aðra leið að velja en þessa sem farin hefði verið og sama er að segja nú, að ekki er um neina aðra leið að velja, en þá sem hefur verið mörkuð, að viðbættum þessum atriðum varðandi iit- gerðina. Með því væri lagður grund- völlur að traustu atvinnulífi og vaxandi velmegun í framtíðinni. Á eftir ræðu Jónasar Haralz báru ýmsir fundarmenn fram fyirspurnir til hans, svo sem Ól- afur Jónsson, Björn Pálsson, Jón Héðinsson, Valtýr Þorsteinsson o. fl. Svaraði hann nokkrum fyr- irspurnunum, en mún halda á- fram svörum sínum á fundi með útvegsmönnum á mánudaginn. INNANFÉLAGSMÓT Innanfélagsmót verður haldið kl. 3 e.h. n. k. mánudag. Keppt í sleggjukasti og kriglukasti. —ÍR í FYRRINÓTT hugðust ir.n- brotsþjófar gerast stórtækir og ráðast á fjárhirzlur i skrifstof- um Ræsis hf. við Skulagötu. Þjófarnir munu hafa talið vist að þar mundi mikið fé vera svona rétt fyrir útborgunardag vinnulauna starfsmanti’í. Þeir hafa verið búnir ýmsum verkfærum og emnig ’ótc verk- færi í bílaviðgerðaverkstæði fyr- irtækisins. Síðan hafa þeir ráðizt á hurðj á stórum innmúruðum peninga- skáp. Þeim tókst að saga hjar- irnar af skápnum. Þeir hafa haldið að eftir að tekizt hefði að ryðja hjörunum úr vegi, myndi vera hægt að spenna skáphurð- ina upp. Hurðin er mjög rambyggileg og læsing traust. Allar tilraunir innbrotsþjófanna til að ná henni upp mistókust og þeir urðu frá að hverfa. Sýningu Sigurðar lýkur í kvöld MYNLDISTARSÝNING Sigurðar Sigurðssonar í Listamannaskál- anum hefur nú staðið í eina viku og nokkrar myndir selzt. Sýn- ingunni lýkur á sunnudagskvöld. Inni í skápnum var geymt mikið af peningum þessa nótt. r I stolnum bíl til stúlkunnar sinnar í FYRRAKVÖLD var blárri bif- reið frá varnarliðinu ekið með miklum hraða út af flugvellin- um, án þess að bíllinn stanzaði við hliðið. Lögregluþjónarnir við hliðið reyndu að ná ökuþórnum, en hann var kominn of langt und an. Var þá lögreglunni í Reykja- vík gert aðvart, og skömmu síð- ar hafðist upp á skrásetningar- númeri bifreiðar þessarar sem er nokkurs konar opin sendiferða- bíll með sæti fyrir tvo. Lögreglu- menn í Reykjavík og Hafnarfirði fóru á stúfana. Og náðist bifreið- in loks á Reykjanesbrautinni. Ökumaðurinn reyndist vera varn arliðsmaður, sem hafði tekið bíl- inn til að fara í heimsókn til stúlku í Reykjavík. Var maður- inn undir áhrifum áfengis og hafði auk þess áður verið sviftur ökuleyfi. Schannong’s minnisvarðar 0ster Farimagsgade 42, Kþbenhavn 0. Hjartanlega þakka ég börnum mínum, tengdabörnum, frændum og vinum fyrir auðsýnda vináttu og gjafir á 80 ára afmæli mínu. Einnig þakka ég Sambandi breið- firzkra kvenna, Kvenfélagi Hellissands og Kvenfélagi Háteigssóknar. Guð blessi ykkur öll og störf ykkar. Ingveldur Á. Sigmundsdóttir Hjartans þökk til allra þeirra er heiðruðu mig með heimsóknum, gjcfum og heillaóskum á sextugsafmæli mínu 27. okt. s.l. Aðalsteinn Hjartarson, Grjóteyri. I i Konan mín ÞURlÐUR GUÐJÓNSDÓTTIR Eskihlið 12a, andaðist 12. þessa mánaðar. Steingrímur Gunnarsson. Systir okkar HERDlS BRANDSDÓTTIR andaðist fimmtudaginn 10. nóv. í sjúkradeild Elliheim- ilisins Grund. Jarðarförin ákveðin síðar. Guðrún Brandsdóttir, Tómas Brandsson. Fóstursystir *>kkar EYGLÓ KRISTINSDÓTTIR sem lézt þann 5. nóvember, verður jarðsettur frá Foss- vogskirkju, þriðjudaginn 15. nóv. kl. 10,30. Blóm vinsamlegast afþökkuð. Ásta Guðmundsdóttir, Unnur Öladóttir Eiginmaður minn PÉTUR V. SNÆLAND Haðarstíg 2, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 15. þ. m. kl. 1,30 e. h. F. h. barna, fósturbarna, tengdabarna og barnabarna. Sigríður Snæland. Þökkum innilega öllum nær og f jær auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför mannsins míns, föður okkar og tengdaföður SVEINS SVEINSSONAR Netagerðarmeistara. Guð blessi ykkur öll. Kolfinna Magnúsdóttir, börn og tengdabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.