Morgunblaðið - 13.11.1960, Blaðsíða 12
12
MORGVISBL 4 ÐIÐ
Sunnudagur 13. nóv. 1960
JKroðPitstMá&ifr
Utg.r H.f. Arvakur Revkjavlk.
Framkvaemdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórarí Valtýr Stefánsson (ábm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Lesbók.: Arni Óla, sími 33045.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn: Aðalstreeti 6.
Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6 Sími 22180.
Askriftarg]ald kr. 45.00 á mánuði innanlands.
1 lausasölu kr. 3.00 eintakið.
I
OFRIKI BEITT?
ING Alþýðusambands Is-
lands er nú í þann veg-
inn að hefjast. Meðal fyrstu
mála, sem það fjallar um, er
inntökubeiðni Landssam-
bands íslenzkra verzlunar-
manna, sem hefur óskað að
gerast aðili að ASÍ.
LÍV uppfyllir öll skilyrði
til þess að verða aðili að Al-
þýðusambandinu. Og engin
lögleg ráð eru til að hindra
að. samtökin verði tekin í
ASÍ. Samt sem áður hafa
tveir forystumenn kommún-
ista í verkalýðsmálum látið í
það skína í blaðaviðtali í
Þjóðviljanum, að tilraun
verði gerð til þess að meina
LÍV inngöngu í Alþýðusam-
bandið.
Rök kommúnista, ef rök
skyldi kalla, hafa verið rak-
in af forystumönnum lýð-
ræðissinnaðra verkamanna
hér í blaðinu og skal því ekki
eytt að þeim mörgum orðum.
Aðeins skal þó á það bent,
að slík landssamtök hafa áð-
ur verið tekin inn í Alþýðu-
samband íslands, eins og Sjó-
mannasamband íslands og
Landssamband vörubifreiða-
stjóra. Þá má einnig geta
þess að nokkur félög verzl-
unarmanna eru aðilar að Al-
þýðusambandi íslands nú
þegar.
Þó að kommúnistar hafi
þannig lýst því yfjr, að þeir
hyggist reyna að beita ofríki
á Alþýðusambandsþingi til
að hindra löglega afgreiðslu
mála, þá verður því ekki trú-
að að óreyndu, að þeir fái
fylgismenn sína til slíkra
verka. Sérstaklega verður þó
fróðlegt að sjá, hvort Fram-
sóknarmenn, sem að öðru
leyti munu sjálfsagt styðja
kommúnista á Alþýðusam-
bandsþingi, láta hafa sig til
að beita verzlunarmenn of-
ríki. í röðum verzlunarfólks
er allmargt Framsóknar-
manna, sem starfar hjá kaup
félögunum og SÍS og væru
það kaldar kveðjur, sem
þeim yrðu sendar, ef þeim
yrði meinað um inngöngu í
heildarsamtök launþega.
Þessar boðuðu ofbeldisað-
gerðir kommúnista minna á|
orð Adolfs Petersens, sem ný I
lega birtust hér í blaðinu, en
Adolf er nákunnugur starfs-
háttum kommúnista, Hann
sagði þá beita Ku Klux Klan
aðgerðum til þess að ná fram
fyrirætlunum sínum og benti
á, að kommúnistar teldu
verkalýðinn aðeins til þess
nýtan að koma leiðtogunum
í æðstu stöður, en að öðru
leyti skipti hagur verkalýðs
engu máli.
Ef raunin verður sú að
kommúnistar láta verða af
hótunum sínum, þá undir-
strika þeir rækilega þessi orð
Adlofs Petersens og furðu-
legs má það heita, ef laun-
þegar og verkalýður sýnir
þeim traust, eftir að þeir
hafa beitt slíkum bolabrögð-
um.
LISTMUNA
UPPBOÐ
¥ TNDANFARIN ár hefur
Sigurður Benediktsson
við og við haldið hér í höf-
uðstaðnum listmuna- og bóka
uppboð. Uppboð þessi hafa
orðið mjög vinsæl, enda
skemmtileg nýbreytni í bæj-
arbragnum. En fyrst og
fremst hafa þau þó hagnýta
þýðingu.
Mikill fjöldi íslendinga
safnar bæði listaverkum og
bókum. Flestum þykir að
vísu vænt um þau listaverk
og þær bækur, sem þeir hafa
eignazt og vilja helzt ekki
þurfa að farga þeim. En oft
á tíðum getur fjárhag manna
þó verið þannig háttað, að
þeir þurfi að koma slíkum
verðmætum í peninga. Þann-
ig munu þess fjölmörg dæmi,
að þeir sem staðið hafa í
húsbyggingum hafa leitað til
Sigurðar Benediktssonar og
beðið hann að selja fyrir sig
listmuni eða bækur, svo að
þeir gætu losað fé til að
ljúka við íbúðir sínar. Og á
tímum verðlítilla peninga
hafa sumir jafnvel keypt
listaverk beinlínis í þeim til-
gangi að ávaxta þannig fé
sitt.
Vegna listmunauppboðanna
hefur skapazt nokkurn veg-
inn ákveðið gangverð bóka
og jafnvel listaverka, þannig
að menn vita hér um bil
hversu verðmætar þessar
eignir þeirra eru. Þetta leiðir
aftur til þess, að menn eru
fúsari á að kaupa listaverk
og þannig styðja uppboðin
beinlínis listina í landinu.
Þess vegna ber að meta
þessa starfsemi.
Fohrner dregur vélina út úr fiugskýlinu. Þrír stundarfjórðungar eru þegar liðnir.
Tíminn hefur
tvðfaidazt
ÞAÐ tók Robert Svendsen
31 mínútu að fljúga yfir
sundið frá Kaupmannahöfn
til Málmeyjar.
Síðan er liðin hálf öld og
framfarirnar í flugmálum
hafa breytt ferðatíma ein-
hreyfla véla.
í dag tekur ferðin fimm
stundarfjórðunga, eða rúm-
lega helmingi lengri tíma.
Og nú eru það einungis
flugmenn sem þekkja til að-
stæðna, sem geta komizt frá
Kaupmannahöfn til Málm-
eyjar á 75 mínútum. Fyrir
ókunnuga tekur þetta enn
lengri tíma.
Flugtíminn sjálfur hefur au^
vitað stytzt mikið frá því árið
1910. En þróunin kemur fram á
öðrum sviðum.
1 dag fer einkaflugvél fra
Kastrupflugvelli í Kaup-
mannahöfn til Bulltofta flug-
vallar í Málmey á 15 mínút-
um. En það tekur klukkutíma
baráttu að fá að hefja sig
tii flugs.
Þetta er sérstaklega erfitt fyrir
útlendinga, sem kjósa að koma
til Kaupmannahafnar með einka
vélum, en þeim mun fara sí-
fjölgandi á komandi árum.
GÖNGUFERÐIR
Kaupmannabafnarblaðið B. T.
sneri sér nýlega til kaupmanns
nokkurs, Fahrners að nafni, og
bað hann að fá að senda frétta-
mann sinn með í ferð til Málm-
eyjar.
Fréttamanninum segist svo
frá:
Kl. 9,25 komum við til flug-
vallarins og snerum okkur til
skrifstofunnar.
Kl. 9,30: Á flugvallarskrifstof-
unni er okkur sagt að fylla út
flugáætlun með upplýsingum um
tilgang flugsins.
Kl. 9,40: Við erum komnir á
tolleftirlitið. Viðdvölin þar er að
eins tvær mínútur, en þangað er
400 metra gönguferð.
Kl. 9,50: Eftir 5—600 metra
gönguferð til viðbótar, erum við
komnir í flugáætlunardeildina,
þar sem upjdýsingar eru gefnar
um veðurfar o. fl. Þar er lokið
við flugáætlunina, sem er send
flugturninum.
ÞURFTU ÞÓ EKKI VEGABRÉF
Ef um hefði verið að ræða flug
til landa utan Norðurlanda, eöa
ef útlendingar hefðu verið á ferð,
væri næsti áfangi vegabréfa-
skoðunin. En svo vel vill til að
þangað eru aðeins 100 metrar.
Við sleppum við þetta og förum
þess í stað til bifreiðar okkar og
ökum til flugvélageymslunnar,
sem liggur við suðurenda flug-
vallarins. Þangað eru tíu kíió-
metrar, og ekki fyrir ókunnuga
að rata.
LOKS Á LOFT
Kl. 10,10: Við erum komnir
til flugskýlisins. Cessna vélin er
dregin fram og hreyfillinn ræst
ur. Við tilkynnum flugturninum
gegnum talstöðina að við séum
tilbúnir til flugtaks.
Við fáum leyfi til að aka út
að flugbrautinni.
Kl. 10,25: Við fáum leyfi til
flugtaks.
Kl. 10,40: Komnir til Málm-
eyjar, stundarfjórðungi eftir
flugtak, en fimm stundarfjórð-
ungum eftir að við komum ferð-
búnir til flugvallarinar.
Framfarirnar segja til sín.
Robert Svendsen ferðbúinn. 31 mínútu síðar var hann í Málmey.
Nýr sigur fy
London, 10. nóv. (Reuler)
GEORGE Brown var í dag kjör-
in varaleiðtogi brezka Verka-
mannaflokksins. Brown er
sterkur fylgismaður leiðtoga
flokksins, Hugh Gaitskells, og er
kosning hans mikill sigur fyrir
Gaitskell.
Kosning til varaleiðtoga fór
fram í neðri deildinni. Af 254
þingmönnum verkamannaflokks
ins kusu 146 Brown. Andstæðing
ur hans, Fred Lee, fulltrúi
vinstra arms flokksins hlaut 83
atkvæði, 25 þingmenn sátu hja.
Brown hefur unnið mikið að
því að sætta hina tvo andstæðu
arma Verkamannaflokksins, en
hefur aldrei dregið dul á stuðn-
rir Gaitskell
ing sinn við Hugh Gaitskell í
varnarmálunum. Brown er tals-
maður flokksins í varnarmálum.
Frímerki til
heiðurs Dulles
WASHINGTON, 10. nóv. — Nýtt
frímerki verður gefið út í Banda
ríkjunum 6. desemiber n.k. til
heiðurs við minningu John Fost-
er Dulles, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanna. Á frí-
merkinu verður mynd af Dulles.
Orðsending
frá Lumumba
Beirut, Libanon, 10. nóv.
(Reuter)
PATRICE Lumumba, fyrrver-
andi forsætisráðherra í Kongó,
hefur sent ráðstefnu 27 Asíu og
Afríkuríkja, sem hér stendur yf-
ir, áskorun um að styðja þjóð-
ernishreyfinguna í Kongó.
Fulltrúi Arabalýðveldisins af—
henti orðsendingu Lumumba á
fyrsta fundi ráðstefnunnar, en
hún mun standa í nokkra daga,
í orðsendingu Lumumba segir
m. a.: Barátta okkar við nýlendu.
stefnuna varðar ekki Kongólýð-
veldið eitt, heldur allar þjóðir
sem óska friðar. Heimsvaldasinn.
ar og fulltrúar þeirra berjast nú
gegn löglegri stjórn og löglegu
þjóðþingi Kongó.