Morgunblaðið - 13.11.1960, Blaðsíða 22
22
MORCVmtr. AT>1Ð
Sunnudagur 13. nóv. 1966
Islandsmeistararnir reyndust
þeim tékknesku sterkari
EKKI fer hjá því að sigur ís-
landsmeistaranna yfir hand-
knattleiksmeisturum Tékkó-
slóvakíu veki mikla athygli.
Sigur þeirra var heldur eng-
inn tilviljun þrátt fyrir mjög
jafnan leik. Lengst af höfðu
Islandsmeistararnir yfir í
mörkum. Höfðu 3 mörk yfir
í hálfleik og höfðu forystu
allan tímann nema í 3 stutt
tímabil er Tékkar komust
yfir.
Ýmislegt ber að athuga þegar
leikur þessarar meistara tvegyja
ianda er borinn saman.
1) Tékkarnir eru óvanir að
leika í litlum sal.
2) Tékkarnir hafa þó fengið æf
ingu í 4 kvöld fyrir þennan leik
og samleikur þeirra er orðinn
góður við þær erfiðu aðstæður
sem í Hálogalandi eru.
3) Þetta er fyrsti kappleikur
FH á keppnistímabilinu.
4) Hafnfirðingar hafa sízt
reynzt betri á litlum velli en stór
um velli erlendis, enda leika þeir
svo hratt og ákveðið að stenzt
samanburð við hvaða erlent lið
sem er.
Að þessum atriðum athuguð-
um ber að álykta að lítill völlur
sé Hafnfirðingum nokkurt hags-
munaatriði. Og það er kannski
ánægjulegast af öllu, því það
sannar staðreyndina að við eig-
um handknattleikslið sem er
gjaldgengt hvar sem er.
★ Leikurinn
Yfirburði höfðu Hafnfirðingar
í skotum sínum, einkum hvað
snerpu í þeim snerti, svo og skot
hörkuna .
Tékkarnir voru mun betri í því
að finna leiðina fyrir knöttinn
inn á markteiginn og tókst það
æði oft þrátt fyrir þétta vörn
Fram. Knattöryggi er jafnara og
meira hjá þeim en FH.
Það voru langskot FH sem úr-
slitum réðu og var Pétur Antons
son drýgstur við að skora slík
mörk, skoraði alls 6.
★ Liðin
I hraða og skjótri hugsun gáfu
FHmenn tékknesku meisturunum
ekkert eftir. Lykillinn að þeirri
hæfni Tékkanna að ryðja knett-
inum leið inn á markteiginn er
að finna í öruggum leik, skipting-
um og leikni tveggja manna
fyrst og fremst. Það eru Gregoro-
vic og Vanecek. Þeir eru höfuð-
stoðir þessarar leikaðferðar Tékk-
anna.
Að öllum FH-mönnum ólöst-
uðum átti Hjalti Einarsson
drýgstan þátt í sigri FH. Leik-
ur hans í markinu var frábær.
Staðsetningar hans eru góðar
og ákveðni hans í úthlaupum
betri en hjá flestum öðrum er
hérlendis hafa sézt leika. Með
þessum kostum fékk hann var-
ið tvö vítaköst og þrisvar eða
fjórum sinnum varði hann
þegar tékknesku framherjarn
ir flugu inn í teiginn til hans.
Hann lokaði markinu með út-
hlaupum og fékk varið það
sem flestum markmönnum er
ofraun.
Einar Sigurðsson átti og mjög
góðan leik. Sama má ségja um
Kristján Stefánsson óvenjulega
skotfastan mann. Pétur var
Körfuknattleikur
Reykjavíkurmótið í körfuknatt
leik heldur áfram á mánudag kl.
8,15 að Halogalandi. Þá keppa
Ármann og ÍR í meistaraflokki
karla og í II. flokki karla ÍR og
Ármann b.
Bergþór skoraði úrslitamarkið.
drjúgur en skaut um of. Ragn-
ars var gætt meir en góðu hófi
gengdi — hafa Tékkarnir senni-
lega haft spurnir af .leikni hans
og fórnuðu mönnum til að elta
hann hvert sem hann fór á vell-
inum. Örn er liðinu drjúgur en
kunni sízt FH-manna aðferðina
,,maður á mann“.
Karl Jóhannsson dæmdi leik-
inn og skilaði því verki mjög vel,
— betur en þeir dómarar aðrir
er dæmt hafa leiki Tékkana. Var
hann öruggur, ákveðinn og fatað
ist aldrei.
— A. St.
Firmakeppni
lokið
HAFNARFIRÐI — Tvímennings
keppni Bridgefélagsins er ný-
lokið, en spilaðar voru 5 um-
ferðir. Efstu menn urðu þessir:
Árni og Kári 449% stig, Reynir
og Kristján 447, Sigmár og Jón
P. 411%, Einar Guðn og Gunn-
laugur 407%, Ólafur I. og Hörð-
ur Þ. 394, Halldór og Hörður G.
394, Viggó og Kjartan 393 og
Hilmar og Sveinn 390.
Á miðvikudaginn hefst firma-
keppni félagsins og er öllum
heimil þátttaka. — G.E.
jr
I dag
t DAG kl. 3 fer fram í
þróttahúsinu á Keflavíkur-
flugvelli leikur tékknesku
handknattleiksmeistaranna
og ísl. landsliðsins eins og
landsliðsnefnd HSÍ velur
það í dag. Völlurinn þar
syðra fullnægir kröfum um
stærð handknattleiksvalla.
Nú fæst því góður saman-
burður á getu ísl. hand-
knattleiksmanna og félaga
þeirra erlendra sem framar
Iega standa í íþróttagrein
inni. Er ekki að efa að fjöl-
menni verður þar syðra. Mið
ar fást enn og gilda sem vega
bréf inn á völlinn. Á þeim
er og merkt leiðin að
íþróttahúsinu frá hliðinu.
Orðsending
til Eiðamaniu.
AF sérstökum ástæðum eru
nemendur Eiðaskóla frá 1930 og
síðar beðnir að koma til viðtal*
í Breiðfirðingabúð, uppi, næstk.
sunnudag, á Umabilinu frá kl.
2—7 e. h.
Hjalti markvörður hefur varið vítakastið. Provazniak liggur á gólfinu eftir. Hjalti stóð sig
frábærlega vel. Myndirnar tók Sv, Þormóðsson.
áðcuc esz'Á? /w/ /