Morgunblaðið - 13.11.1960, Blaðsíða 5
Sunnudagur 13. nóv. 1960
MORGVNBLAÐIÐ
5
MENN06 |
= MALEFNIÚ
FRÁ Þjóðminjasafnimi hefur
blaðinu borizt þessi mynd,
sem hér birtist. Við leitum
upplýsinga hjá forstöðumanni
safnsins, dr. Kristjáni Eldjám
þjóðminjaverði, og hann svar
ar á þessa leið:
— Myndin er af bamavettl-
ingum eða hönzkum, sem séra
Jón M. Guðjónsson á Akra-
nesi kom með á safnið nýlega,
Þeir eru gjöf til safnsins frá
Halldóri bónda Kristjánssyni
á Heynesi í Innri-Akraness-
hreppi, og raunar mjög dýr-
mæt gjöf, því að hanzkar þess
ir eru afar gamlir og einhverj
ir elztu heilar flíkur sem til
em á safninu. Að vísu er ekki
hægt að segja nákvæmlega
hversu gamlir þeir eru, en ég
tel vafalaust að þeir séu frá
miðöldum. Þeir eru saumaðir
úr vaðmáli, og það bendir ein
dregið til að þeir séu frá þeim
tíma er ekki var enn farið að
prjóna á landi hér, en prjóna-
skapur er tiltölulega nýtt fyr-
irbrigði, þótt einkennilegt
kunni að virðast, fyrst er tal-
að um prjónles hér á 16. öld.
Halldór bóndi fann þessa
hanzka djúpt niðri í bæjar-
stæðinu á Heynesi, meira en
2 metra, og það bendir einnig
á háan aldur. Það kalla ég
laglega af sér vikið að finna
samstætt par af vettlingum
svo djúpt í jörðu, stakur vettl
ingur af þeasari gerð hefði
verið mikill fengur, en sam-
stætt par er hvalreki. Þetta
minnir mest á búningana
frægu frá Ilerjólfsnesi á
Grænlandi, reyndar líklega
frá sama tíma.
Nokkuð ber til hverrar
sögu. Þessir vettlingar hafa
týnzt saman og varðveitzt
saman af því að þeir höfðu
verið bundnir saman með
bandi alveg eins og gert er
við barnsvettlinga enn þann
dag í dag. Svona getur gamli
tíminn verið nýr og sá nyi
gamall. Halldór á Heynesi er
annars ekki af baki dottinn
með að finna forngripi. I
fyrra fann hann ofna pjötlu
niðri í bæjarstæðinu hjá sér,
og það hefur komið á daginn
að hún veitir mikilvæga vitn-
eskju um fornan sérkennileg-
an vefnað, sem við höfum
ekki haft heimlidir um áður.
Við notum tækifærið til að
spyrja þjóðminjavörð, hvort
safninu berist alltaf mikið af
nýjum (gömlum) hlutum, og
fáum þetta svar: •
— Alltaf berst okkur eitt-
hvað, sem betra er en ekki að
hafa ,og öðru hverju rekur
dýrgripi á f jörurnar. I sumar
fengnim við til dæmis merki-
legan úthöggvinn stein, sem
hefur verið vatnssteinn í
kirkju á miðöldum, sá eini
sem við höfum og eitthvað
verulega er í borið. Vatnsstein
ar voru til þess að hafa í ,
þeim vígt vatn við kirkjudyr,
svo að kirkjugestir gætu
stökkt því á sig við inngöng-
una í helgidóminn. Þessi hlut-
ur fannst á Bjarteyjarsandi á
Hvalfjarðarströnd, gefinn
safninu af Guðmundi Jóns-
syni bónda þar, einnig fyrir
milligöngu séra Jóns M. Guð-
jónssonar.
Safnið kana öllum þessum
mönnum miklar þakkir fyrir
hugulsemi þeirra. Það er á-
reiðanlegt, að menn rekast á
sitt hvað merkilegt við dag-
lega vinnu sína, og það er
mikilsvert, að slíkt komi til
skila á réttum stað.
hvert hún hefur farið í sumar-
L leyfinu.
★
— Eg á m.ér enga heitari ósk,
en að eignast nærsýnan tengda-
son.
— Ég hef nú aldrei heyrt neitt
vitlausara.
— O-o, þú hefir ekki séð hana
dóttur mína.
★
Gesturinn: — Lítið þér á, það
er rautt hár í súpunni!
Þjónninn: — Það er af kokkin-
um — en hann getur ekkert að
því gert strák greyið, þó að hann
sé rauðhærður.
— O —
Lögregluþjónn: — Hvar eigið
þér heima?
1. flækingur: — Hvergi.
, Lögregluþjónn: — Og þér?
2. flækingur: — Beint á móti
honum.
★
— Það er sorgleg staðreynd,
mælti prófessorinn, að nú þykj-
ast allir hafa hæfileika til að
stunda háskólanám. Það var öðru
vísi á mínum lærdómsdögum .Þá
fór ekki hver asni í háskóla —
ég var t.d. sá eini úr minni borg.
— Eg þori að veðja, að tigrisdýr
fyrir fynnast ekki hér um slóðir.
70 ára er í dag Marias Finn-
bogason, Framnesvegi 42A. Hann
verður í dag staddur að Faxa-
braut 41C, Keflavík.
í gær voru gefin saman í
hjónaband, ungfrú Aðalheiður
Guðmundsdóttir og Einar Frí-
mannsson, Melhaga 17.
í gær voru gefin saman á Akra
nesi ungfrú Eline Hammersand
Þorláksdóttir, Deildartúni 4,
Akranesi, og Yngvi Jóhannsson,
málari, Reykjavík. Sóknarprest-
urinn, séra Jón M. Guðjónsson,
vígði hjónin.
Nýlega hafa opinberað trúlof-
un sína, ungfrú Ásta Bjarnadótt-
ir, Bjarnarhöfn, Helgafellssveit,
Snæf. og Bjami Alexandersson,
Stakkhamri, Miklaholtshreppi,
Snæf.
Flugfélag íslands hf.: — Hrlmfaxl
er væntanlegur tll Keykjavíkur kl.
15:40 I dag frá Khöfn og Oslo. Flug-
vélin fer til Glasgow og Khafnar kl.
08.30 í fyrramálið.
Innanlandsfiug: 1 dag til Akureyrar
og Vestmannaeyja. A morgun t.il Alc-
ureyrar, * Hornafjarðar, Isafjarðar,
Siglufjarðar og Vestmannaeyja.
Loftleiðir h.f.: — Snorri Sturluson
er væntanlegur frá N.Y kl. 08:30, fer
til Glasgow og Amsterdam kl. 10:00. —
Hekla er væntanleg frá N.Y. kl. 07:00,
fer til Osló, Kaupmh .og Helsingfors
kl. 08:00.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.: —
Katla er væntanleg til Manchester í
dag. — Askja er i Rvík.
Hafskip h.f.: — Laxá fór 10 þ.m. frá
Napólí, áieiðis til Pyræus og Patras.
Jöklar h.f.: — Langjökull er í Len-
ingrad. — Vatnajökull er - á leið til
London.
Skipadeild SÍS: — Hvassafell er I
Ventspils. — Arnarfell er í Gdansk. —
Jökulfell fer á morgun frá Hull áleið-
is til Calais. — Dísarfell losar á Aust-
fjarðahöfnum. — Litlafell er í olíu-
flutningum i Faxaflóa. — Helgafell er
í Hostock. — Hamrafell er á leið til
Aruba.
Læknar fiarveiandi
(Staðgenglar í svigum)
Erlingur Þorste^nsson til áramóta —
(Guðmundur Eyjólfsson, Túng. 5).
Ezra Pétursson til 17. des. (Halldór
Arinbjarnar).
Haraldur Guðjónsson óákv. tíma Karl
Jónasson).
Sigúrður S. Magnússon óákv. tíma —
(Tryggvi Þorsteinsson).
Ung kona
með bam á 3ja ári óskar
eftir atvinnu allan eða hálf
an daginn. Tilb. sendist
Mbl. merkt. „Vinn — 1362“
fsskápur (Ate)
5 kúbííet til sölu. Uppl 1
síma 34076.
Pfaff-saumavél
til sölu, vélin er rafknúin,
notuð, nýyfirfarin. Uppl. í
síma 35440.
Skatthol
til sölu er danskt Mahogny
skatthol. Uppl. í síma 23886
Píanókennsla
Emilía Borg
Sími 13017 — Laufásvegj 5
1—2 herb. og eMhús
óskast til leigu strax. —
Sími 36129
Segulbandstæki
Til sölu er notuð Tele-
phunken-segulbandstæki í
mjög góðu lagi. 6—8 spólux
geta fylgt. Uppl. í sima
22618.
A T H U G I Ð
að borið saman við útbreiðslu
er langtum ódýrara að auglýsa
í Morgunbiaðinu en i öðrum
blöðum. —
Dœgurlög
Píanó-raddsetningar á dægurlögum, einnig hljóm-
sveitar raddsetningar.
ÁRNI fSLEIFSSON
Austurbrún 2 •— Sími 23109
Klæðskeri
vanur verkstjóm óskar eftir atvinnu eftir áramót.
Saumaskapur kemur ekki til greina. — Tilboð um
vinnutilhögun og kaupgreiðslu, óskast sent afgr.
Mbl. fyrir 20. þ.m. merkt: „Klæðskeri — 1208".
Tilboð óskast
í kranabifreið (Wrecker) er verður sýnd í Rauð-
arárporti, mánudaginn 14. þ.m. kl. 1—3.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu vorri, þriðjudag.
15. þ.m. kl. 11 f.h.
Sölunefnd varnarliðseigna
HALLÓ! HALLÓ!
PEYSUR
Kvenpeysur ull 100.00. Golftryejur frá 120.00. Barna-
peysur, uil frá 50.00 og bómull, langerma frá 25.00.
Ullar drengjaföt á 1—2 ára 125.00. Jólasokkar á öll
börnin. Vinnustakkar og herrasokkar á gjafverði.
Komið tímanlega með jólapantanimar.
' T:erfataverksmiðjan LILLA H.F.
Smásalan — Víðimel 63.
Mjólkur
og rjómaís
í stórum og smáum
umbúðum.
ísform — Rjómalspinnar
ÍSBORG
v Miklatorgi.