Morgunblaðið - 13.11.1960, Page 24
íþróttir
eru á bls. 22.
Reykjavíkurbréf
er á bls. 13.
261. tbl. — Sunnudagur 13. nóvember 1960
Jónas Haralz, ráðuneytisstjóri, flytur ræðu á funði LlÚ í gær.
Viff hliff hans fremst á myndinni er Jón Árnason, alþingis-
maður, fundarstjóri. (Ljósm.: Sveinn Þormóðsson)
Mýtt skipulag
lUiðbæjarins
kunngert í ársbyrjun ‘61
AÐ því er Morgunblaðið hefur
fregnað er nú kominn veruleg-
ur skriður á imdirbúning þess
að hægt verði að leggja fyrir
bæjaryfirvöldin nýjan skipu-
lagsuppdrátt að miðbæ Reykja-
víkur.
Þetta hafði komið fram á síð-
asta fundi bæjarráðs, á fimmtu-
IMúverandi gengi á að veita
eðlilega rekstrarafkomu
Jónas Haralz flutti ræðu á fundi L.Í.IJ.
JÓNAS HARALZ, ráðuneytisstjóri, flutti í gær ræðu á
fundi Landssambands íslenzkra útvegsmanna. Hann sagði
að hann væri sannfærður um að núverandi gengi gæti veitt
meginhluta útflutningsatvinnuveganna eðlilega rekstraraf-
komu. —
Hann sagði að sá árangur hefði náðst með efnahags-
ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar, sem hefði mátt vænta á
svo skömmum tíma, sem liðinn er frá því að þær komu
til framkvæmda. Benti hann m. a. á það, að gjaldeyris-
staðan hefði farið hatnandi, sérstaklega í októher sl., en í
þeim eina mánuði myndi hún samkvæmt hráðahirgðatölum
hafa batnað um alit að 100 milljónum króna.
Stöffugt verfflag aff nást
Ráðuneytistjórinn sagði, að
enn væri of snemmt að segja með
vissu, hver árangurinn yrði af
efnahagsráðstöfunum rikisstjórn
arinnar. Ráðstafanir sem þessar
þyrftu minnst tveggja ára tíma-
bil til að reyna sig. Hann sagði
þó, að sá árangur hefði þegar
náðst sem búizt hefði verið við,
þrátt fyrir þau áföll, sem þjóðar
búskapurinn hefði orðið fyrir,
svo sem verðfall á lýsi og fiski-
mjöli og aflabrest.
Árangurinn sagði hann, að
sýndi sig í því, að gjaldeyrisstað
an hefði farið batnandi, verðlags
þróunin hefði verið mjög í sam-
ræmi við það sem ráð hefði verið
fyrir gert, útlánum bankanna
hefði verið haldið í þeim skefj
um sem gert hefði verið ráð fyrir
og sparifjáraukning aukizt.
Jónas Haralz benti á það að í
í GREIN, sem Adolf Peter-
sen skrifaffi í Tímann ekki
alls fyrir löngu, lýsti hann
afstöðu kommúnista til
verkalýðsins á mjög raun-
sæan hátt, þegar hann sagði
aff kommúnistar litu á
verkamenn, sem „aflið, sem
á að lyfta slíkum mönnum
(þ. e. kommúnistum) í
valdastöffur þjóðfélagsins
og vera svo aff öðru leyti
gagnslaus tæki“.
Þá sagði greinarhöfund-
ur ennfremur, aff { Sósíal-
istafélagi Reykjavíkur réði
Ku-Klux-Klan-klíka.
Myndin hér til hliðar sýn-
ir, hvernig teiknari blaðs-
ins lítur á málið eftir leiff-
sögn Adolfs Petersens, sem
er öllum hnútum kunnur í
kommúnistaflokknum eft-
ir margra ára starf þar.
byrjun október hefði vísitalan
verið búin að hækka um 2 stig
þegar tekið væri tillit til fjöl-
skyldubóta og lækkun skatta. Bú
ast mætti við að heildarhækkun
in næmi um 4 stigum, þegar allt
væri komið fram. En eftir það,
sagði hann ætti verðlag að geta
haldizt stöðugt á næsta ári, svo
framarlega sem launahækkanir
koma ekki til.
Gengi miðaff viff þarfir útflutn-
flutningsins.
í ræðu sinni vék ráðuneytis-
stjórinn að því, hvemig ákvörð
unin hefði verið tekin um gengi
hinnar íslenzku krónu. Það hefði
verið ríkisstjómin sem auðvitað
hefði tekið ákvörðun um ákvörð
un gengisins, en sérfræðingar
hennar hefðu áður lagt öl.l gögn
þar að lútandi á borðið fyrir rík
isstjórnina.
Hann sagði að það sjónarmið
hefði vakað fyrir sérfræðingun
um, að reyna að finna það gengi,
sem gerði mögulegt fyrir megin
hluta útflutningsatvinnuveganna,
að standa ur.dir rekstrarkostnaði,
afskriftum á endurnýjunarverði
og til að eiga eitthvað fé afgangs
í áframhaldandi uppbyggingu.
Þetta þyrfti gengisskráningin að
veita útflutningsatvinnuvegun-
um. Lýsti Jónas Haralz því yfir,
að hann héldi enn að núverandi
gengi krónunnar gæti gefið út-
flutningsatvinnuvegunum þenn-
an grundvöll, þegar nauðsynlegar
lagfæringar hefðu orðið á rekstri
þeirra.
Hann lagði áherzlu á það, að
aðgerðir ríkisstjórnarinnar hefðu
verið samfelld heild, eins og
margir hlekkir í keðju, svo ekki
hefði verið hægt að taka neinn
hlekk út úr. Sérstaklega tók hann
fram, að vaxtahækkunin hefði
Framh. á bls. 23
daginn var. Prófessor Peter
Bredsdorff frá Kaupmannahöfn
sat þennan fund. Hann kom
hingað fyrir nokkrum dögum og
hafði skamma viðdvöl. Er hann
ráðunautur bæjaryfirvaldanna
varðandi ýmis skipulagsmál, m.
a. hinar nýju tillögur að skipu-
lagi Miðbæjarins. Fundinn sátu
einnig skipulagsstjóri ríkisins,
skipulagsstjóri Reykjavíkurbæj-
ar og fleiri embættismenn bæj-
arins og ríkis, sem fjalla um
þetta mál og önnur er Bredsdorff
hefur með höndum.
Skipulagsstjóri bæjarins, Aðál
steinn Richter, og Bredsdorff
skýrðu frá því á fundinum að
hinar nýju skipulagstillögur
miðbæjar Reykjavíkur myndu
liggja fyrir í byrjun næsta árs.
Þá hefur Bredsdorff tekizt á
hendur að annast undirbúning
fyrirhugaðar samkeppni um
skipulags nýs íbúðarhverfis suð
Frh. á bls. 23 ^
Gunnar Thoroddsen
Gunnar THoroddsen ræðir um
hagsmunamál
launþega
á Oðinsfundi í dag
MÁLFUNDAFÉLAGIÐ Óðinn
heldur fund í Sjálfstæðishúsinu
í dag og hefst hann kl. 2 e. h.
Gunnar Thoroddsen, fjármála-
ráðherra, mun verða frummæl
andi á fundinum, og mun hann
í sinni framsöguræðu taka til
meðferðar hin raunverulegu
kjara og hagsmunamál laun-
þega. Þessi mál eru hvað efst
á baugi nú um þessar mundir,
og þess vegna hefur stjórn Óðins
ákveðið að þessi fundur skyldi
ppinn öllum launþegum, sem
fylgja sjálfstæðisflokknum að
málum, þótt þeir séu ekki með.
limir félagsins.
Ekki er að efa að menn rnunu
fjölmenna á þennan fund og
hlýða á mál fjármálaráðherra,
sem mun að sjálfsögðu ræða um
efnahagsmálin eins og þau standa
í dag, og fjalla um þær leiðir,
sem vænlegar eru til þess að
hagur launþega verði sem bezt-
ur.
Á eftir ræðu fjármálaráðherra
verða svo frjálsar umræður.