Morgunblaðið - 17.11.1960, Side 10
MORGVNHLAÐIÐ
Fimmtudagur 17. nóv. 1960
Meðfylgjand! þrjár myndir sýna þrjú tilbrigði Madisons-dansins. Sporið lengst til vinstri er nefnt „Birdland". Næsta hreyf-
ing sporsins er allerfið, því þá er ekki nóg að rétta úr fótunum, heldur snerta fæturna með fingurgómunum. Á mið-
myndinni er sýnt spor, sem nefnist „körfubo!ti“. Hoppsporið á semustu myndinni er vel þekkt; hoppi ungfrúin fram, hopar
herrann samsvarandi aftur á bak.
Minnzt 125 ára
afmœlis Sr. Matthíasar
AKUREYRI í gær — Si. föstu.
dagskvöld efndi Matthíasarfélag-
ið á Akureyri til kirkjukvölds í
tilefni af því, að þann dag, 11.
nóvember, voru liðm 125 ár frá
fæðingu þjóðskáldsins Matthias-
ar Jochumssonar. Flutti Stein-
grímur J. Þorsteinsson prófessor
erindi um skáldið og kirkjukór-
inn söng nokkra sálma þess
Fyrr um daginn bauð stjórn
félagsins fréttamönnum að skoða
hús skáldsins SIGURHÆÐIR við
Eyrarlandsveg, en Matthíasarfé-
lagið hefir keypt aðra hæð þess
og vinnur nú að því að koma
upp minjasafni um skáldið þar.
Hafa því þegar áskotnazt ýmsir
góðir gripir úr búi skáldsins,
sem flestir eru gefnir af ættmgj-
um, þ. á m. skrifborð þess. Að
öðru leyti verður safnið búið
húsgögnum frá þeim tíma er sr.
Matthías bjó að Sigurhaðum.
Ekki er enn ráðið, hvenær safn-
Formaður félagsms, Marteinn
Sigurðsson, hefir látið ljosprenta
nokkur ljóðahandrit skáldsins.
sem eru í eigu Landsbókasafns-
ins, og þar verður komið upp
bókasafni með bókum úr eigu sr.
Matthíasar og óllum útgáfum á
verkum hans. Þar geta ýmsir
hlaupið undir bagga með því að
senda safninu bækur og muni,
er minna á skáldið.
1 Matthíasarfélaginu eru nú
milli 170 og 180 manns, flestir
á Akureyri en annars dreirðir
um allt land. Akureyrarbær hef
ur lagt 150 þús. kr. til kaupa a
húsinu og safngripum og rikis-
sjóður 65 þústmd auk þess sem
40 þús. kr. framlag mun vera
á fjárlögum næsta árs.
Enn er óráðið, hvaða aðiii
annast rekstur safnsins, hvort
það verður bærinn eða féiagið.
Annars var félagið stot'na'5 í
þeim eina tilgangi að flýta fyr-
ir stofi.'un Matthísarsafnsxm cð
Grænlandsferðir
KAUPMANNAHÖFN, 14. nóv.
(Reuter) — Tilkynnt hefur verið
í Danmörku, að bannaðar verði
í vetur allar siglingar með far-
þega milli Danmerkur og Græn-
lands. Hinsvegar verður haldið
uppi samgöngum milli landanna
með flutningaskipum og flugvél-
um.
Bann þetta er bein afleiðing
þess að tvö Grænlandsför, Hans
Hedtoft og Hanne S hafa farizt
í Grænlandsferðum á síðastliðn
um tveim árum og 113 manns lát
ið lífið.
Tvö læknis-
embætti laus
f SÍÐASTA Lögbirtingi er skýrt
frá því að slegið hafi verið upp
tveim héraðslæknisembættum. -
Þau verða bæði veitt frá 1. jan.
n.k. Er annað embættanna lækn-
isembættið á Siglufirði, en hitt
er Álafoss-héraðslæknisembætt-
ið. Umsóknarfrestur um embætti
þessí er til 7. des. n.k.
Ren.wali enn á ferft
- ■ n ’" " '
PATREKSFIRÐI, 14. nóv. — Um
helgina kom hingað þýzkur tog-
ari með sjúkan mann. Var sá
með botnlangabólgu. — Brezki
togarinn Bengali kom hingað á
föstudag og þurfti viðgerðar við.
Hann fór daginn eftir. Þetta er í
þriðja sinn á stuttum tíma, að
Bengali leitar hafnar hér.
— Trausti.
Heilsufar
í GÆR spurðist blaðið fyrir um
það í skrifstofu borgarlæknis,
hvort heilsufar bæjarbúa myndi
vera óvenju slæmt?
Aðstoðarlæknir borgarlæknis,
Björn L. Jónsson, kvað embæit-
inu ekki kunnugt um að fjar-
vistir í skólum bæjarins væru
umfram venju. Það ber
nokkuð á kvefi og hálsbólgu, sem
tekur bæði börn og fullorðna.
Brid^e á Akranesi
AKRANESI, 14. nóv. — Nýlega
var stofnaður Bridge-klúbbur
hér í bænum og er formaður hans
Gísli Stefánsson. Hóf klúbburinn
vetrarstarfið með firmakeppni og
eru þátttakendur 32. Sláturfélag
Suðurlands (Hannes Jónsson) er
nú efst í A-riðli, en Blikksmiðja
Akraness (Kjartan Guðmunds-
son) er efst í B-riðli. — Oddur.
ið verður opnað, en stjornin hef-
ir hug a að fá eignarhald á efriimá r. u/.ar telja, að síðan sé nlut
hæð hússjns áður, en sölutilboð '-ejki þess Jokið.
hafa ejtki þótt aðgengileg enn. | Job.
BUÐIN
vARAHLUTIR
Nýkomið
Startarar, startarahlutar, kveikjur,
kveikjuhlutir, biöndungar fyrir axlar
teg., benzíndælur, luktir, luktargler,
straumlokur og ýmsar aðrar
rafmagnsvörur
Afleiðing —
ekki orsök
AÞENU, 14. nóv. (Reuter) —
Willy Brandt hefur verið í 'opin.
berri heimsókn í Aþenu imdan-
farna þrjá daga. Áður en hann
hélt heimleiðis í dag, hélt hann
fund með fréttamönnum. Hann
sagði þar, að hann óttaðist að til
tíðinda drægi í Berlín með vor-
inu. Kvaðst Brandt reyndar ekki
vera neinn spámaður, en hann
væri engu að síður hræddur um
að eitthvað slæmt væri á döf-
inni í Berlínarmálinu.
— ★ —
Brandt lagði á það áherzlu, að
Berlínarvandamálið væri afleið
ing hins erfiða ástands sem nú
ríkti í alþjóðamálum en ekki or
sök þess.
Hann sagði, að Vesturveldin
mættu undir engum kringum-
stæðum láta af kröfum sínum
varðandi Vestur-Berlín, meðan
Þýzkaland væri tvískipt. Hann
sagðist enga trú hafa á þvl, að
einhliða tilslökun af þeirra hálfu
í máli þessu gæti á nokkurn hátt
gert friðvænlegra í heiminum.
KauDmannasam-
I
tökin 10 ára
í SÍÐASTA HEFTI „Verzlunar-
tíðinda“ er þess minnzt að 10 ár
eru nú liðin síðan heildarsam-
tök kaupmanna voru stofnuð. í
blaðið skrifar Jón Helgason
grein: „Hvers vegna stofnuðu
kaupmenn eigin samtök?“ þar
sem rakinn er aðdragandi að
stofnun Kaupmannasamtaka ís-
lands. Einnig skrifar formaður
Kaupmannasamtaka íslands, Páll
Sæmundsson grein um samtökin,
sem hann nefnir „Áfanga náð“.
Þá eru í ritinu rakin saga ým-
issa sérgreinafélaga innan sam-
takanna, en sérgreinafélögin eru
nú 15 talsins, þar af fjögur ut-
an Reykjavíkur, auk einstakl-
inga. Má segja að í samtökunum
sé þorri kaupmana í landinu.
Margar myndir eru í blaðinu
af stjórnum hinna einstöku fé-
laga. Þá er og myndskreytt frá-
sögn af starfsemi ölgerðai Egils
Skallagrímssonar h.f., grein efiir
Höskuld Ólafsson, sparisjóðsst.,
„Stofnun verzlunarbanka" o. fl.
MADISON var fundinn
upp af táningunum í Balti
more í Bandaríkjunum.
Það var hin fjöruga æska
í Madisonstræti sömu
borgar, sem átti hugmynd
ina að dansinum, og gaf
honum heiti götunnar:
Madison.
Upprunalega skópst dans-
inn upp úr vandræðum.
Rokk og ról var orðið gamal-
dags og úr sér gerigið og ekk-
ert gaman að dansa það leng-
ur. Nú voru góð ráð dýr. Ung-
lingarnir vildu dansa eftir
músikinni sem djasspíanó-
leikarinn Ray Bryant lék
ásamt hljómsveit sinni.
Og þá var að finna upp ein-
hverjar 4/4 takts hreyfingar í
samræmi við hana. Árangur-
inn varð Madison-dansinn.
Madison-dansinn er dansað-
ur á tvennan hátt, bæði sem
raðdans, þar sem dansendur
standa í tveimur röðum, eða
paradans, og snúa þá pörin sér
annaðhvort hvort að öðru eða
hvort frá öðru. Hugmyndar-
flugið fær byr undir báða
vængi, dansinum eru engin
takmörk sett. Það hefur og
komið á daginn að ný tilbrigði
skapast með hverri mínútu
sem líður. Spoiin eru eðiileg?
skírð einhverjum heitum og
síðustu sporin frá Baltimore
eru nefnd „Tvöfaldur kross“
og „Velferðargangan".
Skömmu eftir að dansinn
varð til, var hafizt handa um
að kynna hann heiminum og
gekk þar í broddi fylkingar
Eddie Morrison frá Baltimore
sem þekktur er sem hljóm-
plötukynnir. Dansarinn
Buddy Beane var sá fyrsti,
sem sýndi hann opinberlega
og áður en langt um leið var
Madisondansinn vel þekktur
í Washington og þaðan
breiddist hann óðfluga um
öll Bandaríkin og til annarra
álfa.
Madison er nú viðurkennd-
ur sem sérstakur dans í öllum
Bandaríkjum. Allir danskenn
arar í Bandaríkjunum, sem
kenna samkvæmisdansa,
kenna Madison, og hann er
dansaður á öllum skemmti-
stöðum þar í landi. Hér á Is-
landi er Madison unglingun-
um heldur enginn leyndar-
dómur, því hann er kenndur
í flestum dansskólum í Reykja
vík, og reykvísk æska dans-
ar hann af engu minna fjöri
en jafnaldrar þeirra í Balti- Raðdans. Nauðsynlegt er að stappa með fótunum á réttu
more. augnabliki og klappa um leið höndunum saman.
m a* m ® Pí •
tl £. M / H Æjk jgLr m ift| ■ p
J 1% W! 11 CB m CJP m%L ’i iP ' L'.S wej v. '.á< fcti-í, É