Morgunblaðið - 17.11.1960, Síða 22

Morgunblaðið - 17.11.1960, Síða 22
Fimmfudagur 17. nov. 1960 / MORCTfNVLAÐIh Betur má et... Sicasti leikurinn vib Tékka líktist fjölhragðaglímu TÉKKARNIR voru kvadd- ir í fyrrakvöld. Kveðju- leikurinn var eins konar aukaleikur og mætti þeim tilraunalandslið. Lítið var á þessum aukaleik að græða, helztu einkenni hans voru slagsmál og ringulreið, leikur sem dómarinn m i s s t i alla sjjórn á. ★ Yfirfullt hús Húsið var þéttskipað áhorf- endum — svo þéttskipað að án efa hafa þar margir verið sem lítið eða ekkert sáu. En fólkið sem sá, fékk að sjá mikinn „has- arleik“. ★ Forysta Tékka Tékkarnir skoruðu fyrst og höfðu alltaf forystu í mörkum utan einu sinni að íslenzka liðinu tókst að jafna. Það var í fyrri hálfleik og varð staðan 4:4. f hálfleik höfðu Tékkarnir 4 mörk yfir, 10 mörk gegn 6. Síðari hálflelkurinn var öllu líkari fjölbragðaglimu en góðum handknattleik. Dómar- inn missti tökin á leiknum og Framh. á bls. 19 TKKKNESKU handknattleiksheimsókninni er lok- ið. Við höfum fengið góða „tilsögn“ og heimsókn- in hefur mjög eflt handknattleiksíþróttina og ver- ið henni góð auglýsing tneðal almennings. Tékkarnir fara héðan tncð 4 sigra, jafntefli og eitt tap í „fullgilduu leikjunum, en auk þess biðu þeir lœgri hlut fyrir Val í hraðkeppninni. Tékkncska liðið frá Gottwáldov hreppti meist- aratitil Tékka í handknattleik í vor. En í haust, vegnaði liðinu ekki eins vel. Hafa verið leiknar lí umferðir í þéssari képpni sem lýkur 1961 og stendur Gottwaldov í 4 sœli méð 8 stigum minna en þeir er forystu hafa, en það er Dukla frá Prag — liðið sem verið hefur að sigra Dönsk lið (sum með yfirburðum). Þáð er því Ijóst að Gottwaldov er ekki það sterkasta sem Tékkar eiga í greininni, enda hafa veikleikar liðsins vel komið í Ijós hér. Isl. handknattleiksmenn mega því ekki ofmetn- ast eða slá af í œfingum á þeirri forsendu að þeir hafi staðið þessu liði á sporði. Hins vegar hefur liðið kennt okkur margt. Mest áberandi mismunur í leik okkar manna og Gottwaldov-manna er lwe Iítið og lélegt „línu- spil“ okkar manna er. Tékkarnir kenndu okkur einnig örugga knattmeðferð og þeír höfðu betri og jákvœðari leiktakmörk í spili sínu, þó auðveld- lega megi gera betur en þeir í þeim efnum. Heimsóknin sýnir okkur áð. við verðum að leggja hart áð okkur við œfingar ef vonir eiga að rœtast um gott gengi og góðan hlut í úrslita- _ keppni fieimsmeistarakeppninnar. __A St 2 LESBÓK BARNANNA LESBÓK BARNANNA 3 þraeði til þess að búa til einn þráð, sem er jafn gildur og mannshár. Köngulóin notar þraeð- ina, sem hún spinnur, til margs annars en að búa til vefinn. Hún gerir úr þeim poka fyrir eggin sín og fylgsni fyrir litlu ung- ana. Ef hún fer á veiðar, þegar hún er ekki svöng, vefur hún bráðina inn i þráðanet og geymir sér hana þar til síðar. í>á læt- ur köngulóin næstum allt af þráð vera að baki sér, þar sem hún er á ferð. >að er eins konar örygg- islína ,sem stöðvar hana í fallinu, ef hún skyldi hrapa, þegar hún ferðast um í háum gróðri. í Frakklandi var einu sinni komið á fót verk- smiðju til að vinna úr köngulóarþráðum. >eir voru notaðir til að gera úr þeim sokka og hanzka. Til að fá nóg hráefni, varð að koma upp gríðar- stóru köngulóabúi. En það var erfitt að fást við köngulærnar og verk- smiðjan varð að hætta. >ær eta hver aðra, þegar færi gefst. >ess vegna urðu þær að hafa einka- herbergi, og þangað varð að færa þeim matinn. Auk þess þurftu þær tals- vert svæði til að hreyfa sig á og spinna vefi sína. Á okkar dögum er þó notað töluvert af köngu- lóarþráðum í sumum iðn- greinum, eins og t.d. við gerð ýmissa sjóntækja. En þótt margt sé merki legt um köngulóna að segja, tekur þó listfengi KÓPUR var lítill og lág- fættur hvolpur. Helzta skemmtun hans var að fara í gönguferðir um bæinn. En hann gat ekki farið einn og honum fannst hann of sjaldan fá að fara út með fólkinu á heimilinu. >ess vegna tók Kópur það til bragðs að slást í fylgd með póst- inum, þegar hann kom með bréfin einn daginn. >etta var langt og skemmtilegt ferðalag, og Kópur var í sjöunda himni. Loks hafði póst- urinn lokið við að skila öllum bréfunum, og þá fór hann inn í pósthús- ið til að borða þar há- degisverð. Kópur tók allt í einu eftir, að hann var einn og kominn langt í burtu frá húsinu sínu. hennar við að vefa netið sitt öllu öðru fram. Hefur þú nokkru sinni séð fallegri og fíngerðari „handavinnu", en köngu lóarvef, sem er heill og óskemmdur? Hann var líka orðinn svangur. En Kópur var samt ekki ráðalaus .Hann sá, hvar stóð leigubíll og hurðin hafði verið opnuð, af því að bílstjórinn var að viðra bílinn. Kópur hoppaði inn og settist í aftursætið. >egar bílstjór inn ætlaði að láta hann út, mótmælti hann há- stöfum og fitjaði upp á trýnið. Bílstjórinn sá nafn og heimilisfang Kóps. >að var grafið á plötu, og fest við ólina, sem hann hafði um háls- inn. Bílstjórinn ákvað þá að aka hvolpnum heim. Konan, sem átti Kóp, var farin að undrast um hann, og það glaðnaði heldur yfir henni, þegar hún sá hann hoppa út úr bílnum. Hún bauðst til að greiða bílstjóranum akstursgjaldið, en hann neitaði að taka við því. Hann sagði, að Kópur væri svo óvenjulegur farþegi, að sig langaði til að gefa honum fría ferð ÆSIR og ÁSATRÚ 30. >etta var hræðileg ijón. >ór horfði ævareið ur á orminn, sem braust um og spúði eitri á hann. Jötuninn var nær dauða en lífi af hræðslu. 'Ura leið og >ór lyfti hamr- inum til að drepa Mið- garðsorminn, skar Hym- ir færið sundur, svo að ormurinn sökk aftur í djúpið. >ór kastaði hamr inum eftir honum, en ormurinn slapp samt lif- andi. >ór snerist þá á dæli og löðrungaði jöt- uninn svo, að hann enda sentist út úr bátnum. 29. Hymir jötunn vildi ekki róa mjög langt út. Hann var hræddur við Miðgarðsorminn. En >ór réri og réri og kastaði ekki út færinu, fyrr en þeir voru komnir langt frá landi. Miðgarðsormurinn beit á. >ór dró inn, en svo fast kippti ormurinn i, að hendur >órs skullu niður á borðstokkinn og fæturnir gengu gegn um bátinn, svo hann stóð á hafsbotninum, á meðan hann dró illyrmið inn. Skrítlur —Hvernig líkar þér í skólanum, Jónsi minn? — Nokkuð vel, en ég held að kennarinn viti ekki mikið. — Af hverju heldur þú það? — Hann spyr okkur krakkana að öllu. Veiðimaðurinn: „Á hvað eruð þér að glápa? Vitið þér kannski ekki, hvað veiðistöng er?“ Áhorfandinn: „Já, það er prik með maðk á öðr- um endanum, en letingja á hinum“. ★ Móðirin: „Baðstu mann inn fyrirgefningar, þegar þú steigst ofan á fótinn á honum?“ Sigga: „Já, mamma, og hann gaf mér 10 aura fyr- ir að vera svona kurteis“. Móðirin: „Hvað gerð- irðu þá?“ Sigga: Steig ofan á hinn fótinn á honum og bað fyrirgefningar en fékk ekkert?“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.