Morgunblaðið - 17.11.1960, Síða 24
íþróttir
eru á bls. 22.
JMtrgiuifrlafcifc
264. tbl. — Fimmtudagur 17. nóvember 1960
Frá Alþingi
Sjá blaðsíðu 8.
Alvarlegt slys á
Hafn arfjarðarvegi
UM kl. átta í gærkvöldi varð
J>að slys á vegamótum Hafnar
fjarðarvegar og Bústaðaveg
að fullorðinn maður á skelli-
nöðru varð fyrir bifreið af
Opelgerð, er kom akandi aust
an Bústaðaveg. Maðurinn var
á leið suður Hafnarfjarðar-
veg, að því er næst verður
komizt.
Stjórnín oskar
útvorpsum-
ræðna um land
helgismúlið
Á F U N D I sameinaðs
þings í gær skýrði Frið-
jón Skarphéðinsson for-
seti sam. þings frá því,
að ríkisstjórnin hefði
óskað eftir útvarpsum-
ræðum um landhelgis-
málið. Ekki er alveg
Ijóst hvernær þær um-
ræður muni fara fram,
en það verður að öllum
líkindum alveg á næst-
unni. -
Sigurður Bjarna-
son kominn heim
SIGURÐUR Bjamason, ritstjóri
og kona hans komu heim frá
New York í gærmorgun með Loft
leiðaflugvél. Hefur Sigurður
setið á þingi Sameinuðu þjóð-
anna síðan það kom saman hinn
20. sept. sl.
Maðurinn á skellinöðrinni
meiddist mjög. Hann var
þegar fluttir á sjúkrahús. Skil
ríki fundust ekki í fórum hans
og vann rannsóknarlögreglan
að því í gærkvöldi að kanna
hver maðurinn væri m. a. með
því að leita eftir skrásetning-
armerki skellinöðrunnar og
hver eigandi hennar væri.
Samkvæmt upplýsingum
sjúkrahússins var maðurinn
lífshættulega slasaður, hafði
fengið mikið höfuðhögg.
Sá er bifreiðinni ók kveðst
ekki hafa orðið skellinöðrunn
ar var fyrr en í þann mund
er slysið varð.
Rannsóknarlögreglan biður
alla þá er upplýsingar kunna
að geta gefið um slysið að
gefa sig fram.
«r
Stóðum í stað meðan ná-
grannaþjóðir sóttu tram
Tveir teknir
ölvaðir
LÖGREGLAN hafði í gærkvöldi
hendur í hári á tveimur ölvuðum
ökumönnum. Annar hafði lent í
árekstri og reyndi síðan að kom-
ast undan, en leigubifreið veitti
honum eftirför þar til hann náð-
ist. Hinn náðist er lögreglan var
að umferðastörfum.
Stjórn Fulltrúaráðs Sjálfstœðisfélaganna
endurkjörin í gœrkvöldi
Á AÐALFUNDI Fulltrúaráðs
Sjálfstæðisfélaganna í Reykja-
vík í gærkvöldi flutti próf. Ólaf-
ur Björnsson ræðu um horfurnar
í efnahagsmálum. — Höskuldur
Ólafsson sparisjóðsstjóri, var kos
inn fundarstjóri. Minntist hann
látinna félaga á árinu, þeirra
Halldórs Skaptasonar bókara,
Jóns Hallvarðssonar verkamanns,
Núma Jónssonar rennismiðs og
Karls O. Bjarnasonar vara-
slökkviliðsstjóra. Risu fiundar-
menn úr sætum í virðingarskyni
við hina látnu.
Birgir Kjaran formaður Full-
trúaráðsins, flutti skýrslu stjórn-
ar og færði Baldvin Tryggva-
syni, sem látið hefir af starfi sem
framkvæmdastjóri Fulltrúaráðs-
ins, þakkir fyrir mikil og vel-
unnin störf. — í stjórn Fulltrúa-
ráðsins voru endurkjörin þau
Birgir Kjaran, Bjarni Benedikts-
son og Gróa Pétursdóttir og til
vara Guðm. Benediktsson, Jó-
hann Hafstein og Ragnar Lárus-
son. Auk þess eiga sæti í stjórn-
inni formenn allra Sjálfstæðis-
félaganna í Reykjavík.
Ólafur Björnsson drap á það í
ræðu sinni, að samkv. skýrslu
ASÍ, sem birt hefði verið sem
fylgiskjal með frumvarpi Einars
Olgeirssonar um áætlunarráð rík
isins, hefði kaupmáttur launa
hérlendis ekkert vaxið frá árinu
1945, en á sama tíma hefði kaup-
máttur launa t.d. í Danmörku
allt að því tvöfaldazt, og sömu
sögu væri að segja frá flestum
nágrannalöndunum. Sýndi þetta
glöggt hver nauðsyn hefði verið
að breyta um stefnu í efnahags-
málunum.
Ræðumaður gat um það, að frá
febrúarlokum til okt.loka í ár,
hefði gjaldeyrisstaðan batnað um
hvorki meira né minna en 211
millj. króna, en til samanburðar
mætti geta þess, að frá sama
tíma í fyrra hefði hún versnað
um 240,6 millj. kr. Bæri þetta
glöggt vitni um árangur viðreisn
arinnar, sem í öllum meginatrið-
um hefði reynzt nákvæmlega
eins og ráð var fyrir gert. Taldi
Ólafur Björnsson að bjart væri
framundan ef hinar nýju efna-
hagsráðstafanir fengju að standa
og árangur þeirra að koma í ljós.
Að lokinni ræðu frummælanda
tóku til máls Ingólfur Muller,
Kjartan Ólafsson og Hannes Þor-
steinsson.
HÉR gefur að líta Tröllafoss,
þar sem hann siglir í áttina
að höfninni í Vestmannaeyj-
um í 9 vindstigum á austan og
brimi. Hér reynir á nákvæmni
lóðsins að koma þessu stóra
skipi að bryggju í svo miklu
roki.
Tröllafoss er nú í Eyjum að
lesta 1750 lestir af mjöli og er
það annar stórfarmurinn af
mjöli, sem fer frá Vestmanna-
eyjum á skömmum tíma. Þess
má geta að þessi mjöllestun-
arferð er síðasta ferð skip-
.stjórans, Egils Þorgilssonar. -
Myndina tók Sigurg. Jónsson.
-<$>-
Gúmbuxurnar
björguðu drengnum
Hvitu börnin skrópa
/ mótmælaskyni
NEW ORLEANS í Louisiana,
16. nóv. (NTB). — Mótmæla-
aðgerðir eru hafnar í New
Orleans vegna þess, að fjög-
ur svertingjabörn fengu að-
gang að einum barnaskóla
hvítra manna í borginni.
Svertingjabörnin komu fyrst
til skólans á mánudaginn í
fylgd með nokkrum lögreglu-
þjónum. Var strax ljóst, að
hvítu börnin í skólanum vildu
ekki sætta sig við þetta ný-
mæli, púuðu þau i einum hóp
á svertingjabörnin og heyrð-
ust þar margar haturs og háðs
glósur.
f dag mættu aðeins fjórir
nemendur í skóla þessum,
svertingjabörnin. Hin hvítu
börn hafa ákveðið með til-
styrk foreldra sinna, að mæta
ekki í kennslustundum fram-
ar, þar til svertingjarnir hafa
verið reknir á dyr.
Jafnframt þessu söfnuðust
um 1000 hvít börn og ungling-
ar saman í nágrenni skóla-
hússins og báru kröfuspjöld
þar sem fordæmd var sam-
skólaganga svartra og hvítra.
Lögreglulið dreifði hóp þess-
um með vatnsbunum.
ABalfundur
L.Í.Ú.
AÐALFUNDI Landssambands út
vegsmanna var fram haldið í gær
kvöldi. Lögð voru fram nefndar-
álit frá afurðasölunefnd og mælti
Sverrir Júlíusson formaður sam-
bandsins fyrir þeim, en hann er
jafnframt formaður nefndarinn-
ar.
Umræður um nefndarálitin
stóðu í gærdag og var fundi
haldið áfram kl. 21.00 í gær-
kvöldi.
AKUREYRI, 16. nóv. — Maður-
ii'.n, sem bjargaði litla drengnum
frá drukknun á Akureyri sl. laug
ardag, eins og sagt var frá í
blaðinu í gær, heitir Birkir
Skarphéðinsson, og er starfsmað-
ur hjá Efnagerð Akureyrar.
Fréttamaður blaðsins á Akur-
eyri átti stutt símtal við Birki
af þessu tilefni. Kvaðst hann
hafa verið að aka með sjónum
og allt í einu séð hvar lítill
drengur flaut í vatnsborðinu, um
hálfan annan metra frá landi.
Hann flaut á grúfu og gaf frá
sér hljóð, þegar andlitið kom
upp úr vatnsskorpunni. Þrír fé-
lagar hans, á svipuðum aldri,
um þriggja ara gamlir, stóðu í
fjörunni.
Kvöldvaka
Stefnis
HAFNARFIRÐI Fyrsta kvöld
vaka Stefnis, félags ungra
Sjálfstæðismanna, verður í
Sjálfstæðishúsinu í kvöld og
hefst kl. 8,30. —- Spilað verð-
ur Bingó og fjöldi verðlauna
veitt.
Sýning á björgufi-
artækjum
í FYRRADAG héldu Vélar og
Skip hf. sýningu á björgunar-
tækjum í Þj óðleikhúskj allaran-
voru þar meðal annars sýnd
neyðarsenditæki „Lifeline , sem
eru ný á markaðnum og „Dun
lop“ gúmbjörgunarbátar.
þessari sýningu verður
sagt í blaðinu síðar.
Frá
nánar
ftlý þingskjol
EFTIRTALIN þingskjöl hafa ver
ið lögð fram á Alþingi síðustu
daga: Frv. um landsútsvör, flm.:
Karl Guðjónsson og Hannibal
Valdimarsson. Þá hefur Unnar
Stefánsson lagt fram tvær þál-
till.; um eftirlit með fyrirtækja-
samtökum og um flugbraut í
Vestmannaeyjum.
Drengurinn, sem heitir Hörður
Guðmundsson, var klæddui gúm
buxum, svokölluðum . „polla-
buxum“, og hafði komizt nægi-
legt loft í þær til að hann flaut.
Birkir óð út í og náði drengn-
um. Er hann kom með hann í
land, stóðu hinir snáðarnir þar
og voru farnir að skæla. Systir
Harðar kom að og Birkir afhenti
henni drenginn. Hugsaði hann
ekki frekar um það, fyrr en
fréttamaðurinn hringdi.
—Mag.
Ekki hæ<ít að
slæða vegna
veðurs
MBL. sneri sér í gærkvöldi
til forstjóra Landhelgisgæzl
unnar og spurðist fyrir um
hvernig gengi með öflun
sannana gegn brezka tog-
aranum William Wilber-
force, sem grunur leikur á
að höggvið hafi af sér vörp-
una meira en 10 sjómílur
innan fiskveiðitakmarkanna
við Ingólfshöfða.
Pétu Sigurðsson tjáði blað
inu að beðið hefði verið eft-
ir því að slæða á þessum
slóðum um hálfan annan
sólarhring, en tækifæri
hefði ekki gefizt vegna veð-
urs. Ekki er unnt að sanna
landhelgisbrot á togarann
með öðrum hætti, þar sem
hann var ekki staðinn að
veiðum þar sem hans var
fyrst vart.