Morgunblaðið - 01.12.1960, Page 2
2
MORCTHVPT ifílÐ
Fimmfudagw I. des. 1960
Mikíl bók tekin saman um
œvi listamannsins Muggs
BÓKAÚTGÁFA Helgafells
hefur nú gefið út mikla og
merkilega bók um listmálar-
ann Guðmund Thorsteinsson,
sem tók sér nafnið Muggur.
í gærdag hlýddu blaðamenn á
Björn Th. Björnsson listfræðing,
sem tekið hefur saman bókina,
segja stuttlega frá ýmsu úr ævi
þessa sérstæð. manns. Bókin er
að uppistöðu til ævisaga Muggs,
en hann var sonur Péturs Thorst
einssonar, sem á sínum tíma rak
eina umfangsmestu útgeró hér á
landi, vestur í Bíldudal. Það
kom strax í ljós mikil listhneigð
í fari hans og leið hans liggur
inn í hina konunglegu lista
akademíu í Kaupmannahöfn.
Líf skáldsins
Um Mugg komst Björn m. a.
svo að orði, að honum hafi verið
áskapað hið áhyggjulausa lífs-
viðhorf bóhemsins og honum
ekki brugðið um neina tegund
stöðuglyndis, meðan hann lifði.
Hann hafði verið á sífelldum
ferðalögum um allan heim, og
þótt þá geisaði heimsstyrjöldin
hin fyrri, með öllum þeim hætt-
um á heimshöfunum, sem af
henni stafaði, þá fór hann allra
Túnfiskveiðar
Frakka
Á TÍMABILINU frá nóvem-
ber 1959 til maí 1960 fékk
franski túnfiskveiðiflotinn við
Vestur-Afríku metafla: 17.500
tonn, en á veiðitímanum ári
áður var aflinn 16.000 tonn.
með könn-
unarflugið
Kaupmannahöfn, 30. nóv.
Einkaskeyti til Mbl.
MIKIÐ er rætt tun ískönnunar-
flugið, við Grænland. Segir
Grænlandspósturinn, að þessi
þjónusta hafi verið mjög slæleg
og útbúnaðurinn, sem notaður
hafi verið, gamall og úreltur.
Viðvaranir hafi oft á tíðum
borizt mjög seint frá ískönnunar
þjónustunni og þvi verið vill-
andi. — Danski verzlunarmála-
ráðherrann tilkynnti í gær, að
Danir hefðu sjálfir enga flugvél
haft til að leysa þetta verkefni
af hendi, þegar vélskipið Hanne
fórst í vor. önnur flugvélin hefði
ekki getað farið á loft í Syðri
Straumfirði vegna lélegra veður
skilyrða, en hin flugvélin hefði
verið í vistaflutningum. — Þessi
ummæli voru tilefnið til skrifa
Grænlandspóstsins. — Informa-
tion segir, að ískönnunarflugvél
ar séu oft ekki við hendina, þegar
þeirra sé þörf. Vart sé hægt að
vísa frá kröfu um rannsókn máls-
ins, hún sé nú sett fram á þingi.
— Það fer því vart milli mála,
að ýmsir eru óánægðir með
framkvæmd könnunarflugsins,
eins og hún hefur verið.
J/AM/ÍA* 1 / SVSOhnutor H Snjótoma 7 Skúrir 9 06/ fC Þrumur XutíuM H, Hml I 4///,um*tHiUM lélagl |
1 ■■ " * TTööö 7o/o , /o/o j IO/&
Muggur og Kristín Jónsdóttir
listmálari, er þau höfðu opnað
málverkasýningu í Reykjavík.
ferða sinna: til Þýzkalands, Nor-
egs og Ameríku.
Fyrsta sýningin
Árið 1915 kom hann hingað
heim og hélt hann þá hina einu
sýningu á myndum sínum. Sýndi
þá með honum Kristín Jónsdótt-
ir listmálari. Gat Björn Th.
Björnsson þess, að þessi stór-
brotna listakona hefði verið
helzti heimildarmaður sinn, þá t
er hann vann að bókinni. Myndi
enginn íslendingur hafa þekkt
Mugg eins vc' og Kristín.
Afkastamikill
Björn kvað óhemju ósköp
liggja eftir Mugg af myndum.
Myndlistarferill hans stóð aðeins
10—11 ár, enda var hann aðeins
32 ára gamall, er hann lézt á
leið hingað heim sunnan frá
Miðjarðarhafsströnd Frakklands,
heltekinn af berklum. Þar syðra
málaði hann síðustu myndir sín-
ar, og voru þær einkum trúar-
Hámerar
til Íta'íu
Patreksfirði, 30. okt.
JÖKULFELL kom til Patreks-
fjarðar í gær til að lesta hámerar
og fiskflök, en komst ekki upp
að bryggju vegma veðurs. í dag j
lægði og er nú unnið að því að
skipa út fiskflökum og um 200
hámerum, en á þriðja hundrað
hámerar hafa veiðzt sér að þessu
sinni.
Hámerunum verður sennilega
umskipað í Hollandi eða Belgíu,
en áfangastaður þeirra er ítaliu.
Aflabrögð hafa annars verið lé-
leg, þó róðrar hafi yfirleitt verið
stundaðir. Sama er að segja um
togarana. B/v. Ólafur Jóhann-
esson hóf aftur veiðar í gær, en
hann er nýkominn frá Þýzka-
landi, þar sem hann seldi 80
smálestir fyrir 61,200 mörk. B/v.
Gylfi er í veiðiferð. — Trausti.
legs efnis. En meðan hann var
upp á sitt bezta, málaði hann
meðal annars margar af sínum
beztu þjóðsagnamyndum, teikn-
ingarnar í Þulur móðursystur
sinnar Theódóru Thoroddsen
og myndakverið Negrastrákarn-
ir. Altaristöíluna, sem er í Bessa
staðakirkju, málaði hann suður
á ítalíu.
Muggur var meðal leikenda
í kvikmyndinni Borgarættin.
Síðar er hann kom hingað heim,
vegna fjárhagsörðugleika, stofn-
aði hann myndlistarskóla. Hann
tók mikinn þátt í skemmtanalífi
bæjarbúa, og margir fulltíða
Reykvíkingar minnast barna-
skemmtanna sem hann hélt.
Veikindi
Ekki mun Muggur hafa gengið
heill til skógar á þessum árum,
því þá gera berklarnir fyrst vart
við sig. Á Vífilsstaðarhæli saum-
aði hann rúmliggjandi eitt mesta
listaverk sitt, myndina Synda-
fallið, sem Listasafn ríkisins á.
Hann komst á fætur og suður
um lönd, og var á Miðjarðar-
hafsströnd Frakklands, er hann
varð að fara heim helsjúkur af
berklum, sem fyrr segir.
Lík hans var flutt hingað
heim með Gullfossi og var sá
flutningur nokkuð sögulegur,
vegna þess að enginn farþeganna
á skipinu mátti vit- að lík væri
með skipinu.
Mikill aðdáandi hans úti í Dan
mörku, próf. Rysberg, gaf hing-
að heim fyrir allmörgum árum
merkilegt safn mynda eftir
Mugg, en það var einnig þessi
danski menntamaður, sem lét
gera legsteininn á gröf hans hér
í kirkjugarðinum í Suðurgötu,
og var það listakonan Júlíana
Sveinsdóttir sem hann gerði.
200 blaðsíðna bók
Björn gat þess, að er hann var
að vinna að bókinni, hafi hann
m. a. unnið úr um 400 póstkort-
um, sém Muggur sendi ýmsum
vinum og kunningjum. Af póst-
stimplum má nærri því rekja
slóð Muggs á hverjum tíma.
Hann skrifaði mjög sjaldan
sendibréf.
Bókin um Mugg er í allstóru
broti, nærri 200 blaðsíður. í
henni eru prentaðar 32 litmyndir
og að auki 60 myndir í svörtu
og hvítu. Þar er og að finna
myndir af tréskurði hans, stein-
prenti, tréþrykki, bókaskreyting
ar, myndir af hvers konar út-
skurði o. fl. Þá eru í bókinni 35
myndir er snerta ævi listamans-
ins.
í GÆR var snjókoma norður
af Vestfjörðum og búizt við
að hún mundi ná suður Vest-
firði og Norðurland í dag.
Um Bretlandseyjar og Norð
ursjó er hlýtt, og þokuloft
víða með úða og rigningu.
— 1 Osló hlóð niður snjó um
hádegið en gert ráð fyrir að
hlýnaði með kvöldinu.
Ný lægð var yfir Lawrence
flóa og snjóaði í Labrador. í
dag mun hún verða komin út
yfir hafið suður af Græn-
landi á leið austur á bóginn.
Veðurspáin kl. 10 í gærkv.:
SV-land til Breiðafjarðar
og miðin: NA kaldi og létt-
skýjað í nótt, allhvass norð-
an og skýjað á morgun.
Vestfirðir og Vestfjarðamið:
Allhvass og síðan hvass, snjó-
koma norðan til.
Norðurland, NA-land og
miðin: Vaxandi NA átt og
slydda í nótt, hvassviðri eða
stormur og snjókoma á morg-
un.
Austfirðir og miðin: NA
hvassviðri og rigning í nótt
en norðan stormur og snjó-
koma norðan til á morgun.
SA-land og miðin: NA
stinningskaldi, síðan allhvass
norðan, bjart veður.
Hrakningará
Fjarðarheiði
SÍÐASTL. þriðjudagskvöld
lentu fimm menn í áætlun-
arbíl í hrakningum á Fjarð-
ar heiði. Var um tíma óttazt
um þá og leitarflokkar gerðir
út bæði frá Egilsstöðum og
Seyðisfirði. — Mbl. hafði í
gær samband við bifreiða-
stjórann, Þorbjörn Arnodds-
son á Egilsstöðum, og sagðist
honum svo frá:
— Við lögðum af stað frá
Seyðisfirði til Egilsstaða kl. tæp
lega tvö á þriðjudag. Þá var
ágætis veður á Seyðisfirði. Við
vorum komin norður fyrir Mið-
heiði rétt eftir kl. 3, en þar
brotnaði öxull bifreiðarinnar. —
Skömmu áður höfðum við lent
í djúpum skafli, sem okkur tókst
þó að komast í gegnum, eftir
nokkurt þóf. Þá var komin iðu-
laus hrið og 13 vindstig, svobíll-
inn nötraði allur. Það var ekk-
eert annað að gera, eftir að
öxullinn brotnaði, en að reyna
Hver ert þú sjálfur"
rr
KOMIN ER ÚT bókin „Hver ert
þú sjálfur? eftir P iuI Brunton.
Er þetta rit framlag til skýring-
Peronistar
í orrustu
BUENOS AIRES, 30. nóv. —
Stuðningsmenn Perons hafa látið
töluvert á sér bera að undan-
förnu. í dag áttu þeir í fimm
stunda orrustu við stjórnarher-
inn um Rosario-virkið og a. m. k.
10 sprengjur voru sprengdar í
höfuðborginni. Peronistar urðu
að láta undan síga fjórir féllu,
þrír voru haridtekmr.
Eldui
herbergi
í geyiosHi-
KL. 16,35 í gærdag var Slökkvi-
liðið kvatt að húsi Blindrafélags
ins á Grundarstíg 11. Hafði kvikn
að þar út frá röri í geymsluher-
bergi í kjallara hússins. Slökkvi
liðinu tókst fljótlega að slökkva
eldinn, og er geymsluherbergið
nær óskemmt eftir íkviknunina.
Hins vegar brann talsvert af kúst
um og annarri fram’e'ðslu, sem
geymd var í herbeiginu.
Árshátíð Sjálf-
stæðisfélaganna
í Hafnarfirði
HAFNARFIRÐI. — Næstkom-
andi laugardag efna Sjálfstæðis-
félögin hér til árshátíðar í Góð-
templarahúsinu, og hefst hún
með sameiginlegri kaffidrykkju
kl. 8,30.
Á árshátiðinni syngur Erlingur
jVigi'ússon og Guðvarður Sigurðs
son flytur skemmtiþátt. Einnig
; verður hið vinsæla Bingó spilað.
1 Loks verður stiginn dans fram
' eftir nóttu.
j Aðgöngumiðar verða seldir í
Gnt*ó á laugardaginn og við inn
* gangiun ef eitthvað verður eftir.
ar á þeim duldu lögmálum, sem
gilda í andans heimi. „Tilgang-
ur þessarar bókar“, segir höf-
undur hennar m. a., „er sá að
benda á yoga-aðferðir við hæf-i
vestrænna manna, en ávextir
þessara aðferða eru rósemi hjart
ans, stjórn á hugsunum og ti’.-
hneigingum og möguleikar á
sambandi við æðri máttarvöld
sér til þroska. Þessi bók hjálpar
mönnum til sjálfsþekkingar."
Bókin skiptist í tvo megin-
hluta, Greiningarnar og Æfing-
amar. Kaflafyrirsagnir eru m.
a.: Maðurinn er ráðgáta, Grein-
ing efnislíkamans, Greining til-
finningalífsins, Greining hugs-
analífsins, Eilífðin að baki tím-
ans, Uppspretta allrar snilli,
Fágun tilfinningalífsins, Hug-
stjórn, Sjálfsrannsókn, Dular-
magn andardráttarins, Dular-
magn augans, Launhelgar hjart-
ans, Yfirsjálfið og Leitin.
Bókin er 330 bls. að stærð. Út-
gefandi er ísafoldarprentsmiðja
ihf.
að ná sæluhúsinu, en þangað
voru um það bil fjórir km. —
Eg og einn farþeganna lögðum
gangandi af stað, en hinir far-
þegarnir þrír biðu í bílnum á
meðan. Þegar við komum í kof-
ann, hringdi ég til Egilsstaða
eftir hjálp, en fékk þá að vita
að björgunarleiðangur væri
þegar lagður af stað frá Egils-
stöðum og annar frá Seyðisfirði.
Við biðum í kofanum þangað
til björgunarleiðangurinn frá
Seyðisfirði kom. Þá var kl. um
6. Þeir komust ekki lengra en
up að Efristað á bílum, en gengu
svo afganginn. Þeir komu bæði
með mat og föt. Það var bók-
staflega ekkert af slíku í sælu-
húsinu. Því hafði öllu verið
ruplað. Það var ekki einu sinni
hægt að finna eldspýtu. Við
tókum svo olíuofn, sem var í
kofa Rafmagnsveitunnar þarna
skammt frá, til þess að hita upp
bílinn. Eg vissi að hann mundi
vera orðinn benzínlaus, því eg
skildi hann eftir í gangi til
þess að það yrði hlýtt á far-
þegunum.
Við biðum þangað til björg-
unarleiðangurinn frá Egilsstöð-
um kom. Þá var kl. um 3. Þeir
voru 5 tíma á leiðinni á snjóbíl
og jeppa, sem fylgdi í kjölfar
ýtu. Fólkinu leið sæmilega vel
í bílnum á meðan. Það gerði
olíuofninn. Við komum svo til
Egilsstaða kl. hálf-fimm eða sex.
Færðin var mjög þung, blind-
hríð og snjóbíllinn átti erfitt
með að halda veginum. Hann
var svo andskoti dimmur. En
þetta fór samt allt vel og strák.
arnir x flugbjörgunarsveitinni
voru röskir og eins hjálparsveit-
in, sem kom frá Seyðisfirði. ____
Þetta með sæluhúsið er til
skammar og getur auk þess ver-
ið alvarlegt, ef verr stendur á
en hjá okkur í þessari ferð.
Keflavík
SJÁLFSTÆÐISKVENNAFÉ-
LAGIS SÓKN í Keflavík held-
ur bazar í Sjálfstæðishúsinu í
kvöld kl. 9. — Margt ágætra
muna. Allur ágóði rennur til
góðgerðarstarfsemi fyrir jótin.
t.