Morgunblaðið - 21.12.1960, Side 6
6
MORGIHBLAÐIÐ
Miðvikudagur 21. des. 1960
-*■ Ungdómurinn sem vill
stjórna sér sjálfur
— Kvikmyndin kom mjög
á óvart, segja gagnrýnendur
um írönsku kvikmyndina
„Sólarhringur í ParLs“, og
frönsku ungmennin, sem að
henni stóðu, vita hvað þau
vilja og þora að koma vilja
sínum á framfæri.
Kvikmyndin fjallar um
ungan Frakka, sem er á móti
öllum og heldur að sér sé
allt leyfilegt, stelur dýrindis
bifreiðum, ef honum býður
svo við að horfa og fer í
ökuferð með stúlkunni sinni,
gáfaðri, amerískri stúlku, sem
veit ekki að pilturinn er eft-
irlýstur morðingi og afbrota-
maður. Síðar í myndinni
skýtur hún lögregluþjón til
bana í örvæntingu sinni til að
vernda piltinn sinn, og þá er
komið að kjarna myndarinn-
ar: sólarhrings eftirför upp á
líf og dauða í Parísarborg.
— Öllu þessu lýsir mynd-
in á snilldarlegan hátt, segja
gagnrýnendurnir, þessum ráð
lausa ungdómi, sem vill
stjórna sér sjálfur, og þráir
að gera eitthvað sem hann
veit ekki hvað er.
Það hafa ekki þótt
heiðarlegar starfsað-
ferðir að taka myndir
gegnum skráargat,
allra sízt gegnum skrá-
argat á baðherbergi. En
kvikmyndaleikarinn
Norman Wisdom var
ekkert hneykslaðúr,
þegar hann sá þessa
skráargatsmynd af sjálf
um sér í baðkeri. Hún
var nefnilega tekin' í
vinutíma hans og sýnir
eitt atriði í J. Art-
hur Rank-kvkimynd-
inni, „Follow a Star“.
★ Nakta Maja.
Ein þeirra mynda,*
sem væntanlegar eru á
fyrra hluta næsta árs,
er „Nakta Maja“ með
Ava Gardner í aðalhiut
verki. Myndin er byggð
á sögu spænska málar-
ans Goya og fyrirsætu
hans og ástmey, hertoga
.frúnni af Alba. Hin dularfulla
saga tveggja málverka hans,
Nakta Maja og Klædda Maja, er
fléttuð inn í sögurásina.
Það er M-G-M, sem hefur
ráðizt í að kvikmynda þessa
rómantísku sögu málarans
fræga og aðalsmeyjarinnar. —
Leikstjóri er Henry Koséer.
Meðfylgiandi mynd sýnir Ava
Gardner í hlutverki sínu.
★ Jósephine Baker og börn
hennar kvikmynduð.
Kvikmyndaframleiðandi í Vín
hefur ákveðið að kvikmynaa
hina frægu negrasöngkonu Jó-
sephine Baker, sem nú er 54
ára gömul, og börn hennar. Eins
og kunnugt er hefur Jósephina
ættleitt börn frá ýmsum löndum
og hefur breytt höll sinni í al-
þjóðlegt barnaheimili.
Ýmsir leiksjórar hafa beðið
Jósephinu Baker um að koma
fram á ný, annað hvort á sviði
eða í kvikmyna, en hún hefur
fyrir löngu kvatt leiklistarlífið
fyrir fullt og allt.
‘Sv‘rt%%%%rfj<tlItt%%9lt09/rrr%‘Íj%Vjrri<lj9j9í % r9%<Jt9t9r9jií9,9r9j9j9jJjj9j9j9i9j9i9j9j9,9j9j9j’'ií
Hreyfill bættnr j
oð ræso fólk '
EINS og mörgum er kunnug í
hefur Hreyfill um alliangt
skeið tekið að sér að vekja
fólk á morgnana með síma- ,
hringingu. Oftast hefur þctta t
verið samfara bílpöntun, en 4
margir hafa þó aðeins hringt
kvöldið áður o>g beðið um upp
hringinu í bítið næsta morg-
un, án þess að bíll fylgdi. —
Mörgum hefur komið þetta
vel, t. d. fólki, sem þarf að
ná í flugvél, en sumir hafa
misnotað sér þjónustuna. Sagt
er t. d. að þrisvar hafi ver-
ið hringt í sama númerið á
morgni hverjum, fyrst, þegar *
drengurinn þurfti að vakna}
til skólaferðar, nest, þegar 4
bóndinn átti að fara í vinnu Z
og að lokum þegar frúnni ’
þóknaðist að fara á fætur til t
þess að komast í mjólkur- og |
fiskbúð. Mesti annatími við
þessar vakningar hefur verið
milli kl. hálfsjö og hálfátta að
morgni. Þá hafa símastúlk-
urnaráHreyfli stundum þurft
að hringja í 60- 70 númer á
sömu mínútunni. Er það ugg
laust mesfa fjöldavakning á
fslandi, og verður helzt jafn
að við hópvakningasamkom
ur Billy Graham’s erlendis.
Nú er svo komið að Hreyfli
er ókleift að annast þessa
þjónustu lengur, og verður
henni hætt nú um hetgina.
Hitt er að sjálfsögðu hægt eft
ir sem á.ður að panta bíl kvöld
ið áður, sem á að koma á á-
kveðnum tíma næsta morgun,
en einfaldar morgunhringing-
ar verða lagðar niður.
— Þess má að lokum geta,
að vekjaraklukkuleysi Beyk-
víkinga mun vera með ein-
dæmum. Hér hafa 3—400
manns Iátið vekja sig með
símahringingu á sólarhringi
hverjum, en í Osló t. d. þykir
50—60 algert hámark.
íslnnd í móli og myndum
12 þióðkunnir menn skrifa um
uppáhaldsstað sinn
í GÆR barst blaðinu ný Helga
fellsbók „ísland í máli og mynd
um“, mjög sérstæð bók og falleg.
Hefir forlagið snúið sér til tólf
þjóðkunnra manna og beðið þá
að skrifa grein um uppáhalds-
staðinn sinn, sveit, hérað eða
blett, einskonar ástarjátningu til
landsins. Forlagið ráðgerir að
halda þessari útgáfu áfram en í
þetta fyrsta bindi skrifa eftirtald
ir menn, sem allir eru þjóðkunn
ir. Alexander Jóhannesson, fyrv.
rektor, grein hans heitir Skaga-
fjörður, Davíð Stefánsson skáld
frá Fagraskógi skrifar um Eyja-
fjörðin en nefnir grein sína, í
haustblíðunni, Einar Ól. Sveins
son, Úr Mýrdal, Guðbrandur
Magnússon, Landnám einstakl-
ings, Gísli Guðmundsson, alþing
Mjólkurbú reist
í Grundarfirði
GRUNDARFIRÐI, 15. des. —
Það hefur lengi verið brýnt hags
munamál Snæfellinga að mjólkur
bú yrði reist einhvers staðar á
Snæfellsnesi. Nú sést hilla undir
lau.sn þessa máls, þar sem ákveð-
ið var á fundi framleiðsluráðs
landbúnaðarins í sl. viku að heim
ila Mjólkursamsölunni í Revkja
vík byggingu mjólkurbús á Snæ-
fellsnesi, og mælt með því að
það yrði staðsett í Grundarfirði.
Er mikil og almenn ánægja ríkj-
andi hér um slóðir með svo far-
sæla lausn málsins. — Fréttar.
ismaður, Á norðurslóðum, Helgi
Hjörvar, fyrv. skrifstofustj. út-
varpsins, Grængresi, Jóhann
Briem, listmálari, Þjórsárdalur,
Jóhann Gunnar Ólafsson, Ef að
staður finnst um frón, Kristján
Karlsson, rithöfundur, Mývatns-
sveit, Páll ísólfsson, tónskáld,
Stokseyri, Sigurður Þórarinsson,
jarðfræðingur, Móðan rauða, og
Tómas Guðmundsson, skáld Aust
ur við Sog. Myndir eru alls 35,
allt litmyndir og af ýmsum feg-
urstu og sérkennilegustu stöðum
landsins og víðs vegar að, einnig
nokkrar mannamyndir og at-
burðamyndir. Langflestar mynd
irnar hefir Hermann Sohlenker
tekið, en einnig Vigfús Sigur-
geirsson, ljósm., Ólafur Gunn-
arsson, verkfr., ísaf., Sigurður
Þórarinsson o.fl.
• Ljósmyndasamkeppni.
í sambandi við útkomu bókar
innar „ísland í máli og myndum"
efnir Helgafell til Ijósmyndasam
keppni (einungis litmyndir),
myndir af landslagi, fólki, sögu
stöðum og atburðum og er frest
ur til að skila myndum til 10.
febr. n.k. og þannig gert ráð fyr
ir að myndirnar liggi allar fyrir,
en þann dag hefst aftur ný sam
keppni er stendur í 8 mánuði.
Verðlaun fyrir beztu myndirn
ar 10 eru 500 — 10,000,00. í dóm
nefnd verða auk útgefanda Sig-
urður Þórarinsson, jarðfr., Ei-
ríkur Smith, málari, Grétar Sig-
urðsson, prentmyndagerðarmað-
ur. Auk þess kemur einn maður
í stað hvers hinna ef dæma skal
um þeirra eigin myndir. Allar
verðlaunamyndirnar birtast í
bókinni.
KYNDILS
bækurnar eru ákjósanlegar
jólagjafir
B Æ N A L í F
eftir hinn heimsþekkta rithöfund og predikara,
ANDREW MURRAY, er að flestra dómi ein bezta
bókin, sem skrifuð hefur verið um bæn. Þessi
bók bætir úr brýnni þörf hér á landi, því að veru-
legur skortur hefur verið á bókum um þetta efni,
eins og segir í formála þýðanda. Bænalíf kristins
manns er vissulega stórt mál, og höfundurinn
bregður upp ýmsum þeim atriðum, sem nauðsyn-
legt er að hugleiða í ró og næði, — Bókin hefur
mjög víða verið gefin út og notið mikilla vinsælda,
enda hefur hún orðið mörgum til ómetanlegrar
blessunar. — í bókinni eru 15 myndskreyttar síð-
ur. Þýðandi hennar er cand. theol. Páll Pálsson.
Verð kr. 115.00.
DAGBÓK UNGA LÆKNISINS
eftir ELDAR BAUNE.
Ungur norskur læknir segir í þessari bók frá
reynslu sinni í starfi og utan þess. Við kynnumst
manninum í sloppnum og tökum þátt í erfiðleik-
um hans. — Eldar Baune lyftir „járntjaldi" lækn-
isins, sem löngum tekur á taugar sjúklinganna. —
Frásagnirnar af sjúkravitjunum- eru skrifaðar í
gagnorðum, dálítið glettoislegum stíl, og eru þar
afbragðs lýsingar á bæðí sjúklingi og lækni. En að
baki bókarinnar allrar verður vart hlýs hjartalags
læknisins, skilnings hans og nær-
gætni. Þýðandi bókarinnar er dr.
med. Arni Arnason.
Verð kr. 155.00.
BÓKAÚTGÁFAN
Bezt aó auglýsa í MORGUNBLAÐINU