Morgunblaðið - 21.12.1960, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 21 ðpp 1960
Uflprrvrr4 I) f |)
7
Hér er Trípólíbíó h?ff nýja að rísa inni í Skipholti. Farið er að innrétta húsið, en tæpasf er
gert ráð fyrir að það verði tilbúið fyrr en eftir 2—3 ár. Kvikmyndasaluriíin á aö taaa 4so—
ðOð manns í sæti, og oían á honum verður Tóniistarskólinn til húsa.
Talsföovar settar í leigu-
bíla á Hreyfli og Bæjarleidum
A FÖSTUDAGINN tóku tvær,
bílstöðvar í Reykjavík, Hreylill
og Bæjarleiðir, talstöðvar í þjón
ustu sína. Frkvstj. Hreyfils,
Stefán Ó. Magnússon, og frkvstj.
Bæjarleiða, Þorkell Þorkelsson,
kynntu fréttamönnum þann dag
þessa nýjung.
Hreyfiil hefur aflað sér tal- j
stoðva í 86 bíla af tæpl. 330 og
Bæjarleiðir í 24 af 90. Hreyfill j
hefur þrjár talrásir, ein er not-
uð til þess að kalla upp bíla við j
scaura vestan Snorrabrautar,'
önnur austan Snoi’rabrautar, en'
hin þriðja er „útkallsrás" til
biia, sem eru á ferð hvar sem
er í bænum og jafnvel utan
hans. Bæjarleiðir hafa tvær
rásir til afnota, önnur til sam-
bands við bíla við staura, hin
við bíla á ferð. Þess má geta
hér, að Bifreiðastöð Steindórs j
hefur fyrir nokkru komið sér I
upp talstöðvakerfi og mun nú j
hafa stöðvar í u. þ. b. helmingi
bifreiða sinna. I
STÖÐVAR Á HÆSTU TINDUM
Hreyfill hefur þegar komið
upp tveimur sendistöðvum á há-
um stöðum. Önnur er í bygg-
ingu við hitaveitugeymana á
Öskjuhlíð, en hin í háhúsinu á
Austurbrún 2, en á þaki þess cr
sagður hæsti punktur Reykja-
vikurbyggðar — 72 metrar yfir
flæðarmál. Þriðja stöðin verður
e. t. v. í turni Landakotskirkju,
þar sem lögreglan hefur nú
sendistöð sína, eða á þaki Fé
lagsheimilis Kópavogs. Bæjar-
Ieiðir hafa sendistöð uppi á
Prentaraháhúsinu við Sólheima,
en þar mun næsthæsti punktur-
inn vera — um 68 m yfir sjávar-
mál. Steindór hefur sína á þaki
Golfskálans.
Fjarskiptakerfi þetta hefur
marga kosti. Þjónusta við við-
skiptavini er stórbætt, þar sem
bifreiðar eru mun fljótari á vett
vang en ella, og aðstaða og ör-
yggi bifreiðarstjóranna verður
allt annað. Á Norðurlöndum, þar
sem slíkar talstöðvar hafa verið
teknar í notkun, geta bílstjórarn
ir ekki talazt við innbyrðis, en
það geta þeir hér. Er m. a. tek-
ið tillit til þess, að erlendis fara
ieigubifreiðar lítið út fyrir af-
mörkuð bæjarsvæði, en hér fara
þeir miklu meira út um land.
Geta þá bílstjórar talazt við,
sem komnir eru út fyrir áhrifa-
svæði „móðurstöðvarinnar“, og
eins getur myndazt e. k. keðja,
þar sem fjarlægasti bíllinn get-
ur haft samband við aðalstöðina
um bíla, sem nær borginni eru
staddir. Þá eru stöðvarnar ómet-
anlegar, ef eitthvert óhapp ber
að höndum.
NEYÐARKÖLL
Bilstjóri einn lenti t. d. í því
fyrir stuttu að renna í hálku út
á vegarbrún. Þar gat hann heml-
að en mátti sig ekki hræra það-
an , án þess að eiga á hættu, að
bíllinn steyptist fram xt brún-
inni. Gat hann þá kallað á aðra
bílstjóra sér til hjálpar í tal-
stöðinni, sem komu á vettvang
og drógu hann upp á veginn.
Eins og menn minnast skýrði
Morgunblaðið frá því á dögun
um, þegar bruninn varð í Laugar
nesbúðum, að náð var í slökkvi-
liðið um talstöð á leigubíl, sem
bar þar að. Spöruðust þar dýr-
mætar minútur. — Frá fleiri
slíkum dæmum væri hæ.gt að
skýra.
HAGKVÆM KJÖR
Stöðvarnar senda út á u. þ. b.
tveimur metrum. Þær eru það
sterkar, að samband hefur verið
haft við bíla uppi á Akranesi,
Norðurárdal og suður í Kefla-
vík.
Aðalstöðvarnar kosta um 80
þús. kr. hvor, en hver taiStóð j
um 20 þús. Þær frá Storno-
fyrirtækinu, sem er deild úr
Det Store Nordiske Telegraf-
selskab, en það lagði á sinum
tíma símann' til íslands. Full-
trúar frá Hreyfli og Bæjarleið-
um kynntu sér slíkar stöðvar a
Norðurlöndum. Leizt þeim fyrir
komulagið í Osló nýtízkulegast.
Svíar munu vera að breyta
stöðvum sínum í sama horf ogi
hafa þegar gert það í GautaT'
borg, en í Danmörku er fyrir- *
komulagið þyngra í vöfum. í
Osló eru notuð Storno-tæki. Vari
það afráðið eftir hlutlausa rann- j
sókn hins opinbera á kostum og
göllum hinna ýmsu tegunda,
sem á markaðnum eru. Leizt
hinum íslenzku fulltrúum einna
bezt á þau, enda fengu þeir og
mjög hagstætt boð frá fyrirtæk-
inu. Fékkst lán fyrir tækjunum.
Fyrsta afborgun fer fram að ári,
en siðan verður lánið greitt upp
á fimm árum.
Sendi fyrirtækið sérfræðing
sinn hingað upp, sem sá um
uppsetningu tækjanna, Bue
Bþgeskov að nafni. Jóhann
Hallvarðsson á radíóverkstæði
Landssímans annaðist það starf
með honum. Sigurður Þorkels-
son yfirverkfræðingur La.ndssím
ans hafði yfirstjórn með hönd-
um. Þá vilja forstöðumenn
slcðvanna þakka bæjaryfirvöld-
unum góðan stuðning.
Lyf, sem auB-
veldar sálgrein
ingu
UM þessar mundir er verið að
taka í notkun í Danmurku lyf,
sem nefnist LSD 25. Lyf þetta
sem er framleitt úr bergsúru er
fyrst ©g fremjt notað við geð-
lækningar. Það hefur verið þraut
reynt í Þýzkalandi og Englandi
sl. 10 ár og í Hollandi sl. 7 ár.
Einnig tíðkast notkun þess all-
mikið í Bandaríkjunum.
Lyf þetta hefur þau áhrif á
sjúklinginn að persóna hans klofn
ar í tvennt. —- Jafnframt því að
vera eins og hann á að sér að
vera, sér sjúklingurinn sjálfan
sig sem þátttakanda í ýmsum at-
burðum, er hann hafa hent fyrr
á ævinni — jafnvel á barnsaldri.
Þetta er talið afar mikilsvert
þar sem oft má rekja rætur geð-
sjúkdóms til atburða eða að-
stæðna í bernsku sjúklingsins,
sem hann gerir sér ef til vill ekki
grein fyrir undir eðlilegum kring
umstæðum.
★
Sálfræðingar hafa beitt sál-
greiningu um langt árabil en
jafnan tekur framkvæmd hennar
mjög langan tíma. Með þessu
nýja lyfi ætti að vera unnt að
framkvæma sálgreiningu á sjúkl
ingi á skömmum tíma.
Efni þetta uppgötvaði sviss-
neskur exnairæouigur er hann
vann að leit að öðru efni. Hann
gerði tilraunir með það á sjálf-
um sér og varð íyrir hinum furðu
iegustu ánrifum.
Læknar hafa farið varlega í
notkun þessa efuis. Þeir verða
að vera við öllu búnir. Sjúkling-
ar geta orðið afara uppnæmir og
jafnvel ofsafengnir og ekki er
fyllilega ljóst hver áhrif lyfið
kann að hafa utan persónuklofn-
unarinnar.
Um 200 bœkur
á jólamark-
aðnum
GEYSIMIKIÐ úrval er nú af
nýútkomnum bókum í bóka-
verzlunum. Á árinu munu
nú vera út komnar nærri 200
bækur, fyrir utan bókafélags-
bækur, flestar síðan í októ-
ber. — Barnabækurnar
eru þarna stór hluti eða
86. — Óvenjumikið hefur
komið út af ljóðabókum í
þetta sinn, eða 19 á árinu.
Ekki þorum við að ábyrgj-
ast þessar tölur, enda koma
bækur út daglega, en þær
munu vera mjög nærri lagi.
íkr Davíð selzt bezt
Blaðið átti í gær tal við
Björn Pétursson, verzlunarstjóra
í Bókaverzlun Sigfúsar Eymunds
sonar. Sagði hann að enn gæti
hsnn ekki séð að nein af jóla-
bókunum skæri sig greinilega
úr sem sölubók, nema hvað
lióðabók Davíðs seldist áberandi
niest af ljóðabókunum. Annars
væri ekki fyllilega að marka
þetta enn. Bókasölunni væri
alltaf að seinka fyrir jólin. —
Bækurnar kæmu seinna út og
ks.upendur keyptu þær seinna.
Ein af ástæðunum fyrir þessu
væri vafalaust hve samgöngur
færu batnandi og menn þyrftu
því ekki að senda gjafabækur
eir.s snemma og fyrr.
Á Ævi- og ferðasögur
Mikið hefur komið út af ævi-
sögum og ferðasögum að vanda,
eða 33 á árinu. í þetta sinn
vh’ðist engin ein þeirra gnæfa
jfir hinar í sölu, sagði Björn,
eins og oft hefur verið áður.
Ssma er að segja um skáldsög-
urnar, sem munu vera nálægt
40 á árinu, frumsamdar og
þýddar.
Jarðsíminn á
Akranesi
bilaði
AKRANE'SI, 16. desember: 1
fyrradag bilaði jarðsímastreng-
ur, sam talrásirnar fjórar til
Reykjavíkur liggja um. Bilaði
hann fyrir skömmu og bilunin
varð að þessu sinni rétt á sama
stað og hin fyrri. Ekki rofnaði
þó símasambandið við Reykja-
vík að fullu, því ein talrásin hélt.
Við uppgröft og athugun kom í
ljós að vatn hefur síazt inn í
jarðstrenginn, þar sem viðgerðin
fór fram um daginn. Þessi jarð-
strengur er sagður svo stökkur,
að býlið, sem var við hann,
spyrngi við hina minnstu hreyf-
ingu. Er þar um kennt að streng
urinn sé gamall og 'hafi verið
notaður úti í löndum áður en
hann var keyptur .hingað og lagð
ur í jörð í Innri-Akraneshreppi.
—Oddur.
Iifósprentanir ai Skarðsbók eg
Króksifarðarbók SturSungu iást nú
BÆKUR þær, sem komnar eru
út í hinum nýja flokki ljós-
prentana, Early Icelandic Manu
cripts in Facsimile, Króksfjarð-
arbók, Sturlunga og Skarösbók,'
eru nú fáanlegar á íslandi, í
bókabúð Stefáns Stefánssonar, ■
sem hefur gerzt umboðsmaður
útgáfunnar. Útgáfur þessar eru
gerðar eftir fullkonuiustu ljós
myndum og óvenju vandaðar að
öllum fpágangi og hafa vakið
mikla atliygli.
Útgáfufyrirtækið Rosenkilde
og Bagger stendur að þessari út
gáfu. Aðalritstjóri er prófessor
Jón Helgason og í útgáfunefnd
eru Magnús Olsen i Oslo, Dag
Strömback í Uppsölum og Sig-
urður Nordal í Reykjavik. Er|
fyrirhugað að í þessum flokki I
verði tuttugu bindi, öll í arkar
broti, stærstu handritin, sem 1
enn eru ekki útgefin á þenn-
an hátt, m. a. Bergsbók, Tómas-
skinna, Ólafs saga Tryggvason-
ar hin meiri, og Kálfalækjarbók
Njálu. Formála að útgáfunum
sem út eru komnar hafa skrif-
að dr. Jakob Benediktsson að
Króksfjarðarbók og dr. Des-
mond Slay að Skarðsbók.
Talin glötuð — en fannst.
Það þótti tíðindum sæta, þeg-
ar Skarðsbók kon* út, en hún er j
aðalhandrit Postulasagna, rituð i
á 14. öld af snilldarskrifara. Var
hún um 1700 að 'Skarði á Skarðs
strönd og gat Árni Magnússon
ekki éignast hana. Var hún talin
glötuð, en 1890 fann Eiríkur
Magnússon hana í einkabóka-
safni í Englandi. Síðan hafa
menn ekki spurnir af henni fyrr
en Jón Helgason skoraði á dr.
Slay að leita hana uppi. Skarðs
bók er ein síðasta skinnbókin (ef
til vill sú .síðasta), sem menn um
langt skeið hafa talið alveg glat
aða, en kemur síðan í leitirnar.
Núverandi eigendur hennar lán
uðu hana til Hafnar til Ijósprent
unar, en óséð er enn hvar skinn-
bókin sjálf lendir að lokum.
Endurútgáfa
ljóða Snorra
Hjartarsonar
ÚT*ER KOMIN hjá Bókaútgáf-
unni Heimskringlu, ljóðabók eft
ir Snorra Hjartarson. Nefnist bók
in Kvæði 1940—1952 og er end-
urprentun fyrri ljóðabóka höf-
undarins, Kvæða, er út kom 1944
og Á Gnitaheiði, er út kom árið
1952. Hafa þær bækur verið ófá-
anlegar í bókaverzlunum um
skeið.
Höfundur hefur endurskoðað
ljóðin og gert á sumum þeirra
nokkrar breytingar. Bókin er 117
bls. prentuð í Prentsmiðjunni
Hólar.
KASSAR 'SKJUR
TlMBÚfllRI
L.aufásv 4. S 13492