Morgunblaðið - 03.01.1961, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.01.1961, Blaðsíða 2
2 MORGVNBLAÐIÐ Þriðjudagur 3. janúar 1961 Kröfur Dagsbrúnar; Hækkab kaup og stytting vinnuviku EIN S og skýrt var frá í blaðinu sl. laugardag var fundur haldinn í Verka- mannafélaginu Dagsbrún á föstudagskvöldið. Voru þar samþvkktar breytingar þær, sem stjórn félagsins leggur til að gerðar verði á samn- ingum þess við atvinnurek- endur. Kröfur Dagsbrúnar um breytingar á samningum eru í stórura dráttum þessar: 1. Vinnuvikan verði stytt úr 48 kl.st. í 44 stundir. Dagvinna hefjist kl. 8 að morgni og standi til kl. 5 alla virka daga, nema á laugardögum, þá teljist dag- vinna frá kl. 8 til kl. 12 á hádegi. Verkamenn fái jafnframt heim- ild til þess að vinna af sér allan laugardaginn með því að vinna lengur aðra daga vikunnar. Þá er lagt til að matartími verði frá kl. 7—8 að kveldi í staðinn fyrir kl. 7.15—8.15 eins og verið hefur. 2. Vikukaup fyrir 48 stunda vinnuviku hefur verið kr. 992.16. Nú er krafizt að það verði kr. 1190,00 miðað við 44 stunda vinnuviku Þýðir það 20% kaup- hækkun þegar ekki er tekið til- lit til styttingu vinnuvikunnar. Stytting vinnuvikunnar þýðir hins vegar sjálf 9% kauphækk- un. Lagt er til að fast mánaðar- kaup verði kr. 5.150,00 í stað kr. 4.074,00 nú. Mánaðarkaup bif- reiðarstjóra hækki úr kr. 5.350,00 nú upp í kr. 5.850,00. Þá er lagt til að fast viku- kaup verði greitt í allri fasta- vinnu. í lausavinnu verði kaup- ið 4% hærra en í fastavinnu. í almennri dagvinnu verði tíma- kaup kr. 28,13 í lausavinnu. En það er nú kr. 20,67. Er hér um að ræða 36% kauphækkun. Mið- að við fast vikukaup yrði tíma- kaupið kr. 27.05. Aðrir launaflokkar hækka svip að samkvæmt þeim breytingum, sem Dagsbrún fer nú fram á. Fjórir þeir næstu hækka um sömu hlutfallstölu, en hærri launaflokkarnir hækka um nokk uð lægri hlutfallstölu. 3. Þá er krafizt nokkurra til- færslna á milli Iaunaflokka. 4. Orlof breytist þannig að á allt kaup verði greitt 6% og þá einnig á yfirvinnu. Orlof er nú 6% og miðað við dagvinnukaup fyrir alla vinnu. 5. Vinnuveitendur greiði 1% af Botnlanga- sjúklingur frá Grænlandi A FÖSTUDAGINN bárust hingað þær fregnir frá Meistaravik í Grænlandi, blýnámubænum þar, að starfsmaður við námurnar væri illa haldian vegna botn- langabólgu og þyrfti hann að komast í sjúkrahús hið allra fyrsta. Um klukkan 8 þá um kvöldið renndi sér til flugs hér á Reykja- víkurflugvelli og hvarf út i myrkrið, annar „millilanda Faxa“ Flugfélags íslands. Er skemmst frá því að segja að þessu sjúkraflugi var lokið að fullu og öllu á 4 klst. 14 mín. Snemnva að morgni gamlársdags var sjúklingurinn skorinn upp og tókst aðgerðin vel. Aldre mun sjúkraflug til Græn ktnds hafa verið farið á svo skömmum tíma. útborguðu kaupi verkamanna til að standa straum af veýkinda- og sjúkrakostnaði, og renni þær greiðslur í Styrktarsjóð Dags- brúnarmanna. Árið 1955 var sam ið um að atvinnurekendur skyldu greiða 1% af útborguðu kaupi verkamanna á þennan hátt. En þá sáu almennu verkalýðsfélögin sér ekki annað fært en að bæta þessu við útborgað tímakaup. Aftur á móti létu iðnfélögin þessa greiðslu renna í styrktar- sjóði sína. Óskar Dagsbrún nú eftir því fyrirkomulagi. 6. Verkamenn, sem vimia utan bæjar og komast ekki í mat heim til sín fái frítt fæði. Gildi það einnig þegar verkamenn hafa við legu á stöðunum, eins og t.d. við virk j unarframkvæmdir. 7. Ef verðlag hækkar um 3% eða meira skulu öll ákvæði um kaupgjald í samningum falla úr gildi og hækka eftir reglum, sem aðilar koma sér þá saman um. Núgildandi samningar Dags- brúnar við vinnuveitendur voru gerðir í september 1958. Áttu þeir þá að gilda til 15. október 1959. Dagsbrún sagði þeim þá upp og síðan hafa samningar ver ið lausir, en með því samkomu- lagi milli aðila að unnið skyldi eftir þessum uppsögðu samning- um. Framangreindar upplýsingar fékk Morgunblaðið í gær hjá Eð- varð Sigurðssyni ritara Dags- brúnar. Framkvæmdanefnd vinnnveit- enda hcldur fund í vikunm um málið. Mbl. snéri sér einnig í gær til Björgvins Sigurðssonar framkv.- stjóra Vinnuveitendasambands ís lands og leitaði álits samtakanna á kröfum Dagsbrúnar. Við fengum samþykktir Dags- brúnar rétt fyrir hádegi á gami- ársdag og höfum því ekkí haft tækifæri til þess að athuga þær til hlítar, segir Björgvin Sigurðs son. Ég er því ekki tilbúinn til þess að ræða þær opinberlega á þessu stigi málsíns. Framkv,- nefnd Vinnuveitendasambandsins mun hinsvegar halda fund um málið alveg á næstunni og taka afstöðu til þeirra breytinga, sem farið er fram á í samningum. Oánægja með fiskverðs- samkomulagið í Eyjum Vestmannaeyjum, 2. jan. — A FÖSTUDAGINN var, hélt Ut- vegsbændafélag Vestmannaeyja fjölmennan fund, þar sem rætt var um fiskverð og kjarasamn- inga við sjómenn. A þessum fundi kom fram óá- nægja með samkomulag það sem tekizt hefur milli verðlagsráðs L 1. U. og fiskkaupenda. Var óánægja með verðið og verð- ílokkunina. Sérstaklega tö’du fundarmenn að góður lifar.di b.óðgaður netafiskur væri met- inn of lágt 1 verðflokki. Bentu ræðumenn á að netafiskur Eyja- báta væri álitinn mun betri vara en r.etafiskur annarsstaðar á lar.d inu. Væri fiskurinn hér við Vest- mannaeyjar fiskaður í grynnri sjó og við aðrar aðstæður og betri en annarsstaðar. A fundinum var einnig rætt um kjarasamninga sjómanna. — Kom fram um það tillaga, er samþykkt var, að útvegsmenn í Vestmnnaeyjum skyldu ekki NAIShnihr S SVSOhfMtr X SnjHtmt » Oii 7 Skúrir K Þrumur W'Z, KuUatkH Hittski! H Hmi L Lati byrja róðra fyrr en gengið hefði verið til fullnustu frá fiskverði og kjarasamningum. I þessari til- lögu hafi verið varað við því að hefja róðra út á væntanlega samn inga. Bent á að ekki mætti skrá menn á skip nema eftir gömlu samningunum, þar eð efnahags- lögir. gerðu ráð fyrir að samn- ingar fyrra árs um fiskverð og kjör væru í gildi þar til nýir samningar hefðu endanlega tek- izt. — Bj. Guðm. Nýr héraðslæknir í Álafosshéraði í áramóta-Lögbirtingi er skýrt frá því að skipaður hafi verið læknir í Álafosshéraði, Ólafur P. Jónsson, sem verið hefur hér aðslæknir vestur í Stykkishólmi. Hann tók við hinu nýja emb- ætti sínu frá og með 1. janúar að telja. Norðaustanátt hér á landi veldur lægðin vestan við Skot land. Loftið, sem hún sveip- ar yfir landið, er komið suð- austan að, og er þess vegna hlýtt, miðað við árstíma. Um hádegið í gær var hiti milli 1 og 5 stig, nema á Nautabúi var eins stigs frost. Árið heilsar hlýlega. Frá og með deginum í dag verður tíundi hver breiddar- baugur og tuttugasti hver lengdarbaugur teiknaður á kortið, með punktalínum. Verður þá auðveldara en áð- ur að sjá stefnur og fjarlægð- ir. En hver breiddargráða er 60 sjómílur eða 111 kílómetr- ar. Veðurspáin kl. 10 i gær- kvöldi: SV-Iand til Breiðafjarðar og miðin: Allhvass NA, úr- komulaust, kólnar heldur á morgun. Vestfirðir, Norðurland og miðin: Allhvass NA, rigning í nótt en snjókoma með köfl- um þegar líður á morgundag- inn. NA-Iand, Austfirðir og NA- mið til SA-miða: NA stinn- ingskaldi og rigning öðru hvoru. SA-land: NA kaldi, léttir til. Útsvar frádráttarhæft Á FUNDI I Verkamannafélag inu Dagsbrún, sem haldinn var sl. föstudag, var eftirfarandi samþykkt með samhljóða at- kvæðum: „Fundur í Verkamannafélag- inu Dagsbrún, haldinn 30. des- ember 1961, mótmælir þeim skilningi ráðamanna Reykjavík- urbæjar á útsvarslögunum frá 3. júní 1960, að greiðsluskylda á útsvari sé bundin við áramót hjá tíma- og vikukaupsmönnum þegar útsvar hefur verið tekið reglulega af kaupi þeirra, m:ð- að við að síðustu gjalddagar væru 2. janúar og 1. febrúar 1961. Fundurinn krefst þess að útsvar þeirra sé frádráttarhæft frá skattskyldum tekjum þessa árs, sé það greitt 1. febrúar 1961. Jafnframt mótmælir fundur- inn því, að útsvör séu tekin af kaupi manna í desembermán- uði og allra sízt í jólavikunni, eins og nú er gert.“ Frá Verkamannafélaginu Dagsbrún. Ftug- hálka AÐ morgni gamlársdags urðu mörg óhöpp á Bústaðaveginum, milli Klifvegar og Réttarholts- vegar. Þar var meiri hálka en þeir töldu sig tnuna eftir, sem þarna aka daglega um. — Allt frá því snemma um morguninn og fram undir hádegi, hafði hvert óhappið rekið annað. — Mim ekki vera nein fullnaðar- vitneskja um þau öll. Kl. um 7 um mocrguninn hafði fyrsta bíln um sem var strætisvagn, hlekkzt á. Hann lenti út af veginum. — Það stoðaði lítt þó keðjur væmi á hjólum í þeinri háiku, sem á veginum var. Menn nærri því skriðu eftir götunni milli bíl- anna. Annar strætisvagn fór út af nokkru síðar spölkom frá þeim, sem fyrsti lenti út af. — Brátt var margt bíla þama. — Hálkan var svo mikil að þeir komust hvorki . áfram eða aftur á bak. Þessi oiíufoíU lenti út af veginum og rafmagnsstaur um kl. li,30. Kubbaðd hann staur- inn í sundur niður við jörð. — Rafmagnslínur slitnuðu þó ekki og í þeim hékk staurinn, unz starfsmenn Rafnmagnsveitunnar komu skömmu síðar á vetvang með nýjan staur. Voru þeir fljót ir að koma honum fyrir með sinum góðu tækjum. Ekki höfðu orðið slys á fólki í sambandi við hin mörgu óhöpp á veginum þennan morgun. (Ljósm. Sv. Þormóðsison). Unnið að vertíðar- undirbúningi SVO sem kunnugt er var fjöldi báta á síldveiðum hér við suð- vestanvert landið nú í haust. Nú eru flestir þessir bátar hættir 1 veiðum. Eftir þeim fregnum sera Mbl. hafði í gær úr verstöðvun- um hér við Faxaflóa og víðar, var unnið að vertíðarundirbún- ingi í verstöðvunum í gær, og I sumum fóru bátar þegar í fyrsta róðurinn, eins og fram kemur í fréttum. Áskorun MORGUNBLAÐINU hefur bor- izt eftirfarandi „áskorun frá skipstjórum og stýrimönnum á Akranesi": I tilefni af viðræðum þeim, sem að undanförnu ha£a staðið yfir milli Islendinga og Breta og sfcanda enn yfir, viljum við und- irritaðir mótmæla því eindregið að samið verði við Breta um fisk- veiðiréttindi handa þeim innan 12 mílna fiskveiðilögsögu 1*. lands. Að öðru leyti viljum við vfsa til og ítreka samþykkt okkar frá því í ágústmánuði 1958 um land- helgismál Islendinga. Akranesi í desember 1960. Undir áskorunina skrifa 44 menn. — Kongó Framh. af bls. 1 svæðið skuli hafa verið notað til innrásar. Segja talsmenn SÞ að yfirvöldunum hafi borið skylda til að afvopna hermenn Mobutus, og vísa þeim aftur til Kongó. 10 drepnir Frá Katanga berast þær frétt- ir að hermenn frá Nigeríu úr herliði SÞ hafi á laugardag drepið 10 Baluba-menn. Voru þeir drepnir er fjölmennur hóp- ur Baluba-manna réðist á jám- brautarlest nálægt Albertville í Katanga. Nigeríumenn gættu lestarinnar og urðu hvorki þeir né farþegarnir fyrir tjóni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.