Morgunblaðið - 03.01.1961, Blaðsíða 12
12
MORGVNBLAÐIb
Þriðjudagur 3. janúar 1961
— Ræba Ólafs
Thors
Framh. aí bls. 11
fyrst jafnfætis þeim þjóðum,
sem á undan þeim eru komn
ar.
Það er í þessum heimi,
sem við íslendingar lifum.
Með breytingum hans og
byltingum verðum við að
fylgjast á næstu áratugunum.
Þetta er vandasamara verk-
efni fyrir íslendinga en flest
ar aðrar þjóðir, vegna þess
hversu fámenn þjóðin er, og
vegna þess, við hversu erfið
náttúruskilyrði hún býr að
mörgu leyti. En þetta verk-
efni verða íslendingar að
leysa giftusamlega, ef hér á
að blómgast sjálfstætt, ís-
lenzkt þjóðfélag. Atvinnulíf
Islendinga verður að fylgj-
ast með þeim hraðfara breyt
ingum, sem eiga sér stað
annars staðar. Nýjar atvinnu
greinar verða að rísa á fót
og eldri atvinnugreinar að
eflast, til þess að veita sí-
vaxandi fjölda íslendinga
atvinnu og skapa þeim lífs-
kjör og félagsleg og menn-
ingarleg skilyrði, sem í öll-
um aðalatriðum séu sam-
bærileg við það, sem ná-
grannaþjóðimar bjóða upp
á. íslendingar vernda ekki
þjóðfélag sitt með því að
standa kyrrir, heldur með
því að fylgjast með og fella
breytingar heimsins að sín-
um sérstöku aðstæðum. Það
er þá líka í raun og veru
megintilgangur þeirra
stefnubreytinga í efnahags-
málum, sem nú hafa verið
framkvæmdar, — að gera ís-
lendingum kleift að fylgjast
með í þeirri sókn til fram-
fara og bættra lífskjara, sem
nú stendur yfir um heim
allan.
★
Erfiðleikana og sársaukann,
sem stefnubreytingunni eru
samfara, höfum við fengið
að reyna á þessu ári í rík-
um mæli, og eigum enn eft-
ir að reyna, á því ári, sem
í hönd fer. En jafnframt sjá-
um við hilla undir þann já-
kvæða árangur, sem fram-
undan er. Við erum nú að
byrja að sjá, að til fram-
fara og velmegunar liggja
'i aðrar leiðir en þær, sem
verðbólgan kenndi okkur að
sækja. Það skiptir ekki að-
eins máli, að nýtízku tækja
sé aflað til atvinnurekstrar,
heldur jafnframt og eigi síð-
ur, að sérhvert atvinnufyrir-
tæki sé rekið af ýtrustu hag
sýni. Það skiptir ekki aðeins
máli, að mikill afli berist á
land, heldur eigi síður, að sá
afli sé vel með farinn. Það
skiptir ekki aðeins máli, að
miklum framkvæmdum sé
haldið uppi í landinu, held-
ur eigi síður, að þær fram-
kvæmdir séu þannig valdar,
að þær skili þjóðarbúinu
sem mestu í aðra hönd.
Við sjáum nú einnig í
skýrara Ijósi en fyrr, að
bætt lífskjör spretta ekki
upp úr kapphlaupi um
hærri laun, heldur aðeins
úr bættum vinnuafköstum
hvers og eins og auknum
afrakstri alls þjóðarbús-
ins.
Þegar endir hefur verið
bundinn á verðbólguna, höft
in og uppbæturnar, þá er
skapaður grundvöllur fyrir
hagsýnum rekstri atvinnu-
fyrirtækja, vöndun fram-
leiðslunnar, heppilegu vali
framkvæmda og góðum
vinnuafköstum einstaklinga,
þá er komið inn á þá öruggu
braut framfara og velmeg-
unar, sem nágrannaþjóðir
okkar hafa fylgt um langt
skeið.
Stefnubreytingin hefur
það einnig í för með sér, að
aftur opnast uppsprettur
nýrrar fjármagnsmyndunar.
Sparnaður í landinu er nú
aftur að glæðast og mun
halda áfram að glæðast því
meir, sem meira öryggi skap
ast um það, að verðbólgan
sé á enda. Erlendar fjármála
stofnanir, sem um margra
ára skeið höfðu ekki talið
mögulegt að veita fram-
kvæmdalán til íslands,
standa okkur nú opnar á
nýjan leik. Haldist það jafn-
vægi í efnahagsmálum, sem
nú hefur náðst, skapast ný
tækifæri til beinnar þátttöku
erlends fjármagns í fram-
kvæmdum hér á landi. Öll
þessi tækifæri geta íslending
ar notað og eiga að nota af
skynsemi og hófsemd. Við
eigum að beina hinu nýja
innlenda sparifé til þeirra
framkvæmda í atvinnulífinu,
sem mest veita í aðra hönd,
og til lausnar þeim félags-
legu vandamálum, sem mest
eru aðkallandi. Við eigum að
taka erlend lán til langs
tíma til arðbærra og nytsam
legra framkvæmda, én ætíð
í því hófi, að ofþyngja ekki
greiðslugetu okkar. Og við
eigum óhræddir að láta er-
lent fjármagn taka beinan
þátt í framkvæmdum hér
innanlands eins og aðrar
þjóðir gera um allan heim,
að sjálfsögðu með þeim skil-
yrðum og undir því eftirliti
af hálfu íslendinga, sem
nauðsynlegt er, til verndar
okkar eigin hagsmunum.
★
Jafnframt því að viðhalda
því jafnvægi í efnahagsmál-
um, sem nú hefur náðst,
mun það verða höfuðverk-
efni ríkisstjórna íslands á
næstu árum að vinna einarð-
lega og skipulega að fram-
faramálunum. í því skyni
hefir verið ákveðið að semja
margþætta, stórhuga fram-
kvæmdaáætlun fyrir næstu
árin, og viðræður hafa verið
hafnar við erlendar fjár-
málastofnanir, sem lagt geta
fram fjármagn til slíkra
íramkvæmda. Tilgangurinn
er að forðast skort og sálar-
kvalir atvinnuleysisins og
skapa ört vaxandi þjóð tæki
færi til að beita starfsorku
sinni; framtaki og hug-
kvæmni til að nýta til fulls
auðlindir íslands sér til
bættra lífskjara.
★
Upphafsmenn þeirra fram-
fara, sem átt hafa sér stað
hér á landi á þessari öld, sáu
það og skildu í byrjun ald-
arinnar, að íslendingar
máttu ekki lengur þrauka í
kyrrstöðu, en urðu í skjótri
svipan að tileinka sér nýja
tækni og nýja þjóðfélags-
hætti. Þessir menn höfðu
nóga djörfung, nógan metn-
að fyrir hönd þjóðar sinnar,
til að leggja út í ævintýrið.
En sannarlega er íslending-
um á sjöunda áratug aldar-
innar ekki minni þörf á að
fylgjast með breytingum um
heimsins, að forða sér undan
kyrrstöðu og einangrun, að
slíta sig úr viðjum þjóðfé-
lagshátta, sem eru að verða
úreltir. Og vissulega er ís-
lendingum ekki minni þörf
nú en þá á djörfung og heil-
brigðum metnaði. til þess að
leysa það verkefni af hendi.
★
Góðir áheyrendur!
Það gengur á ýmsu í lífi
þjóðanna. Höppum og gengi
fylgja hrakföll og stundum
neyð. Eftir veltiárin koma
mögru árin, erfiðleikar og ó-
ánægja. Þjóðirnar verða að
kunna að bera góðu árin, án
þess að gerast andvaralaus-
ar, veikjast og spillast. Og
mögru árin, án þess að æðr-
ast og ala með sér uppgjaf-
aranda og bölsýni. Illu árin
eru aldrei eingöngu ill. Þá
reynir á fórnarlund, vit og
þrek og hverskonar mann-
dóm.
íslendingar þurfa nú
margan vanda að leysa.
Margan vanda, sem engin
stjórn fær leyst, án þess
að til komi samvinna við
allar stéttir þjóðféiagsins
— samfylking allrar þjóð-
arinnar á erfiðum tímum.
Þetta samstarf, þennan
skilning, biður stjórnin
um. Sjálf skilur hún óslc-
ir fólksins. Það er gleði-
snautt starf að standa
gegn þessum óskum, en
þó miklu betra hlutskipti
en að stefna aftur opnum
augum ofan í fenið. Með
því væri líka roiklu meiri
þrengingum boðið heim
og fjárhagslegu sjálfstæði
þjóðarinnar teflt í hættu.
Og hver vill það?
Ekkert ncma skilning-
urinn á því, hvað í húfi
er og trúin á það, að rétt
sé stefnt og að bráðlega
muni birta í lofti, getur
gefið stjórninni þrek til
þess að standa gegn kröf-
unum og þjóðinni þá bið-
lund og fórnarlund, sem
allt veltur á að hún sýni.
'k
Á morgun hefst nýr ára-
tugur á löngu æviskeiði ís-
lenzku þjóðarinnar — sjö-
undi tugur tuttugustu aldar-
innar. Við skulum vona, að
hann verði drjúgur áfangi á
leið íslendinga til meiri
þekkingar og vits, meiri
þroska, meiri alvöru og
ábyrgðar og öruggari sjálfs-
stjórnar, fastari og farsælli
taka á þeim margvíslegu við
fangefnum, sem mestu
skipta fyrir veraldlegan og
andlegan farnað.
Með ósk um vaxandi gæfu
og gengi, um vaxandi þjóð á
réttri braut, — óska ég ykk-
ur öllum, áheyrendur mínir,
og hverju mannsbarni á Is-
landi gleðilegs árs.
Itfaaðungarnppboð
eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs í Kópavogi og
að undangengnum lögtökum verður haldið opinbert
uppboð við skrifstofu mína, Álfhólsvegi 32, Kópa-
vogi, þriðjudaginn 10. janúar 1961 kl. 15. Seldar
verða bifreiðarnar R-450, Y-99, Y-678, Y- 609.
Einnig verður selt ýmis konara lausafé.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn i Kópavogi.
!!
Enskuskóli
LEO MUNRO
S í mi 1 9 4 5 6
Aldrei fleiri en 10 í flokki.
Talmálskennsla án lesturs.
Kennsla barna og fullorðinna
hefst 9. og 10. jan. (Námskeiðinu
lýkur fyrir páska).
Innritun, stundaskrá og upplýsingar
í síma 19456 daglega.
Geymið auglýsinguna.
f Jólatrésskemmfun
Glímufélagsins Ármann
verður haldinn í Sjálístæoishúsinu fimmtudaginn
5. janúar kl. 3,45 síðdegis.
Skemmtíatriði - Margir jólasveinar - Kvikmyndir o.fl
Aðgöngumiðar eru seldir í Sportvöruverzlunni
Hellas, Bókabúðum Lárusar Blöndals, og skrifstofu
félagsins íþróttahúsinu daglega frá kl. 5—7.
Glímufélagið Ármann.
Vélstjórar
VÉLSTJÓRAFÉLAG Islands
MÓTORVÉLSTJÓRAFÉLAG ISLANDS.
Jólatrésskemmtun vélstjóra verður haldin fyrir
börn félagsmanna í Tjarnarcafé sunnudaginn 8. jan.
1961 kl 15. Dansskemmtun hefst kl. 20,30.
Aðgöngumiðar verða seldir á skrifstofum félaganna
Bárugötu 11 kl. 15—-18 hjá Lofti Ólafssyni Eski-
hlíð 23, Gissuri Guðmundssyni Rafstöðinni við Elliða-
ár, Gunnar Gíslasyni Njálsgötu 71, Sveini Þor-
bergssyni, Öldugötu 17 Hafnarf., og Ásgrími Egils-
svni Álfheimum 56.
Skemmtinefndin.
Þvottahúsið SKYRTAN
frá og með áramótum sækjum við og sendum.