Morgunblaðið - 03.01.1961, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.01.1961, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 3. janúar 1961 MORGUN BLAÐIÐ 19 — Aramótaávarp Framh. af bls. 6. inn, höfuðtrygging réttlátrar framkvæmdar. „Drengur góður“, er eitt af þessum orðtökum sem lýsa hugsjón þjóðarinnar, rétt- lætiskend og mannúð. Berseks- gangurinn hefir aldrei notið virð ingar. Það væri hættulegur mis- skilningur, að þegnskapur og drengskapur komi ekki flokks- baráttunni við. Þessi hugtök eru tvístirnið í þeim þjóðarþroska, sem gerir lýðræðisskipulag ör- uggt til frambúðar. 1 annan stað ber ekki ætíð eins mikið á milli í átökum innan þjóðfélagsins og stundum virð- ist á líðandi stund eftir öldurót- inu á yfirborðinu. Og vel hafa staðizt flestar aðalákvarðanir í málefnum þjóðarinnar, þó hörð- um átökum hafi valdið á stund úrslitanna. Islendingar eru ó- venjulega samstæð þjóð, af ein- um stofni að kalla, tala sömu tungu, mótaðir af einni trú og þjóðerni. Andrúmsloftið hefir sín óbeinu áhrif hvað sem skoðunum líður. Þessum skyidleik er erfitt j að lýsa til hlítar en vér finnum | hann þegar vér hittumst á förn- um vegi í mannhafi erlendra stórborga. Og við finnum hann þráfaldlega í daglegu lífi, innan fjölskyldu og í vinahóp, á sam- komum og stórhátíðum. Hátíð er til heilla bezt. Það höfum vér sjálfsagt flestir fund- ið þessa dagana. Við finnum það þegar Jólaguðspjallið er lesið, þessi undursamlegi boðskapur, sem lýsir ætíð jafnskært i skammdegismyrkrinu. Vér finn- um það nú um áramótin, þegar vér þökkum hver öðrum fyrir gamla árið. Þrátt fyrir allt, er það svo margt og mikið, sem vér höfum hver öðrum að þakka. Og vér óskum hver öðrum gleðilegs nýárs af heilum hug í þeirri von að árið verði gott hverjum um sig og þjóðinni í heild, inn á við og út á við. Bjartsýni og kjark- ur sómir vel nýbyrjuðu ári. 1 hverri hátíð býr nokkuð af sögu og sál þjóðarinnar. Sumar miðast við merkismenn og at- burði, aðrar við kristnihald, og enn aðrar eiga rætur sína í nátt- úru landsins, atvinnulífi og gangi himintungla. Og þó rennur allt þetta saman, opnar hug vorn og sameinar sálirnar. A sínum beztu stundum á þjóðin eina sál. Góðir Islendingar. Gleðilegt nýtt ár- - Minningarorð Aramót Framh. af bls. 8 ef unglingarnir nálguðust eld inn um of. Á annað þúsund Siglfirðinga voru viðstaddir álfadansinn. - Kl. 9 var svo kveikt í nokkrum brennum í fjalls- hlíðinni ofan kaupstaðarins. Jafnframt var kveikt á blys- um eða blysaröð, sem náði frá toppi fjallsins Stráka nið- ur á brún Hvanneyrarskálar, með fram skálarbrúninni allri og upp á fjallstopp ofan Gimbrakletta. Þá var og skrif að eldblysum í fjallshlíðina, neðan Hvanneyrarskálar, hið nýja ártal 1961. Mikið af skip- um var hér í höfninni og ljós- dýrð mikil. Dansað var frá miðnætti til kl. 4 að morgni að Hótel Höfn. Áramótagleð- skapurinn hér var með sér- stökum ágætum. — Stefán. Á Kópaskeri. Hér var öndvegistíð á gaml- ársdag, stillt veður og hlýtt, en dálítið stormasamt hefur verið undanfarið. Snjólaust er nú í byggð og bílfært um all- ar jarðir. Unga fólkið, sem heima er, stóð fyrir brennu og skaut flugeldum á loft. Annars er lítið hér um ungt fólk og skemmtan eftir því. Flest af því er í skólum víðs vegar um landið. Heima sitja börn og gamalmenni. — Jósep. Á Húsavík Hér var fegursta veður á gamlársdag, logn og frostlaust Fyrsti pósturinn frá því á að- fangadag kom hingað með flugvél um miðjan dag og með honum kom jólablað Morgun- blaðsins og síðbúin jóla- og nýárskort. Það er mjög ó- venjulegt að ekki séu sam- göngur milli Húsavíkur og Akureyrar í heila viku um þetta leyti árs. Hátíðahöldin á gamlárs- kvöld hófust með því að Völs ungar fóru blysför upp á Skálamel og mynduðu stafina ÍSV með blysunum og báru síðan eld að stórum bálkesti þar í hlíðinni. Önnur brenna var á Stórhól. Síðar um kvöld ið var dansleikur í samkomu- húsinu, og eins og venjulega á gamlárskvöld voru menn góðglaðir, en engin ólæti frem ur en áður. Þó ryskingar komi stundum fyrir á dansleikum hér, hefur það aldrei borið við á gamlárskvöld, kannski vegna þess hve allir eru jafn kenndir. Strákarnir sprengdu púðurkerlingar, en höfðu ekki í frammi neina hrekki. — Silli. í Hafnarfirði Mikill mannfjöldi var við- staddur hina stóru brennu, er var hér á Hvaleyrarholtinu á gamlárskvöld og bílaumferð mjög mikil. Var kveikt í bál- kestinum kl. 8,30 og logaði í honum allt til morguns, en laust fyrir miðnætti hafði dregið talsvert úr bálinu. Á það var hellt á þriðja þúsund lítrum af olíu, sem Olíustöðin gaf. Brennan fór hið bezta fram, svo og aðrar brennur, sem hér voru, en þær voru allmargar. Urðu engin slys á fólki hér á gamlárskvöld og það hið kyrr asta. — G.E. 1 Hornafirði. Afbragðsveður var hér á gamlársdag. Tvær brennur voru á Höfn, skotið flugeldum og púðurkerlingar sprengdar. Mikill áramótadansleikur var haldinn, þar sem samankomið var fólk úr 3 sveitum, Lóni, Nesjum og Mýrum ,og voru menn góðglaðir margir. . — G. S. H andavinnunámskeið byrjar 16. þ.m. í fjölbreyttum útsaum, hekli, gimbi prjóni, orkeringu, kunstoppi o. fl. Áteiknuð verkefni fyrirliggjandi. Nánari upl. milli kl. 1—7 e.h. Ólína Jónsdóttir, handavinnukennari Bjarnarstíg 7 — Sími 13196. í'ramh. af bls. 13. hefir Ásgrímur búið félagsbúi með Sigrúnu, dóttur sinni og manni hennar, Kjartani Hall- grímssyni, var sú samvinna öll með ágætum á báða bóga. Ásgrímur bjó mestallan sinn búskap í þjóðbraut. Hann var greiðasamur og gestrisinn svo af bar, fyndinn og gamansamur og hinn mesti gleðimaður á mannamótum. Tryggur vinum sínum og óhvikull í skoðunum, en þykkjuþungur nokkuð ef honum fannst á hlut sinn geng- ið. Konu sína missti Ásgrímur árið 1956. Þau hjón eignuðust sjö börn, tvö misstu þau I bernsku en hin er til aldurs kornust eru þessi: Herbert. bif- reiðarstjóri í Reykjavík; Indíana húsfrú í Reykjavík; Konráð, bóndi á Skálá; Sigrún, húsfreyja á Tjörnum og Jón, verkstjóri i Reykjavík. Öll eru þau hið mannvænlegasta fólk, svo sem þau eiga kyn til. Ásgrímur andaðist i Sjúkra- húsi Sauðárkróks hinn 21. f. m. Tæpum mánuði áður hafði hann veikzt af heilablæðingu. Fram að þeim tima var hann hress og kvikur sem ungur væri, sístarf- andi og hrókur allg fagnaðar, bæði á heimili og á mannamót- um. Hann var eins og grenitré, aem grær á berangri, stendur sígrænt upp úr fönn og frera, þó önnur tré félli blöð og barr, „bognar aldrei, brotnar í byln- um stóra seinast“. Fétur Björnssonr. Stúlka óskast IHatstofa Austurbæjar Laugavegi 116. Til leigu í Vesturbænum Alveg ný 3ja herb. íbúð í sambýlishúsi í Vestur- bænum er til leigu. Árs fyrirframgreiðsla er áskilin. MÁLFLUTNINGS- OG FASTEIGNASTOFA Sigurður Reynir Pétursson, hri. Agnar Gústafsson, hdl. Björn Pétursson, fasteignaviðskipti Austurstræt 14, II — Símar 19478 og 22870. Skrifstofustúlka óskast á lögfræðiskrifstofu Tilboð eða uppl. sendist afgr. Mbl. merkt: Lögfræðiskrifstofa — 489-‘. ÍBÚD 3 herbergja íbúð óskast. Útborgun 250 þúsund. Tilboð merkt: „250 þúsund — 1383“ óskast strax. Hef opnað Enduískolunarskrifstofu Tek að mér endurskoðun og uppgjör. GUÐJÓN EYJÓLFSSON löggiitnr endurskoðandi. Skólavörðustíg 16 — Sími 19658. Vegna útfarar sr. Magnúsar Þorsteinssonar verður bankinn, og útibú hans í Reykjavík, lokaður fyrir hádegi, fimmtudaginn 5. janúar n.k. Búnaðarbanki íslands Maðurinn minn GUÐJÓN JÓNSSON trésmiður, Grettisgötu 31, andaðist í Bæjarspítalanum að kvöldi 1. jan. 1961. F. h. vandamanna. Kristín Jónsdóttir. Móðir okkar GUÐLAUG HELGA ÞORGRlMSDÓTTIR frá Felli í Breiðdal andaðist í Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, að morgni 2. janúar. Börn hinnar látnu Útför JÓNS ÞORFINNSSONAR Freyjugötu 5, Sauðárkróki, fer fram frá Sauðarkrókskirkju þriðjudaginn 3. janúar 1961 klukkan 1,30. Vandamenn. Jarðarför konunnar minnar, GUÐRÚNAR ÁRNADÓTTUR frá Melbæ, Kaplaskjóli til heimilis Vitastíg 9, fer fram frá Dómkirkjunni mið- vikudaginn 4. janúar kl. 13,30. — Blóm og kransar vin- samlega afþakkað. Valdimar Kr. Árnason Útför mannsins míns SR. MÁGNÚSAR ÞORSTEINSSONAR frá Húsafelli, fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 5. janúar kl. 10,30 fyrir hádegi. Jarðað verður í Fossvogskirkju- garði. Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Ástríðnr Jóhannesdóttir. Móðir okkar og tengdamóðir MARlA SIGURBJÖRNSDÓTTIR sem andaðist í Bæjarsjúkrahúsinu þann 30. des. s.L, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 6. janúar kl. 1,30. Auður Jónsdóttir, Hulda Jónsdóttir, Haukur Jóhannesson, Þorsteinn Þorsteinsson. Hjartkær eiginmaður minn, ERIK VALDEMAR JUURANTO, aðalræðismaður andaðist í Helsingfors 30. des. 1960. — Jarðarförin fer fram frá, Gamla Kyrkan, Helsingfors, 10. jan. 1960. Line Juuranto og fjölskylda. Ollum þeim sem heiðruðu minningu ALBERTS KLAHN hljómsveitarstjóra, við útför hans, þökkum við innilega. Þórunn Símonardóttir, Ingibjörg og Áróra Guðmundsdætur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.