Morgunblaðið - 04.01.1961, Side 9

Morgunblaðið - 04.01.1961, Side 9
Miðvikudagur 4. janúar 1961 MORGVNBLAÐIÐ 9 Fréttabréf úr Raubasandshreppi Árið 7960 var eitt mesta góðveðursár sem komið hefur ÁRIÐ 1960 er á enda, menn munu minnast þess sein eins hins mesta góðviðris árs sem yfir hefir gengið í manna minnum, bæði til sjós og lands, sumar sumranna. En þótt gott veðurfar sé veigamikið atriði fyrir hverja sveit, þá er það þó ekki ein- hlítt til alhliða velfarnaðar í okkar ágætu sveitum. Þrátt fyrir veðurblíðuna, fagurt um- hverfi, vegi og síma, fóru þrjú býli hér í eyði á þessu ári, og var margt sem olli. Hörmulegt slys, sem varð rétt fyrir framan landsteinana í Vatnsdal í junímánuði síðastl., þegar sonur bóndans í Vatns- dal, Erlendur Guðmundsson, drukknaði ásamt dreng úr Rvík, varð þess valdandi að Vatns- dalur er nú í eyði, því faðir Erlendar sál. Guðmundur Kristj ánsson var orðinn mjög heilsu- veiil, og ©r nú í sjúkrahúsi í Reykjavík. Erlendur var að undirbúa og rækta nýbýli í landi Vatnsdals og hugðust þeir feðgar báðir búa í Vatnsdal, en sú fram- tíðar áætlun hrundi á einum degi, svo hverfult er okkar líf, jafnvel í blíðu sumarsins. Á Látrum hætti einn bóndi búskap, Helgi Elíasson; jarð- næði það er hann hafði var of lítið til að framfleyta hans 10 manna fjölskyldu, svo hann flutti til Tálknafjarðar, en þar er uppvaxandi sjávarþorp og skortur á fólki. Aðrir búendur á Látrum bættu við sig því jarðnæði er hann hafði. Þriðja býlið sem fór í eyði var stórbýlið Saurbær á Rauða- sandi, eign Sigurvins Einarsson- ar alþingismanns. Saurbær er lang stærsta býlið í hreppnum, enda verið í tölu stórbýla allt frá landnámstíð, og er varla mannsaldur frá því að þar var >im 30 manns í heimili. Góðæri Frá hendi náttúrunnar má segja að góðæri hafi gengið yf- ir þessa sveit, búfjárhöld góð og afurðir búfjár einnig góð- ar. Þá var góð grasspretta, og nýting heyja sömuleiðis. Við bætist svo, að nú fyrst er hér að festa snjó á þessum vetri, svo nokkru nemi. Ræktun Ræktun miðar hér nokkuð áfram árlega, og er unnið að henni með stórvirkum vélum, frá ræktunarsambandi og ein- staklingum. Ólafur Sveinsson, Sellátranesi, smíðaði herfi fram- an á stóra jarðýtu, sem hann á, ásamt fleirum. Herfi þetta er afkastamikið, og þægilegt í vinnslu, en þó nokkuð á til- raunastigi ennþá. Með Ólafi vann að uppfinningu þessari Magnús Ólafsson vegaverkstjóri, frá Botni. Byffgíngar Erfitt hefir verið með bygg- ingar vegna dýrtíðar, tvö fjós voru þó að mestu kláruð, sam- tals yfir 35 kýr. Breiðavíkur- kirkja var gerð fokheld og ein- angruð. Þá var byggt hús við Bjargtangavita, sem ætlað er yfir rafmagnssamstæður (diesel) og_ radíóvita, en ekkert slíkt er þó komið í húsið ennþá, sem þó er fullgert. Þá voru og ýmsar smærri lagfæringar á húsum, sem ekki var hægt að komast hjá. Vegagerð Nýr vegur var lagður frá Látrum og út á Bjargtanga, eða það af þeirri leið sem ekki er sléttir sandar eða melar, vegur þessir var lagður á vegum „vega mála“ en kostaður af „vita- mála“ og mun hafa kostað um kr. 200 þús. — Vegurinn er góður og vel gerður. Þá voru og nokkrar lagfæringar á KoUs- víkurvegi, Sauðlauksdalssönd- um, Skersfjalli og víðar. Dragnót Það kom hreppsbúum illa, þeg ar samin voru lög um að leyfa aftur veiðar með dragnót, því af henni höfðu þeir bitra reynslu frá fyrri tímifm, en þær veiðar lögðu hér alla smá- bátaútgerð í rúst, þá útgerð sem hafði um hundruð ára veitt hreppsbúum gjaldmiðil. Tvö til þrjú síðustu ár voru farin að sjást þess merki, að nú væru miðin að byrja að ná sér, og þar með áhugi manna aftur vak inn fyrir útgerð, en þá kom andinn yfir hina vísu menn, og dragnótin aftur leyfð, við það varð mörgum þungt í skapi, því hér eru skapmenn nokkrir, enda var hér löngum. meðal þeirra presturinn, sem sagði sjötugur: „Eg hef alltaf verið lítill karl, en aldrei svo lítill karl að öllum hafi þótt vænt um mig.“ — Rauðasandshreppur greiddi því fúslega atkvæði í þessu máli, svo sem til var skipað, en talning atkvæða við það kjör, er mér ekki ennþá að fullu kunn. Vistheimilið Breiðavík Það var allmikið unnið að lendingarbótum síðastl. vetur, og var einn bátur gerður það- an út í vor, og mun bústjórinn Bjöm Loftsson hafa hug á að auka þá útgerð, og telur það mikilsvert uppeldisatriði fyrir drengina. Þá er þar allmikið unnið að jarðrækt, skepnum fjölgar og búið stækkar, nokk- uð var unnið að byggingum, er nú íbúðarhús það sem verið hef ir í smíðum undanfarið, komið undir málningu, svo líklegt er að hægt verði að taka það í notkun á næsta ári, bætir það mikið úr þeim húsnæðisskorti, sem nú er. Iþróttakennari þjálf- aði drengina um tíma í sumar, einnig var þar danskennari, og síðast en ekki sízt skáti, sem var þar í allt sumar, og verður ekki annað séð en skátahreyfingin hafi fallið þar í góðan jarðveg. Einn vistdrengja stjómar nú fundum reglulega og em þá all- ir stilltir og prúðir, svo sem skátum ber að vera. Mikið þarf enn að gera í Breiðuvík til þess að stofnunin fái þau skilyrði sem henni væru æskileg, en fjárframlögum hefir verið skor- in heldur þröngur stakkur, en skilningur hinna opinberu að- ila fer vaxandi á nauðsyn slíkr- ar stofnunar, og væri óskandi að ekki liðu mörg ár enn, þar til hann væri það mikill, að allt að því einu prósent af sölu áfengis hjá ríkinu væri varið til þessarar stofnunar, því milli hennar og áfengissöl- unnar er nokkurt orsakasam- band. Ferðafólk Allmargt ferðafólk lagði leið sína á Látrabjarg í veðurblíð- unni á síðastliðnu sumri, þar á meðal biskupinn yfir íslandi og frú hans, sem heiðruðu þessa sveit með heimsókn sinni í vísi- tasíuferð. Sjálfsagt hafa margir haft gaman af að sjá bjargið, ekki sízt þeir sem hafa haft kunn- uga með. Öll framkoma og um- gengni þessa fólks hefir verið kurteis og prúðmannleg, eins og vera ber, en í sumar kom þó fyrir atvik, sem mér fannst leiðinlegt. Páll Guðmundsson, verkstjóri, sem byggði húsið á Bjargtöng- um sem fyrr getur hafði látið setja langa röð af nokkuð stór- um steinum, með um eins met- ers millibili, á .hina sléttu og grasigrónu bjargbrún fyrir framan byggingar vitans, bæði til fegrunar og til að koma í veg fyrir slysahættu, því veg- urinn liggur að byggingunum sem stánda á brúninni, og sú ó- heppni gæti viljað til að ekið væri fram af. Steinana gróf Páll niður til hálfs, í svörðinn á brún LOFTUR h.f. BJOSMYNDASTOFaN ingólfsstræti 6. Pantið tima í síma 1-47-72. Lögfræðiskrifstofa (Skipa og bátasala) Laugavegi 19. Tómas Ámason, Yilhjálmur Ámason. — Símar 24635 — 16397 EGGERT CLAESSEN og GÚSTAV A. SVEINSSON hæstaréttarlögmen . Þórshamri við Templarasund. inni og málaði síðan gula, frá öllu var snyrtilega gengið sem hane var von. Einhver ferða- maðurinn í sumar gat þó ekki séð þetta í friði, heldur reif upp einn steininn og velti fram af, svo þar kom óVarið skarð í röðina. Hér voru ekki mikil verðmæti sem fóru forgörðum, og auðbætanleg, en hér með var rofið skarð í þá kurteisi og prúðu umgengni sem ferðafólk hefir sýnt hér, en í auðu skarð- inu blasir við siðlaus skemmd- arfíknin, öllu háttprúðu ferða- fólki til leiðinda, en skemmd- arvargurinn felur sig í fjöldan- um. Það finnst mér leiðinlegt, en ég vona að ef slíkt endur- tekur sig, að þá reki samferða- fólkið þá úr þeim felustað. Gleðileg jól! Látrum 18/12 1960 Þórður Jónsson. LO.G.T. / Stúkan Sóley nr. 242. Fundur í kvöld kl. 8,30 áð Fríkirkjuvegi 11. Kosning em- bættismanna. Nýársfagnaður: — Minningar frá liðnum árum af segulbandi. — Kaffi — Dans. i iðstitemplar St. Einingin nr. 14. Fundur í kvöld kl. 8. Af- mælisfagnaður. Sameiginleg kaffi drykkja. Annáll ársins, ræða o.fL Gleðilegt ár! Æðstitemplar. Útsölumenn Morgunblulsins Hafnarfjörður; Magnús Kristinsson Sími 50374 Keflavík ; Skafti Friðfinnsson Sími 1164 Kópavogur : Cerður Sturlaugsd. Sími 14947 Cólfslípunin Barmahlið 33. — Sími 13657. Sumkomur Almennar samkomur Boðun fagnaðarerindisins Hörgshlíð 12, Rvík í kvöld mið- vikudag kl. 8 e.h. Kristniboðssambandið Samkoman í kvöld fellur nið Skógarmenn K. F. U. M. Munið árshátíðir félagsins á föstudag og laugardag. Vitj ið miðanna í tíma í húsi K.F.U.M., Amtmannsstíg 2B. Stjórnin Jóhannes Lárusson héraðsdómslögmaður ’ögfræðiskrifstofa-fasteignasal* Kirkjuhvoli. Sími 13842. HILMAR FOSS lögg. skjalþ. og dómt. Hafnarstræti 11. — Símí 14824. PILTAR. - ef þií elalð unniisttms p's J3 eq, hrinqðnð. > mw tyrte/? /?s/7K//?tfs$or?\ Sigurður Olason Hæstaréttarlögmaður Þorvaldur Lúövíksson Héraðsdó mslögmaður Málflutningsskrifstofa Austurstræti 14. Siud i"55-ð!i Laus staða Staða bókara I. stigs er laus hjá bæjarsímanum í Reykjavík. Verzlunarskólapróf eða hliðstæð mennt- un tilskilin. Laun samkvæmt X. flokki launalaga. Umsóknir skulu berast póst- og símamálastjórninni fyrir 30. janúar 1961. Póst- og símamálastjórnin Reykjavík, 3. jan. 1961. Lundsmólalélagið Vörður Jólatrésskemmtanir félagsins verða haldnar í dag miðvikudaginn 4. janúar kl. 3 síð- degis í Sjálfstæðishúsinu. Aðgöngumiðar verða seldir í skrifstofu Sjálfstæðisflokksins á venjulegiun skrifstofutíma. — Verð kr. 40. Londsmólalélagið Vörður SKÓ-UTSALA- ÞESSA VIKU SELJUM VIÐ -KVENSKÓ linii; ANMAN SKÚFATNAB MED MIKLUM AfSLÆTTI Af ÝMSUM GERBUM MJÖG ÓDÝRT SKÓVERZLUIM ÞÓKÐAR PÉTURSSOIMAR ASalstræti 18

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.