Morgunblaðið - 06.01.1961, Page 2

Morgunblaðið - 06.01.1961, Page 2
2 MORCTIHr** 4 010 Föstudagur 6. janúar 1961 Rætt um gatnagerðar gjald í bæjarstjórn 1 GÆR var haldinn fnndur í bæj- arstjórn Reykjavíkur, sem stóð í rúma klukkusíiund. Á dagakrá voru fimm mál og flest sam- þykkt umræðulaust. Nokkur orðaskipti urðu um til- lögu um hækkun á gatnagerðar- gjaldi fyrir árið 1961, sem byggð er á endurskoðun gjaldskrár um gatnagerðargjöld eins og mælt var fyrir í þriðju grein gjald- skrárinnar, er sett var fyrir ári síðan með samhljóða atkvæðum í bæjarstjórn. Skýrði borgarstjóri frá því, að endurskoðuh þessi hefði farið fram á vegum bæjar- verkfræðings, er legði til, að gjaldið hækkaði um 18%, en bæj arráð hefði fallizt á tillögur hans. Guðmundur J. Guðmundsson og Alfreð Gíslason lýstu sig and- víga hækkun gatnagerðargjalds- ins, enda þótt þeir teldu, að hægt væri að færa rök fyrir hækkun- inni. Guðmundur bar í lok máls síns fram frávísunartillögu, þar sem m.a. var sagt, að byggingar í borginni hefðu dregizt saman um meira en helming og með til- visun til þess m.a. væri lagt til, að gatnagerðargjaldið yrði ekki hækkað. Geir Hallgrimsson talaði aftur og sagði, að þegar samþykkt hefði verið, að leggja gatnagerð- argjaldið á, hefðu allir verið því samþykkir, einnig Guðmundur J. Guðmimdsson og Alfreð Gísla- son. Þetta gjald hefði þá eins og nú eftir hækkun miðazt við það, að lóðarhafar greiddu % kostn- aðar holræsa og malarvega. Þetta gjald hefði leitt til þess, að dregið hefði mjög úr braski með lóðir og betur en áður hefði verið hægt að fullnægja lóðaeftir spum. Meiru fé væri hægt að verja til gatnagerðarfram- kvæmda. Nú væri jafnrétt að hækka gjald þetta eins og rétt hefði verið að leggja það á, enda væri kostnaður vegna lóða hér á landi skv. gjaldi þessu frá 1—4% af byggingarkostnaði, en í nágrannalöndum okkar 20— 30% byggingarkostnaðar. Þá beindi borgarstjóri þeirri fyrir- spurn til Guðmundar J. Guð- mundssonar, við hvað sú fullyrð- ing hefði að styðjast, að dregið ! hefði úr byggingum í borginni um meira en helming. Guðmund ur svaraði því til í síðari ræðu, að raunar lægju ekki fyrir töl- ur um þetta, en þá Alþýðubanda lagsmenn grunaði það. Benti borgarstjóri á, að þama væri þeim Alþýðubandalagsmönnum rétt lýst og vinnubrögðum þeirra. Það, sem í tillögu væri talin staðreynd byggðist í reynd- inni á óljósum grun. Vitnaði borgarstjóri síðan í upplýsingar frá byggingafulltrúa, þar sem fram kom að lokið hefði verið við 640—650 íbúðir á árinu, en það hefði verið talið nægilegt til að fullnægja eðlilegri þörf og ennfremur væm í smíðum um 1000 íbúðir, þar af 600 fokheldar, eða lengra komnar. Taldi borgar- stjóri hækkun þá á gatnagerðar- gjaldi, sem í tillögunni fælist ekki mundi draga úr byggingum, enda næmi hækkunin 500—900 kr. á meðalíbúð í fjölbýlishúsi, sem kostaði fullgerð 330—350 þús. kr. Að umræðum loknum var til- laga Alþýðubandalagsins felld, en bæjarráðstillagan samþykkt með 11 atkv. gegn 4. Krjúseff og Hannibal igreinir á í launamálum F Y R IR skömmu birtist svofelld fyrirspurn frá les anda í „Trud“, málgagni rússneskra verkalýðsfé- laga: „Hr. ritstjóri. Viljið þér gera svo vel og útskýra, hvers vegna framleiðslu- afköst verða að sitja í fyrirrúmi fyrir launahækk unum“. Þjóðhagsfræðingurinn A. Aganbegyan svaraði þess- ari fyrirspurn síðan í blaðinu, þannig: „Framleiðsla iðnaðar og landbúnaðar myndar burð arás efnahagslegrar getu okkar, og er því grund- völlur vaxandi velmegun- ar vinnustétta Sovétríkj- anna. Með sölu framleiðsl unnar fá fyrirtækin fjár- magn til greiðslu hráefna og launa. Framleiðsluafköstin auk ast ár frá ári. Þar af leið- ir að hver starfsmaður notar meira efni, fleiri tæki og vélar og meira eldsneyti og rafmagn. Til þess að tryggja örugga og skjóta efnahagslega þró- un, verðum við að efla þann iðnað, sem framleið- ir það, sem hér um ræðir — eldsneyti, rafmagn og vélar, með öðrum orðum „framleiðslutækin“ (í yfir | færðri merkingu) — með skjótari hætti en þann iðnað, sem framleiðir neyzluvarning. Til þessa þarf mikla fjárfestingu. Ef laun hækkuðu nú jafnhratt og framleiðsluafköstin, hefði ríkið ekki nægilegt handa milli til mikilla fjárfest- inga. En ef framleiðsluaf- köstin aukast hraðar en nemur launahækkunun- um, eykst jafnframt fjár- magnsmyndun fyrirtækj- anna hröðum skrefum. Þetta flýtir einkum fjölg- un framleiðslutækja, sem svo á hinn bóginn tryggir stöðugt hækkandi laun. Ef unnt á að vera að framkvæma 7 ára áætlun- ina, bæði með tilliti fjár- festingar á ýmsum svið- um og vaxandi velmegun- ar fólksins, verður aukn- ing framleiðsluafkasta að sitja í fyrirrúmi fyrir launahækkunum“. ★ ★ Svo virðist af þessu sem rússneskir kommúnistar séu talsvert raunsærri í efnahags- og launamálum en jábræður þeirra ís- Ienzkir. Okyrrð í Leopoldville er Hammarskjöld rœddi við Kasavubu T/EOPOT.DVTT.T.F. og Elisabeth- ville, 5. jan. (Reuíer) — Kven- maður nokkur, ákafur fylgjandi bins fangelsaða Patrice Lum- umba, var helzti leiðtogi man- nafnaðar, sem hópaðist að að- alstöðvum Sameinuðu þjóðanna í Leopoldville í dag, og lét ófrið- lega á meðan Dag Hammar- skjöld átti viðræður við Kasa- vubu Kongóforseta. Krafðist fólkið þess, að Lumumba verði Ski amenn giólust Graz, Austurriki, 5. jan. (Reuter) FREGNIR bárust í dag um það, að þrír austurrískir skíðamenn hefðu grafizt í snjóflóði í fjallinu Admont Kaibling. — Lögreglu yfirvöld upplýstu, að alls hefðu 18 manns lent í snjóflóðinu, en 15 hefði tekizt að grafa sig úr því af sjálfsdáðum. — Fjallalög- regla leitar nú hinna þriggja, sem saknað er. Verið 9 daga úti þar af 4 á veiðum ÞAÐ er komið ágætt verður núna og það eru mörg skip hér á sömu slóðum og við erum nú. Þetta sagði Sæmundur Auð- unsson skipstjóri á togaranum Fylki er Mbl. átti í gærdag sím- tal við hann héðan frá Reykja- vík, en Fylkir var þá út af Vestfjörðum. Sæmundur sagði að mjög stormasamt hefði verið út af Vestfjörðum undanfarið og frá tafir þar af leiðandi miklar. Dag urinn í gær hafði verið fjórði dagurinn, sem Fylkir var á sjálfu veiðisvæðinu, en hann hafði verið 9 daga úti. Það tíðkast ekki hjá okkur á toguninum að segja eitt eða neitt um aflabrögð svona í radio samtali, sagði Sæmundur skip- stjóri og þeirri spurningu verð- ur því ekki svarað, að þessu sinni, sagði hann. Dagana, sem togararnir hafa legið inni, hafa þeir legið und- ir Grænuhlíð, þegar bræla er útifyrir. Það var annars engu líkara að heyra í fréttum út- varpsins, sagði Sæmundur, en menn væru orðnir hálfpartinn afvelta hér fyrir vestan af langvarandi legu í landvari, sagði Sæmundur skipstjóri og hló. látinn laus. — Hermenn úr liffi SÞ stóðu affgerðalausir hjá, þeg- ar herlögregla Mobutu herstjóra barffi á nokkrum úr mannsöfn- uffi þessum og handtók suma. ★ Ekkert hefir verið látið upp- skátt iun viðx;æður þeirra Hammarskjölds og Kasavubu. Hammarskjöld hefir einnig rætt við helztu foringja SÞ £ Leo- poldville og mxxn hafa fxxnd með „Kongó-sáttanefndinni“ svo kölluðu, sem skipuð er fulltrú- um 11 þjóða. — Hótmmarskjöld mun halda ti\ Pretoria í Suður- Afríku í fyrramálið, tiil við- ræðna við stjómina þar um hina umdeildu kynþáttastefnu henn- «®r — aðskilnaðarstefnuna. Talsmaður SÞ í Elisabethville upplýsti í dag, að Nígeríuher- menn úr liði samtakanna (30— 40 manna hópur) hefðu drepið 14 Balubamenn, þegar 100—200 þeirra réðust á lest Nígeríu- mannanna og settu hana af sporinu sl. þriðjudag, skammt vestur af Albertville. Aðeins einn Nígeríumannanina særðist lítillega, af örvarskoti — Um 120 írskir hérmenn xir liði SÞ, sem sendir vom Nígeríumönnunum til aðstoðar í gær, töfðust vegna þess, að Balubamenn höfðu lagt hindranir á járnbrautarteinana, og munu írarnir ekki komast á ákvörðunarstað fyrr en í nótt eða á morgun. Vinsæll borgaistjóri hættir störSum F Á I R þýzkir borg- arstjórar hafa náff slík- um vinsældum sem yfir- borgarstjóri Hamborgar, Max Brauer, sem nú hefir nýlega látiff af störfum fyr- ir aldurs sakir. — Brauer befir sér í lagi beitt kröft- um sxnum til þess aff efla og endurbyggja hina gömlu Hansaborg, sem alltaf hefir viljaff telja sig aff miklu leyti frjálsa og sjáifstæffa — og jafnvel Hitler og naz- istaklíka hans megnuffu í rauninni aldrei aff brjóta þennan frelslsvilja Ham- borgarbúa á bak aftur. Á þessarl mynd sést Max Brauer (lengst til vinstri) í ráffhúsi Hamborgar, þegar hann lét formlega af em- bætti. Nokkrir prófessorar viff Hamborgarháskóla hlýffa á kveffjuræffn hans — en Brauer var viff þetta tækifæri gerffur aff heiffurs- doktor við háskólann. Einn ig var hann gerður heið- ursborgara Hamborgar, sem hann hefir unnið svo mikið til gagns. /** NA /5 hnúior SVSOhnútar - * t I \7 Skúrir K Þrumur W£& Kuldash! ^ HitaskH H Hmt L * Lmoi 5. I. 1961, kl II Veffurspáin kl. 10 í gærkvöldi SV-mið: NA kaldi og létt- skýjað í nótt, hvass austan og skýjað síðd. á morgun. SV-land til Breiðafjaxðar, Faxaflóamið og Breiðafj.mið: NA kaldi í fcvöld og nótt en austan stinningskaldi á morgxin, léttskýjað og frost 3—8 stlg. Vestfirðir og miðin: NA kaldi, él norðaix til. Norðurland til Austfjarða og miðin: NA kaidi, víða él, heldur kaidara. SA-land og irnðin: NA kaldi, léttskýjað.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.