Morgunblaðið - 06.01.1961, Síða 6

Morgunblaðið - 06.01.1961, Síða 6
6 M O RGV /V ® r '*>’n Föstudagur 6. janúar 1961 Víðtækasta skipa- viðgerð unnin hér Smiðjurnar annast 12 ára flokk- unarviðgerð I REYKJAVÍKURHÖFN er nú verið að leysa af hendi verk, sem íslenzkir iðnaðar- menn hafa ekki áður unnið. Er hér um að ræða 12 ára flokkunarviðgerð á vél og skrokki togarans Jéns Þor- lákssonar, eign Bæjarútgerð- ar Reykjavíkur. Hefur slík flokkunarviðgerð sem þessi ekki áður þótt á færi ís- lenzkra verktaka og hafa togararnir farið utan til þess að fá hana framkvæmda. • Margir verktakar Það var á fundi utgerðarráðs Reykjavíkur hinn 20. des. sl. að samþykkt var að fela verkið sam eiginlega Vélsmiðjunni Héðni, Stálsmiðjunni h.f., Slippfélaginu h.f. og Bræðrunum Ormson h.f. Landssmiðjan gerði og tilboð i verkið, en tilboð fyrrgreindra smiðja reyndist hagstæðara. Upphaíiega var gert ráð fyrir að þessi mikla viðgerð á tog- aranum færi fram erlendis og hafði Bæjarútgerðin leitað lil- boða erlendis. En áhugi forstöðu manna smiðjanna hér, fyrir verki þessu kom einnig fram. Var smiðjunum því gefinn kostur á að gera tilboð í nokkurn hluta verksins. • Sambærileg vinna Þegar tilboðin voru opnuð á fundi útgerðarráðs, hafði Vél- smiðjan Héðinn gert sérstakt til- boð í vélaviðgerðirnar á aðalvél, hjálparvélum, togvindu og fleiru. Fulltrúar í útgerðarráði höfðu nokkuð rætt þetta tilboð, sérstak- lega með tilliti til þess, hvort það væri á færi vélsmiðjunnar að franjkvæma viðgerðirnar. Voru mættir á þessum fundi útgerðarráðs ýmsir sérfróðir menn, sem spurðir voru um álit þeirra á því hvort Vélsmiðjan Héðinn gæti með fullu öryggi tekiit á hendur vélaviðgerðirnar. Þeir töldu að svo væri, enda þótt verkið yrði hér ekki framkvæmt á sama hátt og tíðkast að fram- kvæma þær erlendis. A fundinum mættu og ýmsir af fyrirsvarsmönnum vélsmiðjunn- ar er gerðu útgerðarráðsmönnum nánari grein fyrir tilboðinu og framkvæmd verksins. Síðan var gengið til atkvæða um tilboðin og þau samþykkt og framkvæmdastjórum BtTR falið að semja við smiðjurnar um verkið. ESBJERG, 3. jan. (Reuter) — Borgin Whistable í Englandi hefur sent Esbjerg í nýársgjöf eitt tonn af ostrum í þakkar- skyni fyrir það að Esbjerg sendi Whistable jólatré. • Skipsvélin í smiðju ! _ í gær er Mbl. átti tal við Gísla Guðlaugss. yfirverkstj. hjá Héðni og sagði hann að í fyrrad. hefði síðasta stóra stykkið úr aðalvél togarans verið tekið heim í smiðju. Var það botnskálin með sveifarásunum og vó þetta stykki' 14 tonn! Má heita að hvert ein- asta stykki aðalvélarinnar sé nú komið inn í smiðjuna til eftir- lits og viðgerðar. Hafa um 30 menn unnið ^við að laka i sund- ur vélina. Um helgina kvað Gísli togarann verða tekinn upp í slipp þar sem skrokkviðgerðin verður framkvæmd. Er gert ráð fyrir að það taki um þrjá mánuði að framkvæma slíka flokkunarvið- gerð sem þessa. 26 3 slösuðusf og nœr 4000 bílar skemmdust BÍLAÁREKSTRA- og um- ferðarslysadeild rannsóknar- lögreglunnar hér í Reykja- vík hefur fært í svonefnda slysabók deildarinnar 1853 bílaárekstra hér í lögsagnar- umdæmi Reykjavíkur á ár- inu 1960. Þessi tala gefur til kynna að eigi færri en 3786 bílar hafi orðið fyrir meiri og minni skemmdum í árekstrum á ár- inu. 1 slysabókinni eru skráð nöfn 263 manna, sem hlotið hafa meiri og minni meiðsl. — Dauðaslys urðu 3 á árinu, en 8 árið áður. Mörg koma ekki til lögreglu Óskar Ólason,' rannsóknarlög- reglumaður, sagði að hin háa tala árekstra sé þó hvergi nærri endanleg tala óhappa ökumanna í umferðinni. Margir árekstrar og minni óhöpp vérða, sem að- ilar snúa sér beint til trygg- ingarfélaganna með. Er fullvíst að tala þessara mála skiptir mörgum hundruðum. Mest í jólaönnunum Desembermánuður var sér- BONN, 5. jan. (NTB-REUTER). Talsmaður vestur-þýzka után- ríkisráðuneytisins sagði í gær að Konrad Adenauer kanslari færi til Parísar 9. febrúar nk. til viðræðna við de Gaulle, for- seta. Fyrr var þessi för ákveðin í byrjun desember sl. en henni varð að fresta vegna veikinda kanslarans. Jafnframt hefir ver- ið tilkynnt, að Macmillan for- sætisráðherra Bretlands, verði gestur Frakklandsforseta dagana 28. og 29. janúar. lega mikill óhappatími. Skráðir voru 240 bílaárekstrar hér í bænum og urðu flestir þeirra kringum jólin, en þá var nokk- ur snjór og hálka í bænum. Álfadans Akranesi, 4. janúar. ALFADANS var haidinn á þriðja í nýári við Miðgarð í Innri- Akraneshreppi kl. 10 um kvöld- ið. Alfar voru 40, grýla og púkar meðtaldir. Konungshjónin voru Hafsteinn Sigurbjörnsson og Þor- björg Jenny Olafsdóttir. Alfarn- ir voru skrautklæddir mjög, gengu skipulega en aðeins hálf- hringinn í senn vegna neistaflugs og reykjamökks frá bálkestin- um. Flugeldum var skotið og dansað á eftir í fagurskreyttu húsinu til kl. 1,30. Ölvun var með minna móti. — Oddur. SVO sem Mbl. hefur áður sagt frá fékk m.s. Lang- jökull á sig mikinn sjó í illviðri út af Horni 5. des. sl. Brotnaði borðstokkur skipsins öðru megin á 15 20 m. kafla. Það var þó lán í óláni, að stykkið brotnaði í einu lagi úr borðstokkn- um og féll inn á þilfarið en ekki útbyrðis. — Slys urðu ekki á mönnum. Á myndinni, sem fylgir hér með, og var tekin er LangjökuII kom til Siglu- fjarðar að lesta freðfisks- flök, sést greinllega hvern- ig borðstokkurinn hefur farið í sundur og vantar alveg á löngum kafla. Þá má og sjá borðstokkspart- inn, sem sjórinn braut, liggja á þilfarinu. — Stefán. (Ljósm. Ól. Ragnarsson). KAUPMANNAHÖFN 3. janúar, (Reuter) Útgefendur nýrrar kvæðabókár sem nefnist Hana- gal og er eftir Jörgen Nash, segja að bókin verði bundin inn í galvaníserað vírnet -eins og notað er í hænsnagirðingar. • Draumnóttin mikla Menn hafa löngum lagt merkingu í drauma sína, en það er ekki sama hvenær menn dreymir. En áður en lengra er haldið skyldu menn rifja upp hvað þá dreymdi. í nótt, því draum- arnir í nótt sem leið eru allra drauma merkilegast- ir. Um það segir á þessa leið í fræðatíningi Jóns Árna sonar: „Þrettándanótt er í mörgu merkileg, sem fyrr er sagt. Þá segja flestir að kýr tali, og að lið Faraós fari þá úr selshömunum og gangi á land, þó aðrir segi, það sé á nýársnótt. Þá heppnuðust og vel útisetur á krossgötum og allt eins miðsvetrarnóttina. Þrettándanótt var og haldin helg í Grímsey og víðar, allt fram um 1849, hvað sem síð- ar er, af því hún samsvaraði jólanóttinni gömlu. Hún hef- ur og verið kölluð „drauma- nóttin mikla, af því þá átti austurvegskónga að hafa dreymt um fæðingu Krists, og því eru allir þeir draumar merkilegastir og þýðingar- fyllstir, sem mann dreymir þrettándanótt.“ • Síðasti dagur jóla í dag er síðasti dagur jóla að fornu tali. Að vísu eru margir dagar jólanna vinnu- dagar alls þorra manna, en þó er eins og mönnum finmst andrúmsloft jólahátíðarinnar rikjandi fram yfir þrettánda. Hefur einnig sitt að segja í þessu sambandi öll sú ytri FERDIIMAINin t Mi'/b s’s\ \ • - • •' VC ^ vþ-Vu' / / , skreyting, sem jólunum íylg- ir. Og munu margir sákna þess þegar jólaskreytingar verða teknar niður, sem menn hafa nú horft á í rúm- an mánuð sér til ánægju. En tíminn flýgur og er aldrei á hraðari ferð en einmitt um jóli.i eins og börnin finna bezt. Við huggum okkur við, að nú er dag farið að lengja og bráðum kominn miður vetur. • Læknirinn Lúkas Hér er svo smápistill um útvarpið: K. G. skrifar: „Ég tek undir það, sem þú skrifaðir um útvarpsdag- skrána nýlega. í henni hefur margt verið gott þótt sitt sýn ist hverjum eins og gengur. En ég vil ekki láta hjá líða að láta sérstaklega í ljóg á- nægju mína með framhalds- söguna „Læknirinn Lúkas“ eftir Taylor Caldwell. Það er ágætis saga, sem hefur bæði bókmenntalegt gildi og er skemmtileg áheyrnar. Ragn- heiður Hafstein les han& iíka sérstaklega vel. Túlkun henn ar er lifandi og mannleg. Ragnheiður Hafstein er raunar útvarpshlustendum að góðu kunn frá fyrri árum. Hún hefur lesið skemmtilega útvarpssögu, auk þess sem hún var frábær þulur. Það er alltaf bjart og hreint yfir rödd hennar. — K. G.“. /

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.