Morgunblaðið - 06.01.1961, Page 10
MORGUNBLAÐIÐ
FBstudagur 6. janúar 1961
í EXNU jólablaðanna var mynd af
svokölluðu „farandhúsi“, þ.e.a.s-
íbúðarvagni til að hengja aftan í
á ferðalögum. Og undir mynd-
inni stóð sú athugasemd að svona
farartæki hefði ekki enn sést á ís.
lenzkum þjóðvegum. Er ég las
þetta minntist ég þess að hafa séð
svona ferðavagn aftan í jeppa og
það meira að segja uppi í Keri-
ingarfjöllum.
Ég leitaði því uppi Árna Guð
jónsson .hæstaréttarlögmanns, er
hafði verið með þetta farandhús
á ferðinni uppi í öræfum, ásamt
fjölskyldu sinni og önnur fjöl-
skylda. Það kom líka á daginn að
nú er rétti tíminn til að ræða um
svona farartæki, þó undarlegt
kunni að virðast, svona í fljótu
bragði. Það var einmitt upp úr
áramótunum 1958, sem Ragnar
Jónsson í Smára og frændi hans,
Jón Atli Jónsson, vélstjóri, fóru
að búa sig undir sumarferðalögin
með því að hefja smíði ferðahúss
á hjólum, sem hægt væri að
að hengja aftan í jeppa og taka
með sér hvert á land sem væri.
Árni, bættist svo seinna í hópinn.
Þegar komið er í heimsókn til
húseigenda líður venjulega ekki á
löngu áður en búið er að draga
gestinn um alla íbúðina, láta
hann kíkja inn í baðherbergið,
'skoða svefnherbergisskápana og
dást að borðskróknum í eldhús-
inu. En í þetta skipti slapp ég
með að fá nákvæma lýsingu á
eigninni, þar eð vagninn er i vetr
argeymslu.
• Setustofa og svefnskáli.
Grindin er smíðuð ofan á öxul
og er úr vinkiljárni og bílastáli.
Húsið er 3,20 m. á langd og um
1,80 m á hæð og því vel mann-
gengt. Teikninguna gerði Jón Atli
Innréttingin virðist ákaflega hag
kvæm. Sófar eru meðfram báð-
um hliðum endilöngum, og borð
á milli við endavegg. Á sófunum
eru stoppuð bök og þegar komið
er að háttatíma er bökunum lyft,
svo að myndast tvær kojur. Þá er
borðið lengt og fellt niður á milli
bekkjanna, og er þá hægt að hafa
flatsæng í sætishæð nærri eins
stóra og innanmál vagnsins.
2ja hellna kosangaseldavél er
í enda vagnsins og er tveimur
kósangasdunkum komið fyrir í
grindinni framan við vagninn.
Eru þeir oftast teknir úr sam-
bandi á næturnar og eins meðan
ekið er. Ýmis annar góður útbún-
aður er í þessum íbúðarvagni, t.
d. rafljós frá bílmótornum inni og
stefnuljós og bremsuljós aftan á
honum. Auk þess útbúnaður til
að skjóta undir hann stultum, ef
stanzað er að ráði, svo hægt sé að
taka bílinn frá.
Venjulega fara tvær fjölskyld-
ur í ferðalögin með farandhúsið,
einkum um hálendið, þar sem
hentugt þykir að ferðast í tveim-
ur bílum á ótryggum
vegum, og segir Árni
að prýðilega rúmt sé
um tvenn hjón og eitt-
hvað af krökkum í
vagninum. Hann gefi
líka tækifæri lil að
taka með litla krakka,
sem varla er hægt að
hafa í tjöldum í hvaða
veðri sem er. í vagn-
inum sé alltaf hlýtt og
þurrt, þó ekki sé verið
í honum á ferð. —
Minntist hann þess að ein-
hverntíma þegar þau höfðu gist í
ferðavagni sínum við Tungurétt
og rignt ferlega um nóttina, að
þá var drukkið morgunkaffi við
öll þægindi eins og heima hjá sér
um morguninn, áður en lagt var
upp. En er ekið hafði verið í hálf
tíma, óku þau fram á ferðamenn,
klædda regngöllum frá hvirfli til
iija, og voru þeir að vefja saman
rennblautum svefnpokum og taka
saman blaut tjöldin. „Engin
hótel, engir matsölustaðir, bara
henda upp í farandhúsið poka af
kartöflum og pakka af saltfiski
og aka svo út í buskann sagði
Árni. Ekkert þarf að ákveða um
dagleiðir, bara aka út af veginum
og sofa eða borða, þegar ferða-
fólkinu dettur í hug“.
Ég heyri af þessu að farandhú®'
eigendur eru ekki síður montnir
af eign sinni en íbúðareigendur,
en í gestabók þessa óvenjulega
sumarhúss má sjá svart á hvítu
að margar skemmtilegar ferðir
hafa verið farið með það, tvær
berjaferðir, veiðiferðir og fjalla-
ferðir í Kerlingarfjöll, á Hvera-
velli, að Hvítárvatni (og á bát í
Karlsdrátt,) austur að Heiði í
Skaftafellssýslu og þar inn á há-
lendið, kringum Snæfellsnes og
Fjallabaksleið nyrðri í Eldgjá.
Fallegu litmyndina af Eldgjá í
myndabókinni „ísland í máli og
myndum" hefur Ragnar einmitt
tekið í þeirri ferð. Einnig eru fjöl
margar af öðrum myndum í bók.
inni teknar í ferðum um landið
með farandhúsið aftan í jeppan-
um.
Að lokum gat Árni þess að
þetta væri ekki eina farandhúsið
á íslandi. Leifur Erlendsson, veit
ingamaður, hefði byggt minna
hús til ferðalaga yfir jeppa-
kerru og farið víða um með það
aftan í jeppa sínum.
E. pá
Bara að aka út af veginum og setjast að.
Ráðstejinn í Marokko hafin
< Casablanca, Marokkó, 5. jan.
•— (Reuter) —•
MOHAMMED, konungur í
Marokkó, setti í gær ráð-
stefnu sex Afríkuríkja og
eins Asíuríkis með ræðu, þar
sem hann sagði, að framtíð
heimsins væri í hættu sök-
um þess, að Sameinuðu þjóð
unum hefði ekki tekizt að
lægja öldurnar í Kongó. —
Hann sagði, að nýlenduþjóð-
ír væru nú að þreifa fyrir
sér með Kongó hvernig bezt
verði komið við nýrri ný-
lendustefnu, sízt betri en
þeirri er áður þekktist í
Kongó. — Ráðstefnan á að
fjalla um framtíð Alsír og
fleiri vandamáj Afríkuþjóða.
t Stuðningsmenn Lumumba
' Raðstefnu þessa sækja full-
trúar frá Ghana, Guineu. Mali,
Líb-
Ghana,
Arabaiýðveldinu, Marokko,
íu og Ceylon auk þess sem
Ferhat Abbas forsætisráðherra
útlagastjórnar Alsír situr ráð-
stefnuna sem gestur. Eru full-
trúar yfirleitt hlynntir Lum-
umba, fyrrv. forsætisráðherra í
Kongó, sem nú er í haldi hjá
Mobutu ofursta, og krefjast
gagngert að Lumumba verði
aftur fengin völd í hendur.
Mohammed konungur bar
fram áætlun í nokkrum liðum.
Er þar meðal annars kveðið svo
á, að komið verði á ráðstefnu
allra stjórnmálaflokka í Kongó,
að Sameinuðu þjóðirnar auki
fjárhagslega og tæknilega að-
stoð við Kongó . og að Afríku-
þjóðir hafi forystu um aðstoð
við Kongó.
Ráðstefna þessi hófst degi síð-
ar en ætlað var, vegna frestunar
á för þeirra Kwame Nkruma
forseta Ghana, Sekou Toure frá
Guineu og Mobito Keita frá
Mali. Þeir komu fljúgandi með
tveim rússneskum flugvélum
skipuðum rússneskum áhöfnum.
Lentu vélarnar á flugvelli
bandarísku herstöðvarinnar við
Nouaceur. Mun það einsdæmi,
að flugvél með r issneskri áhöfn
lendi á slikri flugstöð Banda-
rikjahers.
Fiugvélamar eru gjöf til
Toure og Nkrumah frá Krúsjeff,
forsætisráðherra Sovétríkjanna.
Síðdegis í dag var frétta-
mönnum tilkynnt, að á ráð-
stefnunni hefði náðst „fullkom-
ið samkomulag" um Kongómál-
ið. — Mun ráðstefnan nú taka
að fjalla um Alsír.
LONDON, 5. jan. (Reuter) —
Heimspekingurinn Bertrand
Russeil stendur fyrir fjög-
urra. klukkustunda mótmæla-
setu frammi fyrir aðsetri varn-
armálaráðuneytisins brezka á
laugardaginn. Mótmælt er kaf-
bátalægi Bandaríkjamanna í
Skotlandi.
Fyrrverandi yfirlæknir
barnaspítala ákærður
Kíel, Þýzkalandi, 5. janúar.
PROFESSOR Werner Cate, sem
var yfirlæknir barnaspítala há-
skólans í Kíel þar til í september
sl. er annar tveggja lækna, sem
ákærðir eru fyrir þátt-
töku í aftöku vangefinna
barna á valdatíma nazista. Til-
kvnning um þetia var gefin út
á vegum ríkisstjómarinnar í gær.
Rannsókn er hafinn í máli lækn-
anna og jafnframt athugun á því
hvort þeir verði sviptir lækninga
leyfi, en h>áðir eru starfandi
læknar.
Aftökur bama þessara fóru
fram samkvæmt „Miskunnar
áætlun“ Hitlers og er talið, að
börnin bafi verið deydd á barna
sjúkrahúsi í Hamborg.
Svipaðar ásakanir eru bornar
fram gegn sex öðrum læknum.
Ágfúst
Fjeldsted
torm. löff-
mannatél.
HINN 9. des. sl- var haldinn að-
alfundur Lögmannafélags í»-
lands. Var fundurinn einhver
hinn fjölmennasti, sem haldinn
ihefur verið um árabil.
Lárus Jóhannesson, sem hafði
verið formaður félagsins, lét af
formennsku sl. vor, en þá va,'ð
fhann sem kunnugt er hæstarett-
ardómari.
Ágúst Fjelsted hrl., sem hafði
verið varaformaður félagsir.s,
tók við formennsku í félaginu.
Flutti Ágúst á fundinum skýrslu
stjórnarinnar, en starfsárið var
mjög atburðaríkt og mörg mik-
ilvæg mál tekin fyrir á árinu.
Merkast þeirra var» stofnun
lífeyrissjóðs lögmanna, en stjórn
félagsins beitti sér fyrir stofnun
hans. Var vandað mjög til líf-
eyrissjóðsins og er hann nú tek-
inn til starfa og fer sjóðsfélög-
um fjölgandi.
Þá beitti stjórnin sér fyrir þvf,
að gerðar voru tillögur til dóms-
málaráðherra um, að settar yrðu
reglur um, hvaða störf samrým-
ast lögmannsstörfum. Sú stefna
er zíkjandi í félaginu, að þeir
einir eigi að stunda lögmanns-
Aörf, sem hafa það að aðalat-
vinnu, en þeir sem stunda dóms-
störf eða stjórnsýslustörf eigi
ekki að stunda lögmannsstörf
jafnhliða.
Stjórnin beitti sér og fyrir
því, að settur yrði Codex etbicus
lögmanna, þ. e. siða. og starfs-
reglur lögmanna. Er codexinn
mjög ítarlegur og fjallar bæði
um skyldur lögmanna gagnvart
skjólstæðingum sínum svo og
um skyldur lögmanna gagnvart
starfsbræðrum sínum.
í ágústmánuði sl. var haldið
hér í Reykjavík mót norrænna
lögfræðinga. Var mótið mjóg
fjölsótt, bæði af erlendum og Í3-
lenzkum lögfræðingum. Félagið
og félagsmenn þess tóku að
sjálfsögðu þátt í mótinu. Bauð
félagið erlendum lögmönnum til
hádegisverðar með íslenzkum
lögmönnum að Hótel Borg, svo
og höfðu fjöldamargir félags-
menn heimboð fyrir erlenda lög
fræðinga og konur þeirra. Var
það mál manna, að mótið hefði
tekizt með ágætum. Stjórn fé-
lagsins og einstökum félags-
mönnum hafa borizt fjöldi pakk
arbréfa frá erlendum þátttak-
endum, þar sem þökkuð er mót-
takan og allur viðurgemingur,
og telja þátttakendur, að mótið
verði þeim ógleymanlegt.
Á fundinum voru einróma
kosnir í stjóm félagsins næsta
starfsár, þeir: Ágúst Fjeldsted
hrl., formaður, Egill Sigurgeirs-
son hrl., varaformaður, Jón N.
Sigurðsson hrl. gjaldkeri, Gísii
Einarsson hdl., ritari og Þor-
valdur Lúðvíksson hdl. með-
stjórnandi.
Gjafir til Björg-
unarskútusjóðs
Breiðafjarðar
Stykkishólmi, 4. janúar.
NU UM áramótin bárust Björg-
unarskútusjóði Breiðafjarðar
tvær höfðinglegar gjafir. Var
önnur þeirra tíu þúsund krónur
frá hjónunum Halldóru Isleifs-
dóttur og Guðmundi Finnssyni
frá Nesi við Stykkishólm, en það
er minningargjöf um son þeirra,
Sighvat, sem látinn er fyrir
nokkrum árum.
Hin gjöfin er tuttugu þúsund
krónur frá hjónunum Steinunni
Guðbjörgu Þorsteinsdóttur og
Asmundi Jóhannssynj frá
Kverná, Eyrarsveit, og er hún
gefin til minningar um látna syni
þeirra hjóna, Búa, Kristin og
Vilhjálm. — Fréttaritari.