Morgunblaðið - 06.01.1961, Blaðsíða 16
16
Föstudagur 6. janúar 196?
W ?JORGVNBliAÐlÐ
skrifar um :
KV I K M V N D I R
JÓLAMYNDIR kvikmyndahús-
anna flestra eru enn í fullum
gangi, enda eru þær yfirleitt
mjög góðar og sumar þeirra
úrvalsmyndir. Ég hef ekki kom-
izt yfir að sjá allar myndirnar,
en margar þeirra hef ég séð og
vissulega ekki orðið fyrir von-
brigðum. Vil ég fara hér nokkr-
um orðum um þessar myndir,
án þess þó að rekja efni þeirra,
enda hef ég gert það að nokkru
áður hér í blaðinu.
Athyglisverðust þessara
mynda finnst mér tvímæla-
laust Walt Disney-teiknimyndin
„Þyrnirósa", sem sýnd er í
„Gamla bíói. Er mynd þessi
snilldarvel gerð og tæknilega
mesta meistaraverk Disney's og
er þá mikið sagt. Efnismeðferð-
in er einnig með miklum ágæt-
um, er bæði hádramatísk og
spennandi, hugkvæmnin mikil
og myndin auk þess full af
góðri kímni. Þá eykur hin
fagra músík Tschaikowskys
mjög á gildi myndarinnar.
Myndin „Einskonar bros“,
sem Nýja bíó sýnir, er einnig
ágæt mynd, efnismikil, vel gerð
og prýðilega leikin, enda fara
þar með aðalhlutverkin Christ-
ine Carere, Rossano Brazzi, Jo-
an Fontaine og Bradford Dill-
man, öll leikarar í fremstu röð.
Einkum er frábær leikur hinn-
ar ungu og aðlaðandi leikkonu
Carere, sem fer með veiga-
mesta hlutverkið.
„Trappfjölskyldan í Ameríku“
sem Austtirbæjarbió sýnir er
einnig mjög skemmtileg og vel
gerð mynd og gefur ekkert eft-
ir fyrri Trapp-myndinni, sem
Austurbæjarbíó sýndi hér í
febrúar sl. Ruth Leuwerik, sem
leikur aðalhlutverkið, baróns-
frúna, er mjög heillandi og
snjöll leikkona, og yfir mynd-
inni allri er léttur og skemmti-
legur blær og söngurinn ágæt-
ur. Er ekki vafi á því að marg-
ir munu vilja fylgjast með af-
drifum þessarar heillandi fjöl-
skyldu í Ameríku, baráttu
hennar og glæsilegum sigri að
lokum.
„Kvennagullið", sem sýnd er
í Stjörnubíói, er all-efnismikil
mynd, en það sem öðru fremur
gefur henni gildi er ágætur
leikur þeirra Frank Sinatra og
Ritu Hayworth.
í Hafnarf jarðarbíó gengur
enn fyrir fullu húsi gaman-
myndin „Frænka Charles“ í
danskri útgáfu. Ég hef séð
þennan víðfræga gamanleik í
mörgum útgáfum, bæði á leik-
sviði og sem kvikmynd og tel
ég þessa dönsku gerð myndar-
innar tvímælalaust bezta, enda
fara þarna með hlutverk marg-
ir af beztu gamanleikurum
Dana. Dirch Passer, sem leikur
„frænkuna“ er óviðjafnanlegur
í því hlutverki og aðrir leik-
endur Jara og prýðilega með
hlutverk sín. Þykir mér líklegt
að mynd þessi endist Hafnar-
fjarðarbíói ekki skemur en
myndin „Karlsen stýrimaður“,
sem bíóið sýndi mánuðum sam-
an, svo að það sló öll met.
Síðast en ekki sízt skál l.ér
getið myndarinnar „Vínar-
drengjakórinn", sem Bæjarbíó
sýnir. Er það aðlaðandi mynd,
tekin í fögru umhverfi og .vel
gerð. Að vísu er myndin nokk-
uð „sentimental“ á köflum, en
söngur drengjanna er frábær
og margt annað hefur myndin
sér t'íl ágætis. Michael litli
Ande, sá hinn sami, sem at-
hyglisverðastur er meðal söngv-
aranna ungu í Trapp-myndinni,
fer þarna með aðalhlutverkið
og leysir það ágætlega af hendi,
bæði að því er söng og leik
snertir. Og lögin, sem sungin
eru í myndinni, eru hvert öðru
fegurra.
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
■J
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
Máía&kólinn
M í M I R
Miðsvetrarnámskeiðin
Kennsla fullorðinna hefst mánudaginn 16. janúar. Inn-
ritað verður til föstudags 13. janúar.
Skólinn hefur nú úrvalskennurum á að skipa.
Áherzla er lögð á létt og skemmtileg samtöl í kennslu-
stundum. Samtölin fara fram á því máli, sem nemendur
eru að læra, og venjast þeir því á það frá upphafi að
TALA tungumálin og hlusta á þau í sinni réttu mynd.
Byrjendaflokkum kenna sérmenntaðir Islendingar, sem
skýra byggingu málsins fyrir nemendum og þjálfa þá
í frumatriðum þess. Síðan taka útlendingar við, og
kennir hver þeirra sitt eigið móðurmál. Við slíkt nám
öðlast nemendur þjálfun, sem að jafnaði fæst ekki nema
við dvöl í sjálfu landinu, þar sem hið erlenda tungu-
mál er talað.
Enska, þýzka, franska, spænska, ítalska, danska,
norska, s«,,’<'' -• f«c “«ira, íslenzka fvrir útlend-
inga.
Enskukennsla fyrir börn
Hin vinsælu enskunámskeið fyrir börn hefjast næst-
komandi mánudag, 9. janúar. Gengið verður endanlega
frá flokkaskipan í dag og á morgdn. Skrifstofan verður
opin í dfo til kl. 7 og á morgun ( laugardag) til kl. 4.
Mál'sVólin" M>MIK
Hafnarstræti 15 (sími 22865).
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
V
s
\
s
2
LESBÓK BARNANNA
LESBÓK BARNANNA
3
Ljónið og músin
IUM
f einu af ævintýrum Espós er sagt
frá viðskiptum ljónsins og músannii-
ar.
Ljónið —, konungur dýranna —,
lá sofandi í bæli sínu. Þá vildi svo til,
að mús hljóp yfir trýnið á því og vakti
það. Ljónið reiddist, rétti út hramm-
inn og greip músina og ætlaði að gera
út af við hana á svipstundu. En mús-
in beiddist auðmjúklega vægðar og
grátbændi ljónið að flekka ekk: vold
ugan hramm sinn á svo auðvirðilegu
herfangi.
„Ég er svo lítiP sagði hún, og það
var alls ekki viljandi gert, að ég villt
ist hingað inn. Ef þú gefur mér líf,
skal ég launa þér lífgjöfina, þótt síð
ar verði“.
Ljóninu fannst það brosleg tilhugs
un, að svona agnarlítill músarangi,
gæti nokkru sinni veitt konungi dýr
anna lið. En það var í góðu skapi og
mildaðist við kveinstafi mú .mar,
svo það lyfti upp hramminum og mús
in fékk að fara í friði.
Litlu síðar bar svo við, að ljónið
var á veiðum í skóginum og festist
þá í snöru veiðimaniva. Þegar það
fann, að það gat enga björg sér veitt,
rak það upp öskur mikið, «vo að und
ir tók í öllum skóginum.
Músin þekkti undir eins rödd líf
gjafa síns, flýtti sér á vettvang og
fór að naga í sundur böndin, sem
veiðimennirnir höfðu fjötnað ijónið
með, því þeir ætluðu að færa keisara
sínum það lifandi. Sjálfir höfðu þeir
farið að sækja sér vagn, sem þeir
gætu flutt það á til borgarmnar.
Að lítilli stundu liðinni, hafði mús-
in hagað sundur böndin, og þegar
konungur dýranna hljóp burt tu að
fela sig, kallaði músin á eftir honum:
„Ég hafði á réttu að standa, þótt ég
sé smá og lítilsverð í samanburði v>ð
þig, gat ég samt bjargað lífi þínu“.
Það er enginn svo smár að ekki sé
betra að hafa hann með sér en móti.
*
Teníngarnir
og grísinn
Notaðir eru tveir teningar, sem leik-
mennirnir skiptast á um að kasta. Hvor
um sig, hefur við höndina blýant og
pappír.
í hvert skipti, sem upp koma sex
samtals (á báðum teningunum), — og
aðeins þá, — má sá heppni teikna einn
part af grísnum á blaðið sitt. Partarn-
ir eru alls 7 eins og sézt á myndinni.
J. F. COOPER:
mm nóiiliii
1. Sagan hefst árið
1757. Tveir mannsaldrar
höfðu liðið þannig, að
Englendingar og Frakk
ar börðust um, hvor
þeirra ætti að hafa yfir.
ráð yfir Kanada, þessu
frjósama og auðuga landi.
Ennþá varð ekki séð fyr
ir endann á stríðinu.
Kvöld nokkurt kom
rauðskinni hlaupandi frá
enska virkinu Wihiam
Henry, til Edwards virk
isins, sem var annað
enskt vígi.
Indíáninn bað foringja
virkisins að senda liðs-
auka þar sem öflugur
franskur hér hefði sótt
fram. Fimmtán hundruð
manna liðsauki, að nokkr
málalið en einnig skip-
að innflytjendum, lagði
morguninn eftir af stað
frá Edwards virki til
þess að hjálpa löndum
sínum í Williams Henry
virki að standast arasir
Frakka.
2. Nokkru eftir að her
inn lagði af stað, reið
fámennur hópur út úr
Edwards virki. Rauð
sKÍnninn, sem daginn áð
ur hafði komið með Jiðs
bónina, var fremstur í
íIokk: sem leiosögumað
ur hópsins.
Aðrir voru urgur liðs
for’ngi Heyward að
nalni. og tvær .agrar,
ungar stúlKur Sú eiuri,
Córa var dökkhærð, en
sú yngri Alísa, ljóshærð
Þær voru dætur hins
ht ,msfræga hershófð-
ingja, Skotans Munrós,
sem var yfirforingi Will
iam Henrys virkis.
Stulkurnar nötðu verið
í he.'msón í Edwaicis
virki og ætluðu sér nú
að komast heim til Wiil-
iams virkis á undan her
sveitinni, mtS því að
stytta sér leið í gegn um
skóginn.
Sólin skein í heiði og
það lá vel á ferðafólkinu,
þegar það lagði af stað,
undir leiðsögn Indíánans,
sem taldi sig kunnugan
leiðinni. Ekki var helaur
ástæða til að óttast árásir
Frakka þar sem þau fóru
eftir skógarstíg, sem fáir
bekktu