Morgunblaðið - 06.01.1961, Síða 24
VELSKIPIÐ Fanney hefur ver-
ið vestur við Jökul undanfarið
og fylgst þar með síldargöngun-
um. I gær tilkynnti skipið að
orðið hefði vart síldar. Síldar-
bátarnir höfðu haldið af stað
og meðal þeirra sem voru á leið
vyestur undir Jökul var Víðir II.
I ★
ÞÆR fregnir bárust Mbl. í gær-
kvöldi, um kl. 11.30 að líflegt
virtist vera vestur undir Jökli,
þar sem sildarbátarnir eru.
Síldin var sögð stór og feit,
sem bátarnir voru að fá.
Höfðu borizt fregnir af því að
8-11 tonn
á tínu
! FKÉTTARITARI Mbl. í Sand-
gerði símaði I gærkvöldi, að
Sandgerðisbátar sem byr.jaðir
eru róðra með línu, hafi fengið
prýðisafla í róðri sínum í gær.
Veður var hagstætt og bátarn-
ir þurftu stutt að sækja. Bát-
arnir scm eru átta að tölu, voru
með 8 til 11 tonn af hinum
fallegasta þorski. Þeir fóru aft-
ur út í kvöld. Þetta er fyrsti
dagurinn nú um langt skeið, sem
jafn gott sjóveður hefur verið.
Björgvin
Guðmundsson
tónskáld látinn
í BJÖRGVIN Guðmundsson tón-
ekáld andaðist í fyrrinótt á
ejúkrahúsirvu á Akureyri og
ekorti þá aðeins fáa mánuði til
ejötugs. Björgvin hafði um all-
f langt skeið ekki gengið heill til
ekógar.
Björgvin Guðmundsson var
fæddur hinn 26/4 1891 að
Rjúpnafelli í Vopnafirði. Hann
lauk tónlistarnámi í London,
hélt síðan til Kanada þar sem
hann var söngstjóri fjölda söng-
félaga. Eftir komuna hingað til
iands stofnaði hann Kantötukór
Hafnarfjarðarbáturinn Eldborg
væri með 400—500 tunnur á síð-
unni og voru skipverjar að háva
úr því í skipið. Guðmundur
Þórðarson var með um 500
tunnur og Vdðir II var með gott
kast.
Kær níu tonna afli
Patreksfirði, 5. jan.
1 ÞRIÐJA róðrinum á nýbyrj-
aðri vertíð, voru bátarnir héð-
an með 5,6—8,7 tonna afla.
Tálknfirðingar voru á sjó á
tveim bátum og varð annar fyr-
ir miklu veiðarfæratjóni, en
hinn kom með um sex tonn.
Isafjarðarbátar voru með
tregan afla í gær.
Leki kom að veðurþjónustu-
skipinu og jbað leitaði hingað
BREZKT veðurathugunarskip
kom hingað til Reykjavíkur í
gær, eftir harða útivist á veður-
athugunarsvæðinu Alfa. Hafði
leki komið að skipinu, svo það
neyddist til að leita hér hafnar.
Þetta skip lét úr höfn í Skot-
landi á aðfangadag. Það heitir
„Ocean Wheather Adviser" og
skipstjórinn Sobey, sem hingað
hefur oft komið.
í fyrradag, er vart varð lek-
ans í skipinu, hafði hann komið
á það einhversstaðar aftantil,
undir vélarrúmi. Eitthvað hafði
sjór komizt í sjájft vélarrúmið
Ekki taldi skipstjórinn annað
fært en að sigla til Reykjavík-
ur og leita hér viðgerðar. Fór
kafari niður undir skipið síð-
degis í gær til að kanna
skemmdimar. I ljós kom að raf-
soðin samskeyti á plötum hafa
sprungið. Var þá ákveðið að
gera við rifuna til bráðabirgða
með því að setja í hana sem-
ent, og gæti þá skipið farið út
aftur til veðurþjónustustarfa á
Alfasvæðinu.
Skipstjórinn á skipinu hafði
skýrt svo frá að heita megi að
óveður hafi verið dag hvern
síðart skipið lét úr höfn og sé
því líklegast að lekinn hafi
komið að skipinu í óveðrinu í
vikubyrjun. Þegar skipið náði
höfn hér, hafði það fengið leið-
indaveður og það var 3—4
13. brenna
Keflavík, 5. janúar.
A MORGUN verður hér mikið
um dýrðir, því að efnt
verður til stórkostlegrar þrett-
ánda-brennu og lúðrasveitar-
leiks. Eru það Karlakór Kefla-
víkur og Lúðrasveit bæjarins,
sem efna til þessa fagnaðar.
Á íþróttavellinum hefur veiið
unnið að því í gær og í dag að
hlaða 10—15 m háan bálköst.
Álfakongur og drottning hans
munu ganga í blysför frá barna
skólanum að bálkestinum ásamt
miklu og fríðu föruneyti.
— Helgi S.
Kveikt í timbri
Akranesi, 5. janúar.
1 GÆRKVOLDI brann timbur-
stafli sem geymdur var inni í
húsinu Hjarðarholti 2, en það
hús er í smíðum. Var timbur
þetta 6000—8000 króna virði.
Talið er að kveikt hafi verið i
því, og þar hafi óvitar verið að
verki. — Oddur.
Vinnin&shlutíaU í
H.I. ver&ur óbreytt
klukkustundum á eftir áætlun
er það kom.
Meðan skipið var á leið
hingað til Reykjavíkur, höfðu
skipsmenn tekið sig saman um
að efna til samskota meðal
skipshafnarinnar, líklega lið-
lega 100 menn. Safnað var sæl-
gæti og það skyldi gefið börn-
um, sem rúmliggjandi eru í
Landakotsspítalanum þegar til
Reykjavíkur kæmi. Vildi skips-
höfnin á þann hátt votta þakk-
læti sitt til lækna og hjúkrun-
arliðs spítalans, en þar hafa
skipsmenn oft notið hjúkrunar
og lækningar á undanfömum ár
um. Fóru 4 skipsmanna með
sælgætispokann í gærkvöldi í
spítalann, þar sem þeim var
tekið með mikilli gleði af
barnadeildarsj úklingum.
Það er engu likara en hér
sé um að' ræða mynd af
skipsflaki. Svo er þó ekki. —
Þetta er togarinn Jón Þor-
láksson og á bls. 6 er frétta-
grein um það, hvað verið er
að gera við skipið. — Mynd-
in var tekin í gærdag, aí
skipinu.
Ljósm. Mbl. vignir.
ÖrSngleíkar
hjá B.Ú.R.
Á FUNDI útgerðarráðs
Rvíkurbæjar, skömmu
fyrir jólin, skýrðu fram-
kvæmdastjórar Bæjarút-
gerðar Reykjavíkur frá
hinum mikla aflabresti
hjá togurunum undan-
fama mánuði. Hefði afla
leysið leitt til mikilla
fjárhagsörðugleika hjá
Bæjarútgerð Reykjavík-
ur. —
Fr amk væm dastjórarnlr
töldu aflaleysið á heima-
miðum stafa af verulegu
leyti af því, að mörg
beztu veiðisvæði togar-
anna, sem áður voru, eru
nú innan fiskveiðiland-
helginnar og bönnuð tog-
urunum til veiða. Enn-
fremur hafi afli brugðizt
nær algerlega á fjarlæg-
um miðum.
4. tbl. — Föstudagur 6. janúar 1961
Björgvin Guðmundsson
Akureyrar 1932, en árið áður
gerðist hann söngkennari bæði
við Menntaskólann og Barna-
skólann á Akureyri.
Björgvin Guðmundsson er
löngu þjóðkunnur sem merkt
Og mikilvirkt tónskáld. Hann
samdj allmörg stór og viðamikil
verk og mikinn fjölda sönglaga,
bæði fyrir kóra og einsöng.
Einnig samdi hann mörg lög
fyrir píanó og orgel.
Frú Margrét Jónsdóttir lifir
mann sinn rúmlega sextug að
k aldri.
FI M M þúsund nýir miðar
voru gefnir út nú um ára-
mótin í Happdrætti Háskóla
íslands. Eru þeir að mestu
leyti uppseldir nema örlítið
sem liggur í umboðunum í
Reykjavík.
Dregið verður í 1. flokki
mánudaginn 16. janúar. Þeir,
sem áttu miða í happdrættinu
á sl. ári, eiga forkaupsrétt á
númerum sínum til 10. janúar
nk., og því nauðsynlegt að fólk
hafi samband við umboðsmann
sinn fyrir þann tíma.
Útgefnir miðar í H.í. eru nú
60 þús. talsins. Vinningum var
einnig fjölgað, í 15000 yfir árið,
þannig að vinningshlutfallið
verður óbreytt, þ. e. a. s. fjórði
hver miði fær vinning að meðal
tali, eins og áður.
Upphæð hæsta vinningsins er
ein milljón, en þar sem margir
hálfmiðar og fjórðungsmiðar
eru seldir, er líklegt að hái
vinningurinn skiptist. Fjórðungs
miðar í H.í. eru 56,900 að tölu,
hálfmiðar 46,300 og heilmiðar
22,625.
Endumýjunarverð heilmiða
er kr. 60,00, hálfmiða kr. 30,00
og fjórðungsmiða kr. 15,00.
Helgaíell minnist
almæiis Tómasar
Á setugsafmæli Tómasar í dag
gefur bókaútgáfan Helgafell út
nýja heildarútgáfu á verkum
skáldsins. Eru í safninu ljóð þess
öll sem áður hafa birzt og enn-
fremur ljóðaflokkurinn Mjallhvít
og dvergarnir sjö, sem ekki hefir
áður komið í heildarútgáfum
hans.
Framan við ljóðasafnið er löng
og ítarleg ritgerð um Tómas Guð
mundsson og skáldskap hans eft-
ir Kristján Karlsson, rithöfund.
Ritgerð Kristjáns er um fjörutíu
blaðsíður í sjö köflum og eru
eftirfarandi ályktunarorð eins
kaflans. „(Tómas) er áreiðanlega
ásamt Jónasi skemmtilegasta
skáld tungunnar“. Bókin er mjög
fallega útgefin, alls tæpar 300
bls.
Síld
Síld
Sjá bls. 11.
Synir og feður
Sjá blaðsíðu 8.
Dágúður afli
við Jökul