Morgunblaðið - 14.01.1961, Side 19
Laugardagur 14. jan. 1960
MORKirWltT 4 Ð1Ð
19
Óljós vígstaða í Laos
Vientiane, Laos, 13. jan.
VÍGSTAÐAN í Laos er enn
óljós. Stjórnarherinn heldur
— Belg'ia
Frh. af bls. 1
flokksins saman til fundar í borg
inni Namur í samnefndu héraði.
, Voru það nokkrir fulltrúar
flokksins á þingi, borgarstjórar
og formenn ýmissa flokksfélaga
og verkalýðsfélaga, sem fyrir
fundinum stóðu. Niðurstaða hans
varð sú, að samþykkt var ein-
róma ályktunartillaga, þess efnis,
að hinir frönskumælandi Vallón-
ar í Suður-Belgíu skuli krefjast
sjálfsákvörðunarréttar í efnahags
■'legum og þjóðfélagslegum efn-
um — sem virðist nánast jafn-
gilda því, að krafizt sé stofnunar
' meira eða minna sjálfstæðs ríkis
íiVallóna. I>ví var lýst yfir, að
jfundarboðendur litu á sig sem
'löglega fulltrúa meirihluta vall-
ónska þjóðarhlutans. tTti fyrir
fundarihúsinu hafði verið hengt
upp stórt spjald með áletruninni:
„Vallóníu er nú nóg boðið". —
Akveðið var á fundinum að biðja
um áheyrn hjá Baldvin konungi
til þess að afhenda honum
ávarp, sem samþykkt var ein-
róma. I sérstakri tilkynningu var
sagt, að efni ávarpsins yrði ekki
kunngert fyrr en það hefði verið
afhent konungi.
i
i
★ JAFNAÐARMENN
*. SUNDRAÐIR
/ Áberandi klofningur gerir nú
vart við sig innan Jafnaðar-
mannaflokksins. 1 gærkvöldi hélt
Willy Schougens, framkvæmda-
stjóri hinnar vallónsku deildar
verkalýðssambands jafnaðar-
manna, ræðu í Liege, þar sem
hann réðst harkalega á forustu
sambandsins í Briissel fyrir að
hafa látið hjá líða að lýsa yfir
allsherjarverkfalli í öllu landinu.
Einnig gagnrýndi hann flokks-
forustuna fyrir að hún skuli
reyna að koma á málamiðlun við
ríkisstjórnina og að hún hefir
fallið frá kröfunni um, að sparn-
aðarfrumvarp hennar verði dreg
íð til baka skilyrðislaust. En í
Briissel samþykkti stjóm verka-
kýðssambands jafnaðarmanna
hins vegar í dag, að hún væri því
andvíg að beita allsherjarverk-
' falli í baráttunni.
★ HARÐORÐIR Á ÞINGI
j Búizt hafði verið við því, að
formaður Jafnaðarmannaflokks-
ins, Leo Collard, flytti „sátta-
ræðu“ á þingfundinum í dag.
Hann heimsótti Eyskens sem nú
iiggur sjúkur, fyrir fundinn —
en þegar hann mætti til fundar
©g fékk orðið, var hann harðorð-
ur. Sagði, að Eyskens hefði leitt
Jiandið „frá einni skyssunni til
'annarrar" — og, að þjóðin
Ætyddi ekki stjórnina lengur.
(„Það er því nauðsynlegt, að góð
fViljaðir menn komi saman til
•fundar án tafar og reyni í ein-
diægni að finna lausn vandamál-
enna“, sagði Collard. — Innan-
Lríkisráðherra, Rene Lefebvre (úr
iirjálslynda flokknum), sem kom
;íram fyrir hönd forsætisráð-
ílierra sagði, að stjóm sín væri því
samþykk, „að fram fari viðræð-
i«r innan vébanda þingsins milli
fcfulltrúa stjórnarinnar og andstöð-
unnar — eftir atkvæðagreiðslu
um sparnaðarfrumvarpið".
^ En Achille van Acker, fyrr-
um forsætisráðherra jafnaðar
manna, sem skoraði á báða
aðila að reyna að ná sættum
fyrir þrem dögum, stikaði nú
upp í ræðustólinn og sagði
með þjósti við stjórnarliðs-
menn: — „Ykkur var rétt vin-
arhönd um daginn — en nú
er þetta allt og sumt, sem þið
hafið að bjóða. Þið eruð einir
ábyrgir fyrir því, sem nú kann
að gerast. Já, látum ríkið bara
sundrast, meðan nokkrir
stjórnmálamenn eru önnum
kafnir við að fullnægja metn-
aðargirnd sinnii"
áfram að senda bandarískar
flugvélar, búnar eldflaugum
og vélbyssum, frá Vientiane
norður á bóginn, þar sem
vinstrimenn og Pathet Lao-
skæruliðar hafa aðalstöðvar
sínar — en stjórnin segir
flugvélarnar aðeins í æfinga-
flugi. — Liðssveitir stjórnar-
innar stefna að bænum
Xieng Khouang — og frétta-
menn eru margir þeirrar
skoðunar, að ekki sé langt
að bíða úrslitaátaka um
hina mikilvægu „Krukku-
sléttu“, sem fallhlífalið Kong
Le höfuðsmanns og skæru-
liðasveitir Pathet Lao hafa
á valdi sínu.
Franskur fréttaljósmyndari
hefur átt viðtal við Kong Le, og
sagði höfluðsmaðurmn m.a. að
hann væri fús til að hefja samn
inga um frið í landinu — þó með
því skilyrði, að Boun Oum for-
sætisráðherra segi áður af sér,
enda sé stjórn Souvanna Phouma
hin eina löglega stjórn landsins.
Kong neitaði því, að i landinu
væru nokkrar hersrveitir eða ein
stakir hermenn frá Kína eða
Norður-Vietnam — hins vegiar
störfuðu nokkrir tæknisérfræð-
ingar frá síðarnefnda landinu á
vegum liðs sáns. Ekki vildi hann
segja, hve margir þeir væru eða
hvert verkefni þeirra vœri. Höf
uðsmaðurinn kvaðst viss um sig
ur yfir hægrimönnum — en það
mundi ekki þýða, að kommún-
ísk stjóm yrði sett á fót i Laos,
enda kærði þjóðin sig ekki um
slíkt.
Franski ljósmyndarinn kvað
varnir á Krukkusléttu mjög öfl-
ugar, og mundi stjórnarliðum
væntanlega veitast erfitt að ná
hemii á síitt vald. Þá kvaðst hann
hafa séð rússneskar flugvélar
lenda þar, meðan hann stóð við.
Skiptapi
OSLÓ, 13. jan. fReuter) —
Óttazt er, að níu manns, átta
karlar og ein kona, hafi
drukknað, er vestur-þýzka
strandferðaskipið Miinster-
land ("427 lestir að stærð)
sökk sl. nótt á Skagerak.
I dag fundu leitarskip og
flugvéiar mannlausa björgun
arbáta og brak úr skipinu í
suðvesturátt frá Osló.
— Kongó
Framh. af bls. 1
nefndarinnaor, Justin Bomboko,
kváðu hadCa leyst úr harðri launa
deilu í Thysvilleherbúðu!num í
dag, eftir að kornið hafði til al-
varlegs ástands þar í gær, svo
að lá við uppreisn. Mobutu her-
stjórí hafði heimsótt herbúð-
imar áður en forsetinn kom þang
að. Lumumba var fangelsaður í
Thysville hinn 2. des s/L — og
töldu nú ýmsir, að erindi Kasa-
vubu þangað hafði verið að
ræða við Lumiumiba um ástandið
í Kongó Því var siðar neitað,
að sá hefði verið tilganglurinn.
En, sem fyrr segir, liggur í
loftinu, að eitthváð mikilvægt sé
á döfinmi, og rikir mikil eftir-
vaaiting og spenna í Leopold-
ville — sem ekki minnkaði við
frásögn hlaðsins „Prcsence
Congolaise“ um að herstyrkur,
hollur Lumumba, hyggist hefja
atlögu gegn borginni hinn 21.
þ.m.
★ Skutu á flugvél SÞ.
Frá Elisabethville í Katanga
'berast þær fréttir, að Lumnunba
hermenn hafi skotið á flugivél'
frá SÞ, sem flutti liðsstyrk til
Manono í norðurhluta fylkisins,
sem Lumumfoamenn hafa á valdi
sínu. Einn hermaður i fflugvél-
inni særðist og var fiuttur til
baka tad Eilsabethville — Einn
ig hafa Balubamenn tafið lest
frá SÞ með því að sprengja upp
brú í Bukama í Norður-Katanga.
IUarkaðserfiðleikar
fiskimjölsframleiðenda
rœddir á ráðstefnu í Róm í marzlok
Kaupmannahöfn, 13. janúar. —
(Einkaskeyti frá frétta-
ritara Mbl.) —
FAO, Matvæla- og landbún-
aðarstofnun Sameinuðu þjóð
anna hefir boðað til alþjóð-
legrar ráðstefnu í Rómaborg
úr 1,2 millj. í 1,9 millj- lesta
á tímabilinu 1954—1959, en eft-
irspurnin eftir vörunni hafi
ekki aukizt í neinu hlutfalli við
framleiðsluaukninguna. — Perú
tuttugfaldaði framleiðslu sina á
fyrrgreindu timabili, Chiie fjór-
faldaði hana, og Island, Dan-
mörk, Suður-Afríka og Sovét-
ríkin tvöfölduðu framleiðsluna.
— Þetta hafði í för með sér,
að miklar birgðir fiskimjöls
hrúguðust upp, og söluerfiðleik-
arnir ollu verðfalli á heims-
markaðinum. Urðu mörg lönd
að draga úr fiskimjölsfram-
leiðslu sinni á sl. ári af þess-
um sökum.
í lok marzmánaðar, og er
tilgangurinn að reyna að
finna íausn á vaxandi sölu-
erfiðleikum fiskimjölsiðnað-
arins í heiminum. — Ríkis-
stjórnir margra landa og
einstakir fiskimjölsframleið-
endur hafa beiðzt aðstoðar
FAO við að reyna að greiða
úr markaðsörðugleikunum.
Á Gífurleg aukning framleiðslu
Forstjóri efnahagsráðs fisk-
veiðadeildar FAO hefir greint
frá því, að dagsframleiðsla fiski
mjöls í heiminum hafi aukizt
Framhalds
Keflavík — Reykjavík
SVEEN B. JOHANSEN,
deildarstjóri talar um efni sem
er ríkt í huga margra á þess-
um tíma.
Fyrsta erindið nefnist:
FRELSI — KEPPIKEFLI
ALLRA.
— Hvað er að gerast í Afríku?
— Hvaða þýðingu hefur það?
Sunnudaginn 15. janúar.
í Aðventkirkjunni, Reykjavík
kl. 5 síðdegis.
f Tjarnarlundi, Keflavik
kl. 20,30.
SÖNGUR — TONLIST.
Velkomin
umræður um
Kongó
NEW YORK, 13. jan. (NTB-Reut-
er). — Belgía hlaut stuðning
Frakklands, er Öryggisráðið hóf
að nýju fund um Kongómálið í
morgun — en Rússar hafa kraf-
izt þess, að lýst verði yfir, að
Belgía sé árásaraðili, vegna þess,
að liðsmönnum Mobutus her-
stjóra í Leopoldville var fyrir
nokkru leyft að fara yfir vernd-
argæzlusvæðið Ruanda Urundi
til árása á liðsmenn Patrice Lu-
mumba í Kivuhéraði. — Franski
fulltrúinn kvaðst líta svo á, að
Belgir hefðu aðeins farið að til-
mælum Kasavubu forseta, sem
teljast yrði löglegur þjóðhöfðingi
Kongós.
★
Brezki fulltrúinn vísaði þeírri
ásökun Rússa á bug, að BeTgir
hefðu með athæfi sínu brotið
samninginn um rétt til verndar-
gæzlu í Ruanda Urundi — og að
SÞ sæju í gegnum fingur við þá.
Kvað hann óskiljanlegt, að Rúss-
ar skyldu bera fram slíkar ásak-
anir. — Hammarskjöld, sem kom
til New York í dag, eftir ferð
sína til Afríku, var viðstaddur
fundinn.
★
Við lok árdegisfundarins báru
fulltrúar Asíu- og Afrikuríkja
fram ályktunartillögu þess efnis,
að Belgir hafi gengið á svig við
verndargæzlusamninginn, og er
jafnframt tekið svo til orða, að
Belgir skuli hætta öllum aðgerð-
um gegn Kongó og flytja alla
hernaðarlega starfsmenn, tækni-
sérfræðinga og ráðgjafa frá land-
inu. — Að svo búnu var fundi
frestað, en boðaður að nýju í
kvöld. i
— Njósnamálin
Framh af bls. 1
— Fleira fólk er grunað í sam-
bandi við mál þetta, og hefir
Scotl-and Yard vakandi auga á
ferðum þess.
★
Njósnamál þetta er litið mjög
alvarlegum augum — og telja
margir það alvarlegasta atburð
af slíku tagi eftir að upp komst
um njósnir kjarnorkuvísinda-
mannsins Klaus Fuchs í þágu
kommúnista fyrir rúmum áratug.
MALFLUTNINGSSTOFA
Einar B. Guðmundsson
te Guðlaugur Þorláksson
P Guðmundur Pétursson
Aðalstræti 6, III hæð.
Sírnar 12002 — 13202 — 1360»-
Systir okkar
RAGNHEEOUR GRlMSDÓTTIR
frá Kirkjubóli
andaðist 9. þ.m. að Elliheimilinu Grund. — Kveðjuathöfn
fer fram frá Elliheimilinu Grund májiudag 16. þ.m. kL
2. Jarðað verður í Kollafjarðarnesi.
Systur hinnar látnu og aðrir vandamenn
Fósturmóðir okkar
ANNA ÓLFJÖRÐ
lézt að heimili sínu Lindargötu 62, föstudaginn 13. jan.
Albert Ólafsson, Páll Ólafsson,
Margrét Ólafsdóttir.
Eiginkona mín
RAGNHILDUR PJETURSDÓTTIR
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni, mánudaginn 16.
janúar kl. 10,30 f.h.
Blóm eru vinsamlega afbeðin.
Halldór Kr. Þorsteinsson
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð við fráfall og
útför mannsins míns,
SR. MAGNCSAR þorsteinssonar
Sérstaklega þakka ég bankastjóm og starfsfólki
Búnaðarbanka íslands fyrir virðingu og vináttu til hins
látna.
Ástríður Jóhannesdóttir
Innilegar þakkir til allra f jær og nær, sem sýndu okkur
vinarhug við andlát og jarðarför föður okkar
GlSLA JÓHANNSSONAR
skipasmíðameistara frá Bíldudal
Sigþrúður Gísladóttír,
Lilja Gísladóttir,
Jóhann L. Gíslason.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför eiginmanns, föður og tengdaföður okkar,
PÁLS B. MELSTEÐ
stórkaupmanns.
Bogi Th. Melsteð, Ingibjörg Þorláksdóttir,
Inga Melsteð Borg, Ragnar Borg.
Hjartans þakkir færum við öllum, sem sýndu okkur
vináttu og samúð í veikindum og við andlát og jarðar-
för eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR BIRKIS
söngmálastjóra þjóðkirkjunnar
Guðbjörg Birkis, Sigurður Kjartan^
Regina Birkis, Jón Gunnlaugsson,
Gunnlaugur Jónsson.