Morgunblaðið - 10.02.1961, Side 1
24 síður með EHarnaSesbók
Árás á forseta
Sovjetríkjanna
Moslcvu, 9. febrúar.
— (NTB/Reuter) —
ANDREI Gromyko, utanríkis
ráðherra Sovétríkjanna, a£-
henti í dag sendiherra
Frakka í Moskvu harðorð
mótmæli vegna þess, að því
er segir í orðsendingunni, að
frönsk herflugvél hafði hafði
sveimað kringum rússneska
farþegavél og skotið tvívegis
á hana. En í rússnesku vél-
inni var Leonid Brezhnev,
forseti Sovétríkjanna, sem er
á leið í opinbera heimsókn
til Guineu.
Blaðafulltrúi Frakka í Alsír,
Jacques de Frejac, skýrði frá
J>ví í þessu sambandi að rússnesk
flugvél, sem síðar ihafi komið í
Ijós að var flugvél Brezhnevs,
hafi flogið inn á eftirlitssvæði
Frakka, sem takmarkast af 38.
Otfasf um
Lumumba
Brússel 9. febr.
— NTB-Reuter.
OPINBERIR aðilar í Belgiu
hafa hvorki viljað staðfesta
né afneita þeim orðrómi sem
undanfarið hefur gengið
manna á meðal í Brússel,
að Lumumba væri ekki leng
ur á lífi. Talsmaður Afríku-
deildar utanríkisráðuneytis-
ins sagði í dag að ráðuneyt-
ið gæti engar upplýsingar
gefið.
Fulltrúi belgiska námufé-
Iagsins Union Miniere, sem
rekur umfangsmikla starf-
semi í Katangahéraði, þar
sem Liumumba hefur undan-
farið verið í fangelsi, neit-
aði algjörlega þeirri frétt að
fyrirtækið hafi fengið fjar-
ritaraskeyti um að Lumum-
ba væri látinn. Hann bætti
því við að hann hefði engar
nýjar fréttir fengið varðandi
Lumumba.
Talsmaður SÞ í Leopold-
ville sagði aðspurður í dag
að hann vissi ekki hvort
Lumumba væri lífs eða Iið-
inn. „Við vitum ckki einu
sinni hvar hann er“, bætti
hann við.
breiddarbaug. Sagði hann að
rússneska vélin hafi ekki verið
á venjulegri flugleið, og strax
og hún sást frá frönsku radar-
stöðvum hafi þrjár franskar or-
ustuflugvélar verið sendar á
vettvang. Ein flugvélanna hafði
svo skotið aðvörunarskotum að
flugvél forsetans, sem aldrei svar
aði þótt kallað væri í hana um
talstöðvar á þeirri bylgjulengd,
sem henni bar að hlusta á. En eft
ir aðvörunarskotin breytti flug-
vélin um stefnu og flaug út fyr
ir eftirlitssvæðið.
Hörmufegt slys fyrir vestan:
Tveir ungir menn f órust
af báti frá Bolungarvík
Botungarvík, 9. febrúar.
ÞAÐ hörmulega slys varð
hér í morgun, að tvo unga
sjómenn tók út af mb. Krist-
jáni Hálfdáns, þar sem hann
var að veiðum út af KögrL
Guðmundur Þórðarson
Mbl. tókst ekki að fá mynd af
Þórarni heitnum Sigurgeirssyni í
gærkveldi.
Mennirnir, sem fórust, voru
báðir ókvæntir — og hétu: Guð
mundur Birgir Þórðarson, 19
ára, vélstjóiri á bátnum, sonur
Þórðar Hjaltasonar, símstjóra og
sveitarstjóra hér og konu hans
Kristínar Guðmundsdóttur. Hinn
var Þórarinn Sigurgeirsson, 21
árs, sonur Sigurgeirs Sigurðsson
ar, skipstjóra, og konu hans Mar
grétar Guðfinnsdóttur. Hann var
bróðir skipstjórans á Kristjáni
Hálfdans og fór í sjóferð þessa í
forföllum annars.
Báðir voru þetta hinir efni-
legustu menn og ríkir almenn
sorg í Bolungarvík vegna atburð
ar þessa.
Voru að draga línuna.
Tildrög slyssins voru þau, að
mb. Kristján Hálfdans, sem er
52 tonn að stærð (hét áður Einar
Hálfdans) lagði af stað í róður
héðan upp úr kl. 10 í gærkveldi.
Brim var þá hér allmikið, en
veður ekki tiltakanlega vont. Var
línan lögð út af Kögri, um
tveggja tíma siglingu úr mynni
Djúpsins.
Upp úr kl. 4 um nóttina byrj-
aði að hvessa og þá rétt á eftir
var farið að draga línuna. Klukk
an um 7 um morguninn varð
slysið. Skipstjórinn Jón Eggert
Sigurgeirsson, bróðir Þórarins
heitins, var einn í stýrishúsinu.
Fyrsti vélstjóri, Hermann Jakobs
son, í vélarrúminu, Hrólfur Ein-
arsson, háseti við spilið, en Ingi
Frh. á bls. 2
NÝLEGA kom til óeirða og
mótmæla í Róm vegna við-
ræðna ftala og Austurrikis-
manna um framtið Suður-
Tyról. Meðfylgjandi mynd
er af mótmælagöngu stúd-
enta, en á skiltinu stendur
Alto Adige (Suður Tyrol) er
ftalía.
Viðræður
WASHINGTON, 9. febr. (NTB.
Reuter) — Tilkynnt var í dag
að Harold Macmillan forsætis-
ráðherra Bretlands komi þang-
að hinn 4. april n.k. til óform-
legra viðræðna við Kennedy for-
seta. Home lávarður utanríkis-
ráðhe*ra kemur degi fyrr til
Wasihington og mun hann eiga
óformlegar viðræður við Dean
Rusk utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna.
Hafði ekkert frétt
STÓRBLAÐIÐ New York Times
mun hafa greint frá því, að banda
ríski sendiherrann hér, Tyler
Thompson, yrði bráðlega sendi-
herra lands síns í Marokko. MibL
átti tal við bandarísku upplýs-
ingaþjónustuna í gær og var
tjáð, að hvorki upplýsingaþjón-
ustan né sendiherrann hefðu
fengið nein boð þar að lútandi.
Mý stjórn ■ Kongó
Leopoldville, Kongó, 9. febr.
—• (Reuter) —
JOSEPH Kasavubu, forseti
Kongó, tilkynnti í dag, að ný
ríkisstjórn hefði tekið við
völdum í landinu og leyst af
hólmi stjórnarnefnd þá, er
ríkt hefur undanfarna fimm
var forseti öldungadeildar
þingsins, og náinn samstarfs-
maður Kasavubus.
Justin Bomboko verður áfram
utanríkisráðherra, en hann hef-
ur gegnt því embætti í öllum
ríkisstjórnum landsins frá því
Kongó fékk sjálfstæði hinn 30.
júní sl.
Meðal annarra ráðherra eru
Jean Boltikango, fulltrúi frá
Equator-héraði, sem verður að-
stoðar-forsætisráðherra og upp-
lýsingamálaráðherra.
Sveik landið og þjóðina
Er Kasavubu tilkynnti skipan
Framh. á bls. 23
HótelbruniíSviss
Stjórnarskipti á
döfinni í Laos
Viðræður hefjast fljótlega
Lucerne, Sviss, 9. febrúar.
•— NTB/Reuter) —.
ELLEFU manns biðu bana
er Grand Hotel í Itigi-Kalt-
bad nálægt Lucerne brann
til kaldra kola í nótt. Sex
hinna látnu voru svissneskir
gestir hótelsins, hinir starfs-
menn þess. 120 gestir og 70
starfsmenn voru í hótelinu er
eldurinn brauzt út.
Hótelstjórinn, Jacob Ryser,
beið bana í eldinum eftir að
hafa bjargað fjölda gesta út úr
hótelinu. Eldsins varð vart um
þrjú leytið um nóttina. Voru
þá nokkrir síðbúnir gestir stadd
ir í vínstúkunni og fundu
reykjarlykt. — Aðvöruðu þeir
hótelstjórann, sem strax tók að
aðvara gestina. Að tuttugu mín-
útum liðnum voru allir gangar
fullir af reyk. Margir gestanna
voru bornir út meðvitundar-
lausir. 40 mínútum eftir að
eldsins varð vart, stóð hótelið í
logum. Þrátt fyrir það hélt Rys-
er hótelstjóri áfram að bjarga
gestum úr bálinu. í síðustu
ferðinni hrundi hótelið yfir
hánn.
mánuði. — Forsætisráðherra
hinnar nýju stjórnar er Jos-
eph Ileo, sem einnig var í
forsæti síðustu stjórnar, og
er stjórnin skipuð fimmtán
þingmönnum. — Eftir er að
skipa í fimm ráðherraemb-
ætti.
Almennt er litið þannig á,
að stjórnarskiptin séu til-
raun til að styrkja aðstöðu
Kasavubus gagnvart öryggis-
ráði SÞ, sem ræðir Kongó-
málið um þessar mundir, og
sagði forsetinn að Kongóþing
yrði kvatt saman að nýju
„eins fljótt og mögulegt er“.
Joseph Ileo er 39 ára og
Vientiane, Laos, 9. febrúar.
— (NTB/Reuter) —
INNAN skamms mun ríkis-
stjórn hægrisinna í Laos
ræða möguleika á því að
mynduð verði ný ríkisstjórn
í landinu með þátttöku Pat-
het Lao-kommúnista, til að
binda endi á borgarastyrjöld-
ina í Laos.
Savang Vatthana konungur
er væntanlegur til Vientiane á
morgun og verður ríkisstjórnar-
fundurinn haldinn fljótlega eft-
Frh. á bls. 2