Morgunblaðið - 10.02.1961, Blaðsíða 23
Föstudagur 10. febrúar 1961
MORCVNBLAÐ1Ð
23
— Togaramenn
Framh. af bls. 24.
arana? — Jú, það er skotist vest-
ur á Nýfundnalandsmið og reynt
í nokkra daga. Vegna þess hve
aðstaðan er margra hluta vegha
erfið eins og leitinni er háttað,
verður þetta að mínum dómi
Guðmundui
Sæmundsson
70 úru
MIG langar til að senda þér,
vinur og frændi, örfáar línur.
Og vegna þess að þú segist
vera sjötugur í dag, sendi ég
þær á þennan hátt. Æviferil
þinn hirði ég ekki að rekja, og
þeir, sem þekkja þig, kannast
við hann.
Átján börn í álfheimum, sagði
karlinn. Þú eignaðist 19, að vísu
ekki í álfheimum. Við höfum
ekki haft neinar sagnir af álfa-
börnum, en þín börn þekkjum
við, og fyrir þau þarft þú ekki
að skammast þín.
Þú eignaðist tvær konur.
Aðra misstir þú, hina átt þú
enn, og ég vonast til að hún
lifi þig. Þessar tvær konur hafa
gert þér lífið léttara, með frá-
bærum mannkostum. Ég held að
ég skrifi þér ekki meira í dag,
kæri frændi, en ég held að það
sé misskilningur að þú sért sjö-
tugur í dag, en þú um það. —
Deir fé, deyja frændur, en orð-
stír deir aldregi, þeim sem góð-
an getur. P. F.
meira og minna kák. Því geta
togararnir ekki fengið sér til að-
stoðar skip eins og t. A. síldveiði-
flotinn fær og öllum þykir sjálf-
sagt?
>(!)> Hagsmunamál þjóðarinnar
Það er skoðun okkar að víð-
ar séu fiskislóðir en hér við
landið. Og þá dettur mér í
hug, sagði Markús skipstjóri,
því ekki taka einhvern tog
aranna sem nú iiggja í reiðu-
leysi vestur í Þanghafi og
senda þá til fiskileitar fyrir
togarana.
Eg er einn af þeim togara-
mönnum, sem ekki er undir það
búinn enn sem komið er, að gef-
ast upp þótt í móti blási. Það
hlýtur að vera hagsmunamál þjóð
arinnar að togararnir komi að
sem mestum notum og þeir geti
skapað mikla og arðvænlega at-
vinnu í landi, þar sem við höf-
um á undanförnum árum komið
upp miklum frystihúsum. a
Fjarlæg mið er ekki hægt að
stunda á togurunum okkar, til
ísfiskveiða, nema þar sé nokkurn-
veginn rakin aflavon. Eins og
stendur getur þorri flotans ekki
verið meir en vikutíma að veið-
um á sjálfu veiðisvæðinu t. d.
vestur við Nýfundnaland, vegna
takmarkaðra eldsneytisbirgða.
Stöðug leit
Þetta er ekkert smámál
skal ég segja þér, sagði Mark-
ús Guðmundsson og bætti við.
— Það er lágmarkskrafa
þeirra manna sem ennþá
starfa á togaraflotanum, að nú
verði brugðið skjótt við. —
Skip verði haft til taks næsta
vor, skulum segja eigi síðar
en í apríl, til þess að hefja
skipulega og stöðuga leit að
nýjum fiskimiðum á fjarlæg-
um slóðum. Það skip, sá tog-
ari, skulum við segja, getur
auðveldlega tekið vistir og
hvcrskonar nauðsynjar erlend
is, eftir hvar henta þykir í
hvert skipti. Ófært er með
öllu að láta leitarskipið þurfa
að sigla alla leið til íslands
eftir nauðþurftum til skips og
áhafnar.
— Og hvað er Marzinn með
mikið?
— Eg veit það ekki — þetta
var sáralítið, skulum segja 130
til 140 tonn.
Og í dag mun Markús Guð-
mundsson enn leggja frá bryggju
hér í Reykjavík á veiðar.
— Handknattleikur
Framh. af bls. 22
liðið fagni auðveldlega sigri. Kem
ur þar fyrst og fremst til margra
mánaða samæfing m.a. tíðar æf-
ingar í salnum í Keflavík. Að
því leyti til er sem landsliðið
leiki á heimavelli en margir
hinna stíga þar nú í fyrsta sinn
fæti á gólf. Hins er líka að gæta
að um enga samæfingu hefur ver-
ið að ræða hjá liðsmönnum
„pressuliðsins".
Hvernig er liðið undirbúið?
Það verða án efa margir sem
vilja fylgjast með lokaæfingu
landsliðsins. Brottför til lokaá-
taka heimsmeistarakeppninnar er
á næsta leiti og verður fróðlegt
að sjá hvernig undirbúningur
liðsins hefur tekizt, en hann hef-
ur verið reynt að vanda sem bezt
eins og lesendum Mbl. er kunn-
ugt af fréttum.
Ferðir verða suðureftir með á-
ætlunarbílum frá BSÍ. Það er
óhætt að hvetja alla til að sjá
leikinn. Það fer vel um fólk á
góðum áhorfendabekkjum þessa
stærsta íþróttahúss á landinu.
og iangömmu sé nú sárt saknað,
munu þó aliir, bæði vinir og
vandamenn gleðjast vfir því, að
sigurinn er unninn og fjötrar
líkamans leystir. og kveðja hina
látnu í öruggri von um, að hún
vakni í butu frá nýrunnum degi
á æðra sviði tilverunnar, þar
sem henni verður fagnað af áður
horfnum ástvinum og nýtt starf-
svið bíður.
Far þú í friði,
friður guðs þig blessi.
Margrét Jónsdóttir
— Kongó
Framh. af bls. 1
hinnar nýju ríkisstjórnar, sagði
hann meðal annars, „að hann
hefði svipt ríkisstjórn Lumumba
völdum í september sl. vegna
þess að hún hafi „svikið landið
og þjóðina". Sagði hann að her-
inn hefði aftur komið á friði.
En algjör einkaréttindi sérhverr
ar ríkisstjórnar væri að við-
halda friði og verja landið. Er
litið á þessi ummæli sem að-
vörun til Öryggisráðsins um • að
láta ekki verða úr því að af-
vopna Kongóher.
Mobutu, sem Kasavubu skip-
aði yfirmann hersins í síðasta
mánuði, var fjarverandi frá Leo
poldville í dag. Hann er sagður
vera í Equator-héraði, en þang-
að er nú verið að flytja herlið
og vistir upp eftir Kongófljóti,
bersýnilega- til að hefja nýja
sókn gegn stuðningsmönnum
Lumumba í Orientale-héraði.
— Skibamenn
Framhald af bls 22.
unum. Þar hefðu þeir lýst á-
nægju sinni yfir dvölinni og
hrifni yfir öllum aðstæðum til
æfinga og lærdóms.
Kristinn Benediktsson frá fsa-
firði hefur verið annars staðar
og m.a. keppt á einhverjum mót-
um. Fréttir bárust af honum í
Migeve á dögunum þar sem hann
stóð sig eins vel og beztu menn
Norðmanna, Svía og Finna. Síð-
an var för hans heitið til Ítalíu
á svonefnt Tre-Tre mót og síðan
hyggst hann fara til Sviss á mót
þar.
— Minningarorð
Framh. af bls. 17.
vinátta milli þessa tveggja heim-
ila. Minnist ég þeess, að ég fylgdi
eitt sinn föður mínum, sem var
hér á ferð, á fund Konkordíu að
Varmahlíð, en svo nefndu þau
Björg og Sigurður lögregluþjónn
býli sitt í Eskihlíðinni. Höfðu þau
Konkordía og faðir minn þá
margt að ræða.
Konkordía Var bókhneigð og
Ijóðelsk og hafði yndi af ætt-
vísi og þjóðlegum fróðleik og las
jafnan niikið meðan henni ent-
ist nokkurt þrek. Stytti það
henni án efa margar stundir eft-
ir að hún kom hingað til Reykja-
víkur, því að hún var tíðast við
rúmið, sem kallað er. Dóttir
hennar hefir sagt mér, að á upp-
vavtarárum sínum bafi móðir
sín haft á hendi afgreiðslu lestrar
féiagsbóka sveitarinnar að hálfu
leyti — og lagt það á sig þrátt
fyrir heilsuleysið, vafalaust með
fram til þess að komast yfir
sem flestar bækur til að lesa.
Mér kom Konkordía heitin
þannig fyrir sjónir, að hún hafi
verið væn kona og kurteis, ó-
venju hógvær og prúðmannleg
kona, sem bar sjúkdómsböl sitt
með stillingu, án þess að mögla.
En drottinn leggur líkn með
þraut. Fegursti sólargeislinn í
lifi Konkordíu var áreiðanlega
einkadóttirin, sem seint og
snemma varð henni stoð og
stytta. Og á heimili hennar og
dótturdóttur sinnar átti hún jafn
an óbrigðult skjól eftir að hún
varð ekkja og naut þar frábærr-
ar ástúðar og umhyggju, og hin
síðari árin þarfnaðist hún vissu-
lega engu minni umönnunar en
ómálga barnið.
En eliir dagar eiga kvöld um
síðir. Nú er hinn iangi dagur
sjúkdóms og þrauta liðinn. Og
enda þótt góðrar móður, ömmu
Skrifstofur lögmanna verða
lokaðar
eftir hádegi í dag vegna útfarar
Dr. Ólafs Lárussonar, prófessors.
Lögmannafélag íslands
AÐALSKRIFSTOFAN, TJARNARGÖTU 4,
VERÐUR LOKUÐ
frá hádegi í dag vegna jarðarfarar
prófessors Ólafs Lárussonar
HAPPDBÆTTI HÁSKÓLA ISDANDS
Kæru vinir! Þakka ykkur hjartanlega alla astúðina
sem þið sýnduð mér sjötugum, með ánægjulegum heim-
sóknúm, höfðinglegum gjöfum og öðrum vinarkveðjum.
Helgi Ágústsson
Innilega þakka ég frændfólki mínu og vinum fyrir
gjafir, skeyti og allan hlýhug á áttræðisafmæli mínu.
Sigríður Jensdóttir
Iðnskólinn í Reykjavík
Kvöldnámskeið fyrir húsasmiði og múrara, sem ætla
sér að sækja um löggildingu byggingarnefndar til
að standa fyrir byggingarframkvæmdum í Reykja-
vík, og fyrir þá, sem hlotið hafa slík réttindi, hefst
mánudaginn 27. febrúar n.k. kl. 20,30.
Innritun fer fram í skrifstofu skólans á venjulegum
skrifstofutími til 24. febrúar. Námskeiðsgjald, kr.
200.00 grerðist við innritun. — Náfnskeiðið er haldið
í samráði við byggingarnefnd Reykjavíkurbæjar.
Skólastjóri
Móðir okkar
GUÐNÝ ÞÓRÐABDÓTTIR
Völlum, Bústaðabletti 10,
andaðist aðfaranótt 9. þ.m. — Jarðarförin ákveðin síðar.
Börnin
Eiginmaður minn
PÉTUB BOGASON
læknir
andaðist í dag, Hörsholm 8. febrúar
Lára Bogason
Sonur minn
INGIBERGUR KARLSSON
Karlsskála, Grindavík
verður jarðsunginn laugardaginn 11. febrúar. — Hús-
kveðja frá heimili hans, Karlsskála kl. 1 e.h. — Ferð frá
Keflavík kl. 11,30 f.h.
Guðrún Steinsdóttir og aðstandendur
Jarðarför eiginmanns mins,
ÁRNA ÁRNASONAR
trésmíðameistara
fer fram laugardaginn 11. þ.m. og hefst kl. 2 e.h. frá
heimili hans, Skólabraut 22, Akranesi. — Blóm eru
vinsamlegast afbeðin, en þeim sem vildu minnast hing
látna er bent á styrktarsjóð sjúkrahússins á Akranesi.
Fyrir mína hönd, barna og tengdabarna.
Margrét Finnsdóttir.
Alúðar þakkir til allra þeirra, er sýndu okkur samúð
og hluttekningu við andlát og útför
ÓLAFlU VILBORGAR HANSEN
Halldór Hansen
Halldór J. Hansen, Rebekka Hansen,
Kristín Þorsteinsdóttir, Halldóra Þórðardóttir
Sigrún Hansen, Sigbjörn Þórðarson
María Helgadóttir, Bjarni Jóhannesson
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu við andlát föður
okkar og tengdaföður
FRITZ H. BERNDSEN
frá Skagaströnd
Anna Berndsen, Hallgrimur Jónsson,
Henrietta Berndsen, Óskar Sumarliðason,
Clara Berndsen, Þórarinn Jónsson,
Elísabeth Berndsen, Jón Þórarinsson,
Jörgen Berndsen, Kristjana Lárusdóttir,
Hans Berndsen, Maggý Berndsen,