Morgunblaðið - 10.02.1961, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 10.02.1961, Blaðsíða 2
2 MORGUTSBLAÐIÐ Föstudagur 10. febrúar 1961 Cóður fiskafli fyrir vest- an og austan Patreksfirði, 9. fébrúar. AFLINN hefur verið góður að undanförnu, 7—12 lestir í róðri. Gæftir hafa verið góð- ar þar til í gær, en veðrið er að ganga niður. Héðan róa 6 bátar og 3 frá Tálknafirði. — Báðir togararnir eru að veið- um og munu sennilega sigla með aflann. — Fréttaritari. Siglufirði, 9. febrúar AFLI bátanna hefur verið sæmi- legur að undanförnu og gæftir allgóðar. Héðan róa 5 bátar og einn er í útilegu. Þeir hafa feng- Kvikmyndasýning Germaníu ENN verður kvikmyndasýning á vegum félagsins Germanía á morgun, laugardag, og þá sýnd- ar að venju frétta- og fræðslu- myndir. I fréttamyndunum er m. a. sýnt stúdentahverfi í Berlín, þar sem 600 stúdentar af ýmsu þjóðerni búa, enn fremur sjást dansmeist •arar frá ýmsum löndum, sem bera saman bækur sínar í Kre- feld á sL hausti. Fræðslumyndirnar eru tvær: Er önnur frá Bayern, héruðunum næst járntjaldinu, gegnt Tékkó- slóvakíu og Austur-Þýzkalandi, og sýnir með mörgum dæmum, hvílíkt óviðunandi ástand hefur skapazt með þessum nýtilkomnu gaddavírsgirtu landamærum. Hin fræðslumyndin er í litum og sýn- ir listaverk, byggingar o. fl. frá Rokókó-tímabilinu evrópska, skraut þess og lífsgleði, svo að unun er á að horfa. Var myndin tekin af tilefni listsýningar, er haldin var í Miinchen 1958 á veg- um Evrópuráðsins. ■Sýningin verður í Nýja Bíó og hefst kl. 2, e.h. Öllum er heimill aðgangur, börnum þó einungis í fylgd með fullorðnum. Senda Krabba- ineinsfélaginu ágóðann ÁRNESI, 8. febr. Ungmenna félagið Gaman og Alvara í Kinn sýnir um þessar mundir gamanleikinn Vekjaraklukk- una. Leikstjóri er frú Kolbrún Bjarnadóttir, Ystafelli. Leik- urinn vair sýndur á Hólma- vaði í Aðaldal og var gerður góður rúmur að. Allan ágóða af sýningunni mun félag- ið ætla að senda Krabbameins félagi íslands. Kváðust forráða menn ungmennafélagsins vona, að fleiri kæmu á eftir og styrktu Krabbameinsfélag ið. Mælist ' þetta framtak mjög vel fyrir hér í sveit. — Fréttaritari Dagskró Alþingis Efri deild: 1. Heimild til að veita Guð- jóni Ármanni Eyjólfssyni stýri- mannsskírteini, frv. — 1. umr. 2. Sala Þingeyjar í Skjálfanda fljóti, frv. — 1. umr. NeSri deild: 1. Ríkisreikningurinn 1959, frv. — Frth. 2. umr. (Atkvgr.). 2. Áfengislög, frv. — Frh. 1. umr. (Atkvgr.). 3. Samkomudagur reglulegs Alþingis 1961, frv. — 1. umr. (Ef leyft verður). 4. Hefting sandfoks og græðsla lands, frv. — 1. umr. 5. Ábúðarlög, frv. — 3. umr. ið 5—7 tonn að meðaltali, en komizt upp í 10 tonn í róðri. — Fréttaritari Hornarfirði, 9. febrúar AFLI hefur verið allgóður hjá bátunum að undanförnu, eða 7—9 lesiir að meðaltali í róðri. Héð- an róa átta bátar. Þeir fengu vonzkuveður í nótt, nokkrir töp- uðu línu, en veðrið er að ganga niður. — Fréttaritari. Neskaupstað, 9. febrúar. LANDLEGA var hér síðasta sól- Geysihrif ning á hljómleikunum HLJOMSVEIT bandaríska flug- hersins í Evrópu hélt fyrstu hljómleika sína hér í gærkvöldi — við geysímikla hrifningu. Meðal viðstaddra voru forseti Is- lands, menntamálaráðherra og sendiherra Bandaríkjanna. Eitt íslenzk lag var á efnisskránni, Brennið þið vitar eftir Pál Isólfs- son. Tónskáldið var hyllt er lag- ið hafði verið leikið og hljóm- sveitarstj órinn, Gapt. Gabriel kvaddi sér hljóðs. Sagðist hann fagna því að vera búinn að fá íslenzkt lag á hina alþjóðlegu efnisskrá og vonaðist hann til að það yrði þar áfram.. Þessi 50 mahna hljómsveit fer víða og er Island 23. landið, sem hún heim- sækir. — Hljómsveitin varð að leika þrjú aukalög, og lófataki ætlaði aldrei að linna í lokin._ Aðrir tónleikar eru í Austurbæj- aibíói i kvöld kl. 7,10 og þeir þriðju á morgun kl. 3 e.h. arhringinn, en sennilega verður róið í kvöld. Aflinn hefur verið góður, 7—9 tonn að meðaltali, Héðan róa nú 9 bátar. — Fréttaritari XV Bíldudal, 9. febrúar. AFLI hefur verið sæmilegur hér, 5—9,5 tonn í róðri og gæftir ágæt ar. Bátarnir eru þrír, sem róa héðan í vetur. — Fréttaritari. Isafirði, 9. febrúar BATARNIR hafa fengið reitings afla að undanförnu, síðustu dag- ana þó ekki nema 4—6 tonn í róðri, en hœst hafa þeir komizt uþp í 14 tonn. Gæftir hafa verið allgóðar. — Fréttaritari. Atkv. greidd um ölið 1. umr. lokið ÖLIÐ HITAÐI alþingismönnum enn í gær, er fyrstu umræðu um frumvarp Péturs Sigurðssonar var fram haldið. Hófust umræð ur í gser með því, að flutnings- maður lauk ræðu sinni frá þriðju deginum. Þá sagði Halldór E. Sigurðsson nokkur orð, en næst hélt Skúli Guðmundsson tölu í skopstíl. Var brosað að máli hans. Skúli mælti gegn samþykkt frv. Þá hélt Gísli Jónsson ræðu, en að lokum gerði flutningsmaður, Pétur Sigurðsson, athugasemd. Atkvæðagreiðslu um málið var frestað og fer hún væntanlega fram laust eftir klukkan hálftvö í dag. Diana Barrymore Kvikmyndin komin hingað — Maðkað hveiti Framh. af bls. 24. búðinni, er það var keypt þar. Síðan spurðist þetta hingað til Vopnafjarðar, og sem fyrr seg- ir, hafa húsmæður hér einnig fundið maðka í þessu ameríska hveiti. Mér er kunnugt um það, að tekizt hefur að halda ræktun hveitimaðksins það áfram, að úr púpunni hafa skriðið dökkleitar bjöllur. Hérðaslæknirinn hér, sem nú er á förum til Reykja- víkur, hefur tekið nokkra maðka og ætlar hann með þá til skordýrafræðinga í Reykjavík, svo að þeir geti ákvarðað hvers konar skordýr hér er um að ræða. — Sigurjón. SJÁLFSÆVISÖGU Diönu Barry more, Of mikið — of fljótt, lauk sem framhaldssögu hér í blaðinu í fyrradag. Sagan hefur verið — Sjóslysið Framh. af bls. 1 Hálfdánsson, stýrimaður og þeir tveir, sem fórust, voru að draga línuna við borðstokkinn stjórn- borðsmegin. y NA /S hnútar / SV SOhnú/or ¥: Snjófcomo » Oit (7 Shúrir K Þrrmur W:s KuUaaki/ ZS Hihikit H' HaÍ L* Laat Djúp lægð er nú yfir norð- anverðu íslandi, og veldur all hvassri V-átt á Suðurlandi með éljum og 1—2 st. hita, en hins vegar mun vera A-stór- hríð úti fyrir Norðurlandi. — Ný lægð er komin í ljósmál suður 1 hafi en hún mun hreyf ast í stefnu á Færeyjar, svo vindur mun verða NV eða N hér á landi með vægu frosti. Á Bretlandseyjum er 7—11 st. hiti, en vestan hafs er kalt í veðri, 11 st. frost í Goose ( Bay og 1 st. frost í New York. s Veðurspáin kl. 10 í gærkvöldi ) SV-land til Breiðafj. og mið • in: SV-kaldi og smáél fram á j s s s s s s s s s s s s nóttina en breytileg átt og síðan NA-gola og léttskýjað á morgun. Vestfirðir til Austfjarða og miðin. Hægviðri, víðast létt- skíjað. SA-land og miðin: Hægviðri og léttskýjað í nótt en NA kaldi og skýjað á morgun. Mb. Kristján Hálfðáns. Reið þá skyndilega mikið ólag yfir skipið, sennilega straumhnút ur. Flæddi sjór yfir bátinn með •þeim afleiðingum, að þá Guð- mund og Þórarin tók út. Eftir að ólagið hafði riðið yfir bátinn hékk Ingi á stagi á borðstokkn- um. Þaar hélt hann sér, en hinir tveir voru horfnir. Má það heita mesta mildi, að ekki fór enn verr. Miklar skemmdir. urðu á stýris- húsinu, nrúður brotnuðu, kompás inn hvarf n\eð öllu og genditæk ið bilaði, því ræsir sendisins fannst ekki á eftir. — Tvö þung anker, sesm lágu fram á, hurfu með öllu og ýmsar fleiri skemmd ir urðu á bátnum en aflinn, sem var á /þilfari, fór allur í sjóinn. Óðinn kom á vettvang. Mikill sjór kom í vélarrúmið, vélin gekk þó, en öll ljós biluðu á bátnum — að einu undanteknu, vinnuljósi í frammastri. Var bátn um siglt alllengi á slysstaðnum á hægri ferð, en öll leit að Guð mundi og Þórarni varð árangurs laus. Vb. Gunnvör frá ísafirði var þarna nærstödd, en veitti þessu ekki athygli fyrr en skipverjar á Kristjáni Hálfdáns komust í kall færi við Gunnvöru. Mun Gunn- vör hafa kallað upp varðskipið Óðin, sem kom á vettvang stuttu seinna, og dró bátinn til ísafjarð ar þar sem hann liggur nú. Jón Eggert, sem er aðeins 25 ára, tók við stjórn bátsins í haust og hefur reynzt hinn ágæt asti skipstjóri. Er þungur harm- ur kveðinn að vandamönnum hinna látnu og votta allir Bol víkingar þeim dýpstu samúð sína. — Fréttaritari. ákaflega vinsæl og í gær hringdu margir af lesendum blaðsins og spurðu hvort við vissum hvern- ig farið hefði fyrir Ðiönu Barry more eftir að sögunni lauk. Þau urðu örlög hennar, að hún fannst látin í rúmi sínu 26. janúar 19&0, 38 ára að aldri. Þá voru liðin tvö ár frá því hún skrifaði ævi- sögu sína. Árið 1958, skömmu eftir að sag an kom út í Bandaríkjunum, var hafizt handa um að kvikmynda ævi Diönu Barrymore, og var sú kvikmynd frumsýnd í Austur- bæjarbíói í fyrradag. DiönU Barrymore leikur Dorothy Mal- one, föður hennar, leikatrann John Barrymore, leikur Errol Flynn, sem nú er látinn. Kvikmyndin er byggð á sög- unni, sem Gerold Frank færði í letur. Leikstjóri var Art Napoleon. Strax í fyrradag var mikil að sókn að kvikmyndinni, enda sögu persónurnar þegar þekktar úr framhaldssögu Morgunblaðsins. — Laos Framh. af bls. 1 ir komu hans. Verður konungur sjálfur í forsæti á fundinum. — Bouavan Norasing, upplýsinga. málaráðherra, sagði á blaða. mannafundi í dag, að á fundin- um yrðu ræddar þrjár hugsan- legar leiðir til að koma á friði í landinu: 11 Myndun nýrrar ríkisstjórnar 2) með þátttöku Pathet Lao. Aukin áhrif núverandi ríkis- stjórnar með skipun fleiri ráðherra. 5) Eftirlitsnefndin frá 1954 verði —I aftur kölluð til Laos. Bouavan hafði það eftir Phoumi Nosavan hershöfðingja, sem er aðstoðar-forsætisráðherra og varnarmálaráðherra núver- andi stjórnar, að nú væru í La- os 15 herflokkar frá Norður- Vietnam, samtals um 12000 her- menn. Auk þess væru þar um eitt hundrað íússneskir tækni- fræðingar. Bouavan sagði, að margir unglingar í héruðum kommún. ista í Norður-Laos hefðu verið sendir til Norður-Vietnam, aðr- ir væru í nauðungarvinnu. Þá hefðu nokkur þorp verið brennd til grunna vegna þesa að íbúarnir höfðu barizt fyrir ríkisstjórnina. Ráðherrann kvað 500 hermenn vinstrisinna hafa gengið í lið með ríkisstjórninjy undanfarnar vikur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.